Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 78

Morgunblaðið - 13.04.2000, Side 78
uIS FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska % Jáungfrú. 21/2 sinnum 21/2 eru 61/4 . Hvernig komst ég að þeirri niðurstöðu? Með erfðum. Stóri bróðir minn sagði mér það. BREF TTL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Að eldast, hvað er það? Frá Ingvari Björnssyni: ÞEGAR árum manns fjölgar er ým- islegt sem breytist og kallar á breyttar ytri aðstæður. Sjón og heyrn dofna svo að við þurfum skýr- ara og stærra lesletur, hljóðara um- hverfi og skýrara og hægara tal þeirra er við okkur ræða. Ég vil því vekja hér athygli á nokkrum atiiðum er til betri vegar mættu færa, frá því sem nú tíðkast víða. Letur á kassakvittunum margra verslana og fyrirtækja er oft á tíðum ólæsilegt án hjálpar stækkunar- glerja, er þó duga varla til. Þetta ástand varir oft langtímum saman án þess að úr sé bætt. Nýjasta gerð orkureikninga, bæði rafmagns og hita, er sérlega slæm, á ég þar við upplýsingareiti þeirra, með smæsta letrinu. Letur símaskrárinnar er afleitt, sérstaklega þar sem stórar litsterk- ar auglýsingar skyggja á nafn sím- notandans er næst þeim standa. I því mikla auglýsingaflóði sem nú dynur yfir láist víða að geta þess hvar auglýsandi sé til húsa, að vísu eru flennistór símanúmer þar til staðar, en símtöl kosta peninga og fyrirhöfn. Húsnúmer sem áður fyrr voru á hverju húsi og sum mjög áberandi, sjást nú á sífelt færri húsum. Þetta vandamál finnst mér til vansa og mætti vel batna hið snarasta. Vörumerkingum verslana er víða mjög ábótavant og á mörgum stöð- um vantar þær að mestu. Sumstaðar eru merkingarnar á spjöldum svo hátt uppi að ólæsilegt er, eða á neðstu hillu vörurekkanna niður við gólf og allt er jafn slæmt, hér sem annars staðar væri meðalhófið best. Víða er varan, t.d. ávextir og mjólk- urvörur, í allt öðru hólfi en merking ávið. Öllum auglýsingum um vöruaf- slátt í prósentum hljóta að eiga að fylgja upplýsingar um eldra og nýrra verð, en þar á er mikill skortur. Ég vona að auglýsendur átti sig hið bráðasta á því að umbætur hér á eru okkar neytendanna hagur, ykkar hagur að viðskiptavinurinn sé ánægður með allar aðstæður hjá ykkur. Það tryggir aftur komu hans. Hvað heyrnina varðar er það svo að allur hávaði eykur vanda hlust- andans, því er það mjög æskilegt að viðmælandi þess sem farinn er að tapa heyrn tali ekki of hátt, sama er með framburð orða, því skýrara sem talað er því betur heyrist það sem sagt er. INGVAR BJÖRNSSON, ellilífeyrisþegi í Félagi eldri borgara, Nóatúni 30, Reykjavík. Nýtt afl í stjórnmálin - Flokkur æskufólks, aldraðra og öryrkja Frá Kristleifi Þorsteinssyni: STÓR hluti þjóðarinnar er undir svokölluðum lögaldri og yfir 67 ára sem nefnt er eftirlaunaaldur, og þegar með er talið fólk sem er ör- yrkjar af völdum sjúkdóma, slysa eða erfðagalla er það vafalaust full- ur helmingur þjóðarinnar. Þeir sem fullvinnandi eru leggja mikið af mörkum til að hlynna að þessu fólki, en það er ekki til neitt sérstakt stjórnmálaafl sem beitir sér fyrir hagsmunum þess. Þótt margt af þessu fólki sé fullt af baráttuvilja og hafi auk þess mikla lífsreynslu og gáfur sem það örugglega vildi nýta þjóðinni til gagns eftir getu sinni þá hafa fæstir heilsu til að setjast á alþingi heilt kjörtímabil. Samt tel ég að þessi stóri hópur ætti að stofna stjórnmálaflokk. Til að hann geti starfað af fullum krafti, þarf hann að fá lögleidda heimild til að ráða starfsfólk úr röðum fullvinnandi fólks til að taka sæti á alþingi með fullum kosninga- rétti og kjörgengi varðandi störfin á alþingi. En fulltrúaráð flokksins hefði heimild til að víkja þeim frá störfum og ráða nýja ef þeir störf- uðu ekki í anda umbjóðenda sinna. Konur eru oftar en ekki misskipt- ar með laun samanborið við karl- menn. Þær hafa um langa framtíð haft það hlutskipti að hjúkra og hlúa að öðrum, svo og að halda við stofnin- um, á meðan karlarnir hafa barist hver við annan um konurnar og afl- að fjölskyldum sínum fæðu með drápum og ránum. Því hafa þeir í gegnum tíðina fengið meiri líkams- krafta og orðið harðskeyttari í við- skiptum en konur. Þess vegna hafa oftast verið boðin í þá hærri laun. Mér dettur í hug að margar konur mundu skipa sér í þennan nýja flokk. Yngsta fólkið þarf að fá sína full- trúa á alþingi.Til þess þarf það að fá kosningarrétt. Foreldrar eða aðrir lögráðendur færu með atkvæði barna sinna þangað til það fær skilning og vilja til að kjósa sjálft, þá fengi það strax að kjósa. Auð- vitað eru börnin hvert fyrir sig sjálf- stæðir einstaklingar sem eiga að fá að velja sér framtíð að eigin vilja. KRISTLEIFUR ÞORSTEINSSON, Húsafelli. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.