Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 22

Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ candi Sleen SCANDI SLEEP er einstök lína af úrvals boxdýnum frá stærstu dýnuframleiðendum á Norðurlöndum. Yfirburðir SCANDI SLEEP kerfisins eru rökrétt heild, allir finna dýnu sem passar þeim. Pær tryggja þér væran nætursvefn, þar sem líkaminn hvílist og nýtur fullkomins stuðnings, sem er forsenda fyrir algjöri hvíld. Allar SCANDI SLEEP dýnurnar eru prófaðar með tilliti til langrar notkunar. Við erum viss um gæðin, eftir 20 ára reynslu í sölu og veitum því allt að 15 ára ábyrgð. Húsgagnahöllin býður upp á 10 mismunandi SCANDI SLEEP boxdýnur, allar einstaklega þægilegar, hver á sinn hátt. Líttu inn og prófaðu SCANDI SLEEP boxdýnu strax (dag. SCANDI SLEEP er trygging fyrir réttu vali á dýnu. B80 x L200 sm. kr. 59.710 B90 x L200 sm. kr. 59.710 B105 x L200 sm. kr. 77.970 — B120 x L200 sm. kr. 82.230 BI40 x L200 sm. kr. 89.760 zandi SCANDI SLEEP 3030 boxdýna með þykkri latex yfirdýnu. Millistíf dýna, sérlega þægileg. Pocketfjaðrir. Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3010 boxdýna með yfirdýnu. Stíf dýna sem hentar vel léttu fólki sem kýs að sofá á stífri dýnu. Einföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3035 boxdýna með þykkri latex yfirdýnu. Stíf dýna sem hentar vel þungu fólki sem kýs að sofa á stífri dýnu.Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3015 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistff dýna sem hentar flestum. Sérstak- lega valin fyrir böm og unglinga.Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3020 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistif dýna sem lagar sig vel eftir líkamanum og hentar flestum.Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3045 boxdýna með yfirdýnu. Millistíf dýna sem hækka má án þrepastillingar við höfða- og fótalag. Allar stillingar eru rafstýrðar. Svæðaskiptar Pocketfjaðrir.Tvöföld flöðrun. Dýnusett B90 x L200 sm. kr. 47.630 BI40 x L200 sm. kr. 62.590 BI80 x L200 sm. kr. 91.190 SCANDI SLEEP 3025 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistíf dýna sem lagar sig fullkomlega eftir líkamanum. Pocketfjaðrir. Góð fyrir bakveika. Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3050 Continental dýna með þykkri yfirdýnu. Stff dýna sem sameinar boxdýnu * með einfáldri fjöðrun og lausa dýnu.Tvöföld fjöðrun. Dýnusett B90 x L200 sm. kr. 72.960 BI40 x L200 sm. kr. 105.420 BI80 x L200 sm. kr. 132.620 SCANDI SLEEP 3026 boxdýna með yfirdýnu úr kaldsteyptum svampi. Millistlf dýna með svæöaskiptum Pocketfjöðrum.Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3060 Continental dýna með þykkri latex yfirdýnu. Millistff dýna sem sameinar boxdýnu með tvöfáldri fjöðrun og lausa dýnu með svæðaskiptum Pocketfjöðrum. Þreföld fjöðrun. Boxdýnan er næstum því rúm, aðeins vantar fætur eða meiða, mísmunandj verð eftir vali og rúmgafl ef óskað er. Mörg venjuleg rúm eru einnig framleidd með boxdýnur f huga. Boxdýna er botn og dýna í einu og það er einkennandi fyrir flestar boxdýnur að þær eru byggðar í kringum tvö fjaðralög á trégrind. Boxdýnurnar leysa málin hvort sem er fyrir einstaklinga eða hjón, dýnurnar eru einfaldlega festar saman svo ekkert bil verður. Þúsundir íslendinga hafa treyst okkur fyrir dagiegri vellíðan sinni. Áralöng reynsla okkar og sérþekking starfsfólks mun auðrelda þér valið. Markmið okkar er að þú sofir vel og eigir góða daga. HÚSGAGNAHÖLUN Bíldshöfða, I im* Raögreiðslur í 36 mán. 0 Reykjavík, sími 5 1 0 8 0 0 0, www.husgagnahollin.is NEYTENDUR í fyrra lést barn í Hollandi þegar ferðarúm féll saman. Ferðarúmin geta fallið saman ef hliðamar em ekki í læstri stöðu. Mikilvægt að setja ferðarúm rétt saman MARGIR nota ferðarúm fyrir bömin sín á ferðalögum og í sumar- bústöðum. Það skiptir miklu máli að rúmin séu rétt sett saman. í fyrra lést barn í Hollandi þegar rúmið féll saman. I kjölfar svokallaðrar Rapex tilkynningar um hættulega vöru á markaði voru ferðarúmin, Brevi og Mothercare „weekend plus 2000“ tekin af markaði á Evrópska efna- hagssvæðinu. Umrædd vara fannst ekki á markaði hér á landi. Fjóla Guðjónsdóttir hjá markaðsgæslu- deild Löggjafarstofu segir að þrátt fyrir það fáist svipuð rúm hér á landi og það sé full ástæða til að benda fólki á mikilvægi þess að setja rúmin rétt saman. Ferðarúmin eru einföld í upp- setningu en þau geta fallið saman ef hliðamar em ekki í læstri stöðu. Þá bendir hún á að notkunarleið- beiningar eigi ávallt að fylgja rúm- unum því oft geti aðrir þurft að setja rúmin saman eins og amma og afi eða þeir sem em að gæta barna. Fjóla segir að ekki sé gerð krafa um að leiðbeiningar með rúmunum séu á íslensku, sem sé miður, enda sé það mikið hagsmunamál fyrir neytendur að íslenskar notkunar- leiðbeningar fylgi með vöm. Slíkt eykur ekki einungis öryggi vörann- ar heldur einnig notkunarmögu- leika hennar. Fjóla vill að lokum benda fólki á að athuga ástand eldri ferðarúma, stöðugleika þeirra og hvort klemmuhætta sé fyrir hendi. Verðhækkun á kaf- bátum hjá Subway FYRIR skömmu hækkaði verð á Subway-kafbátum að meðaltali um 2,44%. Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi og framkvæmdastjóri Su- bway á íslandi segir að 6 tomma bræðingur hafi t.d. hækkað um 10 krónur og 12 tomma bræðingur um 20 krónur en alls hækkuðu 10 teg- undir af kafbátum um 20 krónur mest. „Þá stóðu 4 tegundir í stað en þetta á bæði við um 6 og 12 tomma stærðir. Frá opnun Subway á íslandi í ágúst 1994 hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 15,9% en kafbát- ar Subway um 15,27%. A sama tíma og kafbátar Subway hafa hækkað um 15,27% hafa laun á almennum markaði hækkað um 34% sam- kvæmt launavísitölu hagstofunn- ar,“ segir Skúli. Ostur og kalkúnabringa hækkað mest Að sögn Skúla hefur gífurleg verðhækkun orðið á tveimur hrá- efnistegundum sem Subway notar. „Kalkúnabringa hefur á einu ári hækkað í innkaupum hjá okkur um 104,36% vegna þess að enginn toll- kvóti hefur komið í okkar hlut síð- ustu tvö tímabil. Því höfum við þurft að flytja inn kalkúnabringu á ofurtollum, en emm nú loks að fá íslenska vöru sambærilega að gæð- um sem þó verður talsvert dýrari en innflutt vara með tollkvóta. Kal- kúnabringa er t.d. uppistaðan í Su- bway-bræðingi. Sama hefur gilt með ostinn. Ekki hefur verið hægt að framleiða hér á landi þann ost sem Subway gerir kröfur um og því höfum við flutt hann inn. Þegar við fáum ekki tollkvóta, höfum við flutt hann inn á ofurtollum. Subway hef- ur að öllu leyti tekið þessar hráefn- ishækkanir á sig, í stað þess að koma henni áfram til viðskiptavina. Þetta sést á því að við höfum varla fylgt vísitölu neysluverðs, hvað þá launavísitölu," segir Skúli. Stjörnumál „Svokallað Stjömumál var sett á markað um leið og þessi 2,44% hækkun kom til framkvæmda í ap- ríl. Stjömumál samanstendur af kafbáti, miðstærð af gosi og kar- töfluílögum. Þegar viðskiptavinur kaupir kafbát getur hann bætt við gosi og flögum fyrir 170 krónur í viðbót en þetta er afsláttur upp á 10-13% eftir tegundum. Þá standa Sub-Club kort öllum viðskiptavin- um Subway til boða. Viðskiptavinir fá eitt frímerki í kortin fyrir hverja 6 tommu sem þeir kaupa og tvö frímerki fyrir hverja 12 tommu sem þeir kaupa. Þegar þeir hafa safnað 8 frímerkjum, fá þeir frían 6 tomma kafbát ef þeir kaupa miðstærð af gosdrykk með,“ segir Skúli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.