Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samið við flugvirkja hjá Flugleiðum eftir langa samningalotu Verkfalli frestað og at- kvæðagreiðsla í næstu viku Víkinga- sýning vek- ur áhuga DAGBLÖÐ og tímarit í Bandaríkj- unum sýna íslandi og Norðurlanda- þjóðunum aukinn áhuga í tilefni af Víkingasýningunni sem opnuð verð- ur í Smithsonian-safninu í Washing- ton síðar í mánuðinum. I Newsweek er grein um víking- ana og siglingar þeirra um Evrópu og til Ameríku, þar sem fjallað er um menningu og hæfileika til siglinga um N-Atlantshaf. Þá mun mynd frá Vestmannaeyjum prýða forsíðu á maíhefti National Geographic. FRESTAÐ hefur verið um þrjár vikur verkfalli Flugvirkjafélags ís- lands hjá Flugleiðum, sem boðað hafði verið frá kl. 11 fyrir hádegi í dag, þar sem aðilar náðu sam- komulagi um öll meginatriði nýs kjarasamnings í gærkvöld. Emil Eyjólfsson, formaður samningan- efndar flugvirkja, kvað samninga- nefndarmenn sátta við það sem náðst hefði fram. Verkfalli hefur verið frestað þar til atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hefur farið fram. Millilandaflug Flugleiða verður því samkvæmt áætlun í dag en verk- fall hefði átt að koma til fram- kvæmda klukkan 11. Gert er ráð fyrir félagsfundi hjá flugvirkjum á mánudaginn og að atkvæðagreiðsla um samninginn fari síðan fram á þriðjudag. „Við erum sáttir við það sem við náðum fram,“ sagði Emil í samtali við Morgunblaðið en kvaðst ekki geta rætt einstök atriði samnings- ins, hann yrði fyrst kynntur félags- mönnum. „Við vorum á góðum gangi eftir ákveðinn þröskuld um tíma.“ Emil sagði að samningstím- inn væri frá 1. apríl síðastliðnum til 15. september 2003. Mikilvægt að fá frið „Við erum fyrst og fremst sáttir við að verkfalli var forðað,“ sagði Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri hjá Flugleiðum, í gærkvöld. Einar sagði viðbrögð erlendra ferðamanna hér hafa verið sterk um leið og verkfall var boðað og menn hafi þá viljað komast frá landinu. Hann sagði alltaf tjón að verkfallsboðun, bæði vegna breyttra áætlana farþega, enda flytti félagið nærri fímm þúsund manns á dag á þessum árstíma, og af töpuðum viðskiptum í framtíð- inni. „Það er engin leið að sjá þann kostnað fyrr en eftir á og erfitt að slá á það, en meginkostnaðurinn hefði að sjálfsögðu orðið ef verkfall hefði skollið á.“ Samningamenn flugvirkja og at- vinnurekenda komu saman hjá rík- issáttasemjara kl. 10 á þriðjudags- morgni og lá samkomulagið fyrir um kl. 18 eftir 32 tíma fundarsetur. A lokaspretti viðræðnanna var tek- ist á um ýmis útfærsluatriði en kaupliður var ekki mikið ásteyting- arefni. Einar vildi ekki frekar en fulltrúi flugvirkja tjá sig um efnis- atriði samningsins. Þegar nærri dró boðuðum verk- fallsdegi ákváðu Flugleiðir að fella í takmarkaðan tíma niður skilmála sem binda ferðadaga farþega sem höfðu bókað ferðir frá þeim tíma sem verkfallið var boðað. Margir notfærðu sér þennan kost og breyttu ferðadögum sínum. Hólm- fríður Júlíusdóttir, sem veitir fjar- sölunni forstöðu, sagðist ekki hafa tölu á fjölda þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á farmiðum far- þega. Hún sagði að strax í gær- kvöld hefði fólk verið rólegra, en minna hefði verið um það en hún átti von á að farþegar breyttu á ný til fyrri áætlunar. Hún átti von á að starfsmenn fjarsölunnar yrðu á vaktinni fram eftir kvöldi til að sinna óskum viðskiptavina. Verkfall yfirvofandi hjá Flugfélagi íslands Afram stendur verkfallsboðun hjá Flugfélagi íslands frá og með næstkomandi mánudegi. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri fé- lagsins, tjáði Morgunblaðinu að fundur væri fyrirhugaður kl. 15 í dag hjá ríkissáttasemjara. Hann sagði sátt flugvirkja og Flugleiða varla geta tafið þeirra mál en nú yrði tekið til við það af fullum krafti. Dokað hefði verið með það þar til séð yrði hvernig hinum langa sáttafundi lyktaði. Hann sagði vinnutilhögun flugvirkja hjá Flugleiðum og Flugfélagi íslands nokkuð mismunandi og samninga því nokkuð ólíka. Morgunblaðið/Ásdís Sigurjón Einarsson, formaður ritstjórnar, afhendir Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, fyrsta eintak ritverks- ins. Á myndinni er einnig Hjalti Hugason, ritstjóri verksins. Ritverkið Kristni á Islandi komið út RITVERKIÐ Kristni á íslandi er framlag Alþingis til hátíðarhalda í tilefni þess að 1000 ár eru liðin frá kristnitöku hér á landi. í gær afhenti séra Sigurjón Ein- arsson, fyrrverandi prófastur og Hannes Hlífar jók forskotið HANNES Hlífar Stefánsson sigraði Victor Korchnoi í 8. umferð Reykja- víkurskákmótsins í gærkvöld, og hefur nú einn vinning í forskot fyrir síðustu umferð mótsins, er með 7 vinninga. Nigel Short og Xiangzhi Bu gerðu jafntefli, en þeir Short, Korchnoi og Bu voru hálfum vinningi á eftir Hannesi fyrir þessa umferð.Attunda og síðasta umferðin verður tefld í dag og hefst klukkan 14, en ekki klukkan 17 líkt og verið hefur undan- farna daga. Verðlaunaafhending fer fram í kvöld að mótinu loknu. ■ Skák/59 formaður ritstjómar, Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, fyrsta eintak verskins við hátíðlega athöfn á Alþingi. í ræðu Hjalta Hugasonar, pró- fessors við guðfræðideild Háskóla Islands og ritstjóra verksins, kom meðal annars fram að undirbúning- ur og mótun verksins hafi hafist ár- ið 1991. Endurskoðun og lokafrágangur hafi að mestu verið unninn árið 1998 en öflun myndefn- is og fleira hafi krafist nokkru lengri tima. Hann sagði það vera mjög við hæfi að ritverkið kæmi út nú þegar svo stutt væri til páska, höfuðhátíðar kristninnar að fornu og nýju. Hjalti sagði ennfremur að ritið hefði um margt mikla sérstöðu. Það væri eitt fyrsta verk sinnar tegund- ar hér á landi og sennilega eitt um- fangsmesta frumsamda ritverk sem gefið hefði verið út í frumútgáfu í heilu lagi hér á landi. Þá sagði hann vilja þeirra sem að verkinu standa að það fengi það mat sem nauðsyn- legt væri við opinber verk og því myndi þegar um næstu helgi verða haldið útgáfumálþing á Akureyri þar sem norðlenskir fræðimenn, sagnfræðingur og guðfræðingur, myndu opna umræðuna. FUNDUR Eystrasaltsráðsins hófst í Kolding í Danmörku í gær og stendur hann i tvo daga. Aðildar- ríki ráðsins eru Rússland, Litháen, Lettland, Eistland, Pólland, Þýska- Iand, Svíþjóð, Finnland, Danmörk, Noregur og ísland. Aðalum- ræðuefni fundarins átti að vera aukin samvinna ríkjanna, einkum í umhverfis- og efnahagsmálum, en auk þess var búist við að Eystra- saltsríkin, Eistland, Lettland og Litháen, færu fram á stuðning ann- arra ríkja í ráðinu, að Rússlandi undanskildu, við aðild þeirra að Evrópusambandinu. Hér er Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, að bjóða Davið Oddsson velkominn til fund- arins. Reuters Eystrasaltsráðið á fundi í Kolding Ræktar þú garðinn þinn? Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka Með því að vera í Heimilislínu og Heimilisbankanum á Netinu tryggir : þú þér mun hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti og sparar kostnað af - færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. " -^Hr~ ®BÚNAÐARBANKINN '= heimilislínan JS^XSSSSSSU, Tmnslur ÍHIIlkÍ Svar iðnaðarráðherra um nýjar virkjanir Sjö virkj- anafram- kvæmdir ekki í um- hverfismat SJÖ af þeim virkjanaframkvæmdum sem byrjað hefur verið á frá árinu 1993 fóru ekki í mat á umhverfis- áhrifum á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum um mat á um- hverfisáhrifum þar sem segir að framkvæmdir samkvæmt leyfum út- gefnum fyrir 1. maí 1994 séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Þetta kemur fram í skriflegu svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn Ein- ars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, sem dreift hefur verið á Alþingi. Framkvæmdimar sem hér um ræðir er stækkun Blöndulóns sem lauk árið 1996, aukning í Búrfellsstöð það sama ár og fimmti áfangi Kvísla- veitu sem lokið var við 1997. Enn- fremur fóru framkvæmdir við Nesja- vallavirkjun ekki í mat á umhverfisáhrifum og hið sama er að segja um framkvæmdir á vegum Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi vegna orkuvers 5. Loks kemur fram í svari iðnaðar- ráðherra að ráðuneytið hefði leitað álits umhverfisráðuneytis á því hvort meta þyrfti umhverfisáhrif fram; kvæmda Orkuveitu Húsavíkur. 1 svarbréfi umhverfisráðuneytis segði að framkvæmdin félli ekki undir 5. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum og að ráðuneytið sæi ekki ástæðu til að beita heimild 6. gr. laganna vegna hennar. Framkvæmdin fór því ekki í mat á umhverfisáhrifum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.