Morgunblaðið - 15.03.2000, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Lmsjón Arnðr G.
Ragnarsson
Olafur Steinason og
Sigfinnur Snorrason
Suðurlandsmeistarar
Hinn 11. mars fór fram í
Tryggvaskála Suðurlandsmót í
tvímenningi með þátttöku 13
para. Tókst mótið vel, var spenn-
andi allan tímann og réðust úrslit
ekki fyrr en í síðustu umferð. Eir-
íkur Hjaltason var spilastjóri og
stjórnaði af röggsemi.
Úrslit urðu þessi:
< Ólafur Steinason - Sigf. Snorrason 37
Sverrir Þórisson - Aðalst. Sveinsson 26
Kristján M. Gunn. - Helgi G. Helgass 23
Sigfús Þórðarson - Gunnar Þórðarson 19
Kjartan Jóhannss - Helgi Hermannss. 17
Sigurður Skagfjörð - Óskar Pálsson 9
Þeir Ólafur og Sigfinnur unnu
sér rétt til að spila í úrslitum Is-
landsmóts í tvímenning 2000.
Bridsfélag Hreyfíls
Lokið er þremur umferðum af
fjórum í Butler-tvímenningnum
og er hörkukeppni um efstu sætin
en staða efstu para er nú þessi:
Kristinn Ingvason - Guðm. Friðbjss. 94
Sigurður Steingrss. - Óskar Sigurðss. 93
Jón Egilsson - Ingvar Hilmarsson 81
y Erl.Björgvinss.-Friðbj.Guðmss. 78
Daníel Halldórss. - Ragnar Bjömss.77
Skafti Bjömss - Jón Sigtryggss. 62
Spilað er á mánudagskvöldum í
Hreyfilshúsinu við Grensásveg.
Bikarkeppni
Suðurlands
Sveit Þórðar Sigurðssonar
vann sveit Kristjáns M.Gunnar-
ssonar með 27 stiga mun í bikar-
keppni Suðurlands og sveit Öss-
urar Friðgeirssonar vann sveit
Ólafs Steinasonar með 44 stiga
mun í sömu keppni.
í undanúrslitum spila saman
sveit Þórðar Sigurðssonar og Öss-
urar Friðgeirssonar og sveit
Garðars Garðarssonar og Sigfús-
ar Þórðarsonar og skal þessum
leikjum lokið fyrir 17. apríl 2000.
Bridsdeild FEBK
í Gullsmára
Tvímenningur var spilaður á 9
borðum mánudaginn 13. marz í
Gullsmára 13. Miðlungur var 168.
Efstvoru:
NS
Jón Andrésson-Guðm. ÁGuðm. 221
Kristján Guðm. - Sigurður Jóhannss. 202
DóraFriðleifsd.-GuðjónOttósson 195
AV
KristinnGuðm.-GuðmundurPálss. 198
Stefánpiafss. - Siguijón H. Sigurj.s. 197
Þórh. Árnas. - Valdimar Hjartars. 190
Gunnlaugur og Högni
unnu Stefánsmótið
í Firðinum
Þá er Stefánsmótinu lokið, en
síðasta umferð þess var spiluð
mánudaginn 13. mars.
Lokastaðan:
Gunnl. Óskarss. - Högni Friðþjófss. 39
Dröfn Guðmundsd. - Esther Jakobsd. 16
Friðþj. Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 15
Úrslit síðasta spilakvöld:
Dröfn Guðmundsd. - Esther Jakobsd. 8
Friðþj. Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 6
Gunnl. Óskarss. - Högni Friðþjófss. 6
Næsta mánudagskvöld, 2.
mars, verður spilaður eins kvölds
tvímenningur, en þar á eftir verð-
ur páskaeggjamót, en eins og
nafnið gefur til kynna verða veg-
leg páskaegg í verðlaun fyiir efstu
sætin. Verðlaun þessi hafa á und-
anförnum árum vakið mikla lukku
og mót þessi verið vinsæl. Keppn-
isform hefur ekki verið ákveðið
ennþá.
Sparaðutugþúsundir
. Endurvinnum flestar gerðir
tölvuprentborða svo
. þeir verða sem nýir
Jvar@vortex.is
v^mb l.i is
ALLTAf= eiTTH\/AÐ NÝTl
Hrísrimi — 3ja herb. — bílskýli
Vorum að fá í einkasölu mjög góða um 90 fm 3ja herb. íbúð
á 1. hæð í 2ja hæða fjölbýli. Sérinngangur og -verönd. Gott
útsýni. Næg bílastæði. Góðar innréttingar og sérþvottaherb.
Stæði í mjög góðu bílskýli undir húsinu. Ekkert áhv.
Eignahöllin fasteignasala,
Hverfisgötu 76, Reykjavík,
sími 552 4111, fax 552 3111.
V
Sími .>?{<» ‘>090 • l'a\ .>J»15 9095 • Síöimuila 2 1
Njálsgata.
Til sölu 3ja herb. góð íbúð á 3. hæð í steinhúsi.
! Svalir. Garður til suðurs. V. 8,3 m.
Kirkjubrú
í Bessastaðahreppi
Til sölu er meginhluti jarðarinnar Kirkjubrúar í Bessastaðahreppi.
Um er að raeða um 8 hektara lands, sem býður upp á marga mögu-
leika til nýtingar sem byggingaland fyrir einbýlishús og raðhús,
auk þess sem hluti af fyrirhuguðum miðbæjarkjarna er í landinu,
samkvæmt gildandi aðalskipulagi, sem auglýst var í B-deild Stjórn-
artíðinda 30. júlí 1999.
(f
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Sími 555 1500, bréfsími 565 2644
Netfang: stefanbj@centrum.is.
ÍDAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Glæsileg tilþrif ungs snjóbrettamanns.
Lýðræði
eða einræði
EG er frá gömlu Júgó-
slavíu og er búinn að búa á
Islandi í 20 ár. Mér finnst
mjög gott að búa hér. Lífs-
skilyrðin hafa í alla staði
verið góð og hér hefur ríkt
lýðræði. En það hafa orðið
breytingar á síðustu árum,
ríka fólkið ræður orðið
öllu, en það fátæka engu.
Það þarf breytingar í ríkis-
stjórninni, því þegar sami
stjórnmálaflokkurinn
vinnur kannski þrjú ár í
röð, þá er komið einræði á
Islandi. Þetta verður að
breytast.
Urof Ivanovich.
Þjónustulund
ÞEGAR ég gifti mig 1977
fékk ég Candy-þvottavél í
brúðargjöf sem reyndist
mér einstaklega vel. Eg er
búin að ala upp fjögur börn
og hef þvegið mikið í gegn-
um tíðina. Fyrir tveimur
árum bilaði Candy-vélin
mín og þá fór ég og keypti
mér Fagor-þvottavél hjá
Rönning. Eftir tveggja ára
notkun bilaði hún. Eg hafði
samband við viðgerðar-
verkstæðið og spurði hvort
ekki væri hægt að fá að
geyma greiðsluna til mán-
aðamóta. Það var ekki
hægt. Eg hafði samband
við annað verkstæði í Skeif-
unni sem heitir Rafver og
þar var þetta sjálfsagt mál,
en þeir voru ekki serhæfðir
í Fagor-vélum. Eg hafði
síðan samband við Rönning
aftur, en þar sem ég hafði
fengið annan viðgerðar-
mann neituðu þeir að gera
við vélina hjá mér. Það er
alveg á hreinu að ég fæ mér
Candy-vél næst því ég hef
frábæra reynslu af þeim.
Laufey Elsa
Sólveigardóttir.
Faðerni vísna
í KASTLJÓSÞÆTTI frá
Akureyri nýlega var Hall-
dór Blöndal forseti Alþing-
is m.a. spurður um eftirfar-
andi visu:
Hvererþessi einaá
sem aldrei frýs,
gul og rauð og græn og blá
oggjörðafSIS?
Hann kvað hana vera eft-
ir sig og gerða um frá-
rennsli frá ullarverksmiðju
áAkureyri.
Varla þarf að efast um að
þarna sé rétt frá skýrt, en
fyrir nokkrum árum kom
upp ágreiningur um faðerni
vísunnar, í blaði, ef rétt er
munað! Fyrrverandi starfs-
maður mun þar hafa sagt
frá tildrögum vísunnar og
höfundi, og borið um leið til
baka aðra sögu um það efni.
Mig minnti að hann hefði
þá tilgreint annan höfund
en Halldór en það kann að
vera rangt hjá mér. Málið
er ekki mikilvægt, en frá
fomu fari hafa íslendingar
viljað hafa fleygar stökur
rétt feðraðar og hefur þá
stundum verið deilt um fað-
emi.
Er nokkur ágreiningur
um höfund þessarar
skemmtilegu vísu?
EG
300930-2049
Á götunni í góðærinu
ÉG horfði á frétt á Stöð 2
13. mars sl., þar sem rætt
var við heimilislausan
mann, sem bjó í húsi sem á
að fara að rífa, ásamt vin-
konu sinni. Maðurinn er
mikill sjúklingur og meðal
annars með liðagigt. Þetta
var hræðilegur staður sem
þau voru á og þau reyndu
að hlýja sér við opinn eld.
Þau hafa ekki efni á að
leigja á almennum mark-
aði, sem er ekki furða, þar
sem húsaleiga hefur hækk-
að svo mikið. Þau hafa leit-
að til félagslega kerfisins
án árangurs. Þar eru lang-
ar biðraðir og þetta á sér
stað í öllu góðærinu, þar
sem sumir verða sífellt rík-
ari og velta milljónum og
milljörðum. Það er talað
um að Island sé stéttlaus-
asta samfélag í veröldinni.
Ekki er það nú að sjá því fá-
tæktin eykst sífellt og bilið
milli ríkra og fátækra
breikkar stöðugt. Hingað
til hefur verið reynt að fela
fátækt en núna er hún sí-
fellt að koma meira í ljós.
Hver maður á rétt á hús-
næði og vil ég skora á fé-
lagsþjónustuna og yfirvöld
að bjarga þessu fólki áður
en það verður um seinan.
Það er fyrir neðan allar
hellur að slíkt skuli við-
gangast í landi allsnægt-
anna. Ástandið hér á landi
er að verða eins og í stór-
borgum eriendis. Er það
það, sem við viljum?
Sigrún.
Of hátt verð á LGG
MIG langar til þess að
kvarta yfir of háu verði á
LGG. Læknar mæla með
LGG, til dæmis við ungar
mæður fyrir börnin þeirra,
sem eru lystarlaus vegna
einhvers krankleika. Málið
er að barnafólk hefur ekki
efni á þessu. Drykkurinn er
orðinn óheyrilega dýr, sem
er algjör synd því hann er
talinn svo hollur og góður.
Mig langar til að hvetja þá
hjá Mjólkursamsölunni til
þess að lækka verðið, svo
fleiri hafi efni á að kaupa
drykkinn og geti notið holl-
ustunnar, sem hann er
sagður búa yfir.
Hulda Ágiístsdóttir,
557-3444.
Tapad/fundið
Lftil budda með
lyklum fannst
LÍTIL budda með lyklum
fannst á Mímisvegi, á móts
við Listasafn ASI, sunnu-
daginn 12. mars sl. Upplýs-
ingar gefur Bragi í síma
551-5972.
Gullarmband fannst
GULLARMBAND fannst
fyrir utan verslunina Nóa-
tún við Hamraborg laugar-
daginn 11. mars sl. Upplýs-
ingar gefur Inga í síma
564-4708.
Kápa og bolur
tekin í misgripum
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
10. mars sl. var grá kápa úr
nælonefni tekin í misgrip-
um á veitingastaðnum Tres
Locos. Einnig hvarf svart-
ur, fínn bolur með hang-
andi steinum að neðan, úr
líkamsræktarstöðinni
World Class, mánudaginn
13. mars sl. Hvort tveggja
er eigandanum mjög hjart-
fólgið. Skilvis finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Inu í
síma 861-9430 eða 510-
8000.
Dýrahald
Týndlæða
NIU mánaða læða, hvít,
svört og brún hvarf frá
heimili sínu í Setbergi laug-
ardagskvöldið 11. mars sl.
Hún er með 61 og eyrna-
merkt 00G12 og merkingin
er mjög áberandi. Hennar
er sárt saknað af heimilis-
fólkinu. Ef einhver hefur
orðið hennar var, er hann
beðinn að hafa samband við
Laufeyju, í síma 565-5385,
eða 699-4603.
Víkverji skrifar...
EKKI veitir nú af að bæta við
nokkrum veitingastöðum í
Reykjavík eins og hefur mátt greina
af fréttum undanfarið enda eru þeir
ekki nema stórt hundrað eða svo í
miðborginni. Kannski enn fleiri ef
vel er að gáð. Ætli þeir geti ekki hýst
tíunda hluta borgarbúa alla í einu ef
hvert sæti væri skipað?
Mikið er nú gott að við skulum
geta skellt okkur út að borða og
drekka næstum hvenær sem er. Og
ekki aðeins gott heldur bráðnauð-
synlegt. Til dæmis ef ekkert er til
heima, ef enginn nennir að elda eða
ef sérstakt tilefni krefst þess að við
förum út. Stundum erum við líka
haldin óslökkvandi þorsta sem verð-
ur vart læknaður nema með ferð á
veitingahús. Og allt þetta er aðeins
sú hliðin sem snýr að afþreyingu. Er
þá ótalið það sem snýr að vinnunni:
Allir hádegisverðarfundirnir, kaffi-
fundirnir og síðdegisfundirnir og all-
ir þekkja hve vinnudagurinn getur
orðið langur og því brýnt að geta
haldið áfram sínum góðu og gagn-
legu störfum undir borðum með
vinnufélögunum eða viðskiptafélög-
um. Öllu heldur við borðin því það sé
fjarri nokkrum manni að láta sér
detta í hug að einhverjir séu að
drekka hverjir aðra undir borðið við
slík tækifæri!
Þá er ótalin nýja línan í veitinga-
bransanum. Hana hljóta burðarþols-
verkfræðingarnir að hafa fundið upp
eftir sérstaka athugun á húsakosti
veitingastaðanna í borginni. Kannski
voru sum öldurshúsin nefnilega að
niðurlotum komin og þurftu styrk-
ingar við. Hér er sem sagt átt við
súlustaðina eins og lesendur hefur
eflaust rennt grun í. Þeim hefur farið
fjölgandi og af einhverjum óskiljan-
legum ástæðum hafa ákveðnar lista-
konur hneigst til að dragast að þess-
um súlum. Það hefur að vísu ekkert
með súlumar að gera heldur list
þeirra sem við virðumst hafa farið á
mis við í áraraðir ef ekki áratugi. Það
er nú munur að geta valið hvort
menn snæða eða sötra á súlustað eða
bara venjulegu kaffihúsi með ótrufl-
uðu útsýni.
En hvað gerist næst á þessum
vettvangi? Nú er mikið talað um
miðborg Reykjavíkur og hvað gera
megi til að lífga hana við. Veitinga-
menn hafa tekið þessari áskorun al-
varlega og sýnt hug sinn í verki. Nú
þurfa bara fleiri að koma til skjal-
anna. Myndlistarmenn hafa einnig
sótt í sig veðrið hvað þetta varðar og
opnað hin og þessi gallerí síðustu
misserin og einhverjir hljóta að finna
hjá sér þörf til að bjóða okkur enn
eina nýjungina og vonandi ekki bara
einn aðili heldur margir, helst nokkr-
ir tugir. Nema að veitingamenn haldi
áfram útþenslu sinni og taki mið-
borgina með almennilegu áhlaupi.
XXX
SVO virðist sem nú sé að færast al-
vara yfir byggingu tónlistarhúss
með tilheyrandi fylgibyggingum,
ráðstefnuhúsi og hóteli. Mál til kom-
ið, segja margir úr röðum tónlistar-
manna og ekki síður er ástæða til að
fagna fyrir hönd ferðaþjónustunnar.
Þarna ættu að vera tækifæri til að
efla og auka ráðstefnuhald og þjón-
ustu sem tengist því. Ekki síst utan
háannatímans. Verður fróðlegt að
fylgjast með hvernig úr því verður
spilað.