Morgunblaðið - 13.04.2000, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 13.04.2000, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ 1 Tómas R. Einarsson Orgeltónleikar í Kristskirkju ORGELTONLEIKAR verða haldnir í Kristskirkju Landakoti í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20, í tilefni af því að viðgerð á orgeli kirkjunnar er nú lokið. Flytjendur á tónleikunum eru Úlrik Ólason, organleikari Kristskirkju, Marteinn Hunger Friðriksson, organleikari Dóm- kirkjunnar, Douglas A. Brotchie, organleikari Háteigs- kirkju, og Sigurlaug S. Knudsen söngkona. í fréttatilkynningu segir m.a.: „Miklu hefur verið áorkað síðan sérstök framkvæmdanefnd um viðhald á orgeli Kristskirkju tók til starfa fyrir tveimur árum. Markmið nefndarinnar var í upphafi að safna fimm milljón- um króna, sem var áætlaður kostnaður við viðgerðina. Mikið starf hefur verið unnið síðan þá og margar hugmyndir verið framkvæmdar, allt frá há- tíðlegum tónleikum í kirkjunni til líflegra bílskúrssala í bíla- geymslu prestanna í Landakoti.“ Djass/latín í tónleikasal FÍH DJASS/latín-tónleikar verða í tón- leikasal Félags íslenskra hljómlist- armanna, Rauðagerði 27, í kvöld, fímmtudagskvöld, kl. 21. Þar mun Tómas R. Einarsson leika tónlist sem hann hefur útsett fyrir kontra- bassa, en á síðasta ári fékk hann fjögurra mánaða starfslaun frá Reykjavíkurborg til þess verkefn- is. Með Tómasi leika Eyþór Gunn- arsson á píanó og slagverkshljóð- færi og Matthías M.D. Hemstock á troinmur og annað slagverk. Á efnisskránni eru eldri og yngri lög Tómasar í djass- og latínútsetn- ingum, auk laga eftir aðra höf- unda. Aðgangseyrir er 800 krónur, en 500 fyrir nema. Nýjar vörur Stuttar og síðar kópur með eða ón hettu, mörg snið. Fallegar úlpur. Hattar og húfur. LEIKLIST Leikfélag FljótsdalshéraAs VÖLIN & KVÖLIN & MÖLIN Höfundar: Hildur Þórðardóttir, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir og V. Kári Heiðdal. Leikstjóri: Unnar Geir Unnarsson. Eiðum, 8. apríl 2000. ÉG verð að byrja þennan dóm á nokkrum fyrirvörum um tengsl mín við verkið. Það er skrifað af þremur félögum í Hugleik í Reykjavík og það kom í minn hlut að leikstýra frum- uppfærslu þess í haust sem leið. Þar var á meðal leikenda Unnar Geir Unnarsson sem nú setur verkið upp með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Ég er því all-tengdur verkinu úr ýmsum áttum og rétt að lesendur séu leiddir í sannleika um þessa stöðu mála áður en lengra er haldið. Völin & Kvölin er trúlega það sem kalla má alþýðlegan skopleik, og minnir einna helst á verk sem skrifuð voru í árdaga íslenskrar leikritunar, bæði að stíl og innihaldi. Fléttan er ofureinföld, ungur og saklaus sveita- piltur yfirgefur æskuástina í festum og heldm- suður til náms. Þar fær hann inni hjá skrýtinni yfirstéttar- fjölskyldu og lendir í klónum á for- dekraðri heimasætunni sem er svo vön að fá það sem hún vill að hún víl- ar ekki fyrir sér að beita lúalegum brellum til að eigna sér drenginn. Hann nær þó að slíta sig lausan og Að vera eða vera ekki John M. KVIKMYAÐIR Háskólabíó AÐ VERA JOHN MALKOVICH („BEING JOHN MALKOVICH") ★★★!/, Leiksljóri Spike Jonze. Hand- ritshöfundur Charlie Kaufman. Tónskáld Carter Burwell. Kvikmyndatökustjóri Lance Acord. Aðalleikendur John Cusack, Cameron Diaz, Catherine Keener, Orson Bean, John Malkovich. Lengd 110 mín. Framleiðandi Propaganda/USA Films. 1999. GAMANMYND, drama, vísinda- skáldskapur? Að vera John Malko- vich getur flokkast undir allar þessar greinar og gott betur. Það er nóg að skilgreina hana sem eina frumlegustu og geggjuðustu skemmtun á hvíta tjaldinu um árabil. Takmarkalaust skopskyn handritshöfundarins Char- lies Kaufman (var að fá verðlaun bresku kvikmyndaakademíunnar, BAFTA, um helgina) fer inná lítt troðnar slóðir í kvikmyndasögunni en hann hefur sjálfsagt séð myndimar Groundhog Day, Brazil og ekki síst Time Bandits, þann óborganlega gullmola, þar sem sögupersónur detta í gegnum „tímagöt11 og lenda í ýmsum misþekktum uppákomum af spjöldum sögunnar. Hér er sögumaðurinn leikbrúðu- stjórinn Craig (John Cusack), at- vinnulaus og í undarlegri sambúð með gæludýrabúðareigandanum Lot- te (Cameron Diaz), og hluta af lifandi lager verslunarinnar. Hann sækir um skrifstofustarf sem hann fær og ftnn- ur dularfull leynigöng á bak við skjalaskáp á vinnustað sínum (sem er hálf hæð á milli þeirrar sjöundu og áttundu, þar sem enginn getur gengið uppréttur - gott dæmi um kímnigáf- una). Hann kemst að því íúllkeyptu að við enda þeirra er ekkert annað en heilabú stórieikarans Johns Malko- vich. Craig fær að sjá heiminn með Milli kvenna heldur á vit sveitastúlkunnar, en við- brögð hennar eru kannski það helsta sem greinir verkið frá Bónorðsför Magnúsar Grímssonar og öðrum æskuverkum íslenskrar leiklistar. I einfaldleik sínum gefur Völin hugmyndaríkum leikstjóra nokkuð færi á að fara sínu fram og leika sér með hugdettur, og nýtir Unnar Geir sér þessa möguleika óspart. Þó fannst mér á köflum hann sýna leik- ritinu óþarfa skeytingarleysi, ein- faldleikinn gerir það óneitanlega einnig viðkvæmt ef ekki á að kremja hjartað úr því svo eftir standi tómur dáraskapur. Mestan partinn stóð hann þó ásamt leikhópnum með sínu fólki og sýndi okkur það með öllum sínum kenjum og dyntum. Á hinn bóginn þótti mér stundum of skammt gengið fram. Til dæmis hefði mér fundist að úr þvi píanóleikari sýning- arinnar var brúkaður til að skapa stemmningu og jafnvel áhrifshljóð þá hefði mátt gera miklu meira af því. Tónlistin virkaði vel þar sem hún var, en hefði að ósekju mátt notast víðar og óvæntar. Eins er með auka- persónur sem Unnar bætir inn til að skapa andrúmsloft, þær voru ævin- lega til prýði, en jafnvægi sýningar- innar hefði verið betur þjónað með meiri notkun. Unnai' er þrátt fyrir ungan aldur þaulvanur leikhúsmaður og nýttist það honum sérlega vel við augum Malkovich í stundarfjórðung eða svo, þá er úti ævintýri og Craig úti í vegarkanti í New Jersey! Maxine (Catheiine Keener), vinnu- félagi sem Craig lítur hýru auga, fær þá ágætu hugmynd að selja almenn- ingi rússíbanaferð inní kollinn á Mal- kovich og lukkast það um sinn. Eða þangað til ástin og giindin koma til sögunnar þar sem leikarinn verðui' nyteamur sakleysingi. Otiúlegt en satt, höíúndar satír- unnar eru nýgræðingar, báðh' tveir. Leikstjórinn, Spike Jonze, hefur hingað til haldið sig framan við töku- vélamar og farið með nokkur auka- hlutverk, síðast í Three Kings. Kaufman er hinsvegar nýr af nálinni í kvikmyndaheiminum og á hóflega sagt, glæsilega innkomu. Hér gæti verið kominn verðugm' arftaki Gilli- ams og annarra meðlima Monty Python-hópsins, sem virðist hafa lognast útaf. Saman gera þeir dæma- laust skemmtilega og óvenjulega mynd þar sem hver hugmyndin er annarri betri. Það má ekki segja of mikið af þeirri undarlegu heilastarf- semi sem fram fer í og í kringum toppstykkið á Malkovich. Við erum leidd inní snarruglaða veröld þar sem ekkert er einsog það á að vera, en myndin nákvæmlega einsog hún á að vera. Atburðimir í undraheiminum ganga oftast upp - á sínum forsend- um og fá til þess góðan styrk frá leik- urunum. John Cusack fær tækifæri til að sýna hvers hann er megnugur og er óborganlegur sem strengja- brúðustjórinn (sem útaf fyrir sig er efni í sjálfstæða mynd), síðar skrif- stofublók sem fer í ferðabransann. Cameron Diaz sýnir á sér nýja hlið, nánast óþekkjanleg sem eiginkonan sem vill verða annaðhvort karl með tippi eða lesbía. Þið verðið að sjá þetta sjálf. Catherine Keener, einn nýliðinn til viðbótar, er óborganleg sem þriðji póllinn í þríhymingnum og Malkovich dregur upp slemmtilega, nánast skopmynd af sjálfum sér. Óhætt að fuUyrða að enginn hefði get- að gert það betur. Sæbjörn Valdimarsson að skapa eðlilega umferð um sviðið. Eftir því sem ég best veit þá er leikhópurinn að mestu samansettur úr fremur reynslulitlu fólki, sem engu að síður nær að fanga athyglina og segja söguna á skemmtilegan hátt. Mest mæðir á þeim Ólafi Ágústssyni, sem var skemmtilega heimóttarlegur sveitapiltur í borgar- solh en hefði gjarnan mátt vera skír- mæltari á köflum, og Erlu Dóm Vog- ler, sem lék þær frænkur ÞórhUdi sveitaunnustu og flagðið Viktoríu í borginni. Viktoría er vissulega meiri biti að bíta I íyrir leikkonu, enda gerði Erla henni skemmtileg skil. Af öðram leikuram má nefna að Vígþór Sjafnar Zophaníasson var skoplegur sem skraddarinn Jónas og Jón Gunnar Axelsson og Fjóla Egedía Sverrisdóttir voru skondið par sem snyrtipinninn Sæmundur kaupmað- ur og frúin hans sem lætur heimUis- lífið aldrei trafla sig við fagurbók- menntalesturinn. Þá var gaman að Eyrúnu Heiðu Skúladóttur í klass- ísku hlutverki kjaftakellingar í sveit- inni. Völin & Kvölin & Mölin er fyrsta stóra leikstjómarverkefni Unnars Geirs, fyrsta uppsetning Leikfélags Fljótsdalshéraðs í nýlegri sýningar- aðstöðu á Eiðum og fyrsta verk höf- undanna þriggja í sameiningu. Þegar öll sú áhætta er höfð í huga er ekki annað hægt en að óska hópn- um og félaginu tU hamingju með skemmtilega sýningu sem heldur at- hyglinni, kitlar hláturtaugarnai- og sendir mann aftur í tímann með bros ávör. Þorgeir Tryggvason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.