Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Veronika Konráðsdóttir hefur verið áskrifandi að Morgunblaðinu í 70 ár
Þykir
alltaf
vænt um
Morgun-
blaðið
Morgunblaðið/Kristinn
Veronika Konráðsdóttir gerðist áskrifandi að Morgunblaðinu þegar hún stofnaði heimili tvítug að aldri.
VERONIKA Konráðsdóttir varð
91 árs fyrir skömmu og á þeim
timamótum voru 70 ár Iiðin frá
því að hún gerðist áskrifandi að
Morgunblaðinu. Líklega eru þeir
vandfundnir sem hafa lesið Morg-
unblaðið daglega jafn lengi og
hún.
„Þegar ég fór að halda heimili
byrjaði ég að kaupa Morgunblað-
ið; þá var ég tuttugu ára. Ég hef
keypt það samfleytt síðan,“ segir
Veronika, en hún og eiginmaður
hennar, Þorsteinn Þorsteinsson,
stofnuðu sitt fyrsta heimili við
Lindargötu og bjuggu þar á
fyrstu hjúskaparárum sínum.
„Ég held að þá hafi verið nokk-
uð um að fólk hafi fengið Morgun-
blaðið heim. Það voru aðallega
strákar, minnir mig, sem báru það
í hús. Þá stóðu líka gamlir menn á
hornum og seldu Morgunblaðið og
margir keyptu það þannig."
Gamlir menn með gleraugu
komu til okkar og lásu blaðið
Þau hjónin áttu heima í Reykja-
vík í nokkur ár en fluttu svo í
Stykkishólm og áttu þar hcima í
sextán ár.
„Við fengum blaðið að sjálf-
sögðu þangað. Þar komu alltaf
tveir gamlir menn til okkar með
gleraugun sin til að lesa blaðið.
Þeir voru alveg fastur liður. Svo
kom náttúrlega fyrir að fólk fékk
blaðið lánað, því það voru ekki
allir sem keyptu það.“
Veronika segir að það hafi lík-
lega verið upp úr stríðsárunum
sem Morgunblaðið fór að koma
inn á nær öll heimili. „Það var
auðvitað ekki þannig fyrst. Það
voru þessi erfíðu ár frá því um
1930 þangað til þessi blessaði her
kom, þá breyttist allt og maður
fór að sjá peninga."
Áður sendi fámennari
hópur greinar í blaðið
Veronika segir að á fyrstu ár-
unum sem hún var áskrifandi hafi
hún helst lesið fréttir og ýmiss
konar frásagnir og einnig hafí
hún fylgst spennt með fram-
haldssögu sem birt var í blaðinu.
Hún segir að fólk hafí almennt
rætt efni blaðsins mikið sín á
milli. Þá hafí grcinar sem fólk
skrifaði í blaðið oft vakið nokkra
athygli og umræðu en henni
fínnst eins og það hafi verið mun
fámennari hópur sem sendi grein-
ar í blaðið áður fyrr en nú.
„Fólk var ekki eins upp-
hurðamikið þá og núna, held ég.
Þá voru það aðallega stjórnmála-
menn sem voru að koma sínum
skoðunum að, eins og gengur,
sem sendu inn greinar.“ Hún seg-
ist enn lesa blaðið mjög ítarlega
og finnst ein helsta breytingin á
blaðinu vera sú að efnið sé orðið
fjölbreyttara en það var.
Lærir Víkverja utanbókar
Veronika á marga eftirlætis
efnisþætti í blaðinu. „Ég er voða
spennt fyrir mörgu. Ég les nú allt-
af Víkverja, ég læri hann utan-
bókar. Ég les líka yfirleitt allar
greinar og svona. Ég les blaðið
voðalega mikið, alveg eins og ég
get. Svo segi ég að það sé alveg
hreint að marka spádómana oft,
en þó er hún líka ansi skrýtin
stundum stjörnuspáin.
Mér þykir alltaf afskaplega
vænt um Morgunblaðið og ég hef
aldrei getað hugsað mér að láta
það á móti mér að kaupa þetta
eina blað,“ segir Veronika.
Endurmat á eigin fé
Landssfmans
3,8 millj-
arðar kr.
greiddir
til ríkis-
ins
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra segir að gert sé ráð fyrir að
Landssíminn greiði ríkissjóði þá 3,8
milljarða króna sem eigið fé fyrir-
tækisins reyndist vanmetið um sam-
kvæmt niðurstöðu starfshóps á veg-
um samgönguráðuneytisins og taki
lán til þess að standa undir því. Saro-
keppnisstofnun taldi á sínum tíma
eigið fé fyrirtækisins vanmetið um
10 milljarða króna.
Sturla sagði að á sínum tíma hefði
Tal kært verðmat Landssímans til
Samkeppnisstofnunar og samkeppn-
isyíirvöld hefðu í framhaldinu beint
því til hans að þama væri um að
ræða vanmat og dulinn ríkisstuðning
sem gæfi Landssímanum forskot i
samkeppninni.
í kjölfarið hefði hann sett nefnd á
laggirnar til að skoða málið og hefði
kallað eftir umsögn frá þeirri mats-
nefnd sem upphaflega hefði lagt mat
á fyrirtækið árið 1996. Sú nefnd
hefði komist að þeirri niðurstöðu að
eðlilegra hefði verið að nota aðra að-
ferð við mat á fyrirtækinu, þ.e.a.s. að
meta tekjustreymið frá því fremur
en nota eignamat.
Horft hefði verið til reglna í
Evrópu í þessu sambandi og í kjöl-
farið hefði hann myndað starfshóp
skipaðan tveimur endurskoðendum
og viðskiptafræðingi til þess að meta
fyrirtækið á þessum forsendum og
niðurstaða þess starfshóps lægi nú
fyrir, en samkvæmt þeirri niður-
stöðu væri talið eðlilegt að hækka
stofnefnahagsreikning Landssímans i
um 3,8 milljarða króna, eins og kom- j
ið hefði fram. Þar sé um að ræða við-
skiptavild sem eigi að teljast til eigna í
en á móti sé færð skuld við ríkissjóð
sem eiganda fyrirtækisins, en gert
sé ráð fyrir að taka út úr fyrirtækinu
þessa viðbót.
Mörg matsatriði
„Samkeppnisstofnun sagði ofmat
um tíu milljarða, en þessir vísu
menn, eftir að hafa farið mjög ná-
kvæmlega ofan í þetta á faglegum
forsendum, segja 3,8 milljarðar, en
samt kemur fram að þarna er um
mörg matsatriði að ræða,“ sagði
Sturla.
Hann sagði að hann hefði hins veg-
ar metið það þannig til þess að taka
af allan vafa og til þess að koma í veg
fyrir áframhaldandi tortryggni að
rétt væri að fela stjóm Landssímans
að taka tillit til þessa endurmats. Þar
með vonaðist hann til þess að málinu
væri lokið. Það væri ljóst að hér eftii'
væri Landssíminn í samkeppni með
meiri skuldir á bakinu en áður, því
gert væri ráð fyrir að þessi viðbótar-
eign yrði greidd út til ríkisins og tek-
ið lán til að standa undir því.
Reykingar og offíta meðal áhættuþátta kransæðasjukdóma
Lyfjameðferð við offítu
kostar 125 þúsund
DRAGA þarf úr tóbaksnotkun, hvetja fólk til
hreyfingar og að neyta hollrar fæðu. Þetta eru
mikilvægir þættir í forvörnum gegn hjarta- og
æðasjúkdómum. Offita er hraðvaxandi heilsu-
farsvandi sem draga má úr með lyfjameðferð og
breyttum neysluvenjum og kostar lyfjameðferð-
in um 125 þúsund krónur á mann.
Þetta kom meðal annars fram í fyrirlestrum
lækna á forvarnadögum sem fræðslunefnd Fé-
lags íslenskra heimilislækna, landlæknir og
Tryggingastofnun standa að.
Emil Sigurðsson, sérfræðingur í heimilis-
lækningum, ræddi um áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma. Hann sagði að læknisfræðileg
forgangsröðun beindist að þeim sem hafa krans-
æðasjúkdóm eða annan æðakölkunarsjúkdóm og
þeim sem eru í mikilli áhættu.
Emil segir áhættuþætti hjarta- og æðasjúk-
dóma marga og sé unnt að hafa áhrif á suma
þeirra, svo sem offitu, blóðfitu, reykingar, kyrr-
setu og áfengisneyslu, svo nokkuð sé nefnt. Ekki
sé hins vegar hægt að breyta aldri, kyni eða
erfðaþáttum sem einnig geti verið áhættuþættir.
Hættan á kransæðasjúkdómum eykst hjá
fólki á öllum aldri við reykingar og eru dánarlík-
ur karla innan við 65 ára tvöfaldar vegna hjarta-
og æðasjúkdóma en auk þeirra er einnig aukin
hætta á krabbameinum og lungnasjúkdómum.
Þá kom fram í máli Emils að faraldsfræðilegar
rannsóknir hafi sýnt að hreyfing sé ákveðin
vernd við til dæmis kransæðasjúkdómum, há-
þrýstingi og beinþynningu. Brýnt sé að menn
hreyfi sig strax frá unga aldri í 30 mínútur
þrisvar til fjórum sinnum í viku en helst dag-
lega. Þeir sem hreyfi sig í 20 mínútur daglega
búi við 30% minni hættu á dauða af völdum
kransæðasjúkdóma.
Pétur Pétursson, heilsugæslulæknir á Akur-
eyri, fjallaði um meðferðarúrræði við offitu og
sagði hann í viðtali við Morgunblaðið að á hverj-
um degi kæmi fólk til heimilislækna vegna of-
fituvanda. Hann sagði offitu alvarlegt og hrað-
vaxandi heilsufarsvandamál og forvarnir væru
brýnasta verkefnið. Pétur sagði ósannað að
megrun drægi úr dánartíðni hjarta- og æðasjúk-
dóma en meðferð yrði að byggjast á hugarfars-
og lífsstílsbreytingu. Pétur lýsti lyfjameðferð
við offitu og sagði hana brúklega með öðru fyrir
ákveðinn hóp þeirra sem stríddu við offitu og
laga yrði meðferðina að þörfum hvers og eins.
Hann sagði árangur byggjast á sjúklingnum
sjálfum, þekkingu hans á vandanum og vilja til
að standast freistingar. I fyrirlestri sínum setti
hann fram tölur um kostnað af lyfjameðferð og
gaf sér að um 15 þúsund manns væru haldnir of-
fitu. Ef þrjú þúsund þeirra færu í lyfjameðferð í
heilt ár myndi það kosta um 375 milljónir króna.
öð í dag
Morgunblaðinu
í dag fylgir
tímaritið 24-7.
Útgefandi:
Alltaf ehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
Fram slapp fyrir horn
á Akureyri/B2
Friðrik Ingi hættir
með Njarðvíkinga/Bl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is