Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 12

Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tveir sameindalíffræðingar hljóta hvatningarverðlaun Rannsóknarráðs Islands „Afkastamiklir frumkvöðlar á sínu sviðiu Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Eiríki Steingrímssyni og Önnu K. Daníelsdóttur hvatningarverðlaunin. SAMEINDALÍFFRÆÐINGARNIR, dr. Anna K. Daníelsdóttir og dr. Eiríkur Steingrímsson hlutu í gær hvatningarverðlaun Rannsóknar- ráðs íslands (RANNÍS) árið 2000. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti þeim viðurkenn- ingarskjal og pcningaverðlaun á ársfundi RANNÍS sem fram fór á Hótel Loftleiðum í gær að við- stöddu fjölmenni. I dómnefnd sátu eins og á undan- fómum árum fyrrverandi verð- launahafar og segir m.a. í áliti hennar að Anna og Eiríkur séu f senn hugkvæmir og afkastamiklir frumkvöðlar, hvor á sínu sviði, og verðugir fulltrúar ungra íslenskra vísindamanna við árþúsundamótin. Kváðu verðlaunahafarnir í gær það afar mikinn heiður að hljóta þessi verðlaun og sagði Eiríkur m.a. við það tækifæri að þau væru ekki síst viðurkenning á því að hann væri á réttri leið í sínum störfum. Dr. Anna K. Daníelsdóttir, lauk doktorsprófi í stofnerfðafræði við dýrafræðideild Dyflinnarháskóla árið 1994 og hafði hún þá um hríð unnið að rannsóknum á erfða- breytileika hrefnu og langreyðar í Norður-Atlantshafi. Var doktors- ritgerð hennar á þessu sviði. I áliti dómnefndar segir m.a. að rann- sóknir Önnu hafi m.a. átt mikinn þátt í að skilgreina karfastofna á Reykjaneshrygg og að á þessu ári hefði einmitt verið tekið mið af nið- urstöðum rannsókna hemiar við kvótaúthlutun í djúpkarfa- og út- hafskarfaveiðum. „Það er því ljóst að rannsóknir Önnu hafa nú þegar mikla efnahagslega þýðingu, sem mun fara vaxandi í framtíðinni." Dr. Eiríkur Steingrímsson lauk doktorsprófi við Kaliforníuháskóla í Los Angeles árið 1992 og hlaut hann reyndar sérstök verðlaun fyr- ir bestu doktorsritgerð í líffræði- deild UCLA það ár en þar stundaði hann rannsóknir á erfðafræði þroskunar. Rannsóknir Eiriks hafa m.a. falist í könnun á eiginleikum gena og innbyrðis samspili og sam- virkni þeirra og segir í áliti dóm- nefndar að árangur af þessari vinnu megi m.a. merkja á birtingu vísindagreina í virtustu tímaritum á sviði líf- og læknisfræði á al- þjóðavettvangi. 0 > Arsfundur Rannsóknarráðs Islands undir yfírskriftinni Leiðin til þekkingarþjóðfélagsins Verðmæti fyrirtækja í auknum mæli metið eftir þekkingu starfsmanna Umræður á ársfundi Rannsóknarráðs Islands (RANN- 7 IS) sem haldinn var í gær einkenndust af mikilvægi menntunar, vísinda og tækni fyrir þekkingarþjóðfélag- ið. Arna Schram fylgdist með fundinum þar sem m.a. kom fram að framtíðarsýn stjórnvalda þyrfti að taka mið af þessum burðarásum hins nýja þjóðfélags. FORMAÐUR Rannsóknarráðs íslands, Þor- steinn I. Sigfússon gaf í setningarávarpi sínu á ársfundi RANNÍS, sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gær, tóninn að því sem koma skyldi í umraeðum fundarins síðar um daginn. Eftir að hafa vikið að starfsemi RANNÍS síð- ustu þrjú árin kvaðst hann ekki geta látið hjá líða að nefna ýmis hættumerki sem nú væru á lofti varðandi ungt fólk í vísindum hér á landi. „Allt of fáir,“ sagði hann, „leggja fyrir sig nám í til dæmis raunvísindum hér á landi.“ Og áfram hélt hann: „Framhaldsskólinn virð- ist þrátt fyrir viðleitini stjómvalda of slappur undirbúningur og skorta mótun fyrir háskóla- nám í þessum greinum. Straumar samtímans virðast ganga gegn því að ungt fólk leggi í slíkt nám. Verkfræði- og raunvísindanám er stundað af allt of fáum og áhersla þar er allt of mildð á störf fjarri þekkingarsköpuninni sjálfri. Fjöldi ungra verkfræðinga hefur til dæmis farið til starfa á verðbréfamarkaðnum við að flokka verðbréf. Ég fullyrði hins vegar að störf þessa unga vísindafólks væru betur komin í sjálfri frum- sköpuninni um leið og ég viðurkenni mikilvægi öflugs fjármálamarkaðar sem út af fyrir sig er mikill hvati til dáða í vísindum. Það eru hlut- fallslega allt of fáir hér á landi að fást við undir- stöðuna, hina vísindalegu þekkingu. Fjármála- markaðurinn hefur sýnt rannsóknum og þróun mikla athygli, ekki síst í kjölfar ráðstefnu okkar um vísindi og verðbréf og er nú svo komið að fjármálamarkaðurinn bókstaflega bankar á dyr RANNÍS; andar niður um hálsmálið á okkur með gríðarlegum áhuga á viðfangsefnum sem eru rétt að þoma á trönum málaranna.“ Lagði Þorsteinn því næst áherslu á að nú reyndi á hina raunverulegu nýsköpun í íslensku rannsóknarsamfélagi. „Fjármálamarkaðurinn verður að skilja grunneðli rannsókna og þróun- ar. Ég er ekki fullvis um að hann geri það. Ég óttast að hann muni ekki hafa þolinmæði til þess að bíða eftir raunverulegum árangri þegar hann þreytist á að nærast á væntingum. Ég vil til dæmis sjá meiri stuðning fyrirtækja við grunnrannsóknir eins og sést hefur í nokkrum áþreifanlegum dæmum að undanfömu." Bjöm Bjamason menntamálaráðherra fjall- aði einnig um mikilvægi æðri menntunar og vís- inda í hinu nýja þekkingarsamfélagi og spurði hvað það væri sem sérfróðir ráðgjafar nefndu einkum þegar þeir mætu styrk fyrirtækja. „Jú, það er þekking starfsfólks, menntun þess og hæfileikar til að skapa ný verðmæti á grundvelli rannsókna og þróunar,“ sagði hann og hélt áfram: „Mín skoðun er sú að við sem höldum fram hlut menntunar og vísinda á íslandi höfum ekki fengið betri bandamenn hin síðari ár en málsvara öflugra hlutafélaga í almenningseign og markaðinn, þar sem þeir starfa við vaxandi áhuga vegna góðrar ávöxtunar og árangurs." Benti ráðherra á að hið opna, frjálsa samfé- lag skapaði ný tækifæri á sviði æðri menntunar og vísinda og að þau tækifæri yrði að nýta eins og frekast væri kostur. „Þeir sem leggja mat á þjóðhagsstærðir og styrk íslenska hagkerfisins, verða í enn ríkari mæli að beina athygli sinni að því, sem hagfræðingar flokka undir „nýja hag- kerfið" og tengist einkum upplýsinga- og há- tækni. í síðustu skýrslu Þjóðhagsstofnunar um þjóðarbúskapinn fer ekki frekar en áður mikið íýrir greiningu á hlut þessara þátta í efna- hagsstarfsemi þjóðarinnar." Rikið styrki grunnrannsóknir Síðar í ræðu sinni fjallaði ráðherra um fjár- mögnun rannsókna og sagði að skilgreina þyrfti hlut ríkisins í stuðningi við rannsóknir og þróun með skarpari hætti en gert hefði verið. „Að mínu mati ber ríkinu að leggja höfuð- áherslu á að styrkja grunnrannsóknir og stuðla að menntun ungra vísindamanna. Rannsókna- stofnanir ná ekki marktækum árangri nema þær starfi í nánum tengslum við háskóla og þar fái ungir vísindamenn notið sín, þess vegna verða þær að keppa um fé sem er úthlutað með vísan til árangurs.“ Og áfram hélt ráðherra: „Sé litið til þessara tveggja höfuðþátta yrði hlutverk ríkisins ann- ars vegar að fjármagna öfluga sjóði til að styrkja grunnrannsóknir og hins vegar að stuðla að meistara- og doktorsnámi á háskóla- stigi. Aðrir þættir rannsókna- og þróunarstarfs hvfldu á herðum einkaaðila eða sjóða, sem veita fé til nýsköpunar og áhættufjárfestinga. Nauð- synlegt er að draga skýr mörk milli stjómsýslu á sviði rannsókna, samráðs um framkvæmd vís- inda- og tæknistefnu og úthlutun á styrkjum. Um leið og ríkið skilgreinu* hlut sinn með skarpari hætti en áður á vísindasviðinu er eðli- legt að leitað verði með skipulegum hætti sam- starfs við einkaaðila um hina ytri umgjörð bæði vegna húsnæðis og hinnar nýju upplýsinga- tækni.“ Framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs Is- lands, Vilhjálmur Lúðvíksson, fjallaði eins og aðrir um mikilvægi þekkingar og vísinda fyrir hið nýja þjóðfélag. Sagði hann m.a. að lykillinn að farsælli aðlögun og áframhaldandi hagsæld og samkeppnishæfi þjóðarinnar á nýrri öld væri þekking og fæmi sem byggð væri á góðri menntun, rannsóknum og einbeittu þróunar- starfi. „Þróunarstarfið og nýsköpunin sem af [þjóðfélagsjbyltingunni leiðir mun ekki ein- skorðast við þær stofnanir og fyrirtæki sem við sjáum í dag heldur gegnsýra þjóðfélagið allt. Verðmæti fyrirtækja er ekki lengur metið eftir fastafjármunum, vömbirgðum og aðgangi þeirra að hagstæðum hráefnum og orku - held- ur í vaxandi mæli eftir þekkingu starfsmanna sem þar vinna og möguleikunum sem felast í rannsóknavinnu, hugmyndum og stjórnunarað- ferðum þeirra og nettengslum við önnur fyrir- tæki á sama þekkingar- og viðskiptasviði." Þetta sagði hann auðvitað vekja spumingar um skipulag og innviði menntunar, vísinda og tæknistarfs hér á landi og skilyi-ði til nýsköpun- ar í víðum skilningi á miklu fleiri sviðum en við höfum vanist að ræða hingað til. „Spurningin er hversu vel við íslendingar emm búnir til þátt- töku í þessum nýfædda heimi,“ sagði hann enn- fremur. Víðtæk endurskoðun í vísinda- og tæknimálum innan OECD Vilhjálmur vék þó ekki aðeins að stöðu Is- lendinga í þessum málum heldur fór aðeins inn á það hvað væri að gerast í löndunum í kringum okkur. f þeim tilgangi vitnaði hann í könnun sem vísindanefnd OECD væri að gera og birt- ast myndi í haust og sagði að þar kæmi fram að í flestum aðildarlöndum OECD færi nú fram víð- tæk endurskoðun á stefnu í vísinda og tækni- málum með það fyrir augum að treysta innviði nýja þekkingarþjóðfélagsins og skilja samhengi þess svo betur mætti stjórna. Meðal þeirra breytinga sem væri verið að koma á í þessum löndum til að mæta nýju þjóð- félagi væri aukning opinberra fjárveitinga til vísinda, víðtæk endurskoðun á hlutverki og skipulagi háskólanna - til að mynda með áherslu á samvinnu og tengsl þeirra við at- vinnulífið - og aukin áhersla á ný vaxtarsvið eins og líftækni. Þegar líða tók á seinni hluta ársfundar Rann- sóknarráðs íslands í gær tóku við pallborðsum- ræður, sem snerust um leiðina til þekkingar- þjóðfélagsins. í umræðunum var m.a. tekið undir áherslur manna á mikilvægi grunnrann- sókna og sömuleiðis á mikilvægi þekkingar í hinu nýja þjóðfélagi. Hallgrímur Jónasson, for- stjóri Iðntæknistofnunar Islands, minntist þó á í þessu sambandi að við þyrftum að sjá til þess að sú þekking sem verði til komist til skila og verði arðbær en þar skiptu sjóðir eins og ný- sköpunarsjóðir og áhættusjóðir miklu máli. Hörður Árnason, forstjóri Marel hf., fjallaði eins og fleiri um mikilvægi menntunar fýrir þekkingarsamfélagið og sagði að það „þyrfti að fara langt niður í skólakerfið" til að markaðs- setja nauðsyn hennar. Ingibjörg Harðardóttir, dósent við Háskóla íslands, lagði á hinn bóginn áherslu á samstarf háskóla og fýrirtækja í rannsóknum og sagði að þótt eitthvað væri um slíkt samstarf mætti gera enn betur. I því samstarfi þyrftu þó bæði há- skólar og fyrirtæki að gera sér grein fyrir því að hafa þyrfti beggja hag að leiðarljósi. Kristrún Heimisdóttir framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar minnti m.a. á mikil- vægi hug- og félagsvísinda í þekkingarþjóðfé- laginu og benti á að upplýsingatækni væri ekki bara tækni heldur líka upplýsingar; upplýsing- ar sem kæmu m.a. frá hug- og félagsvísinda- mönnum. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfða- greiningar, skilgreindi m.a. þekkingarsamfé- lagið í máli sínu og sagði að í slíku samfélagi stæði þekkingin mjög nærri verðmætasköpun- inni. Breytingin yfir í slíkt samfélag hefði gerst á mjög skömmum tíma og mikilvægt væri að háskólinn endurskilgreindi sig í samræmi við það. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir efnaverkfræð- ingur sagði eftir Kára að við þyrftum að beina kröftum okkar meira að háskólanum þannig að hann yrði meira aðlaðandi sem vinnustaður. Bjóða þyrfti vísindamönnum þar upp á gott starfsumhverfi og góð laun. Ulfar Steindórsson, framkvæmdastjóri Ný- sköpunarsjóðs, greindi m.a. frá því að umfang þess fjármagns sem menn væru tilbúnir til að setja í áhættufjárfestingar hefði aukist gríðar- lega undanfarin tvö ár og ennfremur að það hefði aukist á síðasta ári að menn i þessum áhættufjárfestingargeira væru tilbúnir til að koma nær frumhugmyndunum en áður, þ.e. áð- ur en þær verða að vel skilgreindri viðskipta- hugmynd. Að lokum má geta innleggs Þorsteins Gunn- arssonar, rektors Háskólans á Akureyri, í þessa umræðu en hann ítrekaði að vísindi, tækni og menntun væru burðarásar þekkingarþjóðfé- lagsins. Framtíðarsýn stjómvalda þyrfti að taka mið af mikilvægi þessara burðarása og að nýsköpun þekkingar þyrfti að gegnsýra samfé- lagið á öllum sviðum þess, í öllum atvinnugrein- um og í öllum landshlutum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.