Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Agæt humarveiði og
góðar markaðshorfur
MJÖG góð humarveiði hefur verið í
Breiðamerkurdýpi að undanförnu
og eru góðar markaðshorfur. Verðið
er svipað og í fyrra en lækkandi
gengi á evrunni kemur niður á út-
flytjendum. Vart hefur orðið við
batamerki á stofninum og framund-
an er tveggja vikna rannsóknarleið-
angur á vegum Hafrannsóknastofn-
unar til að meta stöðuna.
Fá skip hafa verið á humarveiðum
í vetur en Hvanney SF frá Homa-
firði hefur stundað veiðarnar í vetur
eins og í fyrravetur og er komin
með hátt í 100 kg upp úr sjó eða
milli 25 og 30 kg miðað við slitinn
humar. „Þetta hefur gengið allavega
en tíðarfarið hefur verið miklu verra
en í fyrra,“ segir Bjöm Lúðvík
Jónsson. Hins vegar segir hann gott
að vera á humarveiðum á veturna
því þá sé enginn meðafli. „Við fáum
ekki nein seiði eða annað með þessu
en reyndar hefur verið mjög lítið af
fiski á svæðinu í vetur. Við höfum
varla séð þorsk eða ýsu en aðeins af
skrápflúm og skötusel."
Björn hefur einkum verið í
Breiðamerkurdýpi í vetur og fengið
góðan humar að undanförnu.
„Humarinn hefur reyndar verið
misjafn en smáhumarinn, sem gaus
upp um þetta leyti í fyrra, hefur
ekki enn sést. Það segir samt ekki
allt því það er byrjað að grænka í
sjónum og þá gýs hann fljótlega
upp.“
Hann þekkir þessar veiðar manna
best, hefur stundað þær í rúma þrjá
áratugi. „Annars sáum við ekki í
fyrra þennan humar sem við höfum
verið að veiða í vetur en ýmislegt
bendir til þess að veiðin minnki
snarlega innan skamms. Þetta var
skást í kringum páskana en hefur
farið minnkandi síðan. Hins vegar
hefur ástandið verið sérstakt.
Venjulega veiðist humar ekki í
glampandi sól og þegar sjórinn er
tær en það virðist ekki hafa haft
nein áhrif að þessu sinni. Það kemur
því marjgt skemmtilega á óvart í
þessu. Aður en ég fór að stunda
þessar vetrarveiðar hélt ég að ég
vissi hvað ég væri að fara út í en ég
hef komist að öðru.“
Kvótaskerðingin mikilvæg
Fiskveiðiárin 1992/93 og 1993/94
var kvótinn 2.400 tonn á fiskveiðiári,
2.200 1994/95, 1.500 tonn næstu tvö
fiskveiðiár og hefur síðan verið
1.200 tonn. Björn Lúðvík segir að
kvótaskerðingin hafi haft mikið að
segja. „Hún er að skila sér. Við fá-
um nú eldri og stærri humar og
verðum varir við nýliðun en ég er
mjög hræddur um að við berum
ekki gæfu til að fylgja henni eftir.
Ef einhvers staðar er hægt að ná í
eitthvert kvikindi, þótt það sé smátt
og verðlaust, þarf að taka það í dag
og helst í gær, en í raun er skelfilegt
að veiða humar eins og hann flokk-
ast núna. í heila humrinum fáum við
14 til 17% í dýrasta flokkinn, 500
krónur á kílóið. Nýlega vorum við
með um 78% í 2. flokki, þar sem
greiddar eru 250 krónur fyrir kílóið,
en mikil verðmæti liggja þarna ef 2.
flokkurinn færist í 1. flokk. Magnið
skiptir ekki máli heldur gæðin og
gríðarlegt atriði að fá sem mest í 1.
flokk. í fyrrnefndri löndun fóru um
15,5% af því sem þurfti að slíta úr
heila humrinum í 1. flokk, tæplega
45% í 2. flokk og um 39% í 3. flokk,
þar á meðal allur brotinn humar.“
Stærri humar
Heili humarinn er um 70% út-
flutningsins og er hann seldur til
Evrópu en halarnir til Bandaríkj-
anna. Gunnar Asgeirsson, stjórnar-
formaður Skinneyjar-Þinganess á
Höfn, segir að áhersla sé lögð á að
vinna heilan humar. Markaðurinn sé
svipaður og í fyrra en gengið á evr-
unni valdi vandræðum. Hins vegar
sé humarinn stærri en undanfarin
ár og sé góður markaður fyrir hann
á Italíu og Spáni.
66°N verslunin við Skúlagötu 51 hefur verið flutt og sameinuð versluninni
i Faxafeni 12. Verslunin er opin alta virka daga frá 8:00 - 18:00 og á
laugardögum frá 10:00 - 14:00. Símí: 588 6600, fax: 588 6510.
Fyrirtækjaþjónustan verður áfram starfrækt að Skúlagötu 51,
Opið alla virka daga hrá 8:00 - 17:00. Simi: 5511520, fax: 551 8100,
Úthlutað aflahámark í norsk-íslenskri síld árið 2000
Veiðiskip Burðar- geta* Úthlutað afla- hámark Útgerð
Hólmaborg SU11 2.790,5 6.799 Hraðfrysíihús Eskifjarðar hf
Börkur NK122 1.825,5 4.892 Síldarvinnslan hf
Sighvatur Bjamason VE81 1.602,0 4.450 Vinnslustöðin hf
Jón Kjartansson SU111 1.556,0 4.359 Hraðfrystihús Eskifjarðar hf
Sigurður VE15 1.548,0 4.343 ísfélag Vestmannaeyja hf
Víkingur AK100 1.512,5 4.273 Haraldur Böðvarsson hf
Sunnuberg NS70 1.375,5 4.002 Tangi hf
Bjami Ólafsson AK70 1.371,5 3.994 Runólfur Hallfreðsson ehf
Júpiter ÞH61 1.341,5 3.935 Skálar ehf
Sveinn Benediktsson SU 77 1.285,0 3.824 Skipaklettur hf
Bergur VE 44 1.274,5 3.803 Bergur ehf
Faxi RE9 1.262,0 3.778 Faxamjöl hf
Gullberg VE 292 1.261,5 3.777 Ufsaberg ehf
Þorsteinn EA1903 1.183,5 3.623 Samherji hf
Björg Jónsdóttir ÞH 321 1.176,5 3.609 Langanes hf
Grindvíkingur GK606 1.167,5 3.591 Fiskanes hf
Neptúnus ÞH361 1.166,0 3.588 Skálar ehf
Hákon ÞH 250 1.163,5 3.583 Gjögur ehf Grenivík
ísleifur VE 63 1.142,5 3.542 fsleifur ehf
Beitir NK123 1.142,0 3.541 Síldarvinnslan hf
Örn KE13 1.137,0 3.531 Sólbakki ehf
Ásgrimur Halldórsson SF 250 1.086,4 3.431 Þingey ehf
Hoffell SU 80 1.081,0 3.420 Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
Óli í Sandgerði AK14 1.058,5 3.376 Haraldur Böðvarsson hf
Antares VE18 1.038,5 3.336 ísfélag Vestmannaeyja hf
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 1.029,5 3.319 Hraðfrystihús Eskifjarðar hf
Guðmundur VE 29 977,5 3.216 ísfélag Vestmannaeyja hf
Gullfaxi VE192 975,0 3.211 Daney ehf
Súlan EA300 964,0 3.189 Súlan ehf
Huginn VE55 951,0 3.163 Huginn ehf
Sunnutindur SU 59 948,5 3.159 Vísir hf
Arnþór EA16 932,5 3.127 BGB hf.Bliki G.Ben
Þórshamar GK75 916,0 3.094 Festi ehf
Kap VE4 907,0 3.077 Vinnslustöðin hf
Elliði GK445 871,0 3.005 Haraldur Böðvarsson hf
Arnarnúpur ÞH212 839,5 2.943 Jökull ehf
Guðmundur Ólafur ÓF91 831,5 2.927 Garðar Guðmundsson hf
Húnaröst SF 550 820,0 2.905 Skinney-Þinganes hf
JónaEðvalds SF20 804,0 2.873 Skinney-Þinganes hf
Þerney RE101 798,6 2.862 Grandi hf
Oddeyrin EA210 770,5 2.807 Samherji hf
Seley SU210 760,0 2.786 Samherji hf
Gígja VE340 757,0 2.780 (sfélag Vestmannaeyja hf
Þórður Jónasson EA350 735,5 2.738 Valtýr Þorsteinsson ehf
Svanur RE45 720,0 2.707 Svanur RE 45 ehf
Birtingur NK119 705,5 2.678 Barðsnes ehf
Háberg GK299 688,0 2.644 Þorbjöm hf
Faxi II RE 241 663,5 2.595 Nlelur hf
Goðatindur EA116 617,0 2.503 Vísir hf
Sigurður Jakobsson ÞH 320 594,0 2.458 Langanes hf
Amey KE50 591,0 2.452 Arney ehf
Venus HF519 T 560,4 2.392 Hvalur hf
Dagfari GK70 525,0 2.322 Barðsnes ehf
Bergur Vigfús GK 53 516,0 2.304 Barðsnes ehf
Glófaxi VE 300 513,0 2.298 Útgerðarfélagið Glófaxi ehf
Heimaey VE1 508,5 2.289 Isfélag Vestmannaeyja hf
Baldvin Þorsteinsson EA10 456,6 2.187 Samherji hf
Júlíus Geirmundsson ÍS 270 346,1 1.968 Hraðfrystihúsið Gunnvör hf
Orri ÍS 20 314,7 1.906 Basafell hf
Sæfaxi VE 30 28,3 1.340 Útgerðarfélagið Glófaxi ehf
Brettingur NS50 803 Tangi hf
Stakfell ÞH 360 803 Hraðfrystistöð Þórshafnar hf
Fjöldi skipa: 62 Alls: 58.485 194.230
'Burðargeta skv. 4. gr. reglugerðar nr. 233/2000, um stjóm veiöa (slenskra skipa úr
norsk-íslenska sndarstofninum 2000
Allar tölur miðast við lestir
Aflahámark í norsk-lslenskri síld miðast við timabilið 5. maí - 31. des. 2000
Heimild: Fískistofa
Elizabeth Arden
kynning í
Lyf&heilsa
Grafarvogi
í dag kl. 13.00-18.00.
Kynntur verður nýi
varaliturinn
LIP LIP HOORAY.
Ath.10 % kynningar-
afsláttur. Glæsilegur
kaupauki fylgir ef þú
kaupir Arden-vörur
fyrir 3.500 kr.
www.mbl.is