Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ný kjördæma-
skipan samþykkt
frá Alþingi
ALÞINGI samþykkti í gær lög um
kosningar til Alþingis en löggjöfin
felur í sér breytingar á kjördæma-
skipan, m.a. skiptingu Reykjavíkur í
tvö kjördæmi.
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks,
Guðjón Guðmundsson, Einar Oddur
Ellefu
ákærðir
e-töflumáli
*
1
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur 11 einstakiingum
vegna aðildar að umfangsmiklu e-
töflumáli, sem lögregla kom upp um í
lok síðasta árs. Einn hinna ákærðu
ber þyngstu sökina og er ákærður
fyrir innflutning á tæpum 4 þúsund
e-töflum en meðákærðu tengjast
innflutningi fikniefnanna með einum
eða öðrum hætti.
Þrír ungir menn sitja enn í gæslu-
varðhaldi vegna málsins.
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði aðalsakborninginn í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 21. júní í
gær, en ákærði kom við sögu máls
Kios Briggs hérlendis á sínum tíma.
Briggs situr í fangelsi í Danmörku
vegna e-töflumáls og hefur afplánað
nærri helming fangelsisrefsingar
♦ ♦ ♦
Engin kona tilnefnd
í Breiðafjarðarnefnd
Ráðherra
vill breytta
skipan
SIV Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra hefur farið þess á leit við
tilnefningaraðila í Breiðafjarðar-
nefnd að þeir endurskoði tilnefn-
ingar sínar í ljósi 12. gr. jafnréttis-
laga um jafnan rétt kvenna og
karla en engin kona var tilnefnd í
nefndina.
f bréfi umhverfisráðuneytisins
kemur fram að ráðuneytinu hafi
borist tilnefningar allra til-
nefningaraðila í Breiðafjarðar-
nefnd og í Ijós hafi komið að engin
kona hafi verið tilnefnd í nefndina.
Af því tilefni sé þess góðfúslega far-
ið á leit að tilnefningaraðilar end-
urskoði tilnefningar sinar með hlið-
sjón af 12. gr. jafnréttislaga um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla og ályktun Alþingis frá
1998 um framkvæmdaáætlun um
aðgerðir til að ná fram jafnrétti
kynjanna.
■ Lægst hjá ráðuneytum/9
Kristjánsson og Einar K. Guðfinns-
son, greiddu atkvæði gegn samþykkt
frumvarpsins en 31 þingmaður
greiddi atkvæði með því. Sex þing-
menn sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una, Kristinn H. Gunnarsson, Fram-
sóknarflokki, Hjálmar Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, og Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Steingrímur J. Sigfús-
son, Þuríður Backman og Ögmundur
Jónasson, þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs. 23
þingmenn voru fjarverandi.
Alls urðu tíu frumvörp að lögum á
fundi Alþingis í gær. Þeirra helst má
nefna lög um persónuvernd og með-
ferð persónuupplýsinga og lög um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á
búvörum en þau síðamefndu fela í
sér staðfestingu búvörusamnings
Bændasamtakanna og ríkisins.
Einnig var samþykkt frumvarp sem
felur í sér breytingar á lögum um
þjóðlendur, breytingar á upplýsinga-
lögum, breytingar á lögum um
brunavamir, lög um alþjóðaverslun
með tegundir villtra dýra og plantna
í útrýmingarhættu, lög um markaðs-
setningu vistvænna og lífrænna af-
urða, meðferð, vinnslu og dreifingu
sjávarafurða og lög um gjaldmiðil Is-
lands og Seðlabanka íslands.
Sprenging og eldur
í vélarrúmi fiskibáts
Áhöfnin náði að
slökkva eldinn
og báturinn var
dreginn til hafnar
Hellissandi. Morgunblaðið.
ELDUR kom upp í vélarrúmi vél-
bátsins Þorsteins SH 145 frá Rifi um
kl. 7 í gærmorgun þegar hann var á
leið á miðin á Breiðafirði um eina
mílu norðvestur af Hellissandi. Skip-
verjar náðu að slökkva eldinn og var
báturinn dreginn til hafnar.
Að sögn skipstjórans á Þorsteini,
Kristjáns Jónssonar, var hann einn í
brúnni og aðrir skipverjar, fimm að
tölu, í vistarveram sínum aftur í
bátnum. Vélstjórinn var nýkominn
upp úr vélarrúminu þegar mikil
sprenging varð þar niðri og eldur
gaus upp. Olíuleiðsla hafði farið í
sundur og olía sprautast á pústgrein-
ina sem er um 400 gráða heit og það
valdið eldinum og sprengingunni.
Áhöfnin gekk í það að loka öllum
hurðum og loftinntökum að vélar-
rúminu og loka fyrir olíurennsli til
vélar. Slökkvibúnaður fór síðan í
gang af sjálfú sér en hann er útbúinn
með handvirkri gangsetningu. Allar
talstöðvar urðu sambandslausar
nema neyðartalstöðin og með henni
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdðttir
Þorsteinn SH við bryggju í Rifi í gær eftir að báturinn hafði verið
dreginn til hafnar eftir eldsvoðann um borð í gærmorgun.
náði skipshöfnin sambandi við vél-
bátinn Friðrik Bergmann frá Ólafs-
vík sem var þar skammt frá.
„Áhöfnin fór fram á stefni til að
forðast reykinn og sprengihættu og
búa sig undir að fara í björgunarbát
og yfirgefa skipið. Við sáum svo
fljótt að eldurinn var slokknaður og
þar með minnkaði hættan," sagði
Kristján. Hann sagðist viss um að ef
halon-slökkvibúnaðurinn hefði ekki
Fjármálaráðherra við eldhúsdagsumræður á Alþingi
Bregðast þarf við út-
lánaaukningu bankanna
GEIR H. Haarde, fjármálaráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði í almennum stjómmálaum-
ræðum, sem fram fóra á Alþingi í
gær, að útlánaaukning bankanna
hefði verið óhófleg að undanfömu og
að bregðast þyrfti við henni með öll-
um tiltækum ráðum. Geir lagði hins
vegar áherslu á að staða ríkisfjármála
væri góð þótt vissulega yrði að vinna
að því að treysta stöðuna enn meir.
Fjármálaráðherra sagði efnahags-
umræðuna að undanfömu nokkuð
hafa snúist um það hvort aðhald í rík-
isfjármálum væri nægilegt eða ekki.
Umræðan missti hins vegar marks að
því leytinu til að ríkisfjármálin væra
ekki vandamál á íslandi. „Staðreynd-
in er sú að óvíða er meira aðhald í
þeim efnum heldur en hér, enda
metafgangur á ríkissjóði og það jafn-
vel þótt áhrif hagsveiflunnar séu und-
anskilin,“ sagði Geir. Þetta væri mik-
ilvægt að hafa í huga því sá
misskilningur væri útbreiddur að af-
ganginn af ríkissjóði mætti alfarið
rekja til hagsveiflunnar. Það væri
hins vegar einfaldlega rangt.
„Vandinn er hins vegar frekar sá
að hér á landi er nú mjög greiður að-
gangur að lánsfjármagni, jafnt inn-
lendu sem erlendu. Þetta er meðal
annars fylgifiskur þess að fjármagns-
flæðið hefur verið gefið frjálst milli
landa og þar með era fjármálastofn-
anir hér á landi komnar í virka sam-
keppni við erlenda aðila. Útlánaaukn-
ing bankanna hefur af þessum sökum
verið óhófleg og við því þarf að bregð-
ast með þeim ráðum sem tiltæk era.“
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, tók undir orð fjármálaráð-
herra í ræðu sinni í gær. Ljóst væri
að útlán bankanna hefðu verið of mik-
il. „í marsmánuði einum var útlána-
aukning bankanna 17 milljarðar
króna, eða meira en nemur afgangi af
ríkissjóði á öllu þessu ári,“ sagði Hall-
dór. „Útlánaaukningin hafði þá verið
24% á heilu ári. Þetta er of mikið og
það er alveg ljóst að Seðlabankinn
verður að grípa til aðgerða til að
hemja þessa útlánaaukningu.“
6% verðbólga óviðunandi
Efnahagsmálin settu einnig svip á
ræður talsmanna stjómarandstöð-
unnar í gær. Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingar, benti á að
verðbólga væri nú komin í 6% en
sagði að svo virtist reyndar sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra sæi
engan mun á því hvort verðbólga
væri 6% eða 2%, eins og hún var fyrir
ekki löngu. 6% verðbólga væri hins
farið í gang hefði mátt búast við að
eldurinn hefði logað lengur, skips-
höfnin verið í meiri hættu og skipið
hefði skemmst meira.
„Friðrik Bergmann var kominn til
okkar eftir um 20 mínútur og tók
okkur um borð án þess að við færum
í björgunarbátinn og dró Þorstein til
hafnar í Rifi,“ sagði Kristján.
Skemmdir eru miklar í vélarrúmi og
er talið að viðgerð taki langan tíma.
vegar algerlega óviðunandi og velti
Össur því fyrir sér hvar hún væri sú
mjúka lending sem forsætisráðherra
hefði talað um að ná í efnahagsmálun-
um.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, sagði margt benda til að
stjórn efnahagsmála væri að fara úr
böndunum. Þróun raungengis ís-
lensku krónunnar væri á háskalegri
braut, viðskiptahalli væri vaxandi
sem og verðbólga. Sjálf hellti ríkis-
stjómin olíu á eldinn með ýmsum
óviturlegum ráðstöfúnum. „Davíð
Oddsson - og ríkisstjóm hans - hlýt-
ur nú eins og hún hefur að undan-
fömu eignað sér góðærið, að axla
ábyrgð á því með nákvæmlega sama
hætti ef efnahagsstjómin fer í vask-
inn,“ sagði Steingrímur.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, vitnaði til við-
varana Seðlabankans og annarra
stofnana vegna verðbólguþróunar og
viðskiptahalla. Allt kæmi hins vegar
fyrir ekki því ríkisstjómin hunsaði
allar viðvaranir og reyndi síðan að
hylma yfir hinar köldu staðreyndir.
„Þess era engin merki að ríkisstjóm-
in ætli að taka sig á og veita við-
spymu gegn þessum ófamaði,“ sagði
Sverrir við umræðumar í gær.
Sóttur á
pólinn á
morgun
SPÁÐ er lágþrýstisvæði yfir
norðurpólnum í dag og því
verður ekki unnt að sækja
Harald Örn Ólafsson fyrr en
á morgun. Flugmaður hjá
First Air-flugfélaginu tjáði
bakvarðasveitinni að fallegt
veður og gott skyggni yrði
trúlega í kjölfar lágþrýsti-
svæðisins og er stefnt að því
að fijúga þá eftir Haraldi.
Áætlunin er á þá leið að
flogið verður frá Resolute
Bay til Evreka í dag þar sem
gist verður.
Á morgun er síðan ráð-
gert að halda á pólinn og
taka eldsneyti á leiðinni á
86. gráðu og það þarf sömu-
leiðis að gera á bakaleiðinni.
Ekki er ljóst hvort leið-
angurinn nær alla leið til
Resolute Bay annað kvöld
eða hvort gista þarf að nýju
í Evreka en það ræðst einnig
af veðurfari.
Mikið af farangri bak-
varðasveitarinnar, sem flaug
út á þriðjudag, m.a. kulda-
fatnaður, varð eftir í Boston.
Búist var við að farangurinn
næði til Resolute Bay í dag
og verður þá strax haldið af
stað til Evreka.
Sérblöð í dag
Morgunblaðinu í
dag fylgir tímaritið
24-7.
Útgefandi:
Alltafehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
Reynir í mark Aftureldingar / C1
Sigurður gerðj 2ja ára
samning við ÍA / C1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is