Morgunblaðið - 11.05.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 33
Tiittug'ii ára sam-
búð með Bakkusi
Morgunblaðið/Jim Smart
Æfingar hátíðar-
kórsins hafnar
BÆKUR
Reynslusaga
DRYKKJA- ÁSTARSAGA
eftir Caroline Knapp. Þýðandi:
Ragnheiður Margrét Guðmunds-
dóttir. Forlagið, 2000 - 288 bls.
ÞÆR guðaveigar sem lífga sálaryl
eiga það einnig til að frysta sálina.
Það kann að virðast saklaust að
neyta áfengis í hófl. En hvað er með-
alhóf og hvenær tekur Bakkus völd-
in? Það kemur nefnilega fyrir að
menn vakni við vondan draum eftir
tuttugu ára fyllerí.
Metsölubókin Drykkja - Ástar-
saga lýsir á nærfærinn og hlutlægan
hátt ástarsambandi konu og áfengis.
Höfundurinn, Caroline Knapp, lýsir
þar flóknum samskiptum sínum við
Bakkus um tveggja áratugaskeið. I
bók hennar afhjúpast allt pukrið í
kringum vínandann, fjölskyldu-
harmleikirnir, þykjustuleikurinn
með fíknina og vald hennar yfir lífi
hins drykkjusjúka. Við sjáum einnig
hvernig fíknin eyðileggur öll pers-
ónuleg sambönd því að ekki er til af-
brýðisamari elskhugi en sá sem er í
gullnu glasi.
Höfundur dregur sannarlega ekki
upp neina glansmynd af drykkjunni
en hann fellur heldur ekki í þá gryfju
að sýna okkur inn í endalaust
svartnætti. Miklu fremur einhvers
konar meðvitundarleysi hins drykk-
fellda. A vissan hátt eru aðstæður
höfundai' óvenjulegar fyrir slíka
drykkjusjögu. Caroline er vel stæð
miðstéttarkona í Bandaríkjunum og
umhverfi sögunnar í samræmi við
það. Afengið raskar hvorki fjárhag
hennar né þjóðfélagsstöðu. Hún leit-
ast því ekki við að sýna okkur áfeng-
isneysluna sem eymd heldur sem
sjúkdóm sem allir geta fengið. Þegar
hún nær botninum í áfengisneyslu
sinni er hún hvergi nærri ræsinu
heldur þvert á móti velstæður og
vinsæll blaðamaður og rithöfundur. I
þessari bók er því ekki lögð áhersla á
alkóhólisma sem orsök og afleiðingu
niðurlægingar. Styrkur bókarinnar
er hófstillt en beinskeytt lýsing á
framakonu sem lifir tvöföldu lífi,
hinu opinbera og því drukkna.
Diykkjusaga Caroline Knapp tek-
ur mið af kenningum AA-samtak-
anna og aðferðum enda fmnur hún
lausn sína úr víti alkóhólismans í
þeirra skjóli. Þótt alkóhólisminn sé
meginþráðurinn er hún einnig pers-
ónuleg saga og gefur það bókinni
styrk og dýpt.
Megintilgangur verksins er að
vekja athygli á því hversu ísmeygi-
legur alkóhólisminn er og hversu
víða hann leynist. Það er svo í anda
bókarinnar að henni lýkur með lista
yfir meðferðarstofnanir og stuðn-
ingsstofnanir við alkóhólista.
Þýðing Ragnheiðar Margrétar
Guðmundsdóttur er látlaust og kall-
ar ekki á athygli lesanda. Hún styður
því mjög hófstillingu textans og ger-
ir það að verkum að bókin er hið
læsilegasta verk.
Skafti Þ. Halldórsson
FRÁ fyrstu samæfingu hátíðar-
kórsins, sem syngur í hátíðar-
messu og á tónleikum með Sin-
fóníuhljómsveit Islands á
Þingvöllum 2. júlí í sumar. Þar
voru saman komnir milli 120-140
söngvarar undir stjórn Harðar
Áskelssonar.
• • •
Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar Hnakkapúðar CD
1800 cc 112 já 2 5 já
Lengd
4,60 m
Verð frá
1.589.000 kr.
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðrir af fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er í margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bílasala Akureyrar s. 461 2533
Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bílavík ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT