Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 13.04.2000, Blaðsíða 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3M0, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. Millilandaflug ótruflað . eftir frestun verkfalls SAMKOMULAG tókst í gærkvöldi í kjaradeilu flugvirkja og Flugleiða og var frestað verkfalli sem koma átti til framkvæmda kl. 11 í dag. Skrifað var undir nýjan samning laust fyrir klukkan 22. Ekki verða því truflanir á millilandaflugi Flugleiða. Emil Eyjólfsson, formaður samn- inganefndar Flugvirkjafélags ís- lands, sagði eftir 32 tíma samninga- Slys við Vatnsfell ^INNUSLYS varð við Vatnsfells- virkjun í gær, þegar starfsmaður klemmdist á milli steypusílós og veggjar. Pyrla Landhelgisgæslunn- ar, TF SIF, kom með manninn til Reykjavíkur skömmu fyrir mið- nætti. Maðurinn mun hafa hlotið inn- vortis meiðsl, sem þó voru ekki talin jafn alvarleg og óttast var í fyrstu, samkvæmt upplýsingum frá stjóm- stöð Landhelgisgæslunnar. fund hjá ríkissáttasemjara að samninganefndin væri sátt við það sem náðst hefði fram en hann vildi ekki ræða efnisatriði. Stefnt er að fé- lagsfundi hjá flugvirkjum á mánu- dag og atkvæðagreiðslu um samn- ingana á þriðjudag. Laust fyrir kl. 18 í gær lágu öll meginatriði samkomulagsins fyrir og var ákveðið að fresta verkfalli þótt ekki væri búið að skrifa undir samning. Var það gert til að ekki yrði röskun á flugi sem ella hefði orð- ið. Fram eftir kvöldi var unnið við frágang á texta nýja kjarasamnings- ins sem gilda á frá 1. apríl til 15. sept- ember 2003. „Það hefur náðst samkomulag um öll meginatriði. Þetta er þriggja ára samningur og það er mjög mikilvægt að fá þann góða frið því fyrirtækið hefur verið í mjög mikilli uppbygg- ingu,“ sagði Einar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, í gær. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, sagði í samtali í gærkvöldi að varðandi öll almenn atriði tæki flugvirkjasamningurinn mjög mið af samningi Flóabandalagsins, bæði hvað varðar almennar launabreyt- ingar og samningstíma. „En samn- ingurinn tekur líka mið af því að þetta er samningur fyrir hönd ákveðins fyrirtækis og þar er auð- vitað verið að taka á málum sem eru nær því að vera vinustaðasamning- ur. Það hefur tekist að ná niðurstöðu um breytingar á ýmsu sem lýtur að stjórnunarlegum þáttum í fyrirtæk- inu, meiri sveigjanleika varðandi vaktir og vinnutíma almennt sem skilar báðum aðilum ávinningi." Ari sagðist ekki geta borið samninginn saman við samning flugvirkja við Is- landsflug en sagði þennan samning hafa annars vegar byggst á almennri stefnumörkun SA í allri samninga- gerð og hins vegar á hagsmunum og aðstæðum innan Flugleiða. Flugvirkjar hjá Flugfélagi íslands hafa boðað verkfall frá og með næst- komandi mánudegi. Fundur verður haldinn í deilunni kl. 15 í dag. ■ Verkfalli/4 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ujálmar Ágústsson, starfsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi, undirbýr losun úr einum mjólkurbílnum í gær. Brugðist var við yfir- vofandi verkfalli með því að láta alla mjólkurbíla búsins fara tvær ferðir og sækja mjólk á alla bæi. Morgunblaðið/Ásdís Sálumessa sungin ' TtRISTJÁN Jóhannsson tenór- söngvari syngur Sálumessu Gius- eppes Verdis við undirleik Sin- fóníuhijómsveitar íslands á Páskatónleikum í Háskólabíói á morgun og laugardag. Þrír er- lendir einsöngvarar koma einnig fram á tónleikunum, auk Kórs Is- lensku óperunnar. Kristján sést hér á æfingu í gærdag en þetta er í fyrsta sinn sem hann syngur Sálumessuna hér á landi. Verkfall VMSÍ hófst á miðnætti en áhrif talin lítil Líkur voru taldar á samningi í nótt ALLAR líkur voru taldar á að samningar næðust í deilu atvinnu- rekenda og aðildarfélaga VMSÍ á sáttafundi sem stóð í húsakynnum ríkissáttasemjara þegar Morgun- blaðið fór í prentun. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins lá þá fyrir samkomulag um öll meginat- riði. Verkfall hófst á miðnætti en Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagðist seint í gærkvöldi gera sér vonir um að samningar tækjust fyrir upphaf vinnudags í dag. „Ég geri ráð fyrir að samningur liggi fyrir við upphaf vinnudags og verkfalli verði frestað fram yfir afgreiðslu samningsins,“ sagði Hervar Gunnarsson, varafor- seti VMSÍ, við Morgunblaðið um klukkan 23 í gærkvöldi. Betri ákvæði um ýmis sérmál Þá lá fyrir, samkvæmt upplýsing- um blaðsins, samkomulag um öll önnur mál en launalið og gildistíma. Aðalsteinn Baldursson, formaður Alþýðusambands Norðurlands, kvaðst helst vilja hafa gildistímann til áramóta 2003 en í samningum Flóabandalagsins og flugvirkja er samið til 15. september 2003. Aðal- steinn sagði að tekist hefði að ná fram ýmsum sérmálum sem væru betri en í samningi félaganna innan Flóabandalagsins, svo sem fyrir starfsfólk í sláturhúsum, tækja- stjóra og fleiri. „Við erum að ná inn þó nokkuð mörgum atriðum eins og til dæmis veikindarétti á dagvinnulaunum ásamt bónus og álagsgreiðslum, sem skipta miklu máli fyrir fisk- vinnslufólkið," sagði Aðalsteinn. „Við semjum hér um hækkun á slysatryggingarkaflanum okkar um 20%, náum einum orlofsdegi til við- bótar og hækkun á orlofsprósent- unni og við náðum samningum um að 2% hærra lífeyrisgjald fari í sér- sjóð en hjá okkur má velja hvort hækkunin fer í sérsjóð eða sameign og er það hentugt fyrir eldra fólkið sem getur frekar nýtt þennan sparnað í sameign." Þá var samið um hækkun á laun- um rútubílstjóra og sagði Aðal- steinn að laun þeirra með lengstan starfsaldur myndu hækka úr 82 þúsundum í 100 þúsund og náð væri inn bókun um fleiri námskeið fyrir fiskvinnslufólk en það gæti gefið launahækkun. Formenn VSMÍ voru kallaðir í Karphúsið síðdegis í gær og var þar samþykkt að samninganefndin myndi leggja alla áherslu á að ljúka samningum án þess að til verkfalls kæmi og bera þá undir félagsfundi sem fyrst. Deilt um einstaka launataxta Hervar Gunnarsson sagði að sér sýndist á öllu að samningar næðust þegar liði á nóttina „Það eru að vísu ennþá deilur um einstaka launa- taxta en ég geri ráð fyrir að það takist og samningur liggi fyrir við upphaf vinnudags og verkfalli verði frestað yfir afgreiðslu samnings- ins.“ Ari Edwald sagði við Morgun- blaðið á ellefta tímanum í gær að viðræður væru á lokaspretti þótt ekki sæist á þeirri stundu fyrir end- ann á samningsgerðinni. Niður- staða væri ekki fengin en ekki væri margt eftir og spurningar um lokaákvarðanir gengju milli aðila. Aukin framlög til rannsókna VILHJÁLMUR Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís- iands, sagði á ársfundi RANNÍS í gær að áætlað væri að framlög til rannsókna næmu nú um 12 til 13 milljörðum króna á ári hér á landi og að allt að 2500 ársverk væru unnin við rannsóknir. „Framlög til rannsókna hafa vaxið ár frá ári um 11-12% að með- altali síðustu 15 ár og ekki virðist lát þar á. Við erum óðum að líkjast grannþjóðum okkar í þessum efn- um og sækjum í raun hraðar fram en flestar OECD þjóðir." Sagði Vilhjálmur ennfremur að líklega hefði hlutur rannsókna náð meðal- tali OECD þjóða eða um 2% af þjóðarframleiðslu. „Atvinnulífið og vöxtur háskóla- geirans eiga þar mestan hlut að máli. En á hinn bóginn hafa rann- sóknastofnanir hins opinbera utan háskólageirans í heild að mestu staðið í stað og vikið hlutfallslega að mikilvægi. Sérstaklega hafa stofnanir á vegum iðnaðar- ráðuneytisins og landbúnaðarráð- uneytisins veikst við að dregið hef- ur úr fjárveitingum til þeirra en stofnanir á vegum sjávarútvegs- og umhverfisráðuneytisins haldið hlut sfnum eða eflst,“ sagði Vil- hjálmur. ■ Verðmæti/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.