Morgunblaðið - 13.04.2000, Qupperneq 80
-•60 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerd
ÍDAG
Lambakjöt
o g páskar
Kristín Gestsdóttir tók forskot á sæluna
og matreiddi páskalambið hálfum
mánuði fyrir páska.
r
li
PÁSKAR eru ekki bara tengdir
kristinni trú. Upphaf þeirra má
rekja til Hebrea, sem flökkuðu
með sauðfé og geitur milli bit-
haga. Þeir héldu eins konar upp-
skeruhátíð á vorin þegar rétt stóð
á tungli til að fagna fæðingu
fyrstu lamba og kiðlinga, en bann-
að hafði verið að borða kjöt meðan
æmar voru lambfullar. Þetta mun
vera rótin af lönguföstu kristinna
manna og fékk nýja merkingu í
trúariðkun þeirra. Gyðingar fögn-
uðu fyrstu lömbum og kornupp-
skeru samtímis og stóð sú hátíð í 7
daga - svokallað pesakh og féll að
hátíð sýrða bauðsins og flótta
ísraelsmanna frá Egyptalandi.
Síðan urðu páskarnir fyrsta hátíð
kristinna manna og upprisu
Krists fagnað. í fyrstu héldu hinir
kristnu í Gyðingalandi hátíð um
leið og gyðingar þ.e. við fyrsta
fullt tungl eftir jafndægur, en á
þriðju öld varð sú stefna ráðandi
að páskadagur skyldi vera fyrsti
sunnudagur eftir fyrsta fullt tungl
eftir vorjafndægur. Þó varð ekki
fullkomin eining um þetta fyrr en
á 8. öld. Páskadagur getur ekki
oðið fyrr en 22. mars og ekki síðar
en 25. apríl, en í ár ber páskadag
upp á 23. apríl, tveimur dögum
eftir sumardaginn fyrsta og því
hökjum við sumarpáska.
Ég keypti 2VÍ> kg lambalæri og
fékk það úrbeinað í búðinni og
þurfti ekkert að borga fyrir. Það
var 2 kg þegar búið var að úrbeina
það. Hækflbeinið var skilið eftir.
Lærið var fyllt með mintu, lauk
o.fl. Notuð var fersk minta sem
fæst víða. Kjötið var borið fram
með smjörbaunum, sem ég keypti
ferskar, en nota má alls konar
belgbaunir, ferskar eða niður-
soðnar. Einnig voru soðnar kart-
öflur og hrásalat haft með.
Fyllt lambalæri.
2 kg úrbeinað læri
_________2 tsk. solt________
mikið of nýmöluðum pipor
1 meðalstór laukur
1 stór hvítlauksgeiri
rifinn börkur af V2 sítrónu
V2 pk fersk mintublöð
1 dl brauðrasp
'/2 dl matarolía
1. Stráið salti og pipar inn í og
utan á lærið.
2. Afhýðið lauk og hvítlauks-
geira og saxið mjög fínt. Sjóðið í
olíunni við mjög hægan hita í 7
mínútur. Bætið þá rifnum sítrónu-
berki og raspi út í og takið af hell-
unni.
3. Setjið mintublöðin í bolla og
klippið með skærum ofan í bollan-
um og bætið út í raspblönduna.
Kælið að mestu.
4. Setjið fyllinguna inn í lærið
og gætið þess að hún blandist
jafnt um. Saumið lærið saman eða
notið prjóna til að tylla því saman.
5. Hitið bakaraofn í 180°C,
blástursofn í 170°C. Setjið lærið í
eldfasta skál eða í bökunarpott,
hafið lokið ekki á. Setjð 1 dl af
vatni í pottinn. Látið vera í ofnin-
um í 2 klst. Takið þá úr pottinum
og setjið á fat og látið standa í ofn-
inum hálfopnum meðan þið búið
til sósuna.
Sósan
Hellið 3-4 dl af vatni í steiking-
arpottinn og losið upp alla brún-
ingu. Hellið í pott. Hristið saman
vatn og hveiti og jafnið sósu. Látið
sjóða við mjög hægan hita í 3 mín-
útur. Bætið í 1 msk. af rjómaosti
eða setjð V% dl af rjóma saman við.
Sykurbaunir
Fjarlægið slaufuna efst á baun-
unum og þráð sem liggur niður frá
henni. Sjóðið síðan í smjöri við
mjög hægan hita í 3-5 mínútur.
í veður og færð á Netinu
L____________________
v^mbl.is
^ALLiyK/= GiTTHVXUD /VÝ7T
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Umhverfisást
eða eigingirni
ÉG var á fundi hjá Um-
hverfissamtökum íslands
og Landgræðslu ríkisins
um jarðvegsrof og beitar-
friðun á miðhálendi Is-
lands. Fundurinn var hald-
inn í Odda, sal Háskólans,
þann 26. febrúar sl. og
fundurinn var öllum opinn.
Fræðimenn sem þarna töl-
uðu voru á því að það þyrfti
að loka auðnum miðhálend-
isins ef einhver árangur
uppgræðslu mætti eiga sér
stað. Formaður sauðfjár-
bænda, sem var einn af
frummælendum, kvað enga
ástæðu til að loka auðnun-
um fyrir beit, beit hefði
engin áhrif á gróðurfar
auðnanna, en kvartaði þó
sáran undan beit gæsarinn-
ar á þessum svæðum. For-
maður stéttarfélags bænda
sté í pontu eftir að umræð-
ur voru gefnar frjálsar og
kvað það hina mestu firru
að friða auðnimar. Það
kæmi bara ekki til greina
og sagði vistvænan búskap
að beita slíkt land. Fyrir
mér er það nokkuð ljóst
hverjir það eru sem vilja
engar breytingar á örfoka
auðnum þessa lands og
koma beinlínis í veg fyrir að
nokkuð sé gert í gróður-
málum auðnanna nema að
beita þær.
Pétur Sigurðsson,
Hverfisgötu 34,
Hafnarfirði.
Góðir borgar-
starfsmenn
VEGNA óhapps sem sorp-
bfll lenti í á dögunum og af-
ar leiðinlegra viðbragða
þess starfsmanns sem rætt
var við vegna skemmda,
ritaði undirritaður smá-
klausu hér í Morgunblað-
inu þann 30. mars sl.
Samdægurs hringdu
tveir menn frá borginni,
Sigurður Reynisson, frá
bækistöðinni að Gylfaflöt,
og Einar Bjarnason, deild-
arstjóri hjá hreinsunar-
deild, í mig.
Mér er bæði ljúft og
skylt að geta þess að báðir
þessir menn báðust afsök-
unar fyrir hönd borgarinn-
ar og buðu alla aðstoð, sem
og ef þyrfti, til að bæta
hugsanlegt tjón. Borginni
okkar er sannarlega sómi
að slíkum starfsmönnum.
Kærar þakkir.
Kristinn Snæland,
Engjaseli 65.
Oskilabarn
312
EF einhver sem á bók
sem heitir Óskilabarn 312
eftir Hans Ulrich Horster í
þýðingu Torfeyjar Steins-
dóttur og gefin er út af
Prentsmiðju Jóns Helga-
sonar 1970 og myndi vilja
láta hana af hendi, vinsam-
legast hafi samband við
Sigurveigu í síma 864-1281.
Tapaö/fundiö
Gleraugn fundust
GULLSPANGAR kvenles-
gleraugu gleymdust á Kaffi
Katalína, Hamraborg 11,
Kópavogi, á kynningar-
fundi orlofsnefndar hús-
mæðra þann 9. apríl sl.
Birna Arnadóttir gefur
upplýsingar í síma 554-
2199.
Kvengleraugu
týndust
KVENGLERAUGU týnd-
ust í síðustu viku, líklegast í
einhverri verslun á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Skil-
vís finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hafa samband
í síma 552-0787 eða 894-
2712.
Karlmannsgleraugu
týndust
NÝ karlmannsgleraugu
með brúnni plastumgjörð
týndust í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt mánu-
dagsins 10. apríl sl. Fund-
arlaun. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 551-2512.
Húslykill fannst
STAKUR húslykill fannst
fyrir utan Iðnó í Vonar-
stræti laugardagsmorgun-
inn 8. aprfl sl. Upplýsingar í
síma 551-1396.
Gyllt næla týndist
GYLLT næla með rauðum
og grænum steinum týnd-
ist við Þjóðkirkjuna í Hafn-
arfirði eða við íþróttahúsið,
Strandgötu Hafnarfirði,
sunnudaginn 9. apríl sl.
Fundarlaun. Vinsamlegast
hafið samband í síma 695-
7599 eða 565-3026.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND týndist
föstudagskvöldið 7. apríl sl.
á Eiðistorgi. Á armbandinu
hangir hjarta. Skilvís fmn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við
Reyni í síma 899-7597.
Fundarlaun.
Gullarmband með
litlum steinum týndist
GULLARMBAND með
litlum steinum allan hring-
inn, týndist aðfaranótt 2.
apríl sl. líklegast einhvers
staðar á leið frá Kringlukrá
að Áslák í Mosfellsbæ, í
kringum miðnætti. Finn-
andi vinsamlegast hafi
samband í síma 568-8100
eða 699-8167.
SKAK
Umsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
SPÆNSKI stór-
meistarinn Felix
Izeta (2.499) hafði
hvítt í meðfylgjandi
stöðu gegn landa sín-
um alþjóðlega
meistaranum Franc-
isco Alonso Sanz
(2.410) á alþjóðlegu
móti í Elgoibar á
Spáni sem haldið var
á síðasta ári. 31.
Re6! og svartur gafst
upp þar sem hann
tapar óumflýjanlega
Hvítur á leik. liði eða verður mát.
Morgunblaðið/Ómar
LoftHmleikar á Ingólfstorgi
Yíkverji skrifar...
AÐ er stundum haft á orði að
maður geti hitt íslendinga afls
staðar í heiminum því þeir séu
hreinlega um allt. Víkverji var
nýverið á ferðalagi í Ameríku ásamt
fleiri Islendingum. Hópurinn fór
m.a. á listasafn og þar hitti hann tvo
landa sem voru að skoða safnið. Svo
vildi til að einn í hópnum hafði verið
með tvímenningunum í mennta-
skóla. Safnverðinum á listasafninu
fannst ótrúleg tilviljun að íslending-
ar skyldu hittast á ferðalagi í
ókunnri borg í fjarlægu landi. Þegar
honum var sagt að þarna hefðu
skólasystkini verið að hittast missti
hann andlitið af undrun og átti mjög
erfitt með að sannfærast um að ver-
ið væri að segja satt. Okkur íslend-
ingunum kom þessi endurfundur
ekki eins mikið á óvart og raunar
fannst sumum þetta ekki ýkja
merkilegt. íslendingar væru jú fá-
menn þjóð og ef íslendingar hittust
á annað borð í útlöndum væri ekki
fráleitt að þar væru skólasystkin á
ferð. Bandaríkjamenn eru hins veg-
ar fjölmenn þjóð og því verður að
teljast ótrúlegt að Bandaríkjamaður
sem ferðast til íslands hitti gamlan
skólabróður á listasafni í Reykjavík.
xxx
ÍKVERJI var svo óheppinn að
missa af tengiflugi þegar hann
fór til Bandaríkjanna á dögunum.
Ástæðan var fyrst og fremst tafir á
brottför frá Keflavíkurflugyelli.
Þessi töf var ljós þegar Víkverji var
að skrá sig í flugið á vellinum, en af-
greiðslufólk taldi þó ágæta mögu-
leika á að hann næði fluginu þó að
tíminn frá þvi að flugvél Flugleiða
lenti þar til hin flugvélin átti að fara
í loftið væri orðinn innan við ein
klukkustund. Víkverji spurði hvort
hann gæti ekki skráð töskurnar
strax í tengiflugið, en fékk þau svör
að öryggisreglur á bandarískum
flugvöllum leyfðu það ekki. Það fór
líka svo að bið eftir töskunum varð
til þess að Víkverji rétt missti af vél-
inni. Sú spurning vaknaði hvort ekki
sé hægt að merkja töskur sérstak-
lega þegar svona stendur á hjá far-
þegum og veita þannig töskum í
tengiflugi forgang.
Starfsfólk Flugleiða brást hins
vegar vel við vandræðum Víkverja
og hann fékk hótelgistingu á kostn-
að félagsins. Eftir stendur að það
hefði verið hagstæðara fyrir flugfé-
lagið ef hægt hefði verið með ein-
hverjum hætti að flýta afgreiðslu á
flugvellinum ytra.
xxx
VERÐ á millilandasímtölum hef-
ur lækkað ört á síðustu miss-
erum. Nú er svo komið að ódýrara
er að hringja til sumra landa en að
nota GSM-síma. Þetta er mikil
breyting og má án efa þakka hana
fyrst og fremst nýtilkominni sam-
keppni á þessu sviði. Forsvarsmenn
Tals hafa bent á að verð á GSM-
símtölum sé orðið það lágt að það
fari að verða spurning fyrir fólk
hvort það sé ekki að verða hagstæð-
ara að eiga GSM-síma en hefðbund-
inn heimilissíma. Þetta er athyglis-
vert sjónarmið. Eftir stendur þó að
ef fólk vill segja upp heimilissíma
verður hvert heimili að eiga a.m.k.
tvo farsíma. Bæði hjónin þurfa að
sjálfsögðu að eiga öruggan aðgang
að síma og það sama má raunar
segja um börnin.
Víkverji er svo gamaldags að vera
enn aðeins með venjulegan heimilis-
síma. Hann neyddist reyndar til að
fá sér farsíma á síðasta ári þar sem
hann var að flytja og varð af þeim
sökum símalaus um skeið. Víkverji
átti hins vegar erfitt með að venja
sig á að nota farsíma. Síminn vildi
gleymast og hann varð rafmagns-
laus á óheppilegum augnablikum.
Smátt og smátt hætti farsíminn að
fylgja Víkverja og þar kom að hann
sagði símanum upp. Víkverji viður-
kennir þó að farsími er gott tæki og
þarft, en það er þó hægt að vera án
hans, svo ótrúlega sem það kann að
hljóma í eyrum sumra.