Morgunblaðið - 13.04.2000, Síða 70
MORGUNBLAÐIÐ
70 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
HORPU
TILBOÐ
Gæða innimálning
GLJÁSTIG
10
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verö á 4 lítra dós
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HHBPft MÁININGARVERSUIN,
BJCJAXKUND 6, KÓPftVOGI.
Sími 544 4411
WHfm MáUNIN&NIVERSUIN,
SKBFUNNi 4« REYKJAVlK.
Sími 568 7878
MálRIR«l«VIKSLIIIK
*
UMRÆÐAN
Gulrótarflugan
- nýr vágestur?
UNDANFARIN ár
hafa lirfur svokallaðrar
gulrótarflugu skemmt
gulrætur sem ræktað-
ar hafa verið á höfuð-
borgarsvæðinu. Ekki
er vitað til þess að flug-
an finnist annars stað-
ar á landinu, en hún er
mjög útbreidd í ná-
grannalöndum okkar.
Hefur hún fræðiheitið
Psila rosae. I bók sinni
„Gróðursjúkdómar og
vamir gegn þeim“ frá
1962 getur Ingólfur
Davíðsson þess að gul-
rótarmaðkar hafi fund-
ist í Reykjavík. Hafi þetta verið gul-
rótarflugan virðist sem hún hafi dáið
út, hugsanlega vegna kólnandi veð-
urfars, því eini maðkurinn sem
greindur hefur verið úr gulrótum
hér á landi síðastliðin 20 ár hefur
reynst vera tegundin Delia platura
sem skyld er kálflugunni og fer aðal-
lega í gulrætur sem skemmdar eru
fyrir af öðrum orsökum.
Til Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins
hafa borist skemmdar
gulrætur frá skjólsælli
svæðum höfuðborgar-
svæðisins, einkum úr
Fossvogsdal en einnig
úr vesturbæ Reykja-
víkur og Laugardal.
Gulrótarflugan er mjög
háð því að leita í skjól
fyrir sól og vindi eftir
að hún klekst út s.s. í
skjólbeltum, öðrum há-
vöxnum gróðri eða
skurðum. Þaðan flýgur
hún og verpir í jaðar
gulrótargarðs. Ur
eggjunum klekjast hvítleitir maðkar
sem naga sig inn í gulrótina. Um
haustið skríða maðkamir út í jarð;
veginn og púpa sig og vetra þannig. I
nágrannalöndum okkar geta lirfurn-
ar vetrað og púpa sig þá ekki fyrr en
að vori.
Hafi gulrótarflugan dáið hér út og
horfið um lengri tíma og komið nú
aftur má spyrja hvemig hún hafi
Meindýr
Ég vil hvetja garðeig-
endur á höfuðborgar-
svæðinu til að rækta
ekki gulrætur í ár nema
hafa dúk yfír frá sán-
ingu og fram að upp-
skeru, segir Sigurgeir
Ólafsson, og að flytja
ekki safnhaugamold þar
sem gulrætur hafa lent í
burtu úr garðinum.
borist hingað. Einn möguleiki er að
flugan hafi borist með loftstraumum
frá nágrannalöndum okkar. Annar
möguleiki er að maðkar hafi borist
með innfluttum gulrótum. Sennilega
lenda skemmdar gulrætur oftast í
sorptunnunni og fara í urðun en
safnhaugagerð nýtur vaxandi vin-
sælda og þar gætu maðkar sem ber-
ast með innfluttum gulrótum náð að
púpa sig og flugur að klekjast út að
vori.
Einnig hlýtur maður að velta fyrir
sér hvaða möguleika flugan hafi hér
á landi. í Noregi finnst flugan fyrir
norðan heimskautsbaug og tvær
kynslóðir á ári allt að N-Þrændalög-
um. Gulrótarflugan getur vetrað
sem lirfa eða púpa í dvala. Flugur
ÞITT FE
Maestro hvar sem
■ ÞÚ ERT
Sigurgeir Ólafsson
r
Bílaboð í Smáranum er nýr og skemmtilegur
bílamarkaður sem hleypt var af stokkunum
um síðustu helgi við frábærar undirtektir
Seldu bflinn
milliliðalaust
Viljirðu kaupa bíl, mætirðu í Smárann í ekta markaðsstemmningu, kemst í
beint samband við eigendur ökutækjanna og skoðar eða prufukeyrir að vild.
Bílaboð í Smáranum - alla laugardaga milli 10.00 og 14.00*
komdu - sjáðu - seldu!
*Seljendur geta komið kl. 9.00
B I L A B O Ð
I SMÁftANUM I PÓSTHÓtf 3 5 I 202 KÖPAVOGUR |
SÍMt 564 6563 j t> í I d b Q d þ H ai b> Q (I« U j www.bilaboci, Is I