Morgunblaðið - 11.05.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 35
Ólöf Sigurðardóttir Þorsteinn
frá Hlöðum Erlingsson
Bréf
skálda
BÆKUR
Bréf
ORÐ AF ELDI
Bréfasamband Ólafar frá Hlöðum
og Þorsteins Erlingssonar
á árunum 1883-1914.
Erna Sverrisdóttir tók saman -
Háskólaútgáfan. 2000 - 212 bls.
NOKKUR áhugi virðist vera á
bréfasambandi skáldanna, Ólafar
Sigurðardóttur frá Hlöðum og Þor-
steins Erlingssonar. Fyrir stuttu var
gefin út bókin Bréfaástir um þetta
samband og degi seinna Orð af eldi,
sem hér er til umfjöllunar. Báðar
bækurnar birta svipað bréfaúrval og
því er ekki mikill munur á þeim.
Bréfin eru að ýmsu leyti áhuga-
verð. Þau birta okkur einhvers konar
andlegt vináttu- og ástarsamband
þessara skálda sem raunar hittust
ekki oft á lífsleiðinni. Þau eru opin-
ská og berorð og varpa ljósi á pers-
ónuleika höfundanna, einkum þó
Ólafar því að henni er sýnt um að
fjalia um tilfinningar sínar auk þess
sem ýmislegt má lesa milli línanna
um ævikjör hennar. Ekki eiga bréfin
síður erindi til okkar vegna þeirrar
innsýnar sem þau gefa okkur inn í líf
og stöðu íslenskra kvenna í kringum
aldamótin 1900 en hlutskipti Ólafar í
lífinu segir okkur mikið um þann
veruleika.
Utgáfa þessara bréfa er sérkenni-
legur kapítuli íslenskrar bókmennta-
sögu sem erfitt er fyrir utanaðkom-
andi að dæma um. Spurningar sem
vakna eru margar enda formáli Orða
af eldi helgaður ýmiss konar vand-
ræðagangi í kringum útgáfuna, eink-
um það hvers vegna tvær bækur
unnar í skjóli Háskól-
ans skuli koma út með
þessum sömu bréfum.
Svo er það athugunar-
efni að ekki skuli allir
afkomendur skáldanna
hafðir með í ráðum.
Tilviljanir og slys eiga
þar þó meiri þátt en
vilji til að ganga á hlut
eins né neins.
Það er alltaf álita-
mál hvort gefa eigi út
einkabréf látins fólks,
ekki síst þegar það
hefur farið fram á það í
lifandi lífi að bréfin
yrðu eyðilögð eins_ og
Þorsteinn gerði. Ólöf
arfleiddi á sínum tíma Steindór
Steindórsson frá Hlöðum bréfin frá
Þorsteini og hann færði þau Ásthildi
Erlingsdóttur, sonardóttur Þor-
steins, með þeirri ósk Ólafar „að þau
kæmust ekki í ómildra hendur“ en
erfingjar hennar standa að útgáf-
unni með Háskólaútgáfunni. Ég fæ
ekki betur séð en að við þessari ósk
hafi verið orðið. Orð af eldi er vandað
verk og ritstjóri verksins leitast við
að fara um höfunda bréfanna kær-
leiksríkum og mildum höndum.
Bréfin eiga líka flest, sem fyrr
segir, erindi við okkur. Þó finnst mér
orka tvímælis að birta síðasta bréfa-
safn bókarinnar, bréfaskipti þeirra
Ólafar ' og Guðrúnar, ekkju Þor-
steins, eftir að hann er allur. Þau
bera fyrst og fremst mærðarlegt
vitni spíritisma og bæta litlu við þá
meintu ástarsögu sem elstu bréfin
greina frá. Einhvern veginn finnst
mér sú mynd sem þar er dregin af
skáldinu látnu í andstöðu við þá
mynd sem við höfum af Þorsteini
sem jarðbundnum manni.
Þrátt fyrir dálítinn vandræðagang
í tengslum við útgáfu þessara bréfa
eiga þau vissulega erindi við okkur.
Orð af eldi er vandað rit. Erna
Sverrisdóttir hefur unnið gott starf
með útgáfunni og inngangur hennar
og millikaflar ei'u upplýsandi og
fróðlegir.
Skafti Þ. Halldórsson
Síðustu
sýningar
Þjóðleikhúsið
Abel Snorko býr einn
NU eru tvær sýningar eftir á
franska leikritinu Abel Snorko
býr einn á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins: þriðjudaginn 16. maí
og sunnudaginn 21. maí.
Verkið var sýnt allt síðastlið-
ið leikár á Litla sviðinu, en
flutti upp á Stóra svið á liðnu
hausti og eru sýningar nú orðn-
ar 86 talsins.
Með hlutverk nóbelsverð-
launahöfundarins Abels
Snorko fer Arnar Jónsson en Arnar Jónsson og Jóhann Sig-
Jóhann Sigurðarson leikur urðsson í hlutverkum í leikritinu
blaðamanninn Erik Larsen. Abel Snorko býr einn.
Við erum i okkar árlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bilum.
Við verðum á Isafirði um helgina. Nýttu tækifærið. Komdu og prófaðu bfla af bestu gerð.
Isafjörður
Laugardaginn 13. maí kl. 13-17
Sunnudaginn 14. maí kl. 13-17
Bensínstöðin ísafirði
Allar nánari upplýsingar: Bílaverkstæði Nonna,
Bolungarvik, sími 456-7440
Land Rover Discovery
Land Rover Defender
Land Rover Freelander
BMW Compact
Renault Scénic
Renault Laguna
Renault Mégane Break
Renault Mégane Classic
Hyundai Starex
Hyundai Accent
Hyundai Sonata
REWAULT HYUnDRI