Morgunblaðið - 13.04.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
og hvetja fjölskylduna til að reyna
allar leiðir til að losna úr henni.
• Aðstoð við foreldra við að afla
meiri tekna, til að bæta fyrir tekjur
sem þeir missa þegar börnin hætta
að vinna. Þetta verður gert með því
að bjóða upp á nám í einhverri iðn
eða aðstoð við að sérhæfa sig í ein-
hverju handverki.
• Eigendur vefstofanna sporna
við tilraunum foreldra til að losa
börnin. Hið opinbera veitir litla að-
stoð. Á þessu þarf að vinna með
hægð.
• Leysa börn úr ánauð þ.e. að
greiða skuldina og fylgjast með því
að þau stundi skólann, ella er hætta
á því að þau lendi aftur í sömu
stöðu.
• Bjóða upp á óformleg kvöld-
námskeið fyrir þau sem ekki geta
sótt dagskóla og draga þannig úr
ólæsi.
• Koma á fót kennslu í iðngi’ein-
um fyrir börn í þrælavinnu svo að
þau geti séð fyrir sér með öðrum
hætti en staða þeirra í samfélaginu
hefur boðið þeim.
• Koma á fót sjálfshjálparhópum
foreldra og hvetja til stofnunar for-
eldrasamtaka barna í vinnuánauð.
• Stofna spari- og lánasjóð sem
foreldrar geta sótt í, í stað þess að
vera háðir vinnuveitendum með lán
komi eitthvað óvænt upp á.
• Náms- og starfsráðgjöf fyrir
börn dalíta.
Þessir þættir þurfa að vera til
staðar þegar börn eru leyst úr
ánauð. Annars verður árangurinn
ekki varanlegur. Mikilvægt er að
rasa ekki um ráð fram og vanda vei
til verka.
Af ofangreindu má sjá að það að
leysa barn úr skuldaánauð er ekki
einfalt verk í samfélagi sem mótað
er af stéttaskiptingu og mismunun,
en það er gerlegt sé vel að því stað-
ið. Það hefur reynslan sýnt.
Kúgun og örbirgð aðalorsök
Mannréttindabrot eru alvörumál
hver svo sem á í hlut. Alvarlegustu
mannréttindabrotin hljóta þó að
vera gegn þeim er ekki geta borið
hönd fyrir höfuð sér, börnunum.
Víða í heiminum eru börn misnotuð
á margvíslegan hátt og hafa lítið
sem ekkert um framtíð sína að
segja. Vinnuþælkun er án efa al-
gengasta brotið. Börnum er þrælað
út við hörmulegar aðstæður í allt að
16 klukkutíma á sólarhring. Þau eru
rænd æsku sinni, möguleikum til
menntunar og áhrifa á eigið líf og
framtíð. Doði og vonleysi nær tök-
um á þeim og baráttu- og sjálfs-
bjargarviðleitnin hverfur.
Barnaþrælkun finnst fyrst og
fremst í löndum þar sem mikil fá-
tækt ríkir. Fátæktin er meginorsök
þess að foreldrar eru tilneyddir að
láta börn sín strita myrkranna á
milli, oft vegna smávægilegra
skulda sem stofnað hefur verið til.
Þær er yfirleitt ekki hægt að greiða
og kannski ekki ætlunin hjá vinnu-
veitandanum sem jafnframt er lán-
ardrottinn.
Tökum höndum saman og réttum
börnum Indlands hjálparhönd.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar.
Það fer enginn á hjól án hjálms, þaö er ófrúvlkjanleg regla.
Örninn býöur upp á hjálma fyrir fjölskylduna I öllum regnbogans litum,
SMimono' c
Skeifunni 11 - Sími 588 9890 - Veffang orninn.is Opiðkl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga
k