Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 ifc MAGNEA GRÓA SIGURÐARDÓTTIR + Magnea Gróa Sigurðardóttir var fædd í Gróubæ á Eyrarbakka 20. sept- ember 1902. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Holtsbúð hinn 5. mars síðastliðinn. Hún var elst af sjö börnum Sigurðar Is- leifssonar, trésmiðs í Reykjavík, f. í Gróu- bæ á Eyrarbakka 14.12. 1879, d. 24.02. 1971, og Sesselju Magnúsdóttur, f. á Skúmsstöðum 12.2. 1880, d. 5.11.1955. Systkini Magn- eu voru ísleifur Helgi Sigurðsson, f. 13.5. 1906, d. 18.4. 1969, Guð- mundur Sigurðsson, f. 26.12. 1908, d. 24.8. 1977, Óskar Axel Sigurðsson, f. 15.5. 1911, d. 31.5. 1987, Kjartan Theodór Sigurðs- son, f. 20.7.1912, Jón Sigurðsson, f. 8.9. 1916, og Guðrún Sig- urðardóttir Maillet, f. 9.2. 1920, d. 25.5. 1990. Eiginmaður Magneu var Einar Guðmundur Svein- björnsson, bifreiða- stjóri, f. í Einarshúsi á Eyrarbakka 17.11. 1901, d. 5.3. 1954. Dætur Magneu og Einars eru Kristín, f. 16.1. 1932, d. 18.1. 1932, og Sigrún Sesselja, f. 12.10. 1936, gift Karli Eyjólfssyni, f. 24.4. 1935, og eiga þau þrjú börn og fjögur bama- börn. Utför Magneu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku amma, okkur langar að minnast þín með nokkrum orðum. Þar sem mamma okkar var þitt eina barn á lífi nutum við þess að vera mikið í návist þinni. Við fengum oft að gista hjá þér á Barónsstígnum og þú fórst með okkur í bío og leikhús. Þú varst alltaf kát, skammaðist aldrei og tókst öllum opnum örmum og þegar þú bakaðir þínar heimsins bestu pönnsur var alltaf veisla. Þegar þú fórst með Eyrbekkingafélaginu aust- ur á Eyrarbakka tókstu okkur með og sýndir okkur þínar æskuslóðir. Þegar þú fluttir heim til mömmu og pabba fyrir tólf árum nutu okkar böm þess að hitta alltaf langömmu þegar þau komu til afa og ömmu, þá varst þú alltaf tO í að syngja með þeim, dansa og fara í boltaleiki. Þeim þótti það alltaf jafngaman. Þó að þú værir komin á háan aldur varst þú alltaf tilbúin til þess að fara í heim- sóknir til okkar með pabba og mömmu en það síðasta sem þú fórst var til Asgerðar og fjölskyldu á jóla- dag í mat en þá varst þú farin að eiga mjög erfitt með gang og sjónin orðin lítíl. Núna ert þú komin í faðm afa sem lést sama mánaðardag og þú fyr- ir fjömtíu og sex ámm og litlu dóttur ykkar sem dó úr hjartagalla og þið fenguð aðeins að hafa í tvo daga. Við vitum að núna líður þér vel og viljum við kveðja þig með lítilli bæn sem þú söngst oft með okkur, Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivöminótt. Æ, virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Þýð. S. Egilsson) Ásgerður, Einar og Magnea. Nú þegar Magga vinkona okkar hefur kvatt þennan heim í hárri elli myndast tómarúm í hjarta okkar sem ekki verður fyllt. Við systkinin mun- um hana allt frá fæðingu okkar og bjuggum í nánu nábýli meðan við vor- um að alast upp í foðurhúsum og í góðu sambandi eftir það. Foreldrar okkar byggðu sér hús árið 1933 við Laugamesveginn sem þá þótti langt fyrir innan bæ. Var það stórt hús á þeirra tíma mælikvarða enda fjöl- skylda okkar stór. Fljótlega seldu þau V:> hluta hússins, þ.e. risið og hluta kjallara og voru kaupendur Einar Guðmundur Sveinbjömsson og kona hans Magnea Gróa Sigurðar- dóttir, sem hér er kvödd. Einar lést langt um aldur fram aðeins 52 ára gamall og nú 46 ámm síðar kveður Magga okkur nákvæmlega sama dag og á sama tíma dags og hann. Magga, eins og hún var alltaf kölluð, og Einar eignuðust tvær dætur, sú eldri, Kristín, lést í fmmbemsku, en sú yngri, Sigrún Sesselja, lifir móður sína. Þannig hagaði til að sami inngang- ur var í húsið fyrir báðar hæðirnar og gengið upp á loftið um forstofu íbúð- arinnar á hæðinni. Við þessar að- stæður má nærri geta að mikill sam- gangur og náin kynni urðu á milli íbúa hússins, svo og allra þeirra gesta, sem þangað komu. A þessum tímum vom flestar konur heimavinn- andi enda allar aðstæður við heimilis- hald erfiðari en nú er. Það var eldað, bakað, soðið niður og sultað, saumað og prjónað á alla, þvegið á bretti, straujað og stífað ásamt öllu öðm. Þá var oft kallað á milli hæða að nú væri kaffið til og þótti þeim Möggu og Herþrúði móður okkar gott að taka + Valgerður Eyj- ólfsdóttir fædd- ist 6. október 1917. Hún lést 9. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Eyjólf- ur Eyjólfsson, sjó- maður, f. 29. júní 1896, d. 8. mai 1933 og Sigríður Einar- sdóttir, húsmóðir, f. 10. ágúst 1895, d. 11. september 1988. Eiginmaður Val- gerðar er Jón' Ey- þór Guðmundsson, myndlistarkennari, f. 5. janúar 1915 á Patreksfirði. Foreldrar hans, Guðmundur Jónsson, smiður, f. 6. september 1872, d. 11. febrúar 1937 og Valgerður Kristín Jónsdóttir, húsmóðir, f. 23. júlí 1876, d. 20. september 1968. Börn Valgerðar og Jóns: 1) Eyjólfur Guðmundur Jónsson, tannsmiður, f. 18. apríl 1938, maki Inga Jóna Sigurðardóttir, Langri baráttu ömmu er nú lokið og ég kveð hana með sámm söknuði. Amma ég óska þér góðrar ferðar á hinn himneska áfangastað, þar sem ég veit að þér verður tekið opnum örmum. Manngæsku og umhyggju fyrir náunganum sýndir þú ætíð í orðum og í verki. Ekki síst við störf þín sem sjúkraliði á Landakotsspít- ala. Minningar hrannast upp í huga manns á stundum sem þessari en að- eins lítill hluti þeirra nær að festast á prenti. Fyrstu minningar mínar um ömmu tengjast jólunum, en það var föst venja í fjölda ára að njóta sam- vista við ömmu og afa á aðfangadag. Eg man að amma lagði mikið upp úr matargerðarlistinni og hafði mikið fyrir og útkoman glæsileg með af- brigðum. Þó var einn réttur alltaf til staðar, óbreyttur, öll árin. Við bræð- ur kölluðum hann eilífðargrautinn ritari, f. 14. mars 1939. 2) Valgerður Kristín Jónsdóttir, ritari, f. 15. ágúst 1944, d. 16. október 1995, hennar maki Gunnar Gunnars- son, fasteigansali, f. 24. mars 1945. 3) Sigurlaug Jónsdótt- ir, sjúkraliði, f. 29. mars 1947, maki Helgi Sævar Helga- son, lögreglumað- ur, f. 18. júlí 1946. 4) Marta Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 30. nó- vember 1949, maki Guðmundur Jónsson, prentari, f. 16. febrúar 1948. Valgerður lauk sjúkraliðan- ámi á Landakotsspítala 1966. Hún starfaði sem sjúkraliði á Landakoti til 1987. Útför Valgerðar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. og vorum sannfærðir um að amma hefði búið til heilt tonn af honum til að eiga um ókomin ár. Sum árin borðaði maður hann með bestu lyst og sum árin frekar svona af gömlum vana. Já, amma hafði alltaf mikið íyrir þegar fjölskyldan og/eða gesti bar að garði og móttökur hennar æt- íð hlýjar og innilegar. Best held ég að ég hafi kynnst ömmu og afa þegar ég dvaldi hjá þeim í Kaupmannahöfn, aðeins níu ára gamall. Uppeldið á snáðanum lenti helst og mest á ömmu og rifjast nú upp fyrir mér nokkuð sem mér þótti allskondið á þeim tíma. Það var þegar ég var að borða linsoðin egg, að amma var engan veginn sátt við þá aðferð mína að borða fyrst eggja- rauðuna og síðan hvítuna, þetta átti jú að borða saman og hana nú. Amma passaði vel upp á að ég héldi dagbók þann tíma sem ég dvaldi hjá þeim ytra. í dag 32 árum síðar er ómetanlegt fyrir mig að eiga þau skrif, þar sem fram kemur allt milli himins og jarðar og lýsir vel þeim yndislega tíma sem ég átti með þeim. Amma fylgdist alla tíð náið með afkomendum sínum, bömum, barna- börnum og barnabarnabörnum, og lagði ríka áherslu á að viðhalda tengslum við þá og ekki síður milli þeirra innbyrðis. Og ég veit fyrir víst að henni þótti við barnabörnin ekki hafa nóg samband okkar á milli og verð ég að taka undir það með ömmu að sú er raunin og verðum við að bæta þar úr, ömmu vegna sem og okkar sjálfrar vegna. Afi og amma voru um margt mjög ólík, en það verður að segjast að þau pössuðu mjög vel saman á sinn hátt og amma var afa ómetanlegur lífs- förunautur og vinur, í blíðu og stríðu. Afa votta ég samúð mína og óska honum langra og góðra ævidaga. Ég, eiginkona mín; Hugrún, og bömin; Ivar, Eyrún, Elísabet og Yrsa Þöll, biðjum ömmu guðs bless- unar og varðveitum minningu henn- ar í hjarta okkar. Eyjólfur M. Eyjólfsson. VALGERÐUR EYJÓLFSDÓTTIR sér smáhvfld og setjast saman og spjalla. Oftar en ekki höfðu frænkur eða vinkonur litið inn og þá var glatt á hjalla. Við krakkamir vomm alltaf einhvers staðar nálægt að hlusta og stundum að leggja inn orð, svo ekki fór hjá því, að við kynntumst frænd- liði og vinum á báðum heimilum og yrðum auðugri af. Magga kom úr stórri fjölskyldu og kunni því vel að hafa margt fólk og fjör í kringum sig, því systkini henn- ar, sérstaklega bræður hennar og skyldmenni sem henni vom svo kær, vom hávært fólk og kátt. Hún var vel minnug og ættfróð, var frændrækin vel og vitjaði æskuslóða og frænd- garðs á Eyrarbakka og í Fljótshlíð- inni þegar færi gafst, því hún hafði mjög gaman af að ferðast eða bara hreyfa sig og „fara eitthvað“ enda var hún dugleg að heimsækja frændfólk og vini meðan hún var frá á fæti. Magga hafði einstaklega gott skap, var sérstaklega glaðvær og hló oft og mikið, tók fagnandi á móti gestum sínum, var sparsöm og nægjusöm og gladdist við lítið. Hún hafði góða nær- vem, var hæglát í fasi og lét ekki haggast á hverju sem dundi. Æðmleysi hafði hún ræktað með sér og kom það sér vel þegar heilsan fór að bila og henni fannst að nú væri nóg komið, en ekki kvartaði hún und- an neinu en ævinlega þakklát fyrir það sem aðrir gerðu fyrir hana. Eftir að hún varð ekkja fór hún að vinna utan heimilis og stundaði m.a. saumaskap. Þar var hún á réttri hillu því vandvirkara handverk hefur varla sést. Hún saumaði talsvert út á efri áram og skildi ekki við verkið fyrr en hvert spor var nákvæmlega eins og steypt. Hún var örlát á handa- vinnu sína og hafa böm okkar notið góðs af. Magga tók þátt í uppbyggingu Kvenfélags Laugameskirkju sem þá var í byggingu og margan fagran hlut bjó hún til fyrir basara félagsins. Hún stundaði kvenfélagsfundi vel og vom pönnukökurnar hennar Möggu ógleymanlegar. Já, samgangur var mikill og náinn og þar sem mikill fjöldi gesta og gangandi var á báðum heimilum eia"-- og áður sagði, var þörf á að sýna mikla tillitssemi og þolinmæði á báða bóga og tókst það þannig að ekki bar skugga á. Máttu þau hjón á efri hæð- inni oft þola ærsl og hávaða okkar bamanna á neðri hæðinni í leik og söng, hávaðasaman píanóslátt, skylmingar, áflog og innrásir á heim- ilið á efri hæðinni enda Sigrún alltaf með í leikjum. Aldrei sýndu þau ann- að en góðvild, umhyggju og mikla væntumþykju sem engan skugga bar á. Þegar móðir okkar vildi afsaka gauragang afkvæma sinna sagði Magga gjaman á sinn sunnlenslu^,. hátt: „Hva, ég held þau megi ærsK' ast...!“ Þetta lýsti vel hversu þolin- móð og skilningsrík hún var. Þegar Einar féll írá var Sigrún 17 ára og urðu þær mæðgur mjög nánar. I fyrstu var Magga stoð og stytta Sig- rúnar í hverju sem hún tók sér íyrir hendur og aðstoðaði hana og fjöl- skyldu hennar á ýmsa lund og síðan var Sigrún stoð og stytta móður sinn- ar seinni hluta ævi hennar og flutti Magga inn á heimili þeirra Karls, eig- inmanns hennar, þá er heilsan fór að bila. Magga var reyndar alla tíð mjög sterkbyggð og heilsuhraust og mun- um við varla eftir henni veikri en síð- ustu árin fór heym og sjón að tapast. Það var fallegt samband á milli móð-. ur og dóttur sem og tengdasonar og barna þeirra. Við vUjum fyrir hönd stórfjöl- skyldu foreldra okkar þakka Möggu fyrir öll árin sem við höfum átt saman og það sem hún hefur fyrir okkur og fjölskyldur okkar gert. Innilegar samúðarkveðjur sendum við Sigrúnu, vinkonu okkar, eigin- manni hennar og bömum þeirra, bamabamabömum og öUu hennar frændliði. Blessuð sé minning hennar. Megi hún hvfla í friði. Gunnar og Hertha. + Ástkær móöir okkar, amma og langamma, GRÓA BJARNFRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, Hæðargarði 16, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 13. mars. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigríður Ruth, Eva Ólöf og Ásta Benny Hjaltadætur. Faðir minn, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN SIGURPÁLL GUÐLAUGSSON, Kóngsbakka 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Garðakirkju fimmtu- daginn 16. mars kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Ingimundur Sígurpálsson, Hallveig Hilmarsdóttir og barnaböm. t Kveðjuathöfn um föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, GISSUR GUÐMUNDSSON frá Súgandafirði, síðast til heimilis á Skjólbraut 1, Kópavogi, verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. mars kl. 10.30. Jarðsett verðurfrá Suðureyrar- kirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans.m er bent á Suðureyrarkirkju. Halldóra G. Helstad, Þorbjörn Gissurarson, Guðmundur Gissurarson, Herdís Gissurardóttir, Elín Gissurardóttir, Sesselja G. Halle, Sigríður Gissurardóttir, Jóhanna Gissurardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Óskar Helstad, Dagrún Kristjánsdóttir, Hildur Ottesen, Júlíus Arnórsson, Barði Theodórsson, Alf Halle, Páll Bjamason, Már Hinriksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.