Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
88. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Atök er atlögu að hvítum bónda
í Zimbabwe var hrundið
Boða fleiri árás-
ir og alvarlegri
mönnum, lagt undir sig 1.000 bú-
jarðir hvítra manna og hefur Mug-
abe lagt blessun sína yfir það.
Jörðum skipt upp
fyrir kosningar?
Chenjerai Hitler Hunzvi, formað-
ur í samtökum uppgjafahermanna í
Zimbabwe, sagði í gær, að ekkert
gæti komið í veg fyrir, að blökku-
menn gerðu fleiri árásir og „alvar-
legri“ á landeignir hvítra manna í
landinu. Minnti hann á, að þingið
hefði veitt ríkisstjórninni heimild til
að taka þær bótalaust og lagði
áherslu á, að búið yrði að skipta upp
jörðum hvítu bændanna, sem eru
um 4.000 talsins, fyrir kosningar.
Verða þær haldnar fljótlega, hugs-
anlega í næsta mánuði.
Tendai Biti, talsmaður helsta
stjórnarandstöðuflokksins í Zimb-
abwe, Samtaka um lýðræðisleg um-
skipti, sagði í gær, að væntanlegar
kosningar myndu í raun snúast um
Mugabe forseta. Sagði hann, að
Mugabe gerði réttast í því að segja
af sér og að því búnu væri „unnt að
útvega honum farseðil til Honolulu
eða eitthvert annað“.
í Zimbabwe blasir við efnahags-
legt hrun og hefur atlagan að hvítu
bændunum, sem eru einn af horn-
steinum efnahagsstarfseminnar,
ekki bætt úr skák. I gær tilkynnti
ríkisstjórnin, að hátíðahöldum
vegna 20 ára sjálfstæðis landsins
hefði verið aflýst.
Vorfundur Alþjóðag;jaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans á sunnudag
Bjart framundan í efna-
hagsmálum heimsins
Hungrið sverfur að
CATHERINE Bertini, yfirmaður
Matvælaaðstoðar Sameinuðu
þjóðanna, skoraði í gær á þjóðir
heims að afstýra hungurdauða
milljóna manna í Eþíópíu og
nágrannaríkjum þess. Þar hefur
víða varla komið dropi úr lofti í
fjögur ár og í sumum héruðum er
næstum allur nautpeningur fall-
inn og mest af sauðfé og geitum.
SÞ áætla, að senda verði tæplega
milljón tonna af matvælum til
þessa svæðis á þessu ári. Myndin
er af Adi Bule, aldraðri konu,
sem hafði farið langan veg áður
en hún komst til bæjarins Teltele
þar sem matvælum er dreift til
þurfandi fólks.
Harare. AP, AFP.
ÁTÖK brutust út í gær er drukknir
menn reyndu að leggja undir sig
búgarð hvíts bónda í Zimbabwe. Var
árásinni hrundið af blökkumönnum,
sem starfa á búgarðinum, en einn
helsti leiðtogi landtökumannanna
sagði, að ekkert gæti komið í veg
fyrir, að jarðeignir hvítra manna
yrðu frá þeim teknar bótalaust.
Skotum var hleypt af er hópur
drukkinna manna reyndi að leggja
undir sig búgarð skammt frá höfuð-
borginni, Harare, í gær en blökku-
menn, sem vinna á búgarðinum og
öðrum búgörðum í grenndinni,
brugðust til varnar og ráku land-
tökumennina brott. Áður hafði þeim
tekist að vinna miklar skemmdir á
nokkrum húsum á jörðinni. Frá því í
febrúar hafa landtökumenn, aðal-
lega gamlir vopnabræður Roberts
Mugabes, forseta Zimbabwe, í
skæruliðastríðinu gegn hvítum
Ofmat á bandarískum hlutabréfamarkaði eitt helsta áhyggjuefnið
Washington. AP, AFP.
EFNAHAGSLÍFIÐ hefur snúist til hins betra um allan heim og horfur eru á
að hagvöxturinn verði að jafnaði 4,2% á þessu ári. Kemur þetta fram í misser-
isskýrslu frá IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en vorfundur hans og Alþjóða-
bankans verður í Washington á sunnudag. Er mikill viðbúnaður hjá lög-
reglunni í borginni vegna fyrirhugaðra mótmæla ýmissa samtaka.
Kúbudrengurinn
Milliganga
Páfagarðs
Washington. AP, AFP.
PÁFAGARÐUR hefur boðist til að
leggja til húsnæði fyrir væntanlegan
fund kúbverska drengsins Elians
Gonzalez og föður hans.
James Rubin, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, skýrði
frá þessu í gær og Jorge Mas Santos,
forseti samtaka Bandaríkjamanna af
kúbverskum ættum, sagði, að fund-
urinn færi fram í húsakynnum Páfa-
garðs í Washington. I fyrradag var
þó haft eftir Lazaro Gonzalez,
frænda Elians á Miami, að ekkert
yrði af fundi þeirra feðga vegna þess,
að Elian kærði sig ekki um hann.
Haft er eftir heimildum í bandaríska
dómsmálaráðuneytinu, að ættingj-
um drengsins á Miami hafi verið af-
hent bréf og skipun um að afhenda
hann nú í morgun á Opa Locka-flug-
vellinum við Miamiborg. Ætlaði Jan-
et Reno, dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, að fara til Miami í gær til
að þrýsta á um þetta.
í skýrslunni segir að mikill þrótt-
ur í efnahagslífinu í Bandaríkjunum
og Evrópu kyndi undir hagvexti í
heiminum en hann var 3,3% á síðasta
ári. Er efnahagslífið næstum alls
staðar í sókn nema í Japan þar sem
batamerkin eru enn mjög óljós. I
skýrslunni segir þó að þrátt fyrir
gott gengi almennt hafi lítið ræst úr í
fátækustu löndunum. Þar hafi
íbúarnir, rúmur milljarður manna,
ekki nema um eða innan við 70 kr. ísl.
til ráðstöfunar daglega og þess
vegna hafi aldrei fyrr í sögunni verið
jafn skörp skil og nú milli ríkra og fá-
tækra.
Alþjóðavæðingin
jafnar kjörin
Höfundar skýrslunnar bregðast
hart til varnar alþjóðavæðingunni,
sem þeir segja vera öflugt tæki til að
jafna lífskjörin um allan heim og án
hennar hefðu til dæmis Suðaustur-
Asíuríkin ekki getað losað sig við fá-
tæktarfjötrana. Þeir sem gagnrýni
alþjóðavæðinguna mest séu undan-
tekningalítið fólk í velmegunarlönd-
unum.
Þótt bjart sé framundan er samt
sem áður ýmislegt að varast. Ekki
síst ofmat á hlutabréfamarkaði,
einkum í Bandaríkjunum, sem ýtir
undir ofneyslu og gerir allt fjármála-
kerfið viðkvæmt fyrir harkalegum
leiðréttingum. Segjast skýrsluhöf-
undar óttast að þenslan í Bandaríkj-
unum standist ekki að öllu leyti til
lengdar og því sé hætt við „harðri
lendingu"; auknum verðbólguþrýst-
ingi, vaxtahækkunum, mikilli geng-
islækkun á hlutabréfamarkaði og
efnahagslegum afturkippi á næsta
ári. Hann myndi aftur hafa slæm
áhrif á efnahagslífið í heiminum.
Skattar lækki í Evrópu
Hvað varðar Evrópu eru ríkis-
stjórnir þar einkum hvattar til að
draga úr mikilli skattlagningu og í
skýrslunni segir að í Rússlandi sé
augljóslega nokkuð farið að rofa til í
efnahagsmálunum.
Vorfundur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins og Alþjóðabankans verður í
Washington á sunnudag og eru ýms-
ir hópar, allt frá róttækum vinstri-
mönnum til róttækra hægrimanna,
farnir að gera sér vonir um að geta
endurtekið leikinn frá því í Seattle í
desember er þeim tókst að spilla
fundi Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar, WHO. Meðal hópanna eru t.d.
verkalýðsfélög, sem telja alþjóða-
væðingu vera af hinu illa, og mann-
réttindasamtök, sem segja stofnan-
irnar arðræna milljónir manna.
Nasdaq er enn
á niðurleið
\cw York. Ap, AFP.
BANDARISKA Nasdaq-vísital-
an, sem mælir gengi hlutabréfa í
tæknifyrirtækjum, féll enn í gær,
þriðja daginn í röð.
Er viðskiptum lauk í gær hafði
Nasdaq fallið um 286,69 stig,
7,1%, og stóð þá í 3.769,21. Nokk-
ur lækkun varð einnig á Dow Jon-
es-iðnaðarvísitölunni. Lækkunin á
Nasdaq er meðal annars sögð
stafa af því, að nú er áætlað, að
tekjur Microsoft á síðasta árs-
fjórðungi hafi verið nokkru minni
en áður var talið og auk þess telur
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF,
hættu á snöggum veðrabrigðum á
bandarískum hlutafjármarkaði.
Ýmsir fjármálasérfræðingar hafa
fagnað lækkun Nasdaq-vísitöl-
unnar og segja hana binda enda á
óeðlilega mikla eftirspum eftir
hlutabréfum í netfyrirtækjum.
Vorverkin
í Moskvu
Vorið er að koma í Moskvu og
starfsmenn borgarinnar eru önnum
kafnir við að dytta að ýmsu eftir
veturinn. Hér er verið að vinna á
Rauða torginu og Vasílídómkirkjan
í baksýn. Torgið og kirlgan draga
að sér fleira ferðafólk en nokkur
annar staður í Rússlandi.
MORGUNBLAÐH) 13. APRÍL 2000
690900
II
0900001