Morgunblaðið - 15.03.2000, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
Neyðaróp
úr salerninu
► ÞEGAR Norðmaður nokkur fór
inn á baðherbergið sitt um helgina
heyrði hann torkennilegt hljóð
koma upp úr salerninu. Það var eins
og einhver væri að hrópa á hjálp!
Jörgen Leander, 22 ára og búsett-
ur í Darbu vestur af Osló, áttaði sig
fljótlega á að neyðarópin bárust frá
niðurgröfnum tanki, sem úrgangi úr
húsinu er safnað saman í, og bárust
með pípulögnum upp í salernið. 14
‘Mra gamall frændi Leanders, Kjetil
Svenskerud, hafði dottið ofan í tank-
inn en lok á tankinum gaf sig þegar
pilturinn steig á það. Hann hafði
verið ofan í tankinum í um 20 mínút-
ur þegar Leander bjargaði honum,
og stóð þann tíma í úrgangi upp að
öxlum. Það varð drengnum til lífs að
tankurinn hafði nýlega verið tæmd-
ur. Piltinn sakaði ekki, og að sögn
norska blaðsins VGþurfti hann ekki
aðra meðferð en langa heita sturtu
og síðan enn lengra bað.
Leiðinleg
heimasíða?
»NÚ er búið að opna vefsíðu fyrir
manninn sem á allt sem hugurinn
girnist, nema líf.
Á síðunni er því lofað að leysa les-
endurna úr þeirri prísund sem getur
fylgt því að reyna að vera svalur og í
tísku. Slóðin er www.dullmen.com og
er þar hægt að lesa bókadóma um
leiðinlegar bækur, lesa leiðinlega
brandara og listi yíir alla leiðinlega
viðburði hvers mánaðar fyrir sig. „í
mars ætlum við að hvetja alla til að
fylgjast með sykuruppskerunni,"
segir á síðunni sem á rætur sínar að
•'fitekja til Bandaríkjanna. Á síðunni er
einnig hægt að taka alls konar próf
þar sem meðal annars er spurt:
„Myndir þú vilja fylgjast með farang-
ursvögnum á flugvöllum? og Kanntu
að meta enskan mat? Svo að lesendur
geti fundið sitt sanna sjálf.
Pryor sækir
um lögbann
á son sinn
► BANDARÍSKI gamanleikarinn
Richard Pryor hefur sótt um lög-
bann á 38 ára son sinn.
Pryor tilkynnti um áform sín í
ifréttatilkynningu í dag.
„Því miður, sökum óvelkominna
og árásargjama tilrauna Richards
yngri til að ná tali af föður si'num, er
nauðsynlegt að leggja fram beiðni
um lögbann,“ sagði Lynda Larsen,
lögmaður Pryor.
Sonurinn sótti um að vera tilsjón-
armaður með eigum föður sms.
Pryor, sem er 59 ára, þjáist af MS-
sjúkdómnum og sonur hans heldur
því fram að hann geti ekki séð um
sig sjálfur.
Hann heldur því jafnframt fram
að Jennifer Lee, fyrrverandi eigin-
kona, hafi gengið á eigur Pryor án
samþykkis.
í tilkynningunni segir lögmaður-
ypn að Pryor hafi fullkomna sljóm á
kringumstæðum sínum og Lee sé í
fullu starfi hjá honum sem umboðs-
maður og persónulegur stjórnandi.
Tígrisdýr
áflótta
► TÍGRISDÝR sem slapp úr fjöl-
leikahúsi í Varsjá í Póllandi réðst á
dýralækni með þeim afleiðingum að
hann lést. Þrjú tígrisdýr sluppu úr
búrum sínum í fjölleikahúsinu í morg-
un og var gerð mikil leit að þeim.
Ifetarfsmenn fjölleikahússins fundu
tvö þeirra strax en það þriðja slapp út
á götur borgarinnar. Þegar það
fannst skaut dýralæknir það með
deyfiskoti en áður en deyfingin tók að
virka stökk það á lækninn og veitti
honum banasár. Ekki er vitað hvem-
ig dýrin sluppu úr búrinu en margt
bendir til þess að einhver hafi opnað
hwrið.
Afmælistónleikar Harðar Torfasonar í íslensku óperunni
Ávallt text-
inn sem ræð-
ur ferðinni
Hörður Torfason heldur tónleika á föstudag
þar sem hann hyggst meðal annars leika
fyrstu plötu sína, Hörður Torfason syngur
eigin lög, í tilefni af því að 30 ár eru síðan
-----------7------------------
hún kom út. I spjalli sagði hann sögu
plötunnar, sem olli straumhvörfum í ís-
lenskri dægurtónlist þegar hún kom út,
------------------------7-----
enda fyrsta útgáfa trúbadúrs á Islandi.
Hörður: „Ég flutti að heiman þegar ég var sextán ára og bjó einn í litlum
herbergjum hér og þar og þá var minn besti vinur oftast gitarinn."
Morgunblaðið/Jim Smart
Hörður Torfason ásamt hljómsveitinni 4hæð sem þau Samúel Þórarins-
son, Sigríður Eyþórsdóttir, Birgir Ólafsson og Jökull Jörgensen skipa.
HORÐUR útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Þjóðleik-
hússins vorið 1970 og lék
þá og dansaði í Fiðlaran-
um á Þakinu og sá um tónlist í „Light
Nights". Hann hafði í nokkur ár kom-
ið fram og flutt lög eftir sig og aðra og
segir svo frá að hann hafi verið svo
feiminn við að viðurkenna að þessi
lög væru eftfr hann að hann kynnti
þau alltaf sem lög eftir vin sinn útí
bæ, enda hafði hann lítið álit á sjálf-
um sér sem lagahöfndi. „Á þessum
tíma voru allmargir í tríóum og lögðu
áherslu á vandaðan raddaðan söng,
en mig langaði að fara aðrar leiðir og
lagði áherslu á innihaldsríka texta og
leikhúsandann," segir Hörður. Svav-
ar Gestsson hafði heyrt til Harðar og
bað um að fá að gefa hann út. Þeir
gerðu svo samning um tvær 12 laga
plötur og allt sumarið 1970 og fram
eftir hausti fór í að hljóðrita fyrri
glötuna, plötuna sem hann kynnir í
Operunni á föstudag.
Hörður segist eðlilega hafa breyst
mikið á árunum 30 sem liðin eru síðan
platan kom út, „en lögin og textarnir
hafa ekkert breyst. En það er gaman
að leyfa öðrum að fást við þau á ný, ég
held ekki að ég sé .maðurinn til að
gæða þau nýju lífi. Það er freistandi
hugmynd að fá ungt fólk til þess þar
sem svo mikið hefur breyst frá því að
þau voru samin og hljóðrituð. Svona
urðu þau til í minni skynjun og sköp-
unarþörf og þannig hef ég flutt þau
óbreytt í gegnum tíðina þegar ég er
einn.“
Á tónleikunum í íslensku óperunni
hefur Hörður fengið til liðs við sig
hljómsveitina 4hæð; Sigríði Eyþórs-
dóttur söngkonu, Jökul Jörgensen
bassaleikara, Samúel Inga Þórarins-
son og Birgi Ólafsson.
Hörður segir svo frá plötunni, lag
fyrir lag.
Þú ert sjálfur Guðjón,
texti: Þórarinn Eldjárn
„Þetta lag samdi ég því bæði
fannst mér textinn afburðaskemmti-
legur, innihaldsríkur og margræður.
Svo hét nánasti vinur minn á þessum
árum Guðjón (ég bið kærlega að
heilsa honum). Ég man eftir að hafa
setið uppi í nemendabúningsherbergi
í Þjóðleikhúsinu að semja lagið því ég
ætlaði að flytja það á jólaskemmtun
leiklistarskólans. Þetta er eitt af þeim
lögum sem ég slepp nánast ekki við
að spila á tónleikum. Að vísu var fellt
eitt erindi úr þegar það var hljóðritað
í upphafi, en það var krafa Svavars.
Ég hef haldið í öll erindi á þessum
tónleikum, en þau eru fjögur.“
Aftanþeyr,
texti: Rúnar Hafdal Halldórsson
„Þennan söng hef ég aðeins einu
sinni áður flutt á sviði, á tónleikum í
tilefni 20 ára afmæhs plötunnar. Ég
man ekkert hvenær ég samdi það en
það hefur verið á námsárunum í Þjóð-
leikhúsinu því ég fann það í Nýjum
Gretti. Ég hitti höfundinn Rúnar
Hafdal aðeins einu sinni fyrir utan
Tjarnarbúð sem þá var og hét. Það
fór vel á með okkur Rúnari það kvöld
og við ræddum Ijóðlist og hann var
ánægður með að ég skyldi hafa samið
lög við ljóðin hans. Hann upplifði það
að hlusta á plötuna en aðeins skamma
stund því hann lést skömmu eftir að
platan kom út.“
Lát huggast bam,
texti: Steinn Steinarr
„Við þetta ljóð Steins samdi ég lag
eitt kvöld svona eins og ég gerði þá og
geri enn. Ég gríp gítarinn og finn
mér texta til að semja við.
Foreldrar mínir gáfu mér heildar-
safn Steins í jólagjöf og ég las það
spjaldanna á milli. Ég hafði upplifað
Stein sem ki-akki á Hressingarskál-
anum og minningabrotin um hann
eru að mér fannst hann einmitt vera
eins og skáld ætti að vera. Það var
einhver dulúð yfir síku fólki í þá daga,
fjarski sem mig langaði samt ekki til
að dragast inn í. Lag þetta varð til
þess seinna að mér var boðið að leika
sjálfan mig í kvikmyndinni Morðsögu
sem endaði með að ég tók líka að mér
starf aðstoðarleikstjóra í þeirri mynd
ásamt mörgum öðrum störfum, en
það er önnur saga.“
Dé Lappé,
texti: Rúnar Hafdal Halldórsson
„Þetta lag við Ijóð Rúnars heitins
var samið þegar ég var að leika í Fiðl-
aranum á Þakinu og ber þess sterk-
lega merki. Ég lék hlutverk Rússans
Fiedka og tónlistin úr því verki hafði
mikil áhrif á mig, enda bráðskemmti-
leg. Textinn var kjörinn til þess. Ég
man að ég átti í baráttu við Svavar og
fleiri útaf hvernig ég söng lagið en ég
hafði mitt fram. Svavar tók upp á því
að breyta titli ljóðsins og kalla það
Dagurinn kemur, þetta leiðrétti ég
seinna þegar ég keypti upptökurnar
og gaf út á geisladiski. De Lappé er
nefnilega heiti ljóðsins og ættamafn
stúlkunnar sem það var ort til. Ég
hitti hana eitt sinn norður á Blöndu-
ósi eftir tónleika og við ræddum ein-
mitt þetta atriði.“
Grafskrift,
texti: Þorsteinn Gíslason
„Þetta ljóð hafði ég lesið og lært í
skóla sem barn og mér fannst það
alltaf fyndið og skemmtilegt. Ég
hafði samið það mörgum árum áður
og söng það oft á fylliríum með félög-
um mínum, því þetta lag er kjörið til
að nota margar raddir í.“
Tryggð,
texti: Tómas Guðmundsson
„Þetta ljóð er í ljóðabók sem pabbi
á og ég sat eina kvöldstund á Bai’óns-
stíg þar sem við áttum heima og
samdi lagið. Ég hef alltaf haft gaman
að Ijóðum Tómasar og ekki síst þeim
ljóðum sem hafa þessa kómísku fjar-
og nálægð eins og Tryggð og fleiri
ljóð hans.“
Kveðið eftir vin minn,
texti: Halldór Laxness
„Þetta hressilega og kómíska Ijóð
heillaði mig strax við fyrsta lestur.
Og eins og alltaf kom strax upp lag-
lína í kollinn og það var kjörið fjölda-
söngslag á tónleikum og fyrir útileg-
ur. Hvílík eftirmæli! Ég sá Halldór
alltaf fyrir mér standandi yfir gröf og
fara með þetta. Það er gjama beðið
um þennan söng á tónleikum og fólk
syngur með af hjartans list. Á þeim
tíma er platan kom út höfðu mai’gir á
orði að það væri kominn tími til að
bölv heyrðist á plötu.“
Leitin,
texti: Rúnar Hafdal Halldórsson
„Það er sama með þennan söng og
Aftanþey, ég held ég hafi aðeins flutt
hann á sviði einu sinni áður. Ég samdi
þetta lag eitt sinn þegar ég átti að
skemmta um kvöldið, að mig minnir í
Tónabæ á þjóðlagakvöldi, og mig
langaði til að flytja eitthvað splunku-
nýtt á sviðinu það kvöld.“
Jósep smiður,
texti: Grímur Thomsen
„Þetta er elsta lag sem ég kann eft-
ir sjálfan mig. Ég man ekki hvenær
ég samdi það en ég var örugglega vel
innan við tvítugt því ijóðið hafði ég
lært úr skólabók. Ég flutti að heiman
þegar ég var sextán ára og bjó einn í
litlum herbergjum hér og þar og þá
var minn besti vinur oftast gítarinn.
Ég man að ég pældi lengi í hvernig ég
átti að láta hamarshöggin heyrast í
laginu. Þcgar ég var í skóla og átti að
læra ljóð utanað þá reyndist mér allt-
af auðveldast að semja lög við þau og
þetta varð að vana þegar ég las ljóð
og er það reyndar enn.“
Ég leitaði blárra blóma,
texti: Tómas Guðmundsson
„Ég man að ég var í heimsókn hjá
vinafólki mínu og fletti þar ljóðabók
Tómasar og las þetta Ijóð. Það hafði
svo mikil áhrif á mig að ég flýtti mér
heim til foreldra minna á Barónsstíg
með afrit af því og grúfði mig yfir það
langt fram eftir kvöldi. Aumingja
pabbi og mamma þurftu að marg-
hlusta á mig þetta kvöld því ég brá
mér alltaf fram og spilaði árangurinn
fyi-ir þau annað slagið og spurði svo;
hvernig fannst ykkur þetta? Svo rauk
ég aftur inn í herbergi og hélt áfram.“
Útburðarvæl,
texti: Davíð Stefánsson
„Þetta er texti sem mér fannst hæfa
mér vel á þeim tíma sem ég samdi lagið
við hann. Þetta er þjóðlegt efni og
sterk saga sem ég fann mig vel í. Bam-
ið sem borið var út og mátti ekki vera
með í leiknum sem kallast líf af því að
það hentaði ekki geðþótta og fordóm-
um siðspilltra. Tvöfeldnin og hræsnin
sem kostar saklausa lífið. Ég hef alltaf
reynt að láta lög mín undirstrika inni-
hald textans, lyfta honum upp og leyfa
honum að njóta sín. Textinn hefur allt-
af verið mitt meginþema. Ég flyt þenn-
an söng annað slagið og hef gaman af.
Þetta er dramatískt og sterkt, bæði lag
og texti.“
Gamalt sæti,
texti: Steinn Steinarr
„Þessi texti er umhugsunarverður
fyrir alla og eitt af þessum lögum sem
ég er margbeðinn um að flytja á tón-
leikum. Ég á erfitt með að aðgreina
texta og lag. Fyrir mér er það alltaf
textinn sem ræður ferðinni. í hvert
skipti sem ég les góðan texta heyri ég
í honum laglínu og sé alveg fyrir mér
hvernig á að flytja hann.“
Tónleikarnir á föstudag eru upphaf
tónleikaferðar Harðar, því hann
hyggst leika í Frumleikhúsinu
Reykjanesbæ á laugardag, í Grinda-
vík á sunnudag, á Akranesi fimmtu-
daginn 23. og á Akureyri laugai’dag-
inn 25.