Morgunblaðið - 15.03.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 25
Reuters
*
Unsurnar og pundin
munu halda velli
London. Morgunblaðið.
Tígrisdýr
veldur usla
í Varsjá
BENGALTÍGRISDÝR olli miklum
usla í einu úthverfi Varsjár, höfuð-
borgar Póllands, þegar þrjú dýr
sluppu úr búri sfnu hjá sirkus
nokkrum í borginni í gær.
Mikill eltingarleikur átti sér stað
og lét dýralæknir, sem hafði ætlað
að svæfa tígrisdýrið, lífið þegar
hann varð fýrir byssuskoti lög-
reglumanns. Skotið var ætlað tígr-
isdýrinu, en það var síðar drepið af
lögreglunni. Eigendur sirkussins
sögðu að svo virtist sem tígrisdýr-
unum hefði verið hleypt út úr búri
sínu og sökuðu þeir dýraverndar-
samtök f Varsjá um að eiga þar hlut
að máli.
DAVTD STEPHENS, kjötkaupmað-
ur í Leigh-on-Sea í Essex, hefur lýst
yfir sigri í baráttunni gegn banni rík-
isstjómarinnar við notkun mæliein-
inganna punds og únsu, en um ára-
mótin áttu grömm og kílógrömm að
leysa þau af hólmi. Eftir miklar
vangaveltur hefur bæjarráð Sout-
hend-on-Sea ákveðið að höfða ekki
mál gegn kjötkaupmanninum og
byggist sú afstaða á lögfræðiáliti, sem
segir ólöglegt að neyða alla kaup-
menn til þess að taka upp kílógrömm-
in, hvað sem evrópulöggjöf líði.
Mál Stephens vakti mikla athygli
um mánaðamótin janúar/febrúar,
þegar stefndi í, að hann yrði íyrsti
brezki kaupmaðurinn, sem sóttur
yrði til saka fyrir að halda í brezku
mælieiningamai-. Hann sagðist þá
frekar fara í fangelsi en leggja af
pundin og únsurnar. Fylgzt var vel
með vangaveltum bæjarráðsmanna í
Sothend-on-Sea og hafði fjöldi manns
lýst sig reiðubúinn til þess að styrkja
Stephens í stríði hans og Brezka
mælieiningafélagið kvaðst svo sann-
fært um réttmæti málstaðarins, að
það lýsti sig reiðubúið tO þess að
standa straum af málskostnaði.
Sagt er að í herbúðum ríkisstjóm-
arinnar séu menn nú að kanna,
hvernig megi koma kílógrömmunum
á og kann að þurfa lagabreytingu til
þar sem brezku mælieiningamar em
staðfestar með lögum.
Samtök byssueigenda deila á
forseta Bandaríkjanna
Clinton „þarf“
ákveðið ofbeldi
Washington. AFP.
BILL Clinton, forseti
Bandaríkjanna, hefur
harðlega mótmælt þeim
ummælum forystu-
manns í samtökum
byssueigenda, að for-
setinn „þurfi“ á ofbeldi
að halda til að vinna
stefnumálum sínum
brautargengi.
Clinton hefur lagt
mjög hart að þinginu
síðustu daga að sam-
þykkja ný lög um
byssueign og einkan-
lega eftir að sex ára
gamall drengur skaut
jafnöldra sína í skóla í
Michigan. Eru samtök byssueig-
enda, NRA, andvíg nýrri löggjöf um
byssur og saka Clinton um að hafa
ekki framfylgt þeirri, sem nú gildir.
Clinton gagnrýnir NRA
Wayne LaPierre, varaforseti
NRA, sagði í viðtali við ABC-sjón-
varpsstöðina um síðustu helgi, að
Clinton þyrfti á að halda „ákveðnu
ofbeldi í þessu landi“. „Hann virðist
láta sér vel líka ákveðinn fjölda
manndrápa í því skyni að koma sín-
um málum fram og það á líka við um
varaforsetann," sagði LaPierre.
Clinton svaraði þessum orðum í
fyrrakvöld og sakaði NRA um að
vera andvíg öllum aðgerðum, sem
ykju öryggi þegnanna.
„Hann ætti að horfast í augu við
móður litlu stúlkunnar
eða fólkið, sem missti
börnin sín í Columbine,"
sagði Clinton og átti þá
við fjöldamorðin í skóla í
Colorado fyrir ári. Síðar
sagði Clinton, að það
virtist vera meginhlut-
verk NRA að koma í veg
fyrir samfélagslegar að-
gerðir, sem héldu byss-
unum frá glæpamönnum
og óvitum.
Heston hampað
NRA hefur verið sak-
að um að kynda undir of-
beldi með afstöðu sinni
til byssueignar og hefur reynt að
svara því með sjónvarpsauglýsing-
um þar sem forseta samtakanna,
leikaranum Charlton Heston, er
hampað en hann fór m.a. með hlut-
verk Mósesar í Boðorðunum tíu.
I auglýsingunum er ráðist á Clint-
on persónulega og hann sakaður um
að mistúlka markmið samtakanna og
eltast við löghlýðna byssueigendur í
stað glæpamanna.
Clinton hefur sagt um NRA, að
þar sé á ferðinni þrýstihópur, sem
„einskis svífist", og hafi átt sinn þátt
í að bola út af þingi ýmsum mönnum,
sem voru hlynntir auknu byssueftir-
liti. „Eg efast um, að kjósendur láti
blekkjast af krókódílstárum þessara
manna, jafnvel þótt Móses fari með
aðalralluna," sagði Clinton.
Bill Clinton
Réttarhaldið í Haag yfír Krstic, fyrr-
verandi hershöfðingja Bosníu-Serba
1 9 • ■ 1 9 • M A R S
Dulbjuggust
sem friðar-
gæzluliðar
Haag. AP, AFP.
LYKILVITNI í réttarhaldinu fyrir
Stríðsglæpadómstóli Sameinuðu
þjóðanna í Haag yfir Radislav
Krstic, fyrrver-
andi hershöfð-
ingja í her Bosn-
íu-Serba, lýsti því
fyrir réttinum í
gær, hvernig
serbneskir her-
menn dulbjugg-
ust sem alþjóð-
legir
friðargæzluliðar í
Radislav því skyni að villa
Krstlc um fyrir flótta-
mönnum úr röðum Bosníu-múslima
og lokka þá í gildru.
Krstic, sem er hæstsetti Bosníu-
Serbinn sem leiddur hefur verið fyr-
ir dómstólinn í Haag, á yfir höfði sér
lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og
glæpi gegn mannkyni fyrir þátt sinn
í fjöldamorðum á múslimum í og við
borgina Srebrenica, undir lok Bosn-
íu-stríðsins árið 1995. Saksóknarar
dómstólsins hyggjast sanna að
Krstic hafi stýrt þeim hersveitum
sem „hreinsuðu" borgina af múslim-
um. Hafa morðin í Srebrenica verið
nefnd versti glæpur framinn á
evrópskri grandu frá því í helförinni
gegn gyðingum í síðari heimsstyrj-
öld. Saksóknurum telst til að alls hafi
um 7.500, að mestu karlar og dreng-
ir, verið drepnir eða týnzt.
Jean-Rene Ruez, sem stýrði rann-
sókn Sameinuðu þjóðanna á Srebr-
enica-glæpunum, hóf annan dag
réttarhaldsins yfir Krstic með því að
útskýra hvað fyrir augu bar á
myndbandi, þar sem sást hvemig
serbneskir hermenn göbbuðu músl-
ima með því að nota búnað og ein-
kennisbúninga friðargæzluliðs SÞ,
sem þeir höfðu gert upptæka.
A myndbandinu, sem
Bosníu-serbneskur fréttamaður
gerði, mátti einnig sjá hvar músl-
imskur faðir kallaði á son sinn og
hvatti hann til að koma úr felum út
úr skóginum. Svo virtist sem faðir-
inn hefði verið að hlýða fyrirskipun-
um serbneskra hermanna um að
telja son sinn á að gefa sig fram.
Ekkert hefur spurzt til feðganna síð-
an.
Var yfirlýst „griðasvæði"
Srebrenica hafði verið lýst griða-
svæði SÞ, sem flóttamenn Bosníu-
múslima sóttu því sérstaklega til.
Bosníu-Serbar tóku borgina í
áhlaupi, söfnuðu saman öllum músl-
imum sem þeir fundu og sendu þá í
rútum út fyrir borgina, til Bratunac,
þar sem fjöldaaftökur fóra fram, eft-
ir því sem fullyrt er í ákæranni gegn
Krstic.
Til viðbótar við þjóðarmorð, alvar-
legasta glæpinn sem ákært er fyrir,
er Krstic ákærður fyrir glæpi gegn
mannkyni og brot á alþjóðareglum
um stríðsrekstur, þ.e. stríðsglæpi.
Ákæraskjalið er í átta liðum, og
verði hann fundinn sekur um eitt-
hvert ákæruatriðanna á hann yfir
höfði sér lífstíðardóm.
Krstic hefur lýst sig saklausan af
öllum ákærum.
Taktu forskot á vorsæluna!
Fá&u fallegar vorvörur á frábæru verði,
njóttu Ijúfra veitinga og þigg&u gó&a
þjónustu á Kringlukasti.
MYiikR VOKUR
mei sérstökum aisiætti
20%-50%
Fylgstu vel með sérkjörunum!
Nokkrar verslanir og þjónustuaöilar
veita dag hvern 15% viðbótarafslátt
af sérvaldri vöru eða þjónustu
ofan á Kringlukastsafsláttinn.
Kringlukast hefst á morgun.
fimmtudagur
föstudagur
iaugardagur
sunnudagur
Upplýsingar i sima 588 7788