Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 66

Morgunblaðið - 13.04.2000, Page 66
I I FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ► ► t i ' ► » I I Handklæðaofnar Vandaðir handklæðaofnar. Fáanlegir í ýmsum stærðum. Lagerstærðir: 700 x 550 mm 1152x600 mm 1764x600 mm T€Í1GI e^gm^iiiir.~n Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089 Fást í byggingavöruverslunum um lantt allt Siírefhisvönir Karin Herzog Vita-A-Kombi olía Málefnaleg umfjöll- un um fískeldi í UMRÆÐU um fiskeldi, hafa menn varpað fram ýmsum fullyrðingum sem oft á tíðum geta talist vafa- samar. Undirritaður, sem er í forsvari fyrir áformum um fiskeldi við Eyjafjörð, vill hér koma á framfæri hald- bærum upplýsingum um fiskeldi, fiskisjúk- dóma, villta laxastofna og strok eldislaxa. Það er viðurkennd staðreynd að fisk- og sjávardýraeldi sé sú mataruppspretta sem mætir vaxandi þörf heimsbyggðarinnar fyrir sjávarfang í dag og væntanlega um langa fram- tíð enda ekki útlit fyrir að fiskimið hafsins geti mætt aukinni eftir- spurn, sem er talin vera 5-15% á ári. Þar sem bæði landbúnaður og akuryrkja takmarkast af náttúru- legu vatnsframboði er ekki búist við verulegri matvælaaukningu úr þeirri átt heldur. íslenska þjóðin sem byggir að miklu leyti afkomu sína á fiskveiðum og hefur aðgang að ferskvatni og sjó, ætti ekki að láta tækifæri til að byggja upp öfl- ugan fiskeldisatvinnuveg framhjá sér fara. Mikil þróun hefur átt sér stað í kvíaeldinu undanfarin ár. Helstu þættir eru að eldið flyst frá skjólg- óðum víkum út á opna, djúpa og straummikla firði og mesta aukning framleiðslu hefur undanfarin ár ver- ið á kaldari, norðlægari slóðum. Ástæðan fyrir því er, að þó að hár sjávarhiti auki vaxtarhraða veldur hann einnig miklu álagi og leysni súrefnis í sjónum minnkar með vax- andi hitastigi. Þessi þróun hefur kallað á öflugri eldisbúnað. Flest lönd sem eru að byggja upp laxeldi gera skipulagsáætlanir um hvar fiskeldi má vera og hvar það má ekki vera. Ákveðin svæði við strönd íslands eru víðsfjarri laxveiðiám og bendum við á að árnar sem renna í Eyjafjörð geta varla talist nátt- úrulegar laxveiðiár. Samkvæmt skrám Veiðimálastofnunar er meðalfjöldi veiddra laxa í Fnjóská frá 1974 til 1998 einungis 241 lax á ári, Eyjafjarðará með 22 laxa og aðrar ár sem renna í Eyja- fjörð með færri laxa. Fiskisjúkdómar Komið hefur fram í fréttum að hætta sé á að vírussjúkdómurinn ISA, sem nýverið kom upp í Færeyjum, geti borist í villta íslenska laxastofninn og jafnvel útrýmt hon- um. ISA, eins og aðrir vírus- og bakt- eríufisksjúkdómar bárust uppruna- lega úr náttúrunni en urðu ekki til í fiskeldinu. Talið er að smithætta frá fiskeldi vegna bakteríu og vírus- sjúkdóma sé ekki ógnun við villta laxastofna. í frétt í Morgunblaðinu 8. apríl sl. kom m.a. fram að sjúkdómurinn hafi lengi verið landlægur í Noregi. Því er hér við að bæta, að ef ISA-smit finnst í norskri eldisstöð fær við- komandi samstundis opinbera til- skipun um að slátra öllum eldisfiski í umræddri stöð, taka allan eldis- búnað í land og sótthreinsa hann. Eftir það skal líða lágmark eitt ár þar til fiskur verður settur aftur út í kvíar. Sjúkdómur þessi er fyrst og fremst vandamál í fiskeldi. Villtir laxastofnar í fréttum hafa sést fullyrðingar um að norska fiskeldið sé að ganga af villtum laxastofnum í Noregi dauðum og jafnframt muni eins fara fyrir þeim íslenska ef leyfi til eldis verða veitt. Norska skýrslan Til laks át alle kan ingen gjera? sem skrifuð var af nefnd, skipaðari af Noregskonungi 18. júlí 1997, fjallar um orsakir minnkunar villta norska laxastofns- Fiskeldi íslenska þjóðin, segir Guðmundur Valur Stef- ánsson, ætti ekki að láta tækífæri til að byggja upp öflugan fiskeldis- atvinnuveg framhjá sér fara. ins og tillögur um áætlanir og að- gerðir til að bæta ástandið. Helstu atriði sem leitt hafa til minnkunar stofnsins eru: 1. Virkjanir, áveitur, stíflugerðir. Einn þriðji hluti norskra vatnakerfa hefur orðið fyrir áhrifum vegna slíkra framkvæmda og þar með talin flest stærstu vatnakerfin með stærstu laxastofnana og alls er talið að 43 vatnakerfi séu í hættu eða ógnað. 2. Laxastofnar í 18 norskum vatnakerfum hafa dáið út af völdum súrs regns, sem er mengun frá iðn- aðarsvæðum Evrópu. 3. Ofveiði síðastliðin 20 ár. Lax- veiðar; eru langstærsti dauðapóst- urinn fyrir göngulax, en þær hafa stór áhrif á framleiðslugetu stofna. 4. Sníkjudýrið „Gyrodactylus salaris" hefur fundist í 40 norskum vatnakerfum og 37 seiðastöðvum og hefur valdið miklum skaða, og þ.m.t. útrýmingu nokkurra stofna. Skýrslan telur að áhrif fiskeldis á minnkun laxastofna sé aðallega tvenns konar, annarsvegar strok eldisfiska og hinsvegar aukin laxa- lús. Skýrslan telur ennfremur að ennþá hafi stroku-eldislax ekki haft teljandi áhrif á náttúrulega seiða- framleiðslu en vara við hættunni. Einnig að smithætta frá fiskeldi vegna bakteríu og vírussjúkdóma sé ekki ógnun við villta laxastofna. Skýrslan leggur til að draga þurfi verndarlínu kringum vatnasvæði mikilvægustu laxastofna landsins, Guðmundur Valur Stefánsson ásamt ákveðnu svæði sjávar, útfrá ósum. Einnig er lagt til að komið verði á stofn fjölþjóðlegri samvinnu um vernd vatnasvæða mikilvægustu laxastofna við Norður-Atlantshaf „International Salmon Heritage River and Fjords". Tvennskonar aðgerðir eru ráð- lagðar vegna stroks eldislaxa: a) Að ekki verði fiskeldi innan áð- urnefndra verndarsvæða. b) Að opinberir eftirlitsaðilar með fiskeldi, efli sína þekkingu bæði tæknilega og rekstrarlega til að geta gert raunhæfar kröfur um bún- að og starfsreglur með það að markmiði að minnka strok. Strok eldislaxa I fréttum hefur margoft komið fram að 2-5 % eldislaxa í Noregi sleppi úr kvíum. Nýlega kom út árleg skýrsla norska sjávarútvegsráðuneytisins sem hefur að geyma tölfræðilegar upplýsingar um norska fiskeldisár- ganginn sem settur var í kvíar 1998. Þar kemur m.a. fram hve margir fiskar „sleppa" eða réttara sagt, hverfa án skýringar. Af þeim 114.540.000 löxum sem settir voru í kvíar 1998 vantaði við slátrun 536.924 laxa uppá, sem er minna en hálft prósent. Stór hluti af þessu tapi er skýrður með því að þegar seiðin eru sjósett verði afföll, sér- staklega á minnstu einstaklingun- um, sem villtur fiskur nær að kroppa út í gegnum möskvana á botni kvíanna. Ekki er unnt að skrá- setja slík afföll. Nú liggja fyrir sterkar ábendingar um árangurinn 1999. I yfirliti sem birtist í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren, 29.3. 2000 þar sem bornar eru saman tryggingabætur greiddar til norska fiskeldisatvinnuvegarins 1998 og 1999, kemur m.a. fram að heildar- bótagreiðslur 1999 voru 54,8% minni en árinu áður þrátt fyrir meiri framleiðslu. Samanburðurinn bend- ir m.a. til að mun minna strok hafi átt sér stað 1999 en 1998. Allt bend- ir til að árangur í fiskeldi verði betri og betri með hveiju ári sem líður og sama gildir um strok eldislaxa. Niðurstaðan er því sú að hverf- andi hætta er á að sjúkdómar í fisk- eldi hafi neikvæð áhrif á villta stofna, fiskeldi í Noregi hefur hing- að til haft hverfandi áhrif á minnkun villtra stofna þar, og búast má við að strok eldislaxa sé og verði í framtíð- inni minna en 0,1%. Höfundur er fískifræðingur. um lá( ja útlánsvexti á g reiöslukortur Tl % í / I 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.