Morgunblaðið - 11.05.2000, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
(JMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
\9r
Þnöjudagar og
eru
McHam
AÐEINS
Tilboðiö gildir aðeins á
þriðjudögum og fimmtudögum!
i®®8 - '
Suðurlandsbraut 56 • Austurstræti 20 • Kringlan
Háskólanám á
Austurlandi og
Vestfjörðum
MIKILVÆGT ski-ef
til að tryggja áfram-
haldandi þróun byggð-
ar um allt land er að sjá
til þess að íbúar á
landsbyggðinni eigi
greiðan aðgang að
menntun á öllum skóla-
stigum. Með örri
tækniþróun undanfar-
inna ára hafa hug-
myndir um að stofna
námsbrautir í ýmsum
byggðarlögum, undir
stjórn skólastofnana,
sem vel geta verið stað-
settar annars staðar,
fengið byr undir báða
vængi hér á landi eins og víðar í
heiminum. Erlendis verður t.d. sí-
fellt algengara að háskólar stofni
kennslustöðvar eða útibú langt frá
sínum aðalbækistöðvum og má taka
uppbyggingu háskólamenntunar í
hálöndum og eyjum Skotlands sem
dæmi. Hagnýting nútímaupplýs-
ingatækni við fjarkennslu og gagna-
flutninga gefur einnig aukin sóknar-
færi á þessu sviði.
Snemma á þessu ári kynnti Há-
skólinn á Akureyri hugmyndir um
Byggóaþróun
Góðir skólar og fjöl-
breytt framboð á
frasðslu, segir Þuríður
Backman, skiptir afar
miklu fyrir farsæla
byggðaþróun.
þróun háskólanáms á Austurlandi og
Vestfjörðum undir stjóm skólans, en
hann hefur hug á að vinna að því að
koma á fót kennslustöðvum á Egils-
stöðum og ísafirði. Verði hugmyndir
um aukin verkefni að veruleika gefst
um leið mikilvægt tækifæri til að
styrkja tengsl skólans við lands-
byggðina og auka möguleika á fjöl-
breyttari starfsemi, m.a. rannsókna-
starfsemi.
Háskólanám á Austurlandi
Austfírðingar hafa fagnað hug-
myndum HA um háskólanám á Aust-
urlandi, enda hafa þeir markvisst
unnið að því mörg undanfarin ár að
komið verði á fót háskólanámi í fjórð-
ungnum. Leggja þarf áherslu á að
skipulagning og uppbygging náms-
ins fari fram í nánum tengslum við
heimamenn. Á Austurlandi gefst nú
kostur á háskólanámi og endur-
menntun í formi fjarkennslu á veg-
um Fræðslunets Austurlands. Sú
starfsemi er gott skref og tengist
sérstaklega framhaldsskólum í fjórð-
ungnum. En þar má ekki láta staðar
numið. Öllum ber saman um hvílík
lyftistöng fræðamiðstöðvar og skóla-
setur eru fyrir viðkomandi lands-
hluta og um leið fyrir landið allt.
Vestfirðingar og
fjarnám á háskólastigi
í meira en áratug hefur háskóla-
nám verið stundað á Vestfjörðum
með fjarkennslusniði, einkum á veg-
Qáfroaf
úísJtrifiargjafa
um Kennaraháskóla ís-
lands, Fósturskóla ís-
lands og nú einnig frá
HA. Nú er Fræðslu-
miðstöð Vestfjarða ætl-
að að vera vettvangur
fyrir nám á háskóla-
stigi í fjórðungnum og
standa fyrir námi sem
ekki heyrir undir nám-
skrá á grunn- og fram-
haldsskólastigi. Heima-
menn á Vestfjörðum
hafa sýnt þeim hug-
myndum sem hór eru
til umræðu mikinn
áhuga og eru sammála
um mikilvægi þess að
fundnar verði leiðir til að bjóða upp á
háskólanám á kjördæminu, enda er
slíkt talið ein helsta leiðin til að efla
og styrkja byggð á svæðinu.
Samvinna við aðrar
háskólastofnanir
í þingsályktunartillögunni sem
áður var nefnd er gert ráð fyrir að
háskólanámsbrautir á Austurlandi
og Vestfjörðum heyri undir Háskól-
ann á Akureyri. Engu síður er nauð-
synlegt að gera ráð fyrir sem bestum
tengslum þessara háskólanáms-
brauta við aðrar háskólastofnanir,
svo sem Háskóla Islands, Kennara-
háskóla íslands, Samvinnuháskól-
ann á Bifröst og háskóladeildir
menntastofnana landbúnaðarins á
Hvanneyri og Hólum í Hjaltadal, svo
og Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykj-
um í Ölfusi. Jafnframt er sjálfsagt að
gera ráð fyrir fullkomnustu aðstöðu
til fjarkennslu með nettengslum við
aðrar háskólastofnanir í landinu og
góðri aðstöðu til rannsóknastarf-
semi. Þá má einnig gera ráð fyrir að
þáttur í starfi háskóladeilda af því
tagi sem hér er fjallað um yrði stuðn-
ingur við þá sem kunna að stunda
fjarnám við aðrar háskólastofnanir
og þannig auka tækifæri skóla til
samvinnu og samræmingar í stárfi.
Mjög hefur verið litið til þess að
fjamám af ýmsu tagi auðveldi að-
gang fólks úti á landi að ýmiss konar
menntun. Það er vissulega rétt, en
þó er ekki öll sagan sögð. Fjamám
reynist nemendum sem það stunda
oft afar erfitt og kemur þar einkum
tvennt til, annars vegar sú staðreynd
að nemandi og kennari em ekki í
sams konar persónulegu sambandi
og við hefðbundið nám og hins vegar
hin mikla einsemd fjarnemans sem
situr einn við tölvu sína en fær ekki
þann stuðning og félagsskap sam-
nemenda sem hefðbundið skólasam-
félagbýðurupp á.
Mikilvæg pólitísk
stefnumörkun
Fátt er mikilvægara nú um stund-
ir en framboð á menntun á öllum
skólastigum. Góðir menntunar-
möguleikar varða bæði æskufólk og
þá sem eldri era og þörf hafa fyrir
endurmenntun og símenntun. Góðir
skólar og fjölbreytt framboð á
fræðslu skiptir afar miklu fyiir far-
sæla byggðaþróun. Það á einnig við
um samstarf skóla, atvinnu- og
menningarlíf á viðkomandi svæðum.
Þingsályktunartillagan sem nefnd
var í upphafi fékk ekki afgreiðslu á
þessu þingi. Hún vérður endurflutt
strax og þing kemur saman að nýju í
þeirri vissu að ákvörðun um að koma
á fót háskólanámi á Austurlandi og
Vestfjörðum hafi mikið gildi fyrir
þessi landsvæði og um leið fyrir há-
skólamenntun í landinu. Hér væri
stigið fyrsta skrefið í uppbyggingu
öflugra sjálfstæðra háskólastofnana
á þessum landsvæðum. Þróun á sviði
menntamála er ör og gildi fram-
haldsmenntunar eykst ár frá ári.
Landsfjórðungar eins og Vestfirðir
og Austurland mega ekki verða þar
afskiptir.
Þuríður Backman
Höfundur er alþingismaður.