Morgunblaðið - 15.03.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 15.03.2000, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sköllótta söng- konan í VMA Samþykkt skólanefndar að loka gæsluvöllum næsta haust Akvörðuninni mótmælt með undirskriftum FULLTRÚAR foreldra sem ekki vilja að gæsluvöllum á Akureyri verði lokað næsta haust afhentu undirskriftalista þar sem ákvörðun um lokun vallanna er harðlega mót- mælt. Sigurður J. Sigurðsson, for- seti bæjarstjórnar, og Oktavía Jó- hannesdóttir, formaður félagsmála- ráðs, tóku við undirskriftunum í viðtalstíma bæjarfulltrúa nýlega. Skólanefnd ákvað fyrir nokkru að loka völlunum frá og með næsta hausti þar sem aðsókn hefði minnk- að mikið á síðustu árum og ekki grundvöllur fyrir að halda úti rekstri þeirra. I kjölfar samþykktar skólanefndar hafa orðið nokkrar umræður, m.a. á umræðusvæði á heimasíðu Akureyrarbæjar. Forsvarsmenn undirskriftasöfn- unarinnar beina þeim tilmælum til yfirvalda að þau endurskoði afstöðu sína og benda meðal annars á hvort markaðssetning vallanna sé rétt og þjónustan sem í boði sé í samræmi við þarfir notendanna. Aftur til skólanefndar Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, sagði að skólanefnd myndi nú fá málið til umfjöllunar að nýju. Hann sagði að rætt hefði ver- ið um þá hugmynd að hafa einn gæsluvöll opinn yfir vetrartímann, þó svo að fólk yrði þá sumt að aka um nokkurn veg til að koma böm- um sínum í gæslu, en hún væri þá til staðar. Það myndi hins vegar ekki duga yfir sumarmánuðina að hafa einungis einn gæsluvöll opinn. „Það sjónarmið hefur nú komið fram, að þó aðsókn hafi minnkað að völlunum er hópur foreldra í bæn- um sem ekki nýtir sér leikskólana en kýs annars konar vist fyrir börn sín, eins og til að mynda gæsluvell- ina,“ sagði Sigurður. LEIKFÉLAG Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld, miðvikudagskvöldið 15. mars, leikritið Sköllótta söngkonan eft- ir Eugéne Ionesco. Höfundurinn fæddist í Rúmeníu árið 1909 og varð hvað þekktastur fyrir fram- Iag sitt til absúrdismans og telja reyndar sumir að hann hafi með leikritum sínum fundið hann upp, segir í frétt frá leikfélaginu. Sköllótta söngkonan er fyrsta leikritið sem hann skrifaði og það var eiginlega alveg óvart. Hann bjó í Frakklandi og var að læra ensku. Textinn í enskubókinni hans kveikti í honum og hann fór að skoða orð og meiningu þeirra eða öfugt. í þeim pælingum varð Sköllótta söngkonan til. Hann skrifaði meira en þrjátíu leikrit um ævina, þeirra á meðal voru Nashyrningarnir og Kennslustundin. Ionesco fékk alls kyns bókmenntaverðlaun og við- urkenningar í ellinni, en hann lést árið 1994. Frumsýning er sem fyrr segir í kvöld, en næstu sýningar eru á laugardag, 18. mars, og í næstu viku á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld en síðasta sýning er sunnudaginn 26. mars. Sýnt er í Gryfjunni í Verk- menntaskólanum á Akureyri, gengið inn að austan, og hefjast allar sýningar kl. 20.30. Stjórn Eyþings skorar á þingmenn og ríkisstjórn Serhæfð sjúkraflug- vél verði á Akureyri STJÓRN Eyþings, Sambands flugi ogrþæginda fyrir sjúklinginn, sveitarfélaga í Eyjafirði og Þing- eyjarsýslum, hefur skorað á al- þingismenn og ríkisstjórn að beita sér fyrir því að fengin verði sér- hæfð sjúkraflugvél til að sinna sjúkraflugi landsmanna og hún verði staðsett á Akureyri. Öll aðstaða og starfsfólk fyrir hendi I greinargerð með ályktun þessa efnis segir að sjúkraflug standi frammi fyrir miklum vanda og það valdi áhyggjum. Aðstæður í innan- landsflugi hafi breytst og áætlun- arflug til margra minni sveitarfé- laga á landsbyggðinni lagst af. Þar með hafi fótunum verið kippt und- an rekstrargrunni litlu landshluta- flugfélaganna sem áður sinntu sjúkraflugi. Litlu vélarnar, sem mest hafa verið notaðar í sjúkra- flug á undanförnum árum, eru úr sér gengnar og hverfa brátt af sjónarsviðinu. Nútíminn krefst aukins öryggis í segir 1 greinargerðinni. Þess vegna er lagt til að fengin verði vel út- búin sérhæfð sjúkraflugvél með jafnþrýstibúnaði til að sinna þessu aðkallandi verkefni. Bent er á að hagstæðast sé að hún verði stað- sett á Akureyri, sem sé miðsvæðis í sjúkraflugsverkefnum og væri rétt að byggja upp í tengslum við þau miðstöð sjúkraflug á Islandi með tilheyrandi sveitum flug- manna, sjúkraflutningamanna, lækna og hjúkrunarfólks. Öll að- staða og starfsfólk sé fyrir hendi á Akureyri og mikil reynsla í því að sinna sjúkraflugi. Ráðstöfun sem þessi myndi jafna mun á aðgangi að þessari þjónustu á milli íbúa á suðvestur horni landsins og íbúa landsbyggðarinnar. Fólk á suð- vesturhorninu hafí auðveldan að- gang að þyrluþjónustu með sér- hæfðri læknisþjónustu en sú þjónusta sem verið hefur fyrir hendi á landsbyggðinni stefni til verri vegar. Morgunblaðið/Björn Gíslason Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir Sköllóttu söngkonuna í kvöld í Gryíjunni. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga á Norðurlandi í samstarfi við PrícewaterhouseCoopers efnir til ráðstefnu á Akureyrí. Sameiningar fyrirtækja, auðveld sókn eða ofmetnar væntingar! Valinkunnir sérfræðingar og athafnamenn úr viðskiptalífinu lýsa reynslu sinni af sameiningum og samstarfi fyrírtækja. Framsögumenn verða: Jónatan S. Svavarsson rekstrarráðgjafi PricewaterhouseCoopers. Á eftir framsöguerindum veróa pallborósumræður þar sem þátt Hafa sameiningar staðist væntingar? taka frummælendur ásamt völdum sérfræðingum. Ólafur Marteinsson framkvæmdastjóri Þormóðs Ramma - Sæbergs. Sameiningar í sjávarútvegi - tækifærin að baki? Daníel Árnason framkvæmdastjóri AK0 Plastos. Sameinað fyrirtæki á Akureyri - styrkur í samkeppni? Jóhann Magnússon framkvæmdastjóri FBA ráðgjafar. Þáttur fjármálafyrirtækja i samrunaferli fyrirtækja. Hilmar Gunnarsson forstöóumaður þróunarsviðs 0z.com. Samstarf fyrirtækja í nýju viðskiptaumhverfi. PrICEWATeRHOUs^OOPERS (i Að loknum pallborósumræðum verður boðið upp á léttar veitingar. Ráðstefnan verður haldin á Fiðlaranum á Akureyri 4. hæð föstudaginn 17. mars 2000 kl 14:00 til 17:00. Þátttökugjald er 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir félagsmenn FVH og háskólanema. Skráning i sima 461 2740 eða í netfangi holmar@afe.is Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga hj Sendibfl stolið SENDIBÍL af gerðinni Toyota Hi- ace var stolið frá bænum Einarsstöð- um í Glæsibæjarhreppi aðfaranótt sunnudags. Bfllinn er rauður að lit og hefur einkennisnúmerið SL-267. Til bílsins sást á sunnudagsmorgun í Hvalfirði þannig að ætla má að hon- um hafi verið ekið suður á bóginn og geti verið einhvers staðar á Reykja- vfloirsvæðinu. Þeir sem orðið hafa bflsins varir eru beðnir að láta lög- reglu á Akureyri vita. Glerárkirkja Samveru- stund eldri borgara SAMVE RUSTUND verður í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 16. mars, kl. 15. Samveran hefst með helgi- stund en gestur hennar er Arn- ar Páll Hauksson. Að venju verða kaffiveitingar og tónlist- arflutningur og eru allir vel- komnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.