Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Um 500 manns á borgarafundi um áfengis- og fTkniefnamál á Akureyri Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Kristín Sigfúsdóttir, formaður áfengis- og vímu- varnanefndar Akureyrar, spjalla við Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur úr VMA, en hún flutti er- indi um skemmtanalíf framhaldsskólanema á fundinum. Samstarf hefur tekist með KA og Akureyrarkirkju á sviði forvarnarmála. Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA, ræðir við Svavar A. Jónsson sóknarprest, Tómas Inga Olrich, einn hvatamanna að þessu samstarfi, og Einar Bjarnason, formann sóknarnefndar. Skera upp herör gegn sendiboðum dauðans Morgunblaðið/Kristján Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi á Akureyri, fyrir miðri mynd, Ólafur H. Oddsson héraðslæknir, t.v., og Þorsteinn Pétursson lögreglumaður bera saman bækur sínar á fundinum í fyrrakvöld. MEÐ SAMSTILLTU átaki, auknum forvömum á vegum bæjarfélags, hins opinbera, íþróttafélaga og kirkjunnar og ekki síst foreldra, stefna Akureyringar að því að snúa við þeirri þróun sem verið hefur síð- ustu misseri og kemur fram í aukinni neyslu áfengis og vímuefna. Um 500 manns sóttu borgarafund sem hald- inn var í Gryfjunni, sal Verkmennta- skólans á Akureyri, í íyrrakvöld um þessi málefni og var hugur í mönn- um. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra ávarpaði fundinn og sagði að löggæslumálin væru eitt af sínum helstu áherslumálum, bætt og efld löggæsla, ekki síst í baráttunni við fíkniefnin væri sérstakt stefnumál sitt og ríkisstjórnarinnar allrar. Gert hefði verið átak í þeim efnum og miklir fjármunir lagðir í að berjast gegn fíkniefnum, fjárveiting til lög- gæslunnar hefði þannig verið hækk- uð um 50 milljónir króna og um 25 milljónir til tollgæslunnar til að auka við mannskap og bæta tækjakost. A sama tíma og tökin hafa verið hert í baráttunni hefði vandamálið sífellt orðið erfíðara við að eiga, en fíkni- efnasala væri umfangsmikil, vel skipulögð og án nokkurs vafa rekin í samstarfi við erlend glæpasamtök. Forvarnarfulltrúi ráðinn Dómsmálaráðherra sagði að Schengen-samninginn mætti með réttu nefna „hinn nýja vamarsamn- ing íslands" en hann miðaði ekki síst að því að treysta samvinnu lögreglu landanna. Sólveig sagði að stefnt væri að því að Akureyrarflugvöllur gæti gegnt hlutverki sem alþjóða- flugvöllur samkvæmt Schengen- samstarfínu, en til að hægt yrði að fullnægja þeim kröfum sem sam- komulagið legði okkur á herðar hvað snertir vegabréfsskoðun og persónu- eftirlit þyrfti að endurhanna flug- stöðina með það í huga. Drög að teikningum lægju fyrir og ráðist yrði í framkvæmdir innan skamms. Sólveig sagði það valda áhyggjum hversu mikið magn fíkniefna væri í umferð á Akureyri, fleiri væru hand- teknir vegna slíkra mála og harðari efni væru á markaðnum en áður. Lögreglan á Akureyri hefði að und- anfömu aukið fíkniefnaeftirlit og staðið sig vel á því sviði. Nefndi hún að lögreglan á Akureyri starfaði að meginstefnu á grenndargranni, enda nálægðin við borgarana mikil. Aukið frjálsræði og minna aðhald Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, sagði að um árabil hefðu menn horft upp á breytingar á skemmtanalífi og menn- ingu ungs fólks, þar sem áfengi og fíkniefni hefðu sett mark sitt í ríkara mæli en áður, auk þess sem sífellt yngra fólk neytti áfengis og fíkni- efna. „Þessar breytingar eiga sér margar og ólíkar orsakir, en þær eru hins vegar ekkert náttúralögmál. Þær má rekja til aukins frjálsræðis og minna aðhalds og til þess að skila- boð víða í þjóðfélaginu hafa ekki ver- ið skýr,“ sagði Tryggvi og benti m.a. á að lög hafi ekki verið virt og þau ekki löguð að breyttum viðhorfum, lögbrjótar og misindismenn hafi AJkureyringar fjöl- menntu á borgarafund gegn fíkniefnum í fyrra- ✓ kvöld. I frásögn Mar- grétar Þóru Þórsdóttur kemur fram að mikill hugur er í fólki um að berjast með oddi og egg gegn þessum vágesti. fengið að stunda sína iðju óáreittir. Svo mikil væri óskammfeilni lög- bijóta að sjónvarpað væri frá drykkjubúllum og bjórknæpum þar sem lög og reglur væra þverbrotnar fyrir opnum tjöldum og myndir sýndar af drykkjukeppni barna og viðtöl höfð við unglinga í eiturvímu, áfengi væri auglýst opinskátt, starfs- menn ÁTVR segist ekki hafa tíma til að spyrja kaupendur um skírteini á mesta annatíma enda væri víða litið á það sem manndómsvígslu að kaupa áfengi undir lögaldri. Þannig væri lögbrjótum gert auðvelt um vik að skaða böm og unglinga, hefta þroska þeirra og valda þeim óbætanlegu heilsutjóni. Við þessu yrði að sporna. Sagði Tryggvi það sína skoðun að aldrei hefði verið duglejgra og mann- vænlegra ungt fólk á Islandi en nú, en ógnin væri fyrir hendi og því brýnt að sameina kraftana og vinna að velferð, heilbrigði og hamingju ungs fólks og skera upp herör gegn sendiboðum dauðans og knæpueig- endum sem ætluðu sér skjótfenginn gróða í skjóli lögbrota sinna. „Fijálsræði samfélagsins hefur leitt til agaleysis og sjálfsagi hefur orðið að láta undan fyrir taumleysi markaðarins. En frelsi er ekki til án aga og agalaust frelsi era taumlausar öfgar,“ sagði Tryggvi. Hafa ekki undan að lifa hratt Karen Malmquist, forvamarfull- trúi Verkmenntaskólans á Akureyri, gerði fundarmönnum grein fyrir því í hveiju starf forvamarfulltrúa væri fólgið og sagði að þeir fulltrúar fram- haldsskólanna sem starfa að forvam- armálum hefðu æ meira orðið varir við fimmtudagsdrykkju ungmenna sem hefði í för með sér að þau væra nánast ófær um að mæta í skólann daginn eftir. • Unga fólkið hefði ekki undan að lifa hratt og margir sæju ekki hvert stefndi fyrr en í óefni væri komið. Kröfumar væra miklar, margir framhaldsskólanemar ynnu mikið með skólanum, enda þyrftu margir að standa undir miklum útgjöldum m.a. vegna bíla og farsíma og fleira og þá væri líka mikil pressa á þau að stunda hið Ijúfa líf. Margir þyldu illa álagið sem þetta skapaði og ættu við þunglyndi eða væga depurð að stríða. Hefð fyrir djammi um hveija helgi Félagslíf framhaldsskólanema og skemmtanalíf þeirra vora umræðu- efni þeirra Steinunnar Völu Sigfús- dóttur úr Menntaskólanum á Akur- eyri og Guðnýjar Maríu Jóhanns- dóttur úr Verkmenntaskólanum á Akureyri. Benti Steinunn Vala á að besta forvörnin væri að efla félagslíf, krakkarnir þyrftu að hafa eitthvað við að vera, hafa annan valkost en þann að fara út á lífið og neyta áfeng- is. Guðný María sagði hefð fyrir því hjá mörgu ungu fólki að fara út að djamma um hveija helgi og mikil pressa væri á unglingum að taka þátt í því, á þessum aldri væra þeir opnir fyrir nýjungum og vildu gjarnan vera með. Hún sagði algengt að unglingar drykkju áfengi í tvö til þrjú ár án þess að foreldrar þeirra vissu af því. Hún benti á að margir kæmust inn á vínveitingahús 16-17 ára gamlir og fengju afgreiðslu á barnum. Verra að vera hallæris- legTir en dauður Erindi Hildar Jönu Gísladóttur háskólanema vakti mikla athygli fundarmanna, en hún greindi frá eig- in reynslu af því að lenda á glapstig- um, verða háð áfengi og eiturlyfjum en fimm ár era nú liðin frá því hún sneri baki við fyrra lífemi sínu. Hún sagði alla geta lent í þessum víta- hring og sjálf hefði hún komið frá því sem gjaman er kallað gott heimili, gengið vel í skóla og stundað íþróttir. Allir í kringum hana hefðu farið að drekka áfengi á unglingsáram og hún ekki verið nein undantekning, neysla fíkniefna hefði svo fylgt í kjölfarið. Hún hefði aldrei, frekar en aðrir, ætlað sér að verða háð áfengi og fíkniefnum en það farið á annan veg. Vissulega hefðu unglingar feng- ið fræðslu í skólanum um skaðsemi fíkniefna, það hefði hins vegar engu skipt, því verra hafi verið að vera hallærislegur en dauður. Hilda Jana dró upp ófagra mynd úr fortíð sinni, en áður en hún náði að snúa við blaðinu hafði hún reynt ýmsilegt misjafnt og misst að lokum trú á allt og gert tilraunir til að svipta sig lífi. Ekkert lát á Daníel Árnason lögreglufulltrúi sagði að það sem af væri þessu ári hefðu 20 fíkniefnamál komið upp, þar af eitt þar sem lagt var hald á þó nokkurt magn fíkniefna. Ekkert lát virtist vera á því tvö mál komu upp um liðna helgi, hasspartí var leyst upp snemma á föstudagsmorgun og sex ungir menn handteknir í kjölfarið og þá fundust 10 grömm af hassi og tvö af amfetamíni uppi á fataskáp í Sundlaug Akureyrar um helgina. Hvatti Daníel fólk til að taka hönd- um saman og segja fíkniefnadjöflin- um stríð á hendur. Unglingar sætta sig við reglur Á fundinum gerði Kjartan Ólafs- son, frá Rannsóknum og greiningu, tengsl neyslu áfengis og fíkniefna við uppeldishætti og tómstundir, en m.a. hefur komið í ijós í rannsóknum að þeir sem leggja stund á íþróttir eða tónlistamám neyta síður áfengis eða fíkniefna. Þá var einnig fylgni á milli neyslu og tengsla og samverustunda unglinganna með foreldram sínum, þess betra samband því minni líkur voru til þess að unglingurinn neytti áfengis. Þeir sem ættu í vanda heima fyrir væra líklegastir til að drekka áfengi. Ástandið í grannskólanum var um- talsefni Ólafs Thoroddsen, skóla- stjóra í Síðuskóla, en hann sagði að áfengisneysla liðist ekki á skemmt- unum grunnskólanna og þeir sem færa á svig við reglur í þeim efnum fengju ekki að taka þátt í ýmsum skemmtunum skólanna eða skóla ferðalögum. Fæstir vildu fara á mis við það og héldu því reglurnar. Ólaf- ur sagði unglinga vel sætta sig við að fara eftir reglum og reyndar vildu þeir hafa skýrar reglur til að fara eft- ir. Benti Ólafur á að farsælt gæti ver- ið að ráða námsráðgjafa að stærri grannskólum, 4-500 manna skólum sem einnig hefði það hlutverk að sinna forvarnarstarfi. Það væri vissulega dýrt, en smámunir miðað við það sem „viðgerðarstarfið" kost- aði, þ.e, þegar unglingar þyrftu að dvelja á meðferðarheimilum eftir langvarandi óhófsneyslu. Árangur næst með samstilltu átaki Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA, sagði frá fyrirhuguðu samstarfi félagsins og Akureyrar- kirkju í forvamarmálum, en nú er verið að móta stefnuna og fá fleiri til að leggja málinu lið, því með sam- stilltu átaki næðist betri árangur. María Jónsdóttir, forstöðumaður Kompanísins, upplýsinga- og þjón- ustumiðstöðvar ungs fólks, sagði frá því fjölbreytta starfi sem fram fer í félagsmiðstöðvum bæjarins, en benti á að víða væri búið við þröngan kost og aðbúnaður ekki nægilega góður. Sagði María langflesta unglinga „í góðum málum“ en leggja yrði áherslu á að hlúa að þeim sem hopp- uðu af vagninum, þeim sem hætt hefðu í skóla og hefðu jafnvel ekki vinnu, þeir væra í mestri hættu á að lenda í vímuefnaneyslu. Kolbrún Ævarsdóttir, fulltrúi sjálfshjálparhóps foreldra, sagði marga foreldra hafa upplifað þá bitru reynslu að börn þeirra hafi ánetjast áfengi og eða fíkniefnum. Allt hefði verið reynt og öllum ráðum beitt og oft væri það svo að óreglusamur unglingur héldi heimilinu nánast í heljargreipum. Foreldrar reyndu að átta sig á hvað og hvenær hlutirnir fóra úrskeiðis þegar þeir vöknuðu upp við þennan vonda draum. Hún sagði sjálfshjálparhópinn hafa það m.a. að markmiði sínu að ná til for- eldra sem standa í sömu sporam, þ.e. vegna áfengis og vímuefnanotkunar barna þeirra, en hópurinn hittist annan hvem fimmtudag í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju. Auknir fjármunir til forvarna Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði að ákveðið hefði verið fyrir nokkra að verja meira fé til forvam- arstarfa á vegum bæjarins og væri nú að störfum þriggja manna vinnu- hópur sem hefði það hlutverk að koma með tillögur að því hvernig þessum auknu fjármunum yrði best varið. Þá sagði hann að til endurskoð- unar væru innan bæjarkerfisins reglur um vínveitingaleyfi og af- greiðslutíma skemmtistaða og loks færi einnig fram endurskoðun á há- tíðinni Halló Akureyri, en æ fleiri legðust nú á sveif með þeim sem vildu að hátíðahöld fyrri ára yrðu ekki endurtekin í sömu mynd og þau hefðu verið fram til þessa. Kristín Sigfúsdóttir, formaður áf- engis- og vímuvarnamefndar, var síðust frummælenda og sagði hún fundinn gott veganesti til baráttunn- ar sem framundan væri gegn þeim vágesti sem vímuefnin væru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.