Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
RAOAUGLVSIIMGAR
AT VIIM IM U -
AUGLÝSINGAR
MENNTASKOLINN
VIÐ SUND
Lausar kennarastöður
Á haustönn 2000 er laus til umsóknar kennsla
í íslensku (u.þ.b. 1 staða). Umsóknarfrestur
er til 1. maí 2000.
Þá er stundakennsla í tölvufræði laus næsta
skólaár.
ítrekuð er áður auglýst kennsla í stærðfræði
(1 —2 stöður), eðlisfræði (1 —2 stöður), líf-
fræði (uþ.b. 1 staða) með umsóknarfresti til
22. maí.
Sömuleiðis félagsfræði (1—2 stöður) með
umsóknarfresti til 15. maí. Stundakennsla kem-
ur til greina.
í umsókn skal greina frá menntun og fyrri störf-
um. Ekki þarf að nota sérstök umsóknareyðu-
blöð. Afrit af vottorðum um nám fylgi.
Ráðið er í heilar stöðurfrá 1. ágúst næstkom-
andi en í stundakennslu frá 1. sept.
Starfskjör eru skv. kjarasamningum ríkisins
við stéttarfélög.
Umsóknirsendist í Menntaskólann við Sund,
Gnoðarvogi 49, 104 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veita rektor og konrektor
í síma 553 7300.
Rektor.
Bessastaðahreppur
Bessastaðahreppur
íþrótta- og tómstundafulltrúi
Hér með er auglýst laus til umsóknar staða
íþrótta- og tómstundafulltrúa Bessastaða-
hrepps. Um er að ræða 100% starf og þarf við-
komandi að geta byrjað sem fyrst og eigi síðar
en 1. ágúst nk. í starfinu felst m.a. yfirumsjón
með íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins og
að vera sveitarstjórn til ráðgjafar og fram-
kvæma stefnu hennar í íþrótta- og tómstunda-
málum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
á sviði íþróttafræða eða aðra sambærilega
menntun. Leitað er að hæfum og metnaðarfull-
um einstaklingi með áhuga á hvers konar
íþrótta-óg félagastarfsemi og sem hefurtil
að bera frumkvæði í starfi.
Allar frekari upplýsingar um starfið gefur sveit-
arstjóri í síma 550 2300. Umsóknum skal skilað
til sveitarstjórans í Bessastaðahreppi eigi síðar
en föstudaginn 26. maí 2000.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
lagerstarfa auk
samsetningar á hillukerfum.
Æskilegt að viðkomandi hafi
lyftarapróf.
Kristján Gissurarson
veitir upplýsingar í slma 53 53 600
á skrifstofutíma.
Umboðsog
Nethyl3-3a-n0Reykþvik
Smi5353G00-FaxS673609
KÓPAV OGSBÆR
ÞINGHÓLSSKÓLI
Okkur vantar kennara í þrjár almennar
kennarastöður næsta skólaár. Einnig vantar
okkur íþróttakennara, konu og karl, hvort um
sig í 2/3 úr stöðu.
í Þinghólsskóla eru um 230 nemendur í 4
elstu árgöngum grunnskólans.
Launakjör skv. kjarasamningi KÍ, HÍK og
Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2000. Allar
nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Guðmundur
Oddsson í símum h. 554 1132 og v. 554 2250.
Fræðslustjóri .
Sölumaður fasteigna
Fasteignasala óskar eftir dugmiklum sölu-
manni/konu sem á auðvelt með að starfa sjálf-
stætt og með öðrum. Þarf að hafa bifreið til
umráða. Laun árangurstengd. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast skilið inn umsókn með uppl. um
aldur, fyrri störf o.s.frv. til Mbl. merkt: Fasteign
eða sendið á netfang fasteign@xnet.is.
Eign.is, sími 533 4030, Suðurlandsbraut 46.
Lagermaður
Óskum eftir að ráða duglegan og reglusaman
lagermann í umbúðamóttöku Endurvinnsl-
unnar hf. í Vogahverfi, Reykjavík.
Starfið er laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 588 8522 mánudaginn
11. maí frá kl. 8.00—10.00 og föstudaginn
12. maíkl. 8.00-10.00.
Viðgerðir
Óskum eftir að ráða laghentan og ábyggilegan
mann til viðgerða, m.a. á reiðhjólum og fleiru.
Æskiiegt að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Upplýsingar í síma 897 3614, Orri.
YMISLEGT
GARÐABÆR
UTHLUTUN LOÐAR
TIL BYGGINGAR
LEIGUÍBÚÐA
Bæjarstjóm Garðabæjar hefur samþykkt að
úthluta fjölbýlishúsalóðinni við Amarás 14-16
með þeirri kvöð að byggðar verði leiguíbúðir.
Við úthlutun lóðarinnar verður sett skilyrði um
að fjölbýlishús er rís á lóðinni verði ávallt í eigu
eins aðila er hefur það að markmiði að byggja,
eiga og hafa umsjón með rekstri leiguhúsnæðis.
Samkvæmt skipulagsskilmálum er heimilt að
byggja á lóðinni tveggja hæða fjölbýlishús með
átta íbúðum og skulu a.m.k. 25% íbúða vera
tveggja herbergja allt að 80 m2 og a.m.k. 50%
íbúða vera 3 herbergja allt að 100m2.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fjárhaglega
stöðu umsækjanda, ársreikning fyrir árið 1999,
yfirlit yfir fyrri framkvæmdir og hugmyndir um
eignarhald, rekstur og umsjón leiguhúsnæðis
skulu sendar bæjairitara skrifstofum Garðabæjar,
Garðatorgi 7, fyrir 23. maí.
Nánari upplýsingar eru veittar á
bæjarskrifstofunum í síma 525 8500.
Bœjarstjóri
FUIM O 1R/ MAIMNFAGIMAÐUR
Flugmenn - flugáhugamenn!
Reykjavík - Akureyrí
Maífundurinn um flugöryggismál verður
haldinn á Hótel Loftleiðum í kvöld,
fimmtudagskvöldið 11. maí, kl. 20:00 og
í Skýli 4 á Akureyrarflugvelli laugardag-
inn 13. maí kl. 14:00.
Dagskiá:
★ Skúli Jón Sigurðarson flytur saman-
tekt um atburði vetrarins.
★ Birgir Ólafsson og Bragi Guðjónsson
flytja erindi um bruna- og björgun-
arþjónustu á flugvöllum.
★ Hjalti Guðmundsson, formaður
Félags íslenskra einkaflugmanna,
kynnir sumarstarf félagsins.
★ Kvikmyndasýning.
Flugmálafélag íslands.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík.
Flugmálastjórn.
Öryggisnefnd RA.
Til hluthafa í Domus Medica hf.
Hluthafafundur
Fundarboð
Þann 18. maí árið 2000 kl. 18 verður haldinn
hluthafafundur í hlutafélaginu Domus Medica
hf. Á dagskrá fundarins er tillaga stjórnar um
aukningu á hlutaféfélagsins úr kr. 75.000.000
í 90.000.000. Tillagan er nánartiltekið svohljóð-
andi:
„Stjórn Domus Medica hf. óskar heimildar
hluthafafundartil þess að auka hlutaféfélags-
ins úr kr. 75.000.000 í kr. 90.000.000. Hlutafjár-
aukningin fari fram samkvæmt nánari ákvörð-
un stjórnar innan tveggja ára frá samþykki
hluthafafundar.
Við aukningu hlutafjár, í samræmi við ofan-
greint, skulu hluthafar eiga forgangsrétt að
fölum nýjum hlutum í sínumflokki, að réttri
tiltölu við hlutafjáreign sína, samkvæmt þeim
reglum sem félagsstjórn ákveður hverju
sinni."
Reykjavík, 10. maí 2000.
Stjóm Domus Medica hf.
AÐALFUNDUR
íslenska járnblendifélagið hf.
Aðalfundur íslenska járnblendifélagsins hf.
verður haldinn í matsal félagsins á Grundar-
tanga fimmtudaginn 25. maí kl. 16:00.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf
skv. 17. gr. samþykkta félagsins.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Grundartanga, 9. maí 2000.
Stjóm íslenska jámblendifélagsins hf.
MÚSNÆÐI í BOOI
íbúð í Reykjavík til leigu
200 fm íbúð í hjarta Reykjavíkur til leigu í
eitt ár eða lengurfrá 1. júní. Fyrirframgreiðsla.
Lysthafendur leggi inn nafn, símanúmer og
nánari upplýsingar á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „íbúð — 9534."