Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
V öruflutning-
ar á Flúðaleið
í 20 ár
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Pálmar Þorgeirsson með nýjasta flutningabíl sinn, Volvo FM-12.
Hrunamannahreppi - Það er mik-
ils virði hverju byggðarlagi að hafa
örugga flutningaþjónustu þar sem
traustir menn annast flutninga til
og frá viðkomandi sveitarfélagi.
Þessir dugmiklu bílstjórar, sem
eru eins konar konungar veganna,
leggja sig fram um að koma vörum
á áfangastað, í hvernig veðrum og
færð sem er, til eða frá sínum
kaupstað, kauptúni eða sveit.
Einn slíkur er á Flúðum en það
er Pálmar Þorgeirsson. Hann hef-
ur annast vöruflutninga hingað í
Hrunamannahreppinn og ná-
grannasveitir í 20 ár. Hann tók við
af Guðmundi Sigurdórssyni sem
veitti þessa þjónustu farsællega í
26 ár.
Af því tilefni, og sem Pálmar var
að taka í notkun nýjan vöruflutn-
ingabíl, bauð hann síðastliðinn
laugardag til sín hópi þjónustu- og
viðskiptaðila og aðra þá sem hafa
aðstoðað við starfsemi hans síðast-
liðna tvo áratugi. Þjónustufyrir-
tæki hans, Flúðaleið ehf., sem
hann rekur ásamt eiginkonu sinni
Ragnhildi Þórarinsdóttur, hefur
nú fjóra flutningabíla í rekstri sem
flytja margvíslegar þungavörur,
þar af einn ársgamlan með aft-
anívagn sem hægt er að lengja upp
í 22 metra. Sá bíll kemur sér vel til
flutninga á aðföngum og fullunnum
vörum frá Límtrésverksmiðjunni á
Flúðum og Yleiningu í Reykholti í
Biskupstungum. Dæmi eru um að
límtrésbitar séu um og yfir 30
metra langir en Pálmar annast alla
flutninga fyrir Límtré hf. Fyrir-
tæki hans annast einnig, meðal
annars, áburðaflutninga í hreppinn
og nokkrar nágrannasveitir en það
er mikið magn.
Pálmar flutti allt grænmeti héð-
an úr sveitinni til ársins 1994 en
þá tóku framleiðendur sjálfir við
þeim flutningum. í þau 20 ár sem
fyrirtæki hans hefur starfað hefur
hann keypt átta Volvo-vöruflutn-
ingabíla, þar af fimm af þeim nýja.
Fórí
1. maí-
göngn og
fann úti-
gengið fé
Borgarfirði eystri - Nýlega
heimti Andrés Hjaltason,
bóndi í Njarðvík, útigengnar
ær með tveimur lömbum.
Tildrög þess að féð fannst
voru þau að Andrés ákvað að
fara 1. maí-gönguna út á
Brimnes, sem er norðan við
Njarðvík og er í daglegu tali oft
nefnd Kögur eftir Kögurvita
sem þar stendur. Úti á nesinu
sá Andrés ána sem hann sakn-
aði af fjalli í fyrrahaust ásamt
tveimur lömbum, hrút og
gimbur. Gimbrin var nýborin
og ærin með lambi. Virtist féð
vel á sig komið eftir veturinn
og ráðgerir Andrés að sækja
það einhvern næstu daga.
Morgunblaðifl/Davlð Pétursson
Vatnavextir í Borgarfirði
Grund - Brúarsmiðirnir við Grímsó
urðu óþreifanlega varir við feikna-
legt flóð í Grímsó eftir úrfelli
sunnudagsins 7. maí og aðfaranótt
mánudagsins 8. maí.
Búið var að aka fyllingu undir
syðri brúarendann og út ó klett í
ónni, sem var um það bil 20-30
metra fró órbakkanum. Á fylling-
unni stóð rafstöð og lítill olíutankur.
Þegar brúarsmiðirnir sóu að í
ánni óx jafnt og þétt, þorðu þeir
ekki annað en að festa rafstöðina og
tankinn með stálvírum í brúarbit-
ana. Sú fyrirhyggja borgaði sig, því
fáum tímum seinna ruddi áinn mest
allri fyllingunni í burt, en rafstöðin
og olíukálfurinn dingluðu í lausu
lofti undir brúarbitunum.
Tækjunum sem þarna hanga
verður vart í land komið, fyrr en
búið er að gera nýja fyllingu.
Morgunblaðið/Sigrún Arngrímsdóttir
Frá landsmótinu í skólaskák sem haldið var á Borgarfirði eystra.
Landsmót í skólaskák í
Borgarfirði eystra
Sigurveg-
ararnir
unnu allar
skákirnar
Borgarfirði eystri - Landsmót í
skólaskók var haldið á Borgarfirði
eystra dagana 5.-7. maí. Keppendur
voru 20 úr öllum kjördæmum lands-
ins. Keppt var í tveimur aldursflokk-
um þ.e. 1 .-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Sigurvegari í yngri flokki var Guð-
mundur Kjartansson, Reykjavík.
Hann vann allar sínar skákir og
hlaut 9 vinninga. í eldri flokki sigraði
Guðjón Heiðar Valgarðsson,
Reykjavík og vann hann einnig allar
sínar skákir og var með 9 vinninga.
Mótið fór fram í Vinaminni sem er
félagsheimili eldri borgara á staðn-
um. Stjórnendur mótsins voru Har-
aldur Baldursson, landsmótsstjóri
og Ólafur H. Ólafsson, kjördæmis-
stjóri í Reykjavík og voru þeir mjög
ánægðir með alla aðstöðu og viður-
gjöming á mótinu.
Forgöngu um að mótið væri haldið
hér á Borgarfirði hafði Gunnar
Finnsson, skólastjóri Grunnskóla
Borgarfjarðar, en hann er jafnframt
kjördæmisstjóri Austurlands. Þess
má geta að af fjórum keppendum
fyrir Austurland voru þrír frá Borg-
arfirði.
Fundu
1.157 sígar-
ettustubba
Höfn - Árlegur rusladagur var
haldinn I Ilafnarskóla föstudaginn
28. arpfl. Þá mátti sjá nemendur
skólans á harðahlaupum út um
bæinn að tlna rusl;
Þeir Pálmi Snær Brynjúlfsson,
Vilmar Herbert Baldursson, Gunn-
ar öm Marteinsson og Þröstur Þór
Ágústsson tóku að sór að tína upp
sígarettustubba og taldist þeim til
að þeir hefðu fundið 1.167 sígar-
ettustubba, og mun megnið af þeim
hafa Iegið á bak við benslnstöðvar
bæjarins.
Morgunblaflifl/Þorvaldur ÞorstetasBon
Litafjör í risninsunni
POLLAGALLAR, STÍGVÉL
OG GÚMMÍSKÓR
PÓSTSENDUM
Grandagarði 2, Rvfk,
sfmi 580 8500 og 800 6288
OPIÐ VIRKADAGA 8-18
LAUGARDAGA 10-14