Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 30

Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Stj órnarandstaðan í Zimbabwe hótar fjöldamótmælum Ihugar að snið- ganga kosningar Hararel AFP. STJÓRNARANDSTAÐAN í Zimbabwe hótaði því í gær að sniðganga fyrirhugaðar kosningar í landinu og efna til aðgerða gegn „ofríki“ Roberts Mugabes, forseta landsins, sem myndu m.a. fela í sér allsherjarverkfall. Morgan Tsvangirai, leiðtogi Lýðræðishreyfingarinnar (MDC), helsta stjórnarandstöðuafls Zimb- abwe, sagði í gær að flokksforyst- an myndi hittast nk. laugardag og taka afstöðu til þess hvernig taka bæri á versnandi aðstæðum í stjórnmálum og efnahagslífi landsins. Á dagskrá væri að snið- ganga kosningarnar og líkur væru á því að efnt yrði til fjölda- mótmæla sem gæti þýtt allsherj- arverkfall. Tilefnið væri hið „við- varandi ástand stjórn- og lögleysis í landinu“ og væru jafnframt líkur á að stjórnarandstaðan myndi hvetja alþjóðasamfélagið til að auka þrýstinginn á stjórnvöld í Harare. „Hvernig getur lýðræð- islegur flokkur líkt og MDC att kappi við að- þrengda ríkisstjórn sem einkennist af ofbeldis- hneigð og einræðistil- burðum," sagði Tsvangir- ai við blaðamenn í Harare í gær. Ómögulegt að halda kosningar að sinni Lýðræðishreyfingin er talin eiga góða möguleika á að steypa stjórn landsins og hafa leiðtogar hennar ítrekað kennt Mugabe forseta og ríkisstjórn hans um að standa að baki og æsa meirihluta landsmanna til ofbeldisverka gegn hvít- um bændum og landtöku jarða þeirra. Yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar um að styðja eignarnám blökkumanna á bújörðum í eigu hvítra bænda sé gerð með það að mark- miði að vinna kosning- arnar. Leiðtogar MDC segja hins vegar að ómögulegt sé að halda frjálsar og réttlátar kosningar að sinni vegna ógnaraldarinnar í landinu. Peter Hain, ráðherra Afríkumála i bresku ríkisstjórninni, lýsti sömu skoðun í gær og sagði að ef kosningarnar uppfylltu ekki lýð- ræðisleg skilyrði þá ætti Zimb- abwe á hættu á að missa trúverð- ugleika í augum alþjóða- samfélagsins - jafnvel enn meir en orðið hefur. Mugabe hefur hins vegar ýtt kosningabaráttu sinni úr vör og er þar áherslan lögð á landtöku- málið. Enn hefur þó ekki verið ákveðið hvenær kosningarnar fari fram en samkvæmt lögum lands- ins geta þær ekki verið síðar en í ágúst á þessu ári. „Stofnana- bundnu“ ofbeldi mótmælt Mannréttindasamtökin Amn- esty Intemational hvöttu á þriðjudag Sameinuðu þjóðirnar til að fordæma Bandaríkin vegna mannréttindabrota og „stofnanabundins" lögregluof- beldis en í dag hefst rannsókn sérstakrar nefndar SP á lög- regluofbeldi gegn minnihluta- hópum í Bandaríkjunum. Amnesty gerir þá kröfu að lög- reglumenn hvorki skjóti að né gangi í skrokk á óvopnuðu fólki sem grunað er um glæp en slíku segja samtökin vera aðal- lega beitt gagnvart blökkum- önnum og öðrum minnihluta- hópum. Þá krefjast samtökin þess að lögreglan hætti að beita byssum er gera menn meðvit- undarlausa og nota hlekki sem ætlaðir eru til þess að hemja fanga. Næstu tvo daga mun sérnefnd SÞ gegn pyndingum fjalla um hvort og hvernig níu ríki, þ.á m. Bandaríkin og Kína, halda í heiðri alþjóðasáttmála gegn pyndingum. Berlusconi laus mála ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Míl- anó felldi á þriðjudag úr gildi dóm undin-éttar gegn ítalska stjórnarandstöðuleiðtoganum Silvio Berlusconi. Féll dómur áfrýjunarréttarins aðeins nokkrum vikum eftir að Ber- lusconi vann sætan sigur í sveitarstjórnarkosningum og er talinn gefa honum byr undir báða vængi. Árið 1998 var Berl- usconi, sem rekur umsvifa- mikla fjölmiðlasamsteypu á Italíu, ákærður fyrir að eiga að- ild að mútugreiðslum til starfs- manna skattayfirvalda og var í kjölfarið dæmdur til fangelsis- vistar. Áfrýjunarrétturinn ógilti hins vegar niðurstöðu undirréttarins og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að dæma í málinu þar sem of langt væri síðan glæpurinn hefði átt að vera framinn. Um er að ræða vikunámskeið (mán.-fös.) fyrir krakka úr öllum félögum, alls staðar af landinu MARKASKORARAR, 5-8 ÁRA KL. 9-12 og/eða 13-16 A þessu námskeiði, sem er ætlað yngstu krökkunum, er áhersla lögð á að kenna undirstöðuatriði knattspyrnunnar. Æfingar og leikir miða að því aö auka leikni nemenda. Áhersla er lögð á marksækni og æfingar eiga að kveikja áhuga jafnvel hinna allra yngstu. Fótbolti verður ekki eina viðfangsefnið á þessu námskeiði, einnig verður farið í sund og aðra leiki. Góð aðstaða er til inniveru ef þörf krefur. Verð kr. 3.000 SÓKNARKRAFTUR, 9-12 ÁRA KL. 9-12 og/eða 13-16 Áhersla er lögð á að kenna bæöi tækni og leikskilning sóknarknattspyrn- unnar. Hér er bæði miðað að því að þjálfa leikni hvers og eins og kenna honum tækni. Einnig er lögö rík áhersla á að glæöa leikskilning og kenna leikskipulag. Þess er vandlega gætt að hver og einn fái þjálfun viö hæfi og taki fullan þátt í öllum æfingum. Þátttakendur á námskeiðinu fara einnig í sund og f aðra leiki sem fjölbreytt landslag Laugardalsins býður upp á. Verð kr. 3.000. ÚRVALSDEILDIN, 10-14. JÚLÍ AHir aldurshópar KL. 9-16 Y I Hápunktur sumarstarfs Sóknarskóla lans Rush og Þróttar er úrvalsdeildin. (, , ;| Einnar viku námskeiö sem lan Rush stýrir sjálfur. Námskeiöið er ætlað ungum knattspyrnumönnum, stelpum og strákum, sem vilja læra enn meira í fótbolta. Lærið af æfingum sem lan Rush hefur notað á ferli sínum með Liverpool, Juventus, Leeds, Newcastle, Wrexham, Chester og Velska landsliðinu. Verð kr. 11.900. Hádegis matur innifalinn. Fyrir hverja er sóknarskóli lans Rush? Hann er fyrir stúlkur og drengi á öllum aldri. Leikmenn sem hafa gaman af því að skora mörk. Alla þá sem ekki leika í fremstu víglínu en vilja bæta leik sinn og ná valdi á sóknarknattspymu. Allir fá þjálfun við sitt hæfi, sama hvaða stöðu þeir leika. Af hverju ættu foreldrar að setja börn sin i Sóknarskóla lans Rush og Þróttar? Umhverfi skólans er gott og öruggt og skólinn er skemmtilegur. Skólinn krefst aga af nemendum sínum en blæs þeim heilbrigði og íþróttamennsku í brjóst. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Hvað býður Sóknarskóli lans Rush og Þróttar nemendum? Kennslu og þjálfun í hæsta gæðaflokki. Nike bol og Nike bolta. Viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Möguleikann á að verða boðið í Sóknarskóla lans Rush á Englandi. SKRÁNING og upplýsingar kl. 12-18 alla virka daga í síma 580 5903. Ath. takmarkaður fjöldi á hvert námskeið. Sóknarskólinn er Uka fyrír varnarmenn og markmenn lasisiBRESisieigi PROACTIVE ; c '• r. T f, tf h N A { M »• h T I. i M i T U iBnnin ImiiSPORT ALVÖRU ORKA Robert Mugabe

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.