Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 Stöndum vörð um vöruverð í landinu Aðalfundur Verðbréfastofunnar hf. TILEFNI þessa greinarkoms er um- ræða undanfarinna daga í fjölmiðlum um heila stétt manna, þ.e. heildsala, sem öll hefur verið sett undir sama hatt. Þeir sem þeirri stétt tilheyra eru, sam- kvæmt umræðunni, upp til hópa vont fólk sem gerir hvað sem í þess valdi stendur til að halda vöruverði í land- inu háu. Það er þó sýnu verra að þetta vonda fólk gerir vinum láglauna- fólksins í landinu, forsvarsmönnum Baugs, lífið leitt með því gera allt hvað það getur til að koma í veg fyrir yfírlýst markmið þeirra sem, að eig- in sögn, er að halda verðlagi í landinu stöðugu. Það vilja þeir gera með því að hækka ekki sína álagningu. Um- fjöllun um þetta mikilvæga málefni hefur verið ítarleg og er Ijóst af henni að eitt og einungis eitt kunni að hamla hinu göfuga markmiði baugsmanna, en það eru heildsalarn- ir, sem að því er virðist hækka statt og stöðugt að nauðsynjalausu álagn- ingu sína og keppast með því við að raka að sér fé á kostnað neytenda. Satt að segja vekur það furðu að heildsalar rísi ekki upp undan þessu umtali og sýni og sanni að það sem þar komi fram sé rangt. Fram til þessa dags, 5. apríl, hefur ekkert þess efnis birst, og er nauðsynlegt að lýsa eftir yfirlýsingu þess efnis frá þeim. í fyrirtæki mínu, K.E. Kvaran hf. heildverslun, sem starfrækt hefur verið um tíu ára skeið, hefur aldrei staðið á því, hafi gjaldmiðlar breyst til lækkunar í því landi þaðan sem innflutningurinn er stundaður, að lækka heildsöluverðið. Nýlegt dæmi þar um er nærfatnaður og sportfatnaður á börn og fullorðna, undir vörumerkjunum Ab- anderado, Ocean og Princesa, sem flutt er inn frá Spáni. Spánski pesetinn hefur farið lækkandi og geta viðskiptavinir heildverslunarinnar um land allt staðfest að verðið í nýjasta verð- listanum hefur lækkað umtalsvert. Þetta er ekkert einsdæmi og gildir um alla aðra vöruflokka sem fluttir eru inn á veg- um heildverslunarinnar. Enda er yf- irlýst markmið fyrirtækisins gagn- Vöruverð Sjálfsagt er misjafn sauður í mörgu fé heildsala sem og ann- arra, segir Einar B. Kvaran, en flestir eru þar strangheiðarlegir og dugmiklir aðilar, sem engu síður en aðrir vilja standa vörð um vöru- verð í landinu. vart viðskiptavinunum að ávallt verði samið um lægsta verð sem unnt er að fá sé þess nokkur kostur og afslætti náð hvenær sem færi gefst. Allar slíkar lækkanir renna að sjálfsögðu beint til viðskiptavinanna. Einar B. Kvaran Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 Orator, félag laganema Með því er tryggt að þeir sem kjósa að eiga viðskipti við fyrirtækið njóti hagstæðustu kjara sem unnt er að ná samningum um á hverjum tíma. Það er því nauðsynlegt, þegar auð- velt er að nefna dæmi sem framan- greint, að reka með því slyðruorðið af „öllum“ heildsölum. Sjálfsagt er misjafn sauður í mörgu fé í stétt heildsala sem og annarra, en flestir eru þar strangheiðarlegir og dug- miklir aðilar, sem engu síður en aðrir vilja standa vörð um vöruverð í land- inu. Það er augljóslega allra hagur. Þeir hafa einungis ekki farið sömu leið og baugsmenn, að slá sig til ridd- ara á kostnað annarra og hefja auglýsingaherferð vegna svo sjálf- sagðs og eðlilegs máls, sem einnig er unnið að í fyrirtæki mínu og án efa annarra dags daglega og þykir ekk- ert tiltökumál. Höfundur er heildsali. Aðalfundur Verðbréfastofunnar hf. fyrir árið 1999 verður haldinn fimmtudaginn 13. apríl kl. 17.30 að Hótel Loftleiðum, Víkingasal. Dagskrá samkvæmt samþykktum. Tillaga um heimild til stjórnar til að auka hlutafé félagsins, breytingar á samþykktum vegna þessa og tillaga um kaup á eigin bréfum. Stjórn Verðbréfastofunnar. VERÐ B rÝfASTOFÁN SuBurlandsbraut 20, Reykjavik Sími 570-1200 ? KONFEKTMÓT PÁSKA- GGJAMÓX PIPAR OG SALT MATARLITIR Póstsendum Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 [ Kringlunni, sími 568 9970 skrefi framar oroblu@sokkar.is www.sokkar.is á fermingarsokkabuxum í dag kl. 14-18. 20% afsláttur af öllum OROBLU sokkabuxum. KYNNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.