Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt blað um
flugmál hefur
göngu sína
KOMIÐ er út tímaritið Flugið en út-
gefandi þess er Flugmálaútgáfan.
Að henni standa flugmennirnir Pórir
Kristinsson og Guðmundur St. Sig-
urðsson og segja þeir ætlunina að
blaðið komi út tvisvar á ári.
„Við viljum hleypa lífi í útgáfu og
umfjöllun um flug og tilefnið er með-
al annars það að í september á síð-
asta ári var 80 ára afmæli flugsögu á
íslandi,“ segja þeir Guðmundur og
Þórir í samtali við Morgunblaðið.
Fyrsta tölublaðinu er dreift end-
urgjaldslaust til atvinnuflugmanna,
flugvirkja og flugumferðarstjóra og
liggur það frammi á bensínstöðvum
og hefur verið sent í skóla og víða út
um landið. „Kostnaður við fyrsta
blaðið er greiddur með auglýsingum
en síðan er ætlunin að selja blaðið í
áskrift."
Meðal efnis er viðtal við Arngrím
Jóhannsson, stjómarformann Atl-
anta, fjallað er um svifflug, áhrif
kvefs á flugliða, flug að vetrarlagi,
ýmsar fréttir og fjöldi mynda prýðir
blaðið. En er það ekki bjartsýni að
standa að útgáfu sem þessari?
Mikið að gerast í fluginu
„Það er mikill áhugi á þessu sviði
og það er mikið að gerast í fluginu.
Þess vegna teljum við grundvöll fyr-
ir útgáfu á blaði sem getur bæði flutt
fróðleik og skemmtun fyrir alla
áhugamenn um flugmál og lesefni
fyrir þá sem starfa við flug,“ segja
útgefendumir. Þeir era báðir flug-
menn á B757 þotum hjá Flugleiðum
og segjast hafa leitað víða eftir lið-
veislu við útgáfuna.
Þess má að lokum geta að starf-
rækt er heimasíða í tengslum við
blaðið www.design.is/flugid og er
þar að finna allar upplýsingar um
blaðið.
Morgunblaðið/RAX
Útgefendur nýja tímaritsins eru Guðmundur St. Sigurðsson (t.v.) og
Þórir Kristinsson.
Morgunblaðið/Markant
Menningarmiðstöðin er vel staðsett í Gimli. Á myndinni eru Neil Bardal, ræðismaður íslands í Winnipeg og
Larry Ragnar Kristjánsson, umsjónarmaður framkvæmda.
Islensk menningarmið-
stöð í Gimli opnuð í haust
FRAMKVÆMDIR við íslenska
menningarmiðstöð í Gimli í Kanada
era langt komnar en stefnt er að
því að taka bygginguna í notkun í
október í haust að viðstöddum
Davíð Oddssyni forsætisráðherra.
Nýja húsið kemur til með að
hýsa fjölþætta starfsemi. Á jarð-
hæð verður menningarmiðstöð þar
sem lögð verður áhersla á að skapa
aðlaðandi umhverfi fyrir gesti sem
vilja njóta íslenskrar menningar og
kynnast sögu Vestur-íslendinga í
Kanada. Áformað er að þarna verði
minjagripaverslun og íslenskt
kaffihús. Vestur-íslenska minja-
safnið verður þar til húsa og fyrir-
hugað er að setja upp sýningu þar
sem aðaláhersla verður lögð á sögu
landnáms Islendinga í Nýja-Is-
landi. Saga þess er um margt ein-
stæð því að í 12 ár, frá 1875-1887,
var samfélag íslendinga við Mani-
toba-vatn algerlega undir stjórn
íslendinga. Slíkt fyrirkomulag var
hvergi viðhaft annars staðar í Kan-
ada á síðustu öld. Á sýningunni
verður beitt nýjustu tækni við að
koma efninu á framfæri við gesti.
Þar verður einnig aðstaða til flutn-
ings tónlistar, leiklistar og kvik-
mynda.
Einnig verða í húsinu skrifstofur
Lögbergs-Heimskringlu, ræðis-
manns íslands og Þjóðræknisfé-
lagsins.
Ibúðir fyrir aldraða
á efri hæðum
Á efri hæðum hússins verða 55
söluíbúðir fyrir aldraða á vegum
Betel-stofnunarinnar, sem rekið
hefur elliheimili fyrir Vestur-Is-
lendinga í 85 ár. Það voru konur af
vestur-íslenskum ættum sem fyrst-
ar söfnuðu fjármunum til stofnunar
elliheimilis í Gimli. Á elliheimilinu
búa í dag margir Vestur-íslending-
ar sem tala fullkomna íslensku.
Menningarmiðstöðin er staðsett
við Winnipeg-vatn með útsýni yfir
höfnina og miðbæinn og er húsið á
fimm hæðum.
Fjölskylduþjónusta Reykjavíkurborgar í Grafarvogi hefur gengið til sam-
starfs við fyrirtækið Rittækni um verndun og dulkóðun viðkvæmra gagna
Gögnin dulkóðuð inni
á tölvukerfí Miðgarðs
FYRIRTÆKIÐ Rittækni hefur
verið að vinna með Miðgarði, fjöl-
skylduþjónustu Reykjavíkurborg-
ar í Grafarvogi, að verndun gagna
á tölvum.
Miðgarður fer með öll málefni,
sem tengjast Grafarvogsbúum, þar
á meðal barnaverndarmál, en
tölvunefnd fór nýlega fram á að
sveitarstjórnir gerðu grein fyrir
hvernig meðferð upplýsinga um
þau væri háttað. Með fyrirkomu-
laginu, sem verður í Miðgarði, er
stefnt að því að hafa sem minnst af
gögnum á pappír, heldur verða
þau vistuð dulkóðuð á tölvukerfi
Miðgarðs. Engin gögn varðandi
viðskiptavini Miðgarðs eru tekin
út, heldur eru gögn skráð á far-
tölvu, sem er dulkóðuð, þegar farið
er að vinna úti í bæ.
Hafist handa við verkefnið
fyrir hálfu ári
Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Rittækni, segir að
fyrsta skrefið í þessum efnum hafi
verið stigið fyrir rúmlega hálfu ári
þegar sett var dulkóðun á fartölvu,
sem sálfræðingar hjá Miðgarði
nota þegar þeir fara á fundi vegna
Hægt að ákveða aðgengi
einstakra starfsmanna
viðskiptavina. Þar eru öll gögn
dulkóðuð með 128 bita dulkóðun
og gögn því aðeins aðgengileg fyr-
ir þá, sem hafa lykilorð að tölv-
unni.
Næsta skrefið að taka
upp snjallkort
„Þetta er dulkóðað á vélinni og
kerfið læsir á þann, sem reynir
þrisvar að komast inn án þess að
hafa lykilorðið," segir Sigurður.
Að hans sögn er næsta skrefið
að starfsmenn fái snjallkort, sem
mun veita aðgang að tölvukerfi og
gagnagrunni þar sem haldið sé ut-
an um þessi gögn og önnur hjá
Miðgarði. Hafist verður handa við
það í þessum mánuði.
Hann segir að þetta sé gert
þannig að nýtt lyklaborð með
snjallkortalesara sé sett á tölvuna.
Þegar kveikt sé á tölvunni biðji
hún strax um snjallkortið og þegar
það sé komið í lesarann þurfi að
slá inn lykilorð. Með réttu lykilorði
opnist aðgangur viðkomandi að
tölvukerfinu og hann getur verið
mismikill eftir einstaklingum. 011
viðkvæm gögn í tölvukerfinu eru
dulkóðuð og aðeins þeir, sem eru
skilgreindir með aðgang, komast
að þeim. Þannig er hægt að ákveða
hvort leyfilegt sé að prenta við-
komandi gögn út, vista þau á disk
eða senda í tölvupósti og tryggja
að viðkvæm gögn geti ekki farið á
flakk.
Vildu uppfylla hugsanlegar
kröfur tölvunefndar
Sigurður segir að þessi viðbún-
aður sé fremur hugsaður fyrir fyr-
irtæki, sem séu að vernda við-
skiptaleyndarmál og væri hægt að
stjórna aðgangi manna, sem til
dæmis væru að hætta hjá viðkom-
andi fyrirtæki. Hann bætir við að
talið sé að 60% tölvuglæpa séu
fólgin í stuldi viðskiptaleyndar-
mála.
„Miðgarður leitaði til okkar með
gagnagrunninn," segir Sigurður.
„Þeir vildu uppfylla hugsanlegar
kröfur tölvunefndar."
Hann segir að búnaðurinn, sem
væri verið að setja upp hjá fjöl-
skylduþjónustunni í Grafarvogi
væri með ITSEC-vottun (stendur
fyrir infotechsecurity). Sá staðall
nær frá E1 upp í E7 og þarf að
hafa vottun ITSEC E2 til E4 til að
verða samþykktur í Evrópu ef
nota á hann til persónuverndar.
Sigurður segir að aðeins sé notað-
ur hug- og vélbúnaður með vottun
ITSEC E2 til E4 hjá Rittækni.
Hann segir að Rittækni sé í
samstarfi við þýska tölvufyrirtæk-
ið Utimaco. Það sér um öryggi
varðandi skráningu inn á tölvu-
kerfi Evrópusambandsins og send-
ingu á gögnum frá því. Utimaco
hefur einnig unnið fyrir ýmsa
banka og stofnanir í Evrópu, þar á
meðal Dresdner Bank í Þýskalandi
og Barclays á Bretlandi.
Rittækni var stofnuð 1985 og
var þá með þjónustu á skrifstofu-
búnaði. Fyrir tveimur árum fór
fyrirtækið út í gagnavernd og
tölvuöryggi.
Forsetakjör fer
fram 24. júní
Framboð
berist
fyrir
19. maí
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
hefur aujglýst framboð og kjör
forseta Islands, sem skal fara
fram 24. júní nk.
Framboðum skal skila til
dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins, ásamt samþykki forseta-
efnis, nægilegri tölu meðmæl-
enda og vottorðum yfirkjör-
stjórnar um að þeir séu
kosningabærir í síðasta lagi 19.
maí nk. eða fímm vikum fyrir
kjördag.
*
VIS bannað
að bera ið-
gjöld sín og
FIB saman
SAMKEPPNISRÁÐ hefur bannað
Vátryggingafélagi íslands hf.
(VÍS) að bera iðgjöld bifreiða-
trygginga hjá Félagi íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB) saman við bif-
reiðatryggingaiðgjöld VÍS.
Samkeppnisráðið telur auglýs-
ingu sem VIS birti í Morgunblað-
inu 5. nóvember sl. vera villandi og
ósanngjarna gagnvart keppinaut
og neytendum. Þar voru iðgjöld
bifreiðatrygginga hjá FÍB borin
saman við bifreiðagjöld VIS sem
miðast við viðskiptavini með F+
fjölskyldutryggingu. Það er sá
samanburður sem Samkeppnisráð
hefur nú bannað VIS að beita.