Morgunblaðið - 15.03.2000, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sameinuðust í söng
Ríkisstjórnin samþykkir að styrkja til-
raunaverkefni fslenskrar NýQrku ehf.
80 milljónir í
vetnisverkefni
TÓNLIST hvers konar hefur
löngum verið samofín kirkjunnar
starfí, leikin ellegar sungin eða
hvort tveggja. Gestir á skemmti-
kvöldi vistmanna á Hrafnistu f
SLÁTURFÉLAG Suðurlands ætlar
að ganga úr skugga um að engin sýk-
ing sé í gripum sem teknir verða til
slátrunar úr öllum sveitum Rangár-
vallasýslu neðan þjóðvegar vegna
hugsanlegrar salmonellusýkingar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins kom þetta fram í máli
Steindórs Skúlasonar, forstjóra SS,
Reykjavík urðu þessa áþreifan-
lega varir í gærkvöldi þegar bisk-
up Islands, hr. Karl Sigurbjörns-
son, tók lagið með ókrýndum
rokkkóngi þjóðarinnar, Bubba
á sameiginlegum fundi deilda í Vest-
ur-Skaftafellssýslu sem haldinn var
á Kirkjubæjarklaustri í gær.
Öryggisráðstafanir
Hefur verið ákveðið að tekin verði
sýni úr öllum sláturgripum á stóru
svæði í sýslunni í samvinnu við yfir-
dýralækni og að Sláturfélagið taki
Morthens. Sameinuðust þeir
Bubbi og biskupinn í söng eitt
andartak um Krummavfsurnar sí-
gildu. Krummi krunkar úti, kallar
á nafna sinn ...
ekki við gripum til slátrunar nema
staðfest hafi verið með sýnatöku að
gripimir séu heilbrigðir.
Á fundinum kom fram að Sláturfé-
lagið hefði ákveðið að grípa til þessa
ráðs af öryggisástæðum.
Tvö tilfelli salmonellusýkingar
hafa greinst í nautgripum og hross-
um á Suðurlandi í vetur.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gænnorgun að veita 80
milljónir króna í tilraunaverkefni um
nýtingu vetnis sem orkugjafa sam-
göngutækja. Þetta kom fram í sam-
tali Morgunblaðsins við Pál Magnús-
son, aðstoðarmann viðskipta- og
iðnaðarráðherra, en hann sagði að
fjármagnið yrði tryggt á fjárlögum
næstu þriggja ára og að það yrði eft-
ir atvikum í formi hlutafjárframlags.
Samkvæmt samþykkt ríkisstjórr.ar-
innar er fjárveitingin háð því að
heildarfjármögnun verkefnisins
verði tryggð, en heildarkostnaður er
áætlaður um 550 til 600 milljónir.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar
kemur í kjölfar kynningar íslenskr-
ar NýOrku ehf. á verkefninu fyrir
iðnaðarráðherra, en hugmyndir fyr-
irtækisins eru að gera tilraunir með
notkun vetnis sem orkubera í sam-
göngum. Fyrirtækið hefur m.a. í
hyggju að gera rannsóknir á notkun
vetnis í almenningsfarartækjum og
skipum, en fyrsta rannsóknarverk-
efni þess verður svokallað vetnis-
strætisvagnaverkefni. Undirbúning-
ur þess hefur staðið í eitt ár, en um
er að ræða fjögurra ára verkefni sem
stendur fram á árið 2003.
Tímamótaákvörðun
Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor
við Háskóla íslands og stjórnarmað-
ur íslenskrar NýOrku, sagðist vera
mjög ánægður með ákvörðun ríkis-
stjómarinnar.
„Þetta er auðvitað tímamóta-
ákvörðun því svona verkefni tekst
ekki nema með ákveðnu átaki stjórn-
valda,“ sagði Þorsteinn I. „Þetta er
eðlilegt framhald af þeirri stefnu rík-
isstjórnarinnar að undirbúa vetnis-
hagkerfi á Islandi.”
Verkefni íslenskrar NýOrku mið-
ar að því að þróa heildarlausn fyrir
rekstur á umhverfisvænu sam-
göngukerfi og felur m.a. í sér til-
raunaakstur á þremur vetnisstrætis-
vögnum knúnum efnarafalvél.
Þorsteinn I. sagðist álíta að þetta
verkefni væri lykillinn að framtíðar-
þróun vetnisvæðingarinnar.
Eins og fyiT var getið nemur
heildarkostnaður verkefnisins 550 til
600 milljónum króna og þar af er
áætlað að innlendir aðilar greiði um
240 milljónir. Hugmyndir eru uppi
um að þriðjungur af kostnaðinum
verði fjármagnaður af Evrópusam-
bandinu í formi styrkja og sagði Þor-
steinn I. að umsókn um styrk hefði
þegar verið send út. Sagði hann að
erfitt yrði að hrinda verkefninu í
framkvæmd án styrks.
Þyrla sótti
slasaðan vél-
sleðamann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
slasaðan vélsleðamann upp á Fróð-
árheiði á Snæfellsnesi um klukkan
sjö í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar
í Ólafsvík hafði maðurinn, sem er
rúmlega fertugur, lent í óhappi uppi
á heiðinni sem olli því að hann hlaut
innvortis meiðsl og því var ákveðið
að flytja hann til Reykjavíkur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Landspítal-
anum í Fossvogi er maðurinn á gjör-
gæslu og er líðan eftir atvikum.
Að sögn lögreglu var maðurinn
ásamt fjórum öðrum uppi á heiðinni,
og ók hann fremstur. Vegna slæms
skyggnis sá hann ekki um 4 metra
breiðan lækjarfarveg fyrr en of seint
og ók hann þvi út í farveginn með
þeim afleiðingum að hann og sleðinn
köstuðust upp í loftið og lenti maður-
inn með kviðinn á stýrinu.
SS ætlar að taka sýni úr sláturgripum í Rangárvallasýslu
Ekki slátrað nema
heilbrigði sé staðfest
Snjoþyngsli og ófærð valda fjölskyldunni í Breiðavík í Vesturbyggð erfíðleikum
Börnin hafa misst 5 vikur
úr skóla frá áramótum
ÞRJÚ börn hjónanna Keran S.
Ólasonar og Birnu Mjallar Atla-
dóttur, sem annast vitavörslu og
veðurathuganir í Breiðavík í Vest-
urbyggð, hafa ekki komist í skóla
samanlagt í fimm vikur frá sein-
ustu áramótum vegna ófærðar á
veginum milli Breiðavíkur og Ör-
lygshafnar.
Enginn sjómokstur fer fram á
þessari leið, sem er um 15 km löng,
nema á haustin og vorin. Hefur
Vörðubrekkan verið ófær flesta
daga á undanförnum mánuðum.
Algerlega ráðþrota
Birna og Keran segjast vera al-
gerlega ráðþrota vegna þessa
ástands og gagnrýna harðlega
sveitarstjórn og yfirmenn sam-
göngumála fyrir að aðhafast ekk-
ert þrátt fyrir ítrekaðar óskir
þeirra um úrbætur.
Keran og Birna fluttu að Breiða-
vík í apríl í fyrra með börn sín
þrjú á skólaskyldualdri, tvö eru í 9.
bekk og eitt í 2. bekk. Annast þau
vitavörslu í Bjargtangavita, veður-
athuganir og eru með fjárbúskap á
jörðinni Geitagili og í Breiðavík.
„Við gerðum okkur ekki grein
fyrir því þá, að við hefðum kannski
fyrst átt að spyrja bæjaryfirvöld
hvort það gengi upp fyrir okkur að
búa hér,“ segir Birna.
Að sögn hennar er vegurinn
ruddur einu sinni í viku frá Ör-
lygshöfn í Kollvík vegna mjólkur-
flutninga og einnig er mokað frá
Patreksfirði út í Örlygshöfn á
fimmtudögum.
Ráðamenn sýni
okkur skiining
Keran hefur nokkrum sinnum
flutt börnin á vélsleða í skólann en
að sögn Birnu er ófærðin stundum
svo mikil að ekki er einu sinni fært
á vélsleða á milli. Hún segir að
Orkubú Vestfjarða hafi þó tvívegis
rutt leiðina út að Breiðavík vegna
bilunar sem varð í spenni og þá
tekist að koma börnunum í skóla
en undanfarnar þrjár vikur hafa
þau setið heima vegna ófærðar.
„Hér erum við með veðurathug-
anir fimm sinnum á dag allt árið,
við sjáum um vitavörslu og við er-
um með skepnur. Við erum líka
með skólaaksturinn. Á sumrin tök-
um við á móti þúsundum ferða-
manna. Af þessu má sjá að við
skilum okkar til bæjarfélagsins,“
sagði hún.
Birna sagði að það sem þau færu
fram á væri að ráðamenn sýndu
skilning á þessu máli og að menn
settust niður til að leita sameigin-
legrar lausnar á vandanum.
Hafa þau haft samband við sam-
gönguráðherra, þingmenn, sveitar-
stjórnarmenn, starfsmann Vega-
gerðarinnar, sem allir hafi
daufheyrst við óskum þeirra, snúið
út úr orðum þeirra og jafnvel
gagnrýnt þau fyrir að búa í
Breiðavík með börn, að sögn
Birnu. Ekki væri að heyra á þeim
að það þætti neitt tiltökumál þó
börnin misstu af skóla. „Okkur
þætti vænt um ef talað yrði við
okkur eins og fólk,“ segir hún. „Ég
talaði við samgönguráðherra og
hann spurði hvort ég gæti ekki
kennt börnunum heima. Ekki
þætti mér nú verra að vera hér á
kennaralaunum, en hvað kostar
það bæjarfélagið?" segir Birna.
Sérblöð í dag
www.mbí.is
tmskm
Kvikmyndir - Fólk
Háifur mánuður
af dagskrá
frá míðvikudegi
tii þriðjudags
lígfej&l
► i Verinu í dag er m.a. sagt frá góðum árangri lce-
iandic UK og góðu árferði í kringum hafið við ísland.
Enn fremur er fjallað um f ullnýtingu aukaafurða og
forvitnast um aflabrögð íslenskra skipa í Barentshafi.
FH-stúlkur eru komnar í undan-
úrslitin /B2
Chelsea áfram eftir góðan úti-
sigur /B4
4SMJR
► Teiknimyndasögur
► Pennavinir
► Þrautir
► Myndir
► Leikir
► Úrslit