Morgunblaðið - 13.04.2000, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 6^5
P® WtðAum
feCíSSsKá'
Eru stjórnvöld á móti
samkeppni í sjóflutningum?
MIKLAR breyting-
ar hafa orðið á ís-
lensku þjóðfélagi á
undanförum árum.
Virk samkeppni hefur
komið í stað einokun-
ar á mörgum sviðum
atvinnulífsins, neyt-
endum til mikilla
hagsbóta. Ekki eru
mörg ár síðan margir
töldu að samkeppni
væri óhugsandi í flug-
samgöngum og fjar-
skiptum eða að það
væri ófrákvíkjanleg
regla að ríkið væri Stefán S.
ráðandi aðili á fjár- Guðjónsson
málamarkaði. Allt
þetta hefur breyst á ótrúlega fáum
árum.
Samkeppni skortir í
Ameríkusiglingum
Af einhverjum ástæðum hefur
gengið treglega að viðhalda virkri
samkeppni í sjóflutningum til og
frá íslandi. Þetta á einkum við um
siglingaleiðina milli íslands og Am-
eríku þar sem eitt skipafélag hefur
verið ráðandi aðili.
í ársbyrjun 1997 sömdu Eimskip
og Samskip um að síðarnefnda
skipafélagið hætti eigin siglingum
til Ameríku en notaðist við þjón-
ustu Eimskips í staðinn. I ágúst
sama ár úrskurðaði samkeppnisráð
að samstarf skipafélaganna væri í
andstöðu við samkeppnislög en
veitti því hins vegar undanþágu á
grundvelli þess að það leiddi til
hagkvæmari nýtingar framleiðslu-
þátta samfélagsins. Þetta voru
slæm tíðindi fyrir farmeigendur
sem höfðu ekki lengur valkost enda
hækkuðu farmgjöld á þessari leið
þar sem Eimskip missti það aðhald
sem samkeppnin veitti.
Atlantsskip skapa
samkeppni
Sem betur fer varaði þetta
ástand ekki lengi því árið 1998
stofnuðu nokkrir ungir menn
skipafélagið Atlantsskip og hófu
áætlunarsiglingar milli íslands og
Ameríku. Eins og frumkvöðla er
háttur óttuðust þeir ekki að taka á
sig skuldbindingar og leggja
ótrauðir í samkeppni við gamalgró-
in fyrirtæki. Árangurinn er sá að
Atlantsskipum hefur tekist að
koma á harðri samkeppni í flutn-
ingum milli íslands og Ameríku og
lækkað farmgjöld verulega á þess-
ari mikilvægu siglingaleið.
Stutt saga Atlantsskipa sýnir að
samkeppni í sjóflutningum er besta
ráðið til að halda farmgjöldum
niðri. Lægra flutningsverð leiðir af
sér lægra vöruverð sem skiptir
miklu máli í glímunni við verðbólg-
una. í ljósi þessa skyldu menn ætla
að íslensk stjórnvöld fögnuðu þess-
ari þróun mála og gerðu sitt þesta
til að stuðla að viðgangi hins unga
skipafélags og reyndu a.m.k. ekki
að leggja stein í götu þess. Raunin
virðist hins vegar vera önnur. AJlt
frá því Atlantsskip hófu Ameríku-
siglingar sínar hafa íslensk stjórn-
völd reynt eftir megni að gera fyr-
irtækinu erfitt fyrir.
Samkvæmt milliríkjasamningi
íslands og Bandaríkjanna frá árinu
1986 eru flutningar fyrir varnarlið-
ið boðnir út í báðum löndunum og
fær það skipafélag sem lægst býð-
ur 65% flutninganna en lægstbjóð-
andi frá hinu landinu 35%. Arið
1998 buðu Atlantsskip lægst ís-
lenskra fyrirtækja í flutningana og
fékk því bróðurpart þeirra í sinn
hlut en systurfélag Atlantsskipa í
Bandaríkjunum, Transatlantic Lin-
es, bauð lægst þarlendra skipafé-
laga og fékk því 35% þeirra. Atl-
antsskip hafa þannig annast
varnarliðsflutningana í tvö ár með
sóma og í sátt við bandarísk stjórn-
völd. Bæði skipafélögin eru undir
stjórn Islendinga og
því eru varnarliðs-
flutningarnir í raun
komnir á íslenskar
hendur.
Lagafrumvarp ut-
anríkisráðherra
Ýmsum virðist sem
íslensk stjómvöld hafi
horn í síðu Atlants-
skipa enda hafa þau
gripið til margvíslegra
aðgerða sem virðast
til þess fallnar að
knésetja hið unga
skipafélag eða a.m.k.
að svipta það varnar-
liðsflutningunum.
Fyrir ári ákvað utanríkisráðuneyt-
ið að láta sérstaka forvalsnefnd
ákveða hvaða skipafélög megi
bjóða í varnarliðsflutninginn. For-
valsnefndin komst að þeirri ótrú-
legu niðurstöðu að Atlantsskip
mættu ekki bjóða í umrædda flutn-
inga þrátt fyrir að félagið hafi
hreppt þá á sínum tíma í útboði og
sinnt þeim óaðfinnanlega síðan. Ef
Atlantsskip verða svipt réttinum til
að bjóða í varnarliðsflutningana er
í raun grundvellinum kippt undan
Ameríkusiglingum fyrirtækisins og
e.t.v. allri starfsemi þess.
Nýjasta útspil stjórnvalda í mál-
inu er lagafrumvarp sem utanríkis-
ráðherra hefur lagt fram á Alþingi
þar sem mælt er fyrir um fram-
kvæmd tiltekinna þátta í varnar-
samstarfi Islands og Bandaríkj-
Siglingar
Samkeppni í sjóflutn-
ingum, segir Stefán S.
Guðjónsson, er besta
ráðið til að halda farm-
gjöldum niðri.
anna. Meðal annars eru þau
skilyrði hert verulega sem íslensk
fyrirtæki þurfa að fullnægja svo
þeim sé heimilt að keppa um samn-
inga við varnarliðið, sem ætlaðir
eru íslenskum fyrirtækjum.
Greinilegt er að frumvarpinu er
stefnt gegn starfsemi Atlantsskipa
og samningum þess við flutninga-
deild bandaríska hersins þótt full-
trúar utanríkisráðuneytisins haldi
öðru fram. Það virðist einkum vera
stjórnvöldum þyrnir í augum að
erlendur aðili eigi helming hluta-
fjár í Atlantsskipum og í frumvarp-
inu er stjórnvöldum heimilað að
skilgreina „íslensk skipafélög“ í
skilningi samningsins um varnar-
liðsflutningana. Þá vekur bráða-
birgðaákvæði í frumvarpinu sér-
staka athygli, en með því er
forvalsnefndinni gefið vald til þess
að koma í veg fyrir að flutninga-
deild Bandaríkjahers framlengi
samninga sína við Atlantsskip, eins
og kveðið er á um í samningi
þeirra, þótt hugur aðila kunni að
standa til þess. Samningur flutn-
ingadeildarinnar við Atlantsskip
var til fimm ára, þ.e bindandi til
tveggja ára eða til 2000, með
ákvæðum um möguleika á þremur
framlengingum til eins árs í senn.
Verði umrætt frumvarp að lögum
hefði forvalsnefndin það í hendi sér
að koma í veg fyrir að samningur-
inn verði framlengdur og velja
„hæfa aðila“ til að taka þátt í nýju
útboði.
Úreltur milliríkjasamningur
Það hugarfar virðist ráða för
stjórnvalda í þessu máli að skipafé-
lagið Atlantsskip sé þess ekki verð-
ugt að sinna umræddum flutning-
um þar sem það sé að hluta til í
eigu útlendinga. Hafa ber í huga að
aðstæður hafa gjörbreyst síðan
samningurinn um varnarliðsflutn-
ingana var gerður árið 1986 og
slíkt hugarfar er löngu úrelt hafi
það nokkurn tímann átt rétt á sér.
Fjármagn er nú á fleygiferð á milli
landa og eftir að alþjóðavæðingin
hóf innreið sína í íslenskt atvinnulíf
eru fyrirtæki ekki lengur spurð um
vegabréf heldur um þjónustu og
verðlagningu.
Fyrirtækið Atlantsskip er skráð
á íslandi og greiðir skatta og
skyldur hérlendis. Það er hins veg-
ar fullkomið aukaatriði hvort ein-
hverjir hluthafa þess séu erlendir.
Útlendingar eru nú þegar hluthaf-
ar í erlendum skipafélögum erlend-
is án þess að viðskiptavinir eða
stjórnvöld hafi gert nokkrar at-
hugasemdir við það. Mörg íslensk
fyrirtæki eru sjálf í útrás og fjár-
festa víða um heim og tækju ís-
lensk stjórnvöld það áreiðanl£§0*
óstinnt upp ef erlend ríki reyndu
að leggja stein í götu þeirra með
sértækri lagasetningu.
Ekki verður séð hvaða þörf er á
því nú að setja sérstakar reglur um
varnarliðsflutningana, enda ganga
þeir vel fyrir sig og kaupandi þjón-
ustunnar er sáttur við fyrirkomu-
lag Atlantsskipa á þeim.
Samkeppni eða einokun
Höfuðatriði málsins er að stjórn-
völd eiga að búa í haginn fyrir
frumkvöðla og efla þannig sam-
keppni á markaði neytendum til
hagsbóta. Er vonandi að utanríkis-
ráðuneytið hætti vanhugsuðum að-
gerðum sínum gegn Atlantsskipum
og gefi fyrirtækinu frið til að
tryggja Islendingum samkeppni í
sjóflutningum um ókomna framtíð.
Höf. er framkvæmdastjóri
Samtaka verslunarinnar,
félags ísl. stórkaupmanna.
7= C\J
sími 588 0640^
Mörkinm 3
Það cr hægt að
iicyst.] ,i liið ötrúlega
bjurt.i órcindarljós viö hvaöa
aösta'öur sem er.
Hvort sem ci i leik eða starfi munu
Nimi'ö [h'nn oq lcttlciki gera þér kleift
,iö h.it.i það ávallt u þéi.
Viö .itiyrijjumst aö óbrjótanleq
Ijósapeiau endist aö eililu, en hún cr
knúin af endíiujaigóöri litiurn- rathlöðu
seni li.eqt ei að skiiit.i iini
UTIIl LJÓSTÍDNI Uósraisu 1 CiRÁDDM RAUILAÐA I.ínÍMI k\i m.ömi
MLIIJLIK 626 nm. 24° víður 1 X Lithium CR-2032 124 klst.
/VFÞfiiiÍNÍJ GULUIt 605 nm. 15° mjór 1 X Uthium CR-2032 124 klst.
GULUIt 590 nm. 15° mjór 1 X Lithium CR-2032 124 klst.
GIIÆNN 525 nm. 30° vfður 1 X Lithium CR-2032 200 klst.
5/fGHÆlíiI 500 nm. 30° víður 2 X Uthium CR-2016 12 -14 klst.
ULÁii 470 nm. 30° víður 2 X Uthium CR-2016 12 - 14 klst.
iiynuii 6500 kelvin 20° mjór 2 X Uthium CR-2016 12 - 14 klst.
INFM ItAUÐUR ??? ??? 1 X Uthium CR-2032 ???
Utsölustaði
BENSÍNSTÖÐIN ÍSAFIRÐI
DROPINN KEFLAVÍK
HLAÐ SF. HÚSAVÍK
J&J Kjarnanum Selfossi
PÓLARIS EHF. AKUREYRI
SJÓBÚÐIN AKUREYRI
SMUR OG DEKK HORNAFIRÐI
VERSLUNIN BLÁFELL GRINDAVÍK
Veiðikofinn Egilsstaðir
VERSLUNIN VÍK NESKAUPSTAÐ jxj
VERSLUNIN ALDAN SANDGERÐI
RÁS EHF. ÞORLÁKSHÖFN
ÁRBÆJARBLÓM HRAUNBÆR
ÁSTUND AUSTURVERI
BÍLABÚÐ BENNA VAGNHÖFÐA
BÍLANAUST VERSLANIR
ELLINGSEN GRANDAGARÐI
GÍSLI JÓNSSON EHF. BÍLDSHÖFÐA
GUÐMUNDUR HERMANNSSON -
ÚRSMIÐUR SMÁRANUM
Heimskringlan Kringlunni
HESTAVÖRUR SÍÐUMÚLA
HLAÐ SF. BÍLDSHÖFÐA
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA
J. VILHJÁLMSSON BYSSUSi
MARKIÐ ÁRMÚLA
MERKÚR HF. SKÚTUVOGI
NANOQ KRINGLUNNI
POLARIS KÓPAVOGI
RAKARASTOFAN HÓTEL SÖGU
SELECT SMÁRANUM
SELECT SUÐURFELL
SELECT VESTURLANDSVEG
SPORTBÚÐIN TÍTAN SELJAVEGI
TOKYO GARÐABÆR
TÖLTHEIMAR FOSSHÁLSI
ÚTILÍF GLÆSEBÆ
VEIÐIHORNIÐ HAFN.
VEIÐIVON MÖRKIN
VESTURRÖST LAUGAVEGI
... • ■.
Dreifing
Veiðihúsið Sakka efh.
Hólmaslóð 4 101 RVK
SÍMAR 898 4047 • 562 0095
Fax 562 1095
Netfang vs.palll@xnet.ls