Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 39
Clayderman í æðra veldi
TÖJVLIST
Geisladiskar
KEITH JARRETT: THE
MELODYAT NIGHT WITH
YOU
Keith Jarrett leikur á píanó þekkta
söngdansa: I Love You Porgy, I Got
It Bad and That Ain’t Good, Don’t
Ever Leave Me, Someone to Watch
over Me, My Wild Irish Rose, Blame
It on My Youth, Meditation, Some-
thing to Remember You by, Be My
Love, Shenandoah, I’m Through
with Love.
ECM/Japis 1999.
Á NÝJUSTU skífu sinni leikur
meistarapíanistinn Keith Jarrett
einn. Hann er svosum ekki óvanur
því og tónlistarunnendur hafa
hlustað í áratugi óþreyttir á meist-
arakonserta hans þarsem hann
þreytti maraþonspuna á flýgilinn
jafnt í Köln sem Lausanne. Þar
spann hann í ótrúlegustu stílteg-
undum, frá klassík til búgga, en að
því kom að hann fékk nóg af ein-
leiksspunanum og tók að glíma við
standarda með tríói sínu, en í því
eru auk hans Gary Peacock bassa-
leikari og Jack DeJohnette tromm-
ari. Það tríó hefur hljóðritað fjölda
diska fyrir ECM og hlotið fádæma
vinsældir - ferðast um víða veröld
og alls staðar fyllt tónleikahallirn-
ar. Því miður hefur Keith ekki enn
heimsótt Island, enda kostar sitt
að fá hann þá sjaldan hann heldur
tónleika og undanfarin ár hefur
hann ekki gengið heill til skógar -
hefur þjáðst af síþreytu. Nú er
hann á batavegi og sendi frá sér
nýja skífu er tekin var upp á síð-
asta ári. Er hún ólík öllu öðru er
hann hefur gert, hvort sem var
með kvartettnum fræga með Garb-
arek, sólóverkunum, standardtríó-
inu eða á Bach- og Sjóstakovíts-
skífunum. Hér situr hann við
píanóið og leikur þekkt lög án þess
að fara mikið útfyrir efnið. í þjóð-
lögunum My wild Irish rose og
Shenandoah er Jarrett trúr upp-
runanum í útsetningum sínum, en
þó leikur hann á þann hátt sem að-
eins djassleikari getur þótt fáum
djassbrögðum sé beitt, frekar en í
laginu þrautspilaða Be my love.
En þegar hann leikur I love you
Porgy og Balme it on my youth,
sem er tengd yndislegri hugleið-
ingu hans - metitation - er öll tón-
hugsunin djassleikarans og í I got
it bad and that aint good eftir Du-
ke Ellington og Ben Webster er
spunnið með blárri tilfinningu. Það
er líka eini spuni disksins - alls
staðar annars staðar þræðir hann
laglínuna en tekst að hefja þær
uppí æðra veldi því allur clyder-
manismi og dinnertónn er honum
víðsfjarri. Þessi tónlist Jarretts er
hugljúf en átakalítil - og róar hug-
ann án þess að tæma hann og
svæfa, einsog komið hefur fyrir
ágæta rýnendur er fjallað hafa um
hugleiðslutónlist.
II a v e II« 11 a n d:
Prime Ilirective
Dave Holland kvintettinn: Robin
Eubanks básúna og kúabjalla, Chris
Potter, sópran- altó- og tenórsaxó-
fónar, Steve Nelson víbrafónn og
marimbu, Dave Holland bassi og
Billy Kilson bassi. Ný frumsamin
verk eftir Holland og félaga hans.
ECM/Japis 1999.
Þessi nýjasta ECM-skífa breska
bassaleikarans Dave Hollands er í
einu orði sagt frábær og því oftar
sem maður hlustar á hana því
betri finnst manni hún. Ekki vegna
þess að hún sé það flókin að maður
þurfi að kryfja hvert verk til
grunna, heldur býr hún yfir ýms-
um leyndum töfrum sem opnast
ekki að fullu við fyrstu hlustun
heldur orka æ sterkar er tíminn
líður.
Það var árið 1968 að Miles Davis
heyrði Dave Holland fyrst með
Kenny Wheeler á Ronnie Scott
klúbbnum í London. Skömmu síðar
fékk hann Dave til að fylla skarð
Rons í kvintetti sínum. Síðan hefur
Dave Holland verið í hópi virtustu
djassleikara heims og hver ný
skífa hans vekur athygli.
Chris Potter tók sæti Steve Wil-
son í Holland-kvintettnum er skífa
Hollands, Points of view, kom út
1998 og hann hefur fjörgað hljóm-
sveitina mjög. Potter fékk Jazz
pair verðlaunin í fyrra, sem stund-
um eru kölluð djassóskarinn, og er
yngsti djassleikarinn sem hefur
hlotið þann heiður. Hann er
kannski ekki frumlegasti ungi
djasssaxistinn um þessar mundir
en tekst aðdáunarlega vel að sam-
ræma hefðina og nýsköpun og lífs-
krafturinn er óþrjótandi. Stundum
minnir kvintett Dave Hollands á
kvintett Jackie McLeans frá 1963,
ekki aðeins vegna þess að hljóð-
færaskipanin er sú sama heldur
hvernig honum tekst, einsog
McLean á þeim árum, að endur-
nýja tónlist sína án þess að rjúfa
tengslin við djasshefðina og beisla
frumkraft djassins.
Dave Holland leikur að jafnaði
ekki í hinum klassíska fjórskipta
takti djassins, en það er sama
hvaða takttegund er upp á ten-
ingnum, hún þjónar ávallt spunan-
um sem tónsmíðinni. Arabísk og
þó sérí lagi afrísk áhrif eru sterk í
tónlist Hollands, enda ólst hann
upp í London í félagsskap suður-
afrískra djassleikara einsog Chris
McGregors, sem kenndi honum að
hlusta á plötur. Samt er það Amer-
íkudjassinn, sem ræður ríkjum hjá
þessum tónsterka breska bassa-
leikara, litaður evrópskum áhrifum
og allt frá kraftbirtingnum í fyrsta
verkinu samnefndu skífunni til
lokaverksins, Down time með elli-
ngtonískum blæ, eru tónatöfrar og
rýþmísk spenna aðall skífunnar.
Jafnt í hröðum ópusum sem ballöð-
um.
Vernharður Linnet
Bragi Olafs-
son gestur
Ritlistar-
hópsins
SKÁLDIÐ Bragi
Ólafsson er
næsti gestur
Ritlistarhóps
Kópavogs í
Gerðarsafni í
dag, fimmtudag,
kl. 17.
Bragi les úr
verkum sínum,
bæði prentuðum
og óprentuðum.
Eftir Braga hafa komið út bæk-
urnar Ljóðaúrval: 1986-1996,
(1999) Hvfldardagar, (1999) Nöfn-
in á útidyrahurðinni, (1996)
Klink, (1995), Við munum svara í
síma yðar = Vi komme (1993)
Þýðing: Auster, Paul, Glerborgin,
(1993) Ytri höfnin, (1993) Ansjós-
ur, (1991), Dragsúgur. Aðgangur
er ókeypis.
List
barna í
Nönnu-
koti
NU stendur yfir mynd-
listarsýning sautján barna, á
aldrinum 5 til 9 ára, í Nönnu-
koti í Hafnarfirði. Bömin eru
nemendur Litla myndlistar-
skólans í Hafnarfirði. Myndirn-
ar eru unnar með blandaðri
tækni og unnið er með uppstill-
ingu sem fengin er að láni úr
kaffihúsinu og er það kaffi-
stemmningin sem ræður ríkj-
um í myndunum.
Aðalheiður Skarphéðinsdótt-
ir myndlistarmaður rekur Litla
myndlistarskólann. Skólinn er
til húsa á vinnustofu hennar að
Strandgötu 50.
Sýningin stendur til 10. maí
og er opin alla daga, nema
mánudaga, frá 14 til 19.
SKÓSPRENGJA
ÁRMÚLA 23
Ótrúlegt verð • frá 995
Sportskór Barnaskór
Dömuskór Herraskór
Hjálmarsson
Nýjar bækur
• ÞJÓÐSÖGUR
við þjóðveginn er
eftir Jón R. Hjálm-
arsson.
Í fréttatilkynn-
ingu segir m.a.:
„Heimsóttir eru
fjölmargir staðir í
alfaraleið hringinn í
kringum landið,
sem og nokkrir á
fáfamari slóðum, og rifjaðar upp
þjóðsögur og sagnir sem ættaðar eru
frá þessum stöðum. Þetta em alls um
sextíu sögur sem skipað er niður með
hliðsjón af vegakerfi landsins, þannig
að auðvelt sé að finna sagnir frá þeim
slóðum sem ferðast er um hverju
sinni. Við upphaf hverrar sögu er
gerð grein fyrir sögusviðinu, helstu
kennileitum lýst sem og markverðum
stöðum og fyrirbærum í nágrenninu.“
Bótín ergefm út undirnafni AI-
menna bókafélagsins, sem erdóttur-
forlag Vöku-Helgafeíls hf. Bókin er
223 bls., prentuð í Odda hf.
Loftur Leifsson hannaði bókar-
kápu. Verð2.490 kr.
• STÚART litli er eftir ameríska
rithöfundinn E.B. White í þýðingu
Onnu Snorradóttur
Stúart litli er engin venjuleg mús
enda er ekki beinlínis venjulegt að
mús eigi mennska fjölskyldu og
verði að hegða sér í samræmi við
það. Hann er þó duglegur að bjarga
sér en lendir í ótrúlegum ævintýrum
og hrakningum.
Colombia Pictures hefur gert
kvikmynd sem byggð er á sögunni
og verður hún frumsýnd um pásk-
ana.
Utgefandi er Mál og menning.
Bótín er 128 bls., skreytt teikning-
um. Prentuð í Danmörku. Verð:
1.880 kr.
Nýskráð fyrirtæki
— mikil sala
1. Nú er mikið að gera í blómaverslunum og gaman að vinna
þar. Til sölu glæsileg blómaverslun á besta stað í borginni.
Lifandi og skemmtilegt starf.
2. Veisluþjónusta sem hefur mjög góða aðstöðu og öll tæki
sem þarf. Framleiðir einnig frábært sælgætisviðbit á veislu-
borðið. Þekkt fyrirtæki með gott orð á sér og fasta viðskipta-
vini.
3. Lítið fyrirtæki sem útbýr auglýsingar, sér um hönnun og um-
brot og leitar tilboða í prentverk og fylgir því eftir. Góð sam-
bönd og fastir viðskiptavinir.
4. Sólbaðsstofa með 6 bekkjum og allt til alls. Mikið að gera.
Nýjar innréttingar.
5. Tölvufyrirtæki sem flytur inn góðar og þekktartölvur á frábæru ,
verði og er einnig með verkstæði á bak við. Laust strax.
6. Lítil blóma- og gjafavöruverslun sem er með mikið af hand-
unnum listaverkum eftir ýmsa aðila. Falleg búð á góðum
stað í grónu hverfi í miðborginni.
7. Eitt þekktasta vínveitingahús landsins til sölu. Er á besta
stað í borginni. Frjáls opnunartími. Gottfyrir duglega aðila
sem standa á gólfinu og stjórna sjálfir. Mikil velta sem hægt
er að stórauka með góðu aðhaldi.
8. Heildverslun sem selurvörurfyrir hestamenn og bændur. Frábær
vara sem gaman er að selja og sem heldur áfram að selja fyrir
þig. Hentar einum aðila.
9. Innflutningur og hvetjandi heimasala á þekktum snyrtivörum
sem allar konur kannast við. Toppgæðavara. Góð framlegð.
Sniðugtfyrir heimavinnandi að stjórna þessu frá heimili sínu
ef þú hefur góðan bílskúr
10. Frábær lítil heildverslun sem selur fallega skartgripi og skraut-
hringi sem flutt er inn frá Englandi og USA. Selur mest í stórar
verslanir. Það er gaman að selja og bjóða ódýra og fallega
hluti. Einnig tilvalið fyrir aðrar heildverslanir til að stækka hjá
sér og bæta við án þess að auka dreifingarkostnaðinn.
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAN
SUÐURVE R I
SfMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Bætum daglega við skóm
Skór frá Skæði og Skóverslun Kópavogs
Opið frá kl. 12 -18 mánud. - föstud. og 10 -16 laugard.
RÝMINGARSALA
Allt á að seljast
30-50°°
afsláttur
Aðalstræti 16, sími 551 9188.