Morgunblaðið - 15.03.2000, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 1 7
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Skapti
S
Niðurrif Isbjarnarhúsanna hafið
Seltjarnarnes
FRAMKVÆMDIR við niðurrif
gömlu Isbjarnarhúsanna við Suð-
urströnd standa nú yfir. I þessum
fyrsta áfanga er verið að rifa frysti-
klefann, sem er um 400 fermetra
rými, en það húsnæði hefur staðið
ónotað. Óskir hafa m.a. borist frá
fbúum um að þessar byggingar víki
enda lítið augnayndi að hafa slík
mannvirki í hjarta bæjarins. Til
stendur að rífa aðra hluta fsbjarn-
arhúsanna á næsta ári.
Þegar búið verður að rífa húsin
stendur eftir um 18 þúsund fer-
metra svæði. Ráðgert er að reisa
þar nýtt þjónustu- og íbúðar-
húsnæði og hyggjast bæjaryfirvöld
láta fara fram samkeppni meðal
arkitekta um skipulag á þessum
áhugaverða byggingarreit sem
óneitanlega býður upp á margs
konar möguleika.
Nýtt aðalskipulag í Kópavogi kynnt á næstu mánuðum
Byggð með tveimur grunn-
skólum við Vatnsenda
Kópavogur
5.000-6.000 manna byggð við Vatns-
enda með tveimur grunnskólum er
meðal þess sem er til skoðunai' við
endurskoðun aðalskipulags Kópa-
vogsbæjar, sem nú stendur yfir.
Borgarafundur til kynningar á
skipulaginu verður væntanlega hald-
inn fljótlega og þá verður auglýst
eftir tillögum og sjónanniðum al-
mennings til skipulagsvinnunnar, að
sögn Ólafs Brynjars Halldórssonar,
arkitekts hjá bæjarskipulagi Kópa-
vogs.
Hann segir að undirbúningsvinna
sé í gangi vegna endurskoðunar og
útgáfu nýs aðalskipulags Kópavogs
2000-2012.
Að lokinni kynningu og móttöku á
tillögum og sjónarmiðum almenn-
ings í sumar verði unnið úr þeim
næsta haust og nýtt aðalskipulag
væntanlega afgreitt og staðfest á
næsta vetri.
Ólafur Brynjar sagði að nú væri
verið að vinna aðalskipulag í fyrsta
sinn á grundvelli nýrra skipulags-
laga, sem gera ráð fyrir því að sjón-
armið almennings komi fram meðan
skipulagsvinnan er á hugmyndastigi
en ekki aðeins eftir að tillaga er lögð
fram. Auk þess ber ný löggjöf með
sér aukna áherslu á umhverfismál,
auk hefðbundinna viðfangsefna
skipulagsvinnu sem snúa að land-
notkun innan alls bæjarlandsins, þ.e
að segja til um áætlaða notkun lands
og skiptingu þess í íbúasvæði, stofn-
anasvæði, opin svæði, gatnakerfi og
fleira.
Hann sagði að nú kæmi til skipu-
lags síðasti hlutinn af svokölluðu
heimalandi Kópavogs, þ.e. svæðinu
frá Elliðavatni að Kársnesi.
Bæjarlandið að
mestu leyti mótað
Auk þess á Kópavogur land milli
Heiðmerkur og Bláfjalla, sem telst
fólkvangur og er háð vatnsvernd.
Einnig er nú unnið að svæðis-
skipulagi fyrir allt höfuðborgar-
svæðið og er niðurstaða þess skipu-
lags líklega ein af forsendum nýs
aðalskipulags Kópavogs, að sögn
Ólafs Brynjars.
Hann sagði að nýrra tíðinda með
skipulagi væri helst að vænta á
Vatnsendasvæðinu, að öðru leyti
væri bæjariandið að mestu leyti mót-
að.
Skipulagsnefnd og fræðslunefnd
bæjarins hefur þegar verið gerð
grein fyrir drögum að skipulagstil-
lögu fyrir 5.000-6.000 manna byggð í
Vatnsenda með tveimur grunnskól-
um. Áður hefur verið gert ráð fyrir
því, að sögn Málfríðar Kristiansen
hjá bæjarskipulagi Kópavogs, að þar
rísi um 5.000 manna byggð með ein-
um grunnskóla og auk fjölgunar
grunnskóla á svæðinu er verið að
endurskoða landnotkun á Vatnsenda
frá fyrra skipulagi, með tilliti til stað-
setningar íbúðasvæða, akstursleiða
og svæða fyrir opinberar stofnanir,
verslun og þjónustu. Formlegar til-
lögur f yrir svæðið liggja þó ekki fyr-
ir.
Ólafur Brynjai- sagði að stefnt
væri að þvi að samhliða kynningu á
aðalskipulaginu verði settar fram til-
lögur að afmörkun svæða í Austur-
bænum með hámarksökuhraða 30
km/klst.
Spurður hvort gert væri ráð fyrir
að land Lundar við Nýbýlaveg fengi
breytta landnotkun í nýju aðalskipu-
lagi sagði hann þau mál í biðstöðu.
Námsaðstoð
Grunnskólanemendur athugið!
Nú líður að samræmdu prófunum.
Erum með aðstoð í stærðfræði og undirbúum nemendur undir
samræmd próf. Nánari upplýsingar
www.tolst.com
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf., Brautarholti 4, sími 551 5593.
Nóatúni 4 • 105 Reykjavik • Simi 520 3000 • Fax 520 3011 • www.sminor.is
SMITH &
NORLAND
Smith & Norland
eykur enn vöruval sitt
og býður nú Fujitsu
Siemens gæðatölvur þar
sem japanskt hugvit og
hagkvæmni sameinast
þýskum gæðum og
nákvæmni.
Bjóðum einnig gott
úrval af prenturum og
faxtækjum frá Olivetti.
Skrefi
lengra
með Fujitsu Síemens
tölvum
www.mbl.is
A Ð A