Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 57 ----------------------- + Ásgerður Sigur- mundsdóttir fæddist á Svínhólum í Lóni 15. október 1912. Hún andaðist á Hrafnistu í Hafnar- fírði 5. aprfl síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Sigurmundur Guðmundsson, bóndi á Svínhólum í Lóni, f. 4. september 1881, d. 12. mars 1960 og Guðný Bjarnadóttir, f. 28. ágúst 1877, d. 18. janúar 1937. Systkini Ásgerðar eru: 1) Svanhildur, f. 9. ágúst 1907, d. 8. október 1967.2) Bjami, f. 26. nóvember 1908, d. 10. des- ember 1972. 3) Guðfinna, f. 25. janúar 1911, d. 25. ágúst 1999. 4) Anna Sigríður, f. 22. janúar 1915. 5) Ragnar, f. 26. ágúst 1916. Ásgerður giftist árið 1936 Jó- hanni Ingvarssyni húsgagna- smíðameistara, f. 30. júlí 1908, d. 15. mars 1998. Þau bjuggu lengst af á Hofteigi 24 í Reykjavík. Böm Jóhanns og Ásgerðar eru: Elskuleg tengdamóðir mín, Ás- gerður Sigurmundsdóttir hefur nú kvatt okkur 87 ára að aldri. Hún var nýflutt á Hrafnistu í Hafnarfirði þegar hún lést en síðustu þrjú árin dvaldi hún á Landakoti og þar leið henni vel. Fyrir hönd fjölskyldunnar eru hér færðar þakkir til starfsfólks á Landakoti og á Hrafnistu í Hafnar- firði fyrir umönnun og kærleika. Gerða eins og við kölluðum hana, hefur upplifað ótrúlegar breytingar í þjóðfélaginu, hraður vöxtur þessarar þjóðar sem kemur fram í mörgum myndum kom henni þó ekki í opna skjöldu því alla tíð fylgdist hún vel með öllu, hvort heldur sem var á Is- landi eða annars staðar í heiminum. Börnum sínum reyndist hún afar vel og öllu sínu fólki og þegar ég tengd- ist fjölskyldunni hitti ég fyrir ákveðna konu sem tók mér frábær- lega vel og ég bar mikla virðingu fyr- ir. Gerða giftist eiginmanni sínum Jóa, árið 1936, og þau eignuðust þijú börn, Sonju Maríu, sem er búsett í Bandaríkjunum, Öm og Óttar sem báðir eru búsettir í Lúxemborg. Þau hafa því, í allmörg ár, horft á böm sín í fjarlægð, en altra síðustu ár hafa Sonja María, Örn og Óttar þó öll vanið komur sínar til íslands mjög reglulega. Elsku tengdamóður mína kveð ég með sömu Vögguvísunni og ég kvaddi tengdaföður minn með, fyrir réttum tveimur árum. Vögguvísan er eftir Jóhann Jónsson: Þei,þeiogró. Þögn breiðist yfír allt. Hnigin er sól í sjö. Sofþúíblíðriró. Við höfumvakaðnóg. Værðarþúiýótaskalt Þei.þeiogró. Þögn breiðist yfir allt. í huga mínum er þakklæti fyrir að hafa kynnst yndislegri konu og njóta návistar og ástúðar hennar. Elsku Mæja, Örn, Óttar minn og aðrir ást- vinir, innilegustu samúð, Guð geymi Gerðu okkar og Jóa og gott er að vita af þeim saman í nýju „dúkkuhúsi" á englaslóðum. Guðbjörg. Elsku amma mín. Ég vil kveðja þig í litlu bréfkorni og þakka þér fyrir allt sem þú hefur verið mér. Þú kenndir mér mikið og margt og ég sakna þín mikið en ég veit að nú líður þér betur og ert búin að hitta afa Jóa sem er búinn að bíða eftir þér í tvö ár. Ég ætla að kveðja þig með þessu Ijóði: Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (Halldór Laxness.) Þín 1) Sonja María, f. 18. september 1936, búsett í Boston í Bandaríkjunum. Maki James E. Ca- hill, f. 27. maí 1938, d. 15. aprfl 1998. Böm þeirra eru James Edward, Gerða María, Kristín og María Jórunn. 2) Örn, f. 11. nóvember 1941, flugvélstjóri búsettur í Lúxem- borg. Maki Edda Sölvadóttir, f. 24. janúar 1942. Börn þeirra eru Jóhann Örn, Vala Björg og Ingi Sölvi. 3) Óttar, f. 14. júní 1950, flugmaður búsettur í Lúxemborg. Maki Guðbjörg Stein- arsdóttir, f. 24. janúar 1961. Barn þeirra er Óttar Andri og eldri börn Óttars eru Ingvar Pétur, Ól- afur Örn og Birgitta Engilberts. Barnabörn Ásgerðar eru átta tals- ins. _ Útför Ásgerðar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Til ömmu hugsa ég nú, hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. apríl sl., ég heiti Gerða eins og hún, og er stolt af því. Amma mín var sterk kona. En ég bý í Bandaríkjunum svo ég sá hana ekki mjög oft. Á jólunum hlakk- aði ég alltaf til að opna pakkana frá íslandi, hún sendi oft handpijónaðar peysur, vettlinga og smákökur sem var gaman að fá, en ég gat aldrei vanist vondu lyktinni af þessum harða fiski sem hún sendi og kallað- ur er harðfiskur á íslensku. Ég dáð- ist að sjálfstæði hennar og styrk og mér er sagt að ég hafi svo sannar- lega erft það frá henni! Þegar ég var ellefu ára var ég send til Islands til ömmu og afa til dvalar hluta úr sumri. Það reyndist mér dýrmæt reynsla og ég lærði svolítið af ís- lenskri menningu, bakstur hennar var ómótstæðilegur og eggjasalatið frábært. Amma sagðist ekki tala ensku, en samt sem áður fór ekki milli mála þegar hún sagði „I’m going to tell your mother." (fsl. þýð. Ég ætla að segja mömmu þinni frá þessu). Ég varð því að reyna að tala íslensku og bjarga mér. í gegnum árin hefur amma mín sent mér gjafir að heiman og þær eru fjársjóður minn. Ég á þrjá syni sem hafa ekki haft tækifæri til að hitta ömmu en nú hef ég þá með mér að kveðja hana. Amma mín lifði góðu og löngu lífi og átti yndislega fjöl- skyldu. Gerða. Til ömmu minnar. Ég bý í Bandaríkjunum og ég á góðar minningar um ömmu mína, Gerðu. Hún sendi mér í jólagjöf nýj- ar íslenskar ullarpeysur og ullar- vettlinga sem ég notaði þangað til götin voru óbætanleg og ég hlakkaði til næstu jóla því ég vissi hvað var í jólapakkanum. Ánægjulegt er einnig að minnast tedrykkju okkar á morgnana og líka síðdegis. Ég hef ekki komið til íslands í níu ár og mér finnst sárt að eiginmaður minn mun aldrei hitta ömmu en ég mun ávallt muna ánægjustundimar okkar og ég sakna hennar. Systkin mín, Jimmy og Kristin, sem ekki komast til ís- lands, eiga einnig fallegar minningar um yndislega ömmu og senda öllum samúðarkveðjur. Maja Joa. Kæra amma Gerða. Mig langaði með nokkrum orðum að kveðja þig og þakka fyrir yndis- legar samverustundir í þessum heimi. Ég sat oft tímunum saman inni í eldhúsi hjá ömmu ræðandi um dag- inn og veginn á meðan hún reyndi með öllum tiltækum ráðum að koma sem mestu af mat ofan í mig. Ástæða þess að ég leitaði mikið til ömmu og afa á Hofteignum var sú að ég var um 10 ára skeið í námi á ís- landi á meðan foreldrar mính- voru í Lúxemborg. Á námsárum mínum mynduðust mjög náin tengsl við ömmu og afa. Ég var í raun og veru eina barna- barnið sem bjó á landinu. Næstum daglega kom ég við á Hofteignum og ávallt var amma til staðar tilbúin að hjálpa mér eða gefa mér góð ráð og spjalla um fréttir líðandi stundar. Amma Gerða var mjög ákveðin kona með mjög fastar skoðanir á hlutunum. Hún var ekki með óþarfa málalengingar, sérstaklega ekki í síma. Alloft sat ég með símtólið í hendinni og hún búin að skella á, eft- ir að hún hafði lokið erindi sínu og gaf manni ekki einu sinni möguleika á að svara. En þetta var bara hún amma mín. Það var einstakleg gaman að hjálpa ömmu með ýmislegt, hvort sem það var við húsið eða keyra hana eitthvað. Hún var svo innilega þakk- lát fyrir hjálpina. Undanfarin ár hef ég lítið verið á íslandi og hefur það nagað mig að geta ekki sinnt ömmu og afa meira, þó sérstaklega síðustu árin þegar amma var þetta lasin og rúmlig- gjandi inni á Landakoti. Ég, konan mín og börnin mín tvö reyndum að heimsækja ömmu á spítalann þegar við vorum á landinu og hafði amma gaman af því að sjá pollana. En nú er amma Gerða komin á þann stað sem hún er búin að bíða lengi eftir að komast á og vona ég að amma og afi fylgist með mér og mín- um úr fjarlægð. Jóhann Örn Arnarson. + Kveðjuathöfn um móður mína, ömmu, tengdamóður og langömmu, GRÓU GRÍMSDÓTTUR, Stillholti 15, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 14. apríl kl. 14.00, en jarðsungið verðurfrá Dalvíkurkirkju laugardaginn 15. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Kolbrún Kristinsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR SIGURMUNDSDÓTTIR, áður til heimilis á Hofteigi 24, Reykjavík, sem andaðist á Hrafnistu ( Hafnarfirði miðviku- daginn 5. apríl, verður jarðsungin frá Áskirkju við Vesturbrún í Fteykjavík í dag, fimmtudaginn 13. aprfl, kl. 13.30. Sonja María Jóhannsdóttir Cahiil, Örn Jóhannsson, Edda Sölvadóttir, Óttar Jóhannsson, Guðbjörg Steinarrsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÁSGERÐUR SIGUR- MUNDSDÓTTIR + Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, KARL KRISTINN KRISTJÁNSSON, Kirkjubraut 5, Akranesi, lést af slysförum mánudaginn 10. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Kristján Sveinsson, Sigrún Halla Karlsdóttir, Álfhildur Kristjánsdóttir, Sveinn Kristjánsson. + Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Ytra-Seljalandi, Vestur-Eyjafjöllum, lést á líknardeild Landspítalans miðviku- daginn 12. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Hálfdan Auðunsson. + Hjartkær eiginmaður minn, LEIFUR ÞORBJARNARSON bókbindari, frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 12. apríl. (' Hulda Reynhlíð Jörundsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, ÓLAFÍA BESSADÓTTIR FOGED, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 5. apríl. Að ósk hinnar látnu hefur útförin farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfræðinga og starfsfólks taugadeildar Landspítalans, deild 32A, fyrir sérstaklega góða umönnun, elskulegt viðmót og stuðning. Aage Foged. + Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BALDVINA MAGNÚSDÓTTIR, Hraunbæ 96, Reykjavík, sem andaðist á Landspítaianum, Fossvogi, laugardaginn 8. apríl, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 14. apríl kl. 15.00. Snæbjörn Pálsson, Magnús Snæbjörnsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Páll Snæbjörnsson, Guðrún Dóra Gísladóttir, Sigrún Birna Magnúsdóttir, Daði Snær Pálsson, Arna Pálsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, ÞORSTEINN HELGASON PhD, prófessor í verkfræði, Hvassaleiti 87, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 13. apríl, kl. 13.30. Elísabet Einarsdóttir, Svava Þorsteinsdóttir, Helgi Þór Þorsteinsson, Einar Baldur Þorsteinsson. Helgi J. Þórarinsson, Guðrún Jónsdóttir, Kristín H. Nickerson, David Nickerson, Kirstín Lydia Nickerson, Louise Valgerður Nickerson. Birgptta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.