Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 49

Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 49
 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAI 2000 MINNINGAR SIGRIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR i + Sigríður Krist- jánsdóttir fædd- ist á Seljalandi undir Eyjafjöllum 1. maí 1920. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi 12. aprd síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Stóradals- kirkju 22. aprð. Mig langar til að minnast með nokkr- um orðum tengda- móður minnar, Sigríð- ar Kristjánsdóttur, húsfreyju á Ytra-Seljalandi, sem er nýlega látin. Ég man það svo vel þegar við hittumst í fyrsta sinn. Þá var ég nýlega komin inn í líf sonar hennar og var komin austur undir Eyjafjöll til að fara með þeim hjón- um, Siggu og Hálfdani, og flestum barna þeirra á þorrablót í sveitinni. Að sjálfsögðu var ég svolítið kvíðin að hitta þau öll í fyrsta sinn, en sá kvíði reyndist algjör óþarfi. Öll tóku þau mér einstaklega vel, ekki síst Sigga sem upp frá þessari stundu var ekki einungis móðir sambýlismanns míns og síðar tengdamóðir, heldur ekki síður vin- kona. Já, þótt bakgrunnur okkar væri ákaflega ólíkur þá tókst fljótt með okkur einlægur vinskapur og gagnkvæm virðing. Stundum sátum við einar saman og spjölluðum um hvernig líf kvenna var í sveitinni, enda þetta fyrstu kynni mín af lífi í sveit. Ég fylltist aðdáun og virðingu fyrir henni og þeirri kynslóð kvenna sem hún tilheyrði. Slíkan dugnað og slíka fórnfýsi er ekki sjálfsagt að finna nú til dags. Já, margar og góðar eru minn- ingarnar. Vil ég þakka henni fyrir að taka þannig á móti eldri bömum mínum að þau líta á hana sem þriðju ömmu sína. En þegar minnst er á minningar, má ekki gleyma þeim sem mér eru kærastar, en það eru þær sem tengjast Rómarferðinni sem við Ómar fórum í með þeim hjónum haustið 1998. Nutum við öll ferðar- innar til fulls, enda vorum við heppin með veður og borgin eilífa hefur upp á margt að bjóða. Eftir því var tekið hversu glæsileg eldri hjón Hálfdan og Sigga voru. Einn ferðafélagi okkar hélt að Hálfdan væri ítalskur greifi þegar hann sá hann fyrst, svo glæsilegur var hann. Það sama átti við um frúna sem þjónustustúlka á hótelinu kall- aði la donna alta eða háu frúna, enda Sigga há og glæsileg á velli. Þau voru ákaflega ung í anda í þessari ferð, létt og kát og nutu þess að sjá fornar minjar jafnt og að sitja á hlýlegum veitingastöðum og njóta rólegra samverustunda. Yndislegri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér og ekki var hægt að finna fyrir neinu kynslóða- bili. Það verður einkennilegt að koma að bænum og sjá ekki Siggu í dyr- unum með opinn faðminn til að bjóða mann velkominn. Megi hún hvíla í friði. Blessuð sé minning Sigríðar Kristjánsdóttur. Þuríður Þorbj arnar dóttir. Hún amma mín á Seljalandi er dáin. Þótt hún hafi lengi barist við illvígan sjúkdóm finnst mér skrítið að hún sé farin því alltaf vonaðist ég til að hún myndi ná sér á ný. Frá því að sjúkdómurinn tók sig upp aftur fyrir um tveimur árum lét hún aldrei deigan síga. Ég heim- sótti hana og afa nokkrum sinnum í Bólstaðarhlíðina og þar áttu þau saman fallegt heimili sem var þeirra dvalarstaður yfir vetrartí- mann. Þegar ég heimsótti þau síð- ast var amma orðin mjög veik en eins og alltaf spurði hún mig um mína líðan og hvað á daga mína hafði drifið. Hún fylgdist alltaf mjög vel með okkur barnabömunum og þótt oft hafi langur tími liðið milli þess að við hittumst virtist hún alltaf vita nýjustu fréttirnar og mér þótti alltaf svo vænt um það. Hún hvatti mig alltaf áfram, sama hvað ég var að gera og ég veit að var alltaf stolt af mér. Ég á margar ynd- islegar minningar úr sveitinni á Seljalandi. Við systurnar dvöldum mikið á Seljalandi þeg- ar við vorum litlar ásamt hinum frændsystkinum okkar og þar var oft mikið brallað. Ég man sérstak- lega vel eftir búinu þar sem ég lék mér svo oft niðri í sandi. Þar var ég með alls kyns bein og var búin að byggja bæi úr torfi og spýtum og gat leikið mér þar svo tímunum skipti. Heyskapurinn var líka alltaf fjörugur. Þá komu allir í sveitina til að vinna erfitt verk og ég man að stundum var maður niðri á túni frá morgni til kvölds því auðvitað vildi maður hjálpa til. Eftir langan og strangan dag tók amma alltaf vel á móti okkur með brauði og kræsing- um. Kvöldkaffið er mér sérlega eft- irminnilegt en þá sátum við inni í eldhúsi og fengum köku og mjólk og stundum sátum við með ömmu og spiluðum veiðimann. Það var svo gott að getað slappað af eftir erfið- an dag. Þegar ég eltist fækkaði ferðunum í sveitina til ömmu og afa en síðustu ár hef ég komið þangað oftar, því auðvitað kom maður við á Seljalandi á leið sinni austur á ferðalagi. Þá var amma ekki til í að sleppa okkur fyrr en hún var búin að raða í okkur kræsingunum. Það hefur alltaf verið notalegt að koma í sveitina og alltaf stóð amma við eldhúsgluggann þegar maður renndi í hlað. Núna verður tómlegt að koma við á Seljalandi. Elsku amma mín. Nú hefur þú öðlast frið og ég veit að Snati hefur tekið vel á móti þér. Ég veit líka að þú vakir áfram yfir okkur öllum eins og þú hefur alltaf gert. Elsku afi, pabbi, systkini, frændsystkini og börn. Guð veri með ykkur öllum. Mig langar til að kveðja þig, elsku amma mín, með þessu fallega ljóði Ingibjargar Sigurðardóttur: Hver minning dýrmæt perla að liðnum iífsins degi hin ljúfu og góðu kynni að alhug þökkum vér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast þér. Guðríður og Jón Ingi. Elsku amma okkar. Þú tókst svo vel á móti okkur þegar við komum til þín á Selja- land. Þú prjónaðir á okkur lopa- peysur sem voru alveg eins, og við vorum alltaf í þeim þegar við kom- um til þín á Seljaland. Alltaf þegar við komum úr gönguferðum varstu tilbúin með kökur og brauð handa okkur og öllum hinum. Peysurnar prjónaðir þú alltaf uppi í sveit og þegar við komum til þín að máta þær pössuðu þær alltaf. Garðurinn þinn var svo flottur og rifsberja- runnarnir og rabarbararnir sér- staklega. Við fengum oft hjá þér rabarbara og dýfðum þeim ofan í sykur. Við munum alltaf hugsa til þín. Anna Þyrí og Erla María. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. IJað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. STEINUNN GISS URARDÓTTIR ÁSA ÞURÍÐUR GISS URARDÓTTIR + Steinunn Giss- urardóttir fædd- ist á Kröggólfsstöð- um í Olfusi 23. nóvember 1906. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kapellu 25. mars. Jarðsett var í Skarðskirkjugarði í Landsveit. Ása Þuríður Giss- urardóttir fæddist á Gljúfri í Ölfusi 27. apríl 1901. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. aprfl siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Foss- vogskapellu 14. aprfl í kyrrþey. Mig langar að minnast með nokkrum orðum systranna Ásu Þu- ríðar Gissurardóttur og Steinunnar Gissurardóttur sem báðar létust nýlega. Jónína Ásgrímsdóttir og Gissur Sigurðsson, foreldrar Steinunnar og Ásu Þuríðar, bjuggu lengst af í Ölfusinu, síðast í Reykjahjáleigu. Bærinn stóð þar sem Ólfusborgir eru nú. Þau eignuðust sex börn, eitt þeirra, Guðmundur, dó á barnsaldri, en fimm komust til full- orðinsára. Jónína var kát og gam- ansöm svo heimilisbragurinn var léttur. Þau hjónin lögðu mikla alúð við öll sín störf, bústofninn var lítill en þau hlúðu að skepnunum af kostgæfni og bundust þeim jafnvel tilfinningaböndum. Jónína kenndi börnum sínum að gleðjast yfir feg- urð náttúrunnar. Amma mín, Guðríður, var systir Jónínu en þær voru úr tuttugu og tveggja systkina hópi, barna Þuríð- ar og Ásgríms sem síðast bjuggu á Gljúfri í Ölfusi. Amma fór ung í vinnumennsku en átti alltaf athvarf hjá Jónínu og Gissuri. Þangað leit- aði hún þegar hún varð barnshaf- andi og fæddist móðir mín hjá þeim. Réttur einstæðrar móður var lítill fyrir nær 90 árum en Gissur stóð vörð um að ekki væri á henni brotið og studdi hana dyggilega. Jónína var móður minni sem önnur móðir og allar björtustu minningar mömmu frá uppvaxtar- árum hennar eru frá heimili Jónínu og Gissurar og samneyti við börn þeirra. Þau voru henni sem systk- ini og hennar nánustu vinir alla tíð. Jónína og Gissur brugðu búi og fluttust til Reykjavíkur þegar börnin fluttu að heiman. Steinunn og Ása réðust í vist og Steinunn vann um tlma við afgreiðslustörf. Þær voru báðar kátar og gamans- amar svo það var líf og fjör í kring- um þær. Þær voru afburða verk- manneskjur og húsbændur þeirra héldu kunningsskap við þær löngu eftir að þær voru hættar að vinna hjá þeim. Ása giftist Helga Eyleifssyni sjómanni. Þau eignuðust eina dótt- ur, Ásbjörgu. Ása og Helgi bjuggu lengi í litlu húsi á Grettisgötu 32. Húsið var ekki nema um 30 fm að grunnfleti og skiptist í eldhús, stofu og kames inn af stofunni. Úr eldhúsinu var stigi upp í risið, en þar voru tvö herbergi. Húsið stóð við götuna en gengið var inn í það frá fallegri lóð. Ása annaðist garðinn sinn af natni og þar voru blómabeð, stór reynitré og rifsberjarunnar. Minn- isstæðastur er mér ilmurinn af næturfjólunum þegar ég kom að húsinu á haustkvöldum. Þar sem er hjartarými þar er húsrými. Það átti sannarlega við á heimili þeirra Ásu og Helga. Ég held að allir frændur og vinir þeirra utan af landi hafi gengið að því vísu að geta gist hjá Asu í kaupstaðarferðum. Auk þeirra og Ásbjargar bjuggu Jónina og Gissur, foreldrar Asu, þar í mörg ár. Guðrún systir Ásu flutti til hennar og dvaldi þar um tíma þegar maður hennar veiktist og þau urðu að bregða búi. Sigur- björg systir Ásu kom til hennar þegar hún veiktist af sínu bana- meini og lá banaleguna í kamesinu og Ása annaðist hana. Ég var heimagangur hjá Ásu og Helga öll mín uppvaxtarár. Við Ás- björg vorum nær jafnaldra og lék- um okkur mikið saman. Ég minnist Þingvallaferða með Ásu, Helga og Ásbjörgu ásamt Þorgeiri bróður Ásu og Vilborgu konu hans. Við fórum í bodybíl og á leiðinni sungu systkinin gamlar gamanvís- ur. Svo var tjaldað í Vatnsvík, Helgi og Þorgeir veiddu í vatninu en við röltum um staðinn og lékum okkur. Við keyptum mjólk í Vatns- koti og Ása og Villa elduðu á prím- us. _ Ég dvaldi oft sem unglingur um lengri og skemmri tíma hjá Ásu. Heimili Ásu var alltaf gullhreint og mér eru sérstaklega minnisstæðir hvítskúraðir þröskuldar sem aldrei mátti sjást á. í minningunni var Ása alltaf heima, en frændur og vinir litu inn og fengu kaffisopa. Ása átti alltaf heimabakað með kaffinu og við krakkarnir fengum kakó og kleinur eða pönnukökur. Ása var kankvís og skemmtileg, af- ar fróð um menn og málefni og kunni ógrynni af kvæðum og vís- um. Þegar Ásbjörg giftist byrjaði hún að búa heima hjá foreldrum sínum og átti sitt fyrsta barn í litla húsinu við Grettisgötu. Það var ekki fyrr en von var á öðru barna- barni að þau stækkuðu við sig hús- næði og keyptu íbúð við Snorra- braut þar sem þau Ása og Helgi bjuggu þar til heilsan gaf sig. Þá fluttu þau á dvalarheimili aldraðra sjómanna á Hrafnistu í Reykjavík. Þar studdu þau hvort annað og var umhyggja þeirra hvors fyrir öðru aðdáunarverð. Það var yndislegt að heimsækja þau þar og finna hvern- ig þau umvöfðu mann góðvild og hlýju. Síðast þegar ég kom til Ásu sagði hún mér fréttir af öllum sín- um afkomendum og gladdist yfir því sem vel gekk. Þótt líkamleg heilsa væri léleg var hugsunin al- veg skýr. Ása átti bara eina dóttur en afkomendurnir voru orðnir ell- efu og hún átti næga ást fyrir þau öll. Gæfa þeirra og gleði var henn- ar gleði. Steinunn giftist Guðmundi Jóns- syni frá Hvammi í Landsveit og hófu þau búskap þar. Þau eignuð- ust tvo syni, Jón og Þóri. Hvamm- ur stendur á mjög fögrum stað undir Skarðsfjalli. Þar bjuggu þá a.m.k. fjórar fjölskyldur. I fram- bænum bjuggu feðgarnir Eyjólfur og Ágúst og í norðurbænum bræð- umir Guðmundur og Ásgeir, en Ásgeir var giftur Sigurbjörgu syst- ur Steinunnar. Þá bjó Guðrún syst- ir þeirra á Minnivöllum í sömu sveit. Systrunum var mikils virði að ' búa svona nálægt hver annarri, enda voru þær mjög samrýndar. Ég var í sumardvöl hjá Steinku og Mumma þegar ég var sjö ára og naut þar öryggis og hlýju. Það er ævintýraljómi yfir minningunum frá Hvammi. Hænsnakofarnir voru rétt ofan við bæinn, maður vaknaði við hana- gal og skrautlegar hænurnar gengu um í túninu. Ég minnist þess að þegar Steinka skokkaði léttstíg upp að hænsnakofa að gefa pútunum eltu þær hana og ung- arnir ráku lestina. í fjósinu var Steinka í essinu sínu, hún klappaði og strauk kúnum og talaði við þær áður en hún fór að mjólka þæi^ Steinunn og Guðmundur voru bændur af lífi og sál, en þegar syn- irnir voru fluttir til Reykjavíkur var þeim meira virð; að vera ná- lægt þeim og þau brugðu því búi. Þegar Steinunn og Guðmundur höfðu keypt sér hús og komið sér fyrir tóku þau Jónínu og Gissur, foreldra Steinunnar, til sín. Hún annaðist þau þar til þau létust í hárri elli og hjúkraði þeim í bana- legu þeirra. Steinunn var mjög fé- lagslynd og skemmtileg, hún þatt í felagsstarfi aldraðra og rækti vel vináttu við frændfólk sitt og gamla vini. Það var mjög gott að koma til hennar, ekki síst með börn, því hún var barngóð og gaf sér tíma til að ræða við þau ekki síður en þá fullorðnu. Þess nutu dætur mínar og barnaböm, sem eiga skemmtilegar minningar frá samneyti við Steinku. Ekki var síðra að fá Steinku frænku í heim- sókn. Hún var létt á fæti, hafði óvenju fallegar hreyfingar, bar sig vel og hafði mikla útgeislun. Stein- unn reyndist fjölskyldu minni afar vel. Hún gladdist með okkur á gleðistundum og þegar sorgin barði að dyrum var hún alltaf til staðar þar sem hún gat orðið á&~ liði. Steinka var svo heppin að halda góðri heilsu fram yfir nírætt og gat því fylgst með barnabörnum sínum og barnabarnabömum og veitti það henni mikla gleði. Ég er þakklát fyrir að hafa átt samleið með þeim systmm Stein- unni og Ásu Þuríði og þakka þeim af einlægni fyrir samveruna. Helga Karlsdóttir. SÖLSTEINAR við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 UTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjórij sími 896 8242 Sverrir Olsen útfamrstjóri. <s Baldur Frederikseti útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.