Morgunblaðið - 15.03.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Rætt um skýrslu sjávarútvegsráðherra um Kvótaþing
Lög um Kvótaþing
ekki náð tilgangi sínum
STARFSEMI Kvótaþings var í
brennidepli í umræðum um skýrslu
sjávarútvegsráðherra um Kvóta-
þing, Verðlagsstofu skiptaverðs og
takmörkun á flutningi aflamarks
sem fram fóru á Alþingi í gær. Kom
m.a. fram sú skoðun við umræðurn-
ar að leggja bæri Kvótaþing niður í
núverandi mynd enda hefðu
markmið sem sett voru við stofnun
þess ekki náðst.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra gerði í upphafi grein fyrir
skýrslu sem dr. Birgir Þór Runólfs-
son, dósent við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla íslands, hafði
unnið fyrir ráðherrann um áhrif
laga um Kvótaþing, Verðlagsstofu
skiptaverðs og takmörkun á flutn-
ingi aflamarks frá 1998, sérstaklega
með stöðu og möguleika einstakl-
ingsútgerðar í huga.
Rakti Árni forsögu þess að lögin
voru sett og kom fram í máli hans að
megintilgangurinn með því að setja
á fót Verðlagsstofu skiptaverðs og
Kvótaþing, ásamt nýjum takmörk-
unum á flutningi aflamarks, hefði
verið að gera viðskipti með afla-
mark sýnilegri og minnka mögu-
leika á að hægt væri að blanda sam-
an viðskiptum með aflamark og
viðskiptum með afla. Einnig hefði
legið að baki sú afstaða sjómanna að
þeir væru með einum eða öðrum
hætti að fjármagna kaup útgerða á
aflamarki.
Niðurstaða skýrsluhöfundar var
hins vegar sú að margt benti til að
sjómenn væru enn að taka þátt í
kvótakaupum og sagði Árni að þetta
væki upp spurningar um gagnsemi
Kvótaþings í núverandi mynd. Enn-
fremur hefði skýrsluhöfundur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að fyrir-
komulag Kvótaþings drægi úr
sýnileika viðskipta með aflamark að
því leytinu til að ekki lægi fyrir milli
hverra viðskipti ættu sér stað.
Alþingi
FYRIRSPURNATÍMI er á Alþingi í
dag og hefst þingfundur kl. 13.30.
Eftirfarandi mál eru á dagskrá
þingsins:
1. Stjórn veiða úr norsk-íslenska
sfldarstofninum, frh. 1. umræðu
(atkvgr.)
2. Póstburður, fsp. til samgöngu-
ráðherra.
3. Tækjabúnaður til að minnka
koltvísýringsmengun, fsp. til
samgönguráðherra.
4. Eldi þorsks og annarra sjávar-
dýra, fsp. til sjávarútvegsráð-
herra.
5. Sjúkrahótel, fsp. til heilbrigðis-
ráðherra.
6. Urbætur á aðstöðu öldrunar-
deildarinnar Ljósheima á Sel-
fossi, fsp. til heilbrigðisráðherra.
7. Aðgengi að getnaðarvarnarpillu,
fsp. 111 heilbrigðisráðherra.
8. Viðbrögð við þungunum ungl-
ingsstúlkna, fsp. til heilbrigðis-
ráðherra.
9. Reglur um sjúklingatryggingu,
fsp. til heilbrigðisráðherra.
10. Löggæsla í Mosfellsbæ og á
Seltjarnarnesi, fsp. til dóms-
málaráðherra.
11. Skráning afbrota, fsp. til dóms-
málaráðherra.
12. Heilbrigðisþjónusta við unga af-
brotamenn, fsp. til dómsmála-
ráðherra.
13. Eftirlit á skilorði, fsp. til dóms-
málaráðherra.
14. Gæsluvarðhaldsvistun barna,
fsp. til dómsmálaráðherra.
15. Viðbrögð við vandamálum sem
tengjast spilafíkn, fsp. til dóms-
málaráðherra.
16. Vinnuvólanámskeið, fsp. til iðn-
aðarráðherra.
17. Rekstur Reykjadals í Mosfells-
sveit, fsp. til félagsmála-
ráðherra.
ALÞINGI
Væri það álit skýrsluhöfundar að
fyrirkomulag Kvótaþings væri bet-
ur komið með svipuðu sniði og fyrir-
komulag Verðbréfaþings. Viðskipti
með aflamark ættu því að geta átt
sér stað jafnt innan sem utan slíkrar
kauphallar en þó með þeirri kvöð að
öll aflamarksviðskipti milli óskyldra
aðila séu tilkynnt til kauphallarinn-
ar og upplýsingar um þau birt þar.
Ólöglegt að láta sjómenn
taka þátt í kaupum eða
leigu á aflamarki
Fram kom í máli margra þing-
manna, sem tóku til máls við um-
ræðuna í gær, að þeir teldu skýrsl-
una sýna að lögin, sem sett voru
1998 í tengslum við lausn kjaradeilu
sjómanna og útgerðarmanna, hefðu
ekki náð tilgangi sínum. Guðjón A.
Kristjánsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, taldi m.a. alveg
óviðunandi að sjómenn væru áfram
látnir taka þátt í kaupum eða leigu á
aflamarki og benti hann á að þetta
væri hreinlega ólöglegt. Jóhann Ár-
sælsson, þingmaður Samfylkingar,
tók í sama streng og sagði að það
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir
frumvarpi til laga um breytingu á
lögum um stjóm veiða úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum en breyting-
in felur í sér að takmörkun á heimild
til flutnings aflahámarks verði aflétt
gagnvart þeim skipum sem stund-
uðu síldveiðar á viðmiðunarárunum
1995, 1996 og 1997 og skipum sem
komið hafa í þeirra stað. Á hinn bóg-
inn verði óheimilt að flytja aflahá-
mark af þeim skipum sem ekki hafa
stundað síldveiðar á viðmiðunarár-
unum eða komið í stað slíkra skipa.
í ræðu sjávarútvegsráðherra kom
fram að ástæða þess að dregin væra
skil á milli skipaflokka væri sú að
skv. lögunum ættu öll skip kost á
veiðileyfi og aflahámarki og að ef
heimilt yrði að framselja aflahá-
mark af þeim skipum sem nú fyrst
sæktu um leyfi til síldveiða mætti
búast við að sótt yrði um leyfi fyrir
mörg skip í þeim tilgangi einum að
flytja af þeim aflahámark. Sagði
Árni að þessar breytingar þrengdu
hins vegar ekki rétt nýrra skipa til
veiðiheimilda.
Við umræðu um frumvarpið sagði
Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður
Samfylkingar, m.a. að frumvarp
sjávarútvegsráðherra fæli í sér að
skip sem voru við síldveiðar á ár-
unum 1995, 1996 eða 1997 fengju
veiðiheimildir afhentar af hálfu hins
opinbera, án endurgjalds, og þyrftu
síðan ekki að veiða neitt en mættu
umsvifalaust selja allar þær veiði-
heimildir sem þau fengju.
væri brýnt verkefni sjávarútvegs-
forystunnar að laga þetta.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokks, var sammála því
að þó skýrslan leiddi ýmislegt já-
kvætt í ljós hefðu meginmarkmiðin
með stofnun Kvótaþings ekki náðst
og að ekki væri til staðar sátt um
verðmyndun sjávarfangs í sjávarút-
vegi. Kristján Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, tók enn dýpra í
árinni og sagði að sjávarútvegsráð-
herra yrði að horfast í augu við það
að þessi tilraun hefði mistekist og að
hann þyrfti að undirbúa löggjöf sem
legði Kvótaþing af. Einar K. Guð-
finnsson, flokksbróðir Kristjáns,
vildi ekki ganga svona langt en
sagði það þó vissulega möguleika að
niðurstaða manna yrði sú að rétt
væri að leggja Kvótaþing niður.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra sagði í seinni ræðu sinni að
því miður væri ekki hægt að lesa
annað úr skýrslunni en að staða ein-
staklingsútgerðar væri lakari nú en
áður. Hann sagði hins vegar að hér
væri fyrst og fremst um hagsmuna-
deilu milli sjómanna og útgerðar-
manna að ræða, sem þeir þyrftu að
leysa, þó að Árni tæki fram að hann
myndi sem sjávarútvegsráðherra að
sjálfsögðu fylgjast vakandi auga
með framgangi mála. Sagði hann að
skýrslan yrði í það minnsta grund-
völlur að umræðu um hugsanlegar
lausnir á ágreiningsefnum sjó-
manna og útgerðarmanna, umræðu
sem vonandi kæmi í veg fyrir að til
kasta Alþingis þyrfti að koma á nýj-
an leik.
Önnur skip sem fengju veiðiheim-
ildir en voru ekki við síldveiðar á áð-
urgreindum árum mættu hins vegar
ekki selja neitt, þau yrðu að veiða
allt. Spurði Svanfríður hvar jafn-
ræðisregla stjórnarskrárinnar væri
í þessu, og vísaði hún í máli sínu til
dóma sem fallið hafa í Hæstarétti og
Héraðsdómi Vestfjarða um flsk-
veiðilöggjöfína. Svanfríður boðaði
breytingartillögur við frumvarpið
en fram kom í máli hennar að hún
teldi líklegast að markmið fiskveið-
istjórnunar um hagkvæmar veiðar
og réttláta úthlutun veiðiheimilda
næðist með því að bjóða veiðiheim-
ildir í norsk-íslenska síldarstofnin-
um út.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, lýsti furðu sinni á
að sjávarútvegsráðherra teldi sig
knúinn til að gera þessar breytingar
nú þegar í hönd færi síðasta veiði-
tímabilið innan ramma gildandi
laga. Gagnrýndi Steingrímur að á
sínum tíma skyldu stjórnvöld hafa
tekið þann kost að búa til undarleg-
ar sérreglur um þessar veiðar í stað
þess að láta lög um úthafsveiðar
gilda, lög sem sæmileg sátt hefði
verið um. Lýsti Guðjón A. Krist-
jánsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, þeirri skoðun sinni að láta
ætti kerfið óbreytt enda lægi fyrir
að skv. lögum ætti að fara fram
heildarendurskoðun á lögunum um
stjóm veiða úr norsk-íslenska síld-
arstofninum fyrir 1. nóvember á
þessu ári.
Norsk-íslenski sfldarstofninn
Takmörkun á
flutningi aflahá-
marks verði aflétt
af sumum skipum
Fyrirspurnir til
stjórnar Oryrkja-
bandalag'sins
- Frá aðstoðar-
manni forsætis-
ráðherra
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi fyrirspurnir sem Orri
Hauksson, aðstoðarmaður forsæt-
isráðherra, hefur beint til Ör-
yrkjabandalagsins:
„Vegna umræðna undanfarinna
daga leikur foryitni á að vita af-
stöðu stjórnar Öryrkjabandalag-
sins til eftirfarandi atriða:
1. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að forsætisráð-
herra sé í andlegu ólagi, sem
ítrekað hefur komið fram í nafni
bandalagsins með fullyrðingum
um ójafnvægi hugans, persónuleg
vandamál og andlega vanlíðan hjá
ráðherranum?
2. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að forsætisráð-
heraa sýni einhvers konar fasíska
tilburði í velferðarmálum eða að
minnsta kosti að líkja megi stefnu
hans við stefnu Jörgs Haiders í
Austurríki?
3. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að notkun forsæt-
isráðherra á talnaefni eða gagn-
rýni hans á núverandi formann
Óryrkjabandalagsins jafngildi
mannfyrirlitningu eða lítilsvirð-
ingu í garð öryrkja?
4. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að þjóðkirkjunni
sé sýndur lítill sómi með því að
kristnihátíð verði á Þingvöllum?
5. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að skortur á póli-
tískum metnaði einkenni konur í
núverandi ríkisstjórn og þing-
meirihluta, að það sé eins og ekk-
ert annað komist að hjá þeim en
að laga hárið, varalita sig og
brosa, að þegar þær séu saman
komnar í verðmætum yfirhöfnum
verði lýsandi íyrir íslensk stjórn-
mál titill skáldsögunnar Haltu
kjafti og vertu sæt?
6. Styður stjórn Öryrkjabanda-
lagsins þá fullyrðingu að forsætis-
ráðherra hafí staðið að baki því að
MS-félagið hefur sagt sig úr Ör-
yrkj abandalaginu?
7. Er stjórn Öryrkjabandalags-
ins sammála því að ekki hafi mátt
lesa nein pólitísk skilaboð til fólks
úr hvatningu auglýsinga banda-
lagsins, stuttu fyrii' þingkosning-
ar sl. vor, um að kjósa ekki
óbreytt ástand?
8. Telur stjóm Öryrkjabanda-
lagsins að í tengslum við auglýs-
ingaátak þess hafi sú skírskotun
verið heppileg eða ópólitísk, sem
fólst í þátttöku talsmanns banda-
lagsins í fundaherferð eins fram-
boðs stjórnarandstöðunnar
skömmu fyrir kosningar?
9. Telur stjórn Öryrkjabanda-
lagsins að hagsmuna umbjóðenda
bandalagsins hafi verið vel gætt
með umræðunum og aðgerðunum
sem vísað er til í spurningum 1-8?
Með fyrirfram þökk,
Orri Hauksson,
aðstoðarmaður
forsætisráðherra."
• •
Formaður Oryrkjabandalagsins
Ekki skynsamlegí
að sækja forsætis-
ráðherra til saka
„í LJÓSI þeiraa viðbragða sem við
höfum fengið og stuðningsyfirlýs-
inga, sem berast hvarvetna að, þá
teljum við almenning fullfæran um
að meta sannleiksgildi ásakana í
garð bandalagsins eins og segir í yf-
irlýsingu framkvæmdastjórnar,"
sagði Gai’ðar Sverrisson, formaður
Öryrkjabandalagsins. „Við eram
ekld að hverfa frá neinu. Við ræddum
viðbrögð og eitt af því sem eðlilega
var rætt var dómstólaleiðin og við
teljum ekki skynsamlegt að sækja
forsætisráðherra til saka vegna
þessara ummæla. Við beram það
mikið traust til fólks og alls almenn-
ings að við teljum hann hafa allar for-
sendur til að vega þetta og meta.“
í yfirlýsingu framkvæmdastjórn-
ar Öiyrkjabandalagsins, sem send
var fjölmiðlum í gær, kemur fram að
stjórnin standi einhuga að baki for-
manni sínum og lýsi fullum stuðningi
við störf hans. Þá segir: „Varðandi
ásakanir forsætisráðherra í garð
bandalagsins telur stjórnin að al-
menningur sé fullfær um að meta
sannleiksgildi þeiraa með sinni heil-
brigðu skynsemi. Sýnu alvarlegra
telur framkvæmdastjórnin að ríkis-
stjórnin skuli enn á ný ætla sér að
breikka bilið milli tryggingabóta og
lægstu launa, og mun Öryrkjabanda-
lag íslands taka um það ákvörðun á
næstu dögum hvemig við þeim al-
varlegu tíðindum verður bragðist."
Morgunblaðið/Ásdís
Þakklátar gæsir?
FLESTUM börnum þykir afskap-
lega gaman að gefa fuglunum á
Tjörninni. Eflaust hafa gæsirnar a
tarna jafnmikið gaman af, þdtt þær
eigi erfiðara með að tjá tilfinningar
sínar. Þær rífa að minnsta kosti
brauðið í sig af áfergju, eins og
þessar tvær ungu manneskjur kom-
ust að þegar þær fóru með mömmu
sinni niður að Tjörn á dögunum.