Morgunblaðið - 13.04.2000, Síða 34

Morgunblaðið - 13.04.2000, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Forystu- kreppa hjá PDS Arftakaflokkur austur-þýska kommúnista- flokksins horfír fram á forystukreppu þar sem tveir af helstu leiðtogum hans eru brátt á förum. Davíð Kristinsson, fréttaritari í Berlín, greinir frá aðdr agandanum. AP Lothar Bisky, fráfarandi formaður PDS, og Gregor Gysi, fráfarandi þingflokksformaður, ræðast við á flokksþinginu. UM síðustu helgi þinguðu 500 full- trúar Flokks hins lýðræðislega sós- íalisma (PDS), arftaka austur- þýska kommúnistaflokksins (SED), í fyrsta sinn í vesturhluta Þýska sambandslýðveldisins. Sú stað- reynd að þingið var haldið í Mun- ster átti að undirstrika að flokkur- inn ætti erindi til Vestur-Þjóðverja jafnt sem íbúa hinna nýju sam- bandslanda í austri. Sýna átti al- menningi að flokkurinn væri fær um raunsæja pólitík og hæfur þátt- takandi í ríkisstjórn eftir kosning- arnar árið 2002. Athyglin beindist að tillögu stjórnar PDS þess efnis að heimila flokksforystunni og þingflokknum að meta hverju sinni hvort réttlæt- anlegt væri í undantekningartilfell- um að heimila hernaðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna í friðarskyni. Flokkurinn hefur alla tíð verið and- vígur sérhverjum hernaðaraðgerð- um og eftir að græni utanríkisráð- herrann, Joschka Fischer, studdi loftárásir NATO á Kosovo virðist PDS nú vera eini flokkurinn sem stendur undir væntingum róttækra friðarsinna í Þýskalandi. Hin róttæka afstaða dregur þó úr líkum á stjórnarþátttöku í nánustu framtíð og því var umbótasinnunum í stjóm flokksins mikið í mun að fá flokksfulltrúana til stuðnings við til- lögu sína þannig að aðrir flokkar sæju að PDS væri með báða fæt- urna á jörðinni. Helsti andstæðingur tillögunnar, Sylvia-Yvonne Kaufmann, sá þó til þess að tillagan næði ekki fram að ganga. Hún skoraði á fulltrúa flokksþingsins að leyfa ekki hernað- araðgerðir Sameinuðu þjóðanna, hvort sem yfirlýst markmið væri að hjálpa stríðshrjáðum, óbreyttum borgurum eða að koma í veg fyrir fjöldamorð. Af orðum Kaufmann mátti ráða að forystuhlutverk Bandaríkjanna innan Sameinuðu þjóðanna réði hvað mestu um af- stöðu hennar. Eftir tilfinninga- þrungna ræðu brast Kaufmann í grát. Ræðan virtist hafa mikil áhrif á flokksfulltrúana sem felldu tillögu stjórnarinnar með miklum meiri- hluta. Lykilmaður segir af sér Urslitin voru mikill ósigur fyrir umbótasinnaða stjórn flokksins. Gregor Gysi, formaður þingílokks- ins, túlkaði niðurstöðuna sem van- traustsyfirlýsingu á stjórn flokks- ins. Líkt og búist var við hafði formaður ílokksins, Lothar Bisky, tilkynnt í upphafi flokksþingsins að hann gæfi ekki kost á sér að nýju í haust. í kjölfar þess að tillaga stjórnarinnar var felld voru fjölmiðlar strax famir að flytja fréttir þess eðlis að Gysi myndi segja af sér á lokadegi þingsins. Fæstir fulltrúar flokksins höfðu þó trú á því enda er Gysi talinn hégómagjarn og andstæðingar hans segja hann lifa fyrir sviðsljósið. Það kom þvi mörgum á óvart þegar hann notaði tækifærið við flutning ræðu sinnar og tilkynnti að hann myndi segja starfi sínu lausu í haust og ætlaði ekki að bjóða sig fram til sambandsþingsins í kosn- ingunum árið 2002. Gysi ítrekaði margoft að þetta yrði síðasta ræða hans á flokksþingi. Eftir ellefu ár í formannsembætti þingflokksins mun hinn 52 ára gamli Gregor Gysi nú draga sig smám saman út úr stjórnmálum. Hann sagði ákvörðun sína persónulegs eðlis og óháða nið- urstöðu atkvæðagreiðslunnar enda hefði hann verið búinn að taka þess ákvörðun fyrir nokkrum vikum. Hann sagði það koma til greina að snúa aftur til starfa sem lögfræð- ingur en hann starfaði sem slíkur í Austur-Þýskalandi fyrir fall múrs- ins. Gysi sagðist hafi lokið við sögu- legt verkefni sem fólst í því að leiða PDS inn í Sambandslýðveldið Þýskaland og vernda flokkinn fyrir árásum. Hann sagði andstæðinga flokksins hafa treyst á að fólk yrði hrætt við sósíalista en raunin hefði orðið önnur. Hann hvatti fulltrúa flokksins til að nýta sér þá viður- kenningu sem hann hefði öðlast fyr- ir hönd flokksins í samfélaginu og sjá til þess að innri öfl eyðilegðu ekki flokkinn. Gysi hefur unnið að því að gera PDS að lýðræðislegum, sósíalískum flokki sem hefði burði til að skjóta rótum í sambandlönd- unum í vestri. Núorðið nýtur Gysi virðingar í vesturhluta landsins jafnt sem í austri. Þar sem Gysi var óumdeild stjama flokksins er af- sögn hans mikið áfall. Margir kjós- endur lögðu hann að jöfnu við PDS og er hann eini maðurinn innan flokksins sem náð hefur að hrífa kjósendur að einhverju marki. Lesið yfír rétttrúnaðarsinnum Þótt Gysi sé ekki hár í loftinu og hafi þurft að standa á upphækkun til að ná almennilega yfir púltið hef- ur hann verið höfuð flokksins í rúm- an áratug. í Ijósi þess að rétttrúaðir marxistar og róttækir friðarsinnar felldu tillögu endurbótasinnaðrar stjórnarinnar notaði Gysi síðustu ræðu sína á flokksþingi til að lesa yfir hinum kreddubundna armi flokksins. Hann sakaði þennan hóp um að reyna að leiða flokkinn aftur í átt að kreddutrú en hópur þessi virðist líta á sig sem verndara hinn- ar upprunalegu kenningar. Þannig berjast fylgismenn nútímavæðingar við hina rétttrúuðu um það hvort hugmyndafræðin eigi að laga sig að veruleikanum eða veruleikinn að hugmyndafræðinni. Rétttrúaðir eru tortryggnir í garð sérhverrar hug- myndar um nútímalegan sósíalisma og telja flokkinn vera að nálgast Jafnaðarmannaflokkinn um of. Gysi sagði að flokkurinn mætti ekki hræðast breytingar og ekki væri æskilegt að leita alltaf í gömlu svör- in ef engar nýjar leiðir lægju fyrir. Flokkurinn yrði að gerast hluti af samfélaginu ef honum ætti að tak- ast að breyta því. Hann benti og á AP Sylvia Yvonne Kaufmann flytur ræðu gegn þeirri tillögu flokks- sijdrnarinnar, að Þjóðverjar taki þátt í friðargæsluaðgerðum á vegum SÞ. að menn yrðu að vera tilbúnir til viðræðna á tungu sem fólk skildi. Gysi sagði vandamálin vera hjá því fólki sem lifir hér og nú, og það gæti því ekki beðið í hundrað ár eft- ir komu sósíalismans. Hann varaði flokkinn við því að einangra sig um of frá öðrum evrópskum vinstri- flokkum. Gysi sagði að PDS mætti ekki útiloka möguleikann á stjórn- arsamstarfi við SPD þótt stefna jafnaðarmanna væri óneitanlega ófélagsleg um þessar mundir. PDS mætti aldrei aftur gera Jafnaðar- mannaflokkinn að svömum and- stæðingi sínum. Uppgjör við Austur-Þýskaland Gysi varaði hinn rétttrúaða arm flokksins við því að fegra sögu Austur-Þýskalands en flokkurinn virðist frá upphafi hafa saknað sós- íalismans. Hann sagði flokkinn verða að horfast í augu við þá stað- reynd, að skipbrot ríkissósíalismans hefði ekki verið mistök fárra for- ystumanna, heldur hefði kerfið sjálft brugðist. Sóslalisminn í Aust- ur-Þýskalandi hafi ekki verið raun- hæft svar við frjálsu markaðskerfi og rétt væri að taka upp hanskann fyrir ýmsa þætti kapítalismans. Hann minnti á að sósíalisminn í Austur-Þýskalandi hefði verið ólýð- ræðislegur og sagði nauðsynlegt að menn horfðust í augu við sannleik- ann svo mögulegt yrði að takast á við vandamál framtíðarinnar. Gysi sagði spurninguna um eignarrétt ekki leysast með umbyltingu kerfis- ins. Það stæði hvergi skrifað að eignarrétturinn hefði betri áhrif á umhverfið og samfélagið ef hann væri í höndum ríkisins. Þótt flokksþingið hafi fellt tillögu stjórnarinnar má einnig finna já- kvæða fleti á málinu. í fyrsta skipti í sögu flokksins fóru fram opinská- ar deilur á flokksþingi og flokksfull- trúarnir hættu á að gagnrýna af- stöðu stjórnarinnar. Gysi sagði ákvörðun þingsins til marks um lýð- ræðisvæðingu flokksins og minnti á að menn hefðu varla treyst sér til að fella tillögu stjórnarinnar fyrir tíu árum. Slíkt var óhugsandi skömmu eftir fali múrsins enda tíðkuðust opinskáar deilur ekki í austur-þýska kommúnistaflokkn- um. Fyrstu árin var PDS enn undir áhrifum frá þeirri miðstýringu sem flokkurinn hafði erft frá SED. Inn- an kommúnistaflokksins voru ákvarðanir teknar ofanfrá og niður og ekki tíðkaðist að menn and- mæltu stefnu stjórnarinnar. Þótt PDS virðist nú hafi losað sig undan slíkri miðstýringu heldur flokkur- inn þó enn í þann sið SED að enda flokksþingin á byltingarsöng sósíal- ista: „Fram þjáðir menn í þúsund löndum." Leitin að nýjum formönnum Eftir að hafa misst báða formenn sína er PDS nú í talsverðum vand- ræðum og óljóst er hverjir muni fylla það tómarúm sem skapast hef- ur. Umræðan um mögulega eftir- menn Gysis og Biskys eru þegar farnar af stað en ákvörðunin þarf að liggja fyrir í haust. Víst þykir að framkvæmdastjóri þingflokksins, Roland Claus, muni taka við af Gysi og því beinist athyglin að arftaka hins fráfarandi flokksformanns, Biskys. Fyrir þingið var fram- kvæmdastjóri flokksins, hinn 41 árs gamli Dietmar Bartsch, álitinn lík- legur eftirmaður Biskys. í kjölfar ósigurs flokksforystunnar á þinginu hefur staða hins róttæka umbóta- sinna hins vegar veikst og víst er að hin tilfinningaþrungna ræða Kauf- mann réð mestu þar um. Rétttrún- aðarsinnar eru ánægðir með að Kaufmann hafi tekist að fella tillögu stjómarinnar og myndu þeir því styðja hana í formannsembættið ef hún gæfi kost á sér. Líklegri and- stæðingur Bartsch er þó formaður flokksdeildar PDS í Berlín, hin 37 ára gamla Petra Pau. Hún nýtur stuðning hins fráfarandi formanns en mörgum þykir hún ekki nógu reynslumikil. Pau sagðist þurfa tíma til að meta þá staðreynd að tveir þriðju hluti þingsins hafi greitt atkvæði gegn tillögu sem hún studdi sjálf. Hins nýja formanns mun bíða erfitt verkefni. Um þessar mundir er fylgi flokksins um 7%, PDS er með fulltrúa á Sambands- þinginu svo og á Evrópuþinginu auk þess sem flokkurinn hefur tvö ráðherraembætti í Mecklenburg- Vorpommern. Ólíklegt verður að teljast að PDS hefði komist svo langt án Gysis sem var jafnframt helsta von flokksins um aukið fylgi í vesturhluta landsins. Þótt PDS geti treyst á fasta kjósendur í sam- bandslöndunum í austri á næstu ár- um er óvíst hvort flokknum tekst að skjóta rótum í vestrinu án Gysis. Þótt CDU hafi náð sér á strik eftir aðskilnaðinn við Helmut Kohl er óvíst hvort mótmælaflokkur á borð við PDS þoli að missa Gregor Gysi. Gyðingar grunaðir um njósnir í Iran RÉTTARHÖLD yfir þrettán írönskum gyðingum eiga að hefjast fyrir luktum dyrum í dag, vegna gruns um að þeir hafi stundað njósnir og þar með stefnt öryggi íranska ríkisins í hættu. Lögmenn þeirra reyna hins vegar að fá málinu frestað, en það getur varðað dauðasök að stunda njósnir fyrir erki- óvini Irana, Bandaríkjamenn og Israela. Gyðingamir þrettán eru sakaðir um að hafa, ásamt átta múslímum, tilheyrt há- tæknivæddum njósnahring. Sérstök réttarhöld munu fara fram í máli múslímanna. Forseti Kína heimsækir Israel ÍSRAELAR buðu í gær Jiang Zemin, forseta Kína, velkominn til landsins. Israelar deila þessa stundina við Bandaríkjamenn um þá ákvörðun sína að selja Kínverjum ratsjárbúnað fyrir flugvélar. Ezer Weizman tók á móti Jiang á flugvellinum í Tel Aviv, en þetta er fyrsta heim- sókn forseta Kína til landsins eftir að ríkjasamband komst á milli ísraels og Kína 1992. Stuttu fyrir heimsóknina höfðu Israelar látið í ljós að það þýddi lítið iyrir Bandaríkjamenn að reyna að fá þá til að hætta við sölu ratsjárbúnaðarins sem færir þeim tæpa tvo milljarða kr. Undanskilin tæknivæðing-u FUNDUR G-77, leiðtoga fá- tækari ríkja heims, hófst á Kúbu í gær. Um 40 þjóðarleið- togar og fulltrúar 80 ríkja sækja ráðstefnuna sem er sú fyrsta frá því G-77 var fyrst stofnað fyrir 34 árum. Kvartan- ir heyrðust víða þess efnis að þjóðirnar hefðu setið á hakan- um í alþjóðlegri tæknivæðingu og hafa leiðtogar þessara ríkja því hug á að æskja enn frekari aðstoðar en veitt hefur verið hingað til, auk þess sem draga þurfi úr skuldum þeirra og auka vægi á alþjóðavettvangi. „Þeim sem þegar njóta góðs af alþjóðavæðingu eru kostimir ljósir,“ sagði Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, í ræðu sem hann hélt í há- skólanum í Havana á þriðjudag og kvað milljónir manna undan- skildar þeirri þróun. Mannskæðar óeirðir í Gambíu AÐ MINNSTA kosti 12 manns létust þegar lögregla greip til vopna gegn mótmælagöngu námsmanna sem efnt var til í höfuðborg Gambíu, Banjul, á mánudag. Efnt var til mótmæl- anna til að vekja athygli á að menntaskólanemi hefði verið pyntaður af öryggisvörðum og að 13 ára stúlku hefði verið nauðgað af lögreglumanni. Þegar lögregla rejmdi að stöðva mótmælagönguna kom til óeirða, fjöldi fólks slasaðist og 12 létust er lögregla greip til skotvopna til að koma ró á mannfjöldann. Aðgerðum lög- reglu á mánudag var víða mót- mælt í gær og kveiktu náms- menn m.a. í ríkisstofnunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.