Morgunblaðið - 11.05.2000, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
M-
BIÍAUPPHÆKKANIR!
Upphækkanir fyrir
flestar gerðir bifreiða
Málmsteypan kaplahrauni 5
UPT T Á Vfcf 220 HAFNARFJÖRÐUR
IlLLL/1 IJLi. SÍMI 565 1022 FAX565 1587
(pmbl.is
UMRÆÐAN
Villa í Vín-
landsgátu
PÁLL Bergþórsson
veðurfræðingur ritar
grein í Mbl. þ. 27. 4.
eftir heimsókn á
landafundasýningu í
Þjóðmenningarhús-
inu. í greininni gagn-
rýnir Páll Gísla Sig-
urðsson höfund sýn-
ingarinnar fyrir breyt-
ingar sem Gísli gerir
út frá hugmyndum
Páls á Vínlandsferðum
forfeðra okkar forðum
og Páll setur fram í
bók sinni, „Vínlands-
gátan“.
Páll Bergþórsson er
ekki hafinn yfir gagn-
rýni frekar en aðrir. I annars góðri
bók fer Páll út á hálan ís þegar
hann fjallar um siglingafræði for-
feðra okkar, Bjarna Herjólfssonar
og Leifs Eiríkssonar oft í nefndum
Vínlandsleiðöngrum. Það sem mér
finnst verst við bók Páls er að hann
breytir forsendum sögunnar og sér-
staklega siglingasögunnar í fyrsta
áfanga ferðar til Vínlands, Græn-
land-Helluland og er reyndar á
villigötum almennt í siglingu til
Vínlands og á milli íslands og Nor-
egs. Ástæðan fyrir villu Páls er
skilningur hans á orðinu dægur.
I sögunni stendur að það sé
þriggja dægra sigling frá Græn-
landi til Hellusunds í vestri. í bók
sinni breytir Páll gangi sögunnar
og segir vera 5 dægra siglingu frá
Grænlandi til Hellulands og á Páll
Bergþórsson eftir að verða frægur
mjög fyrir villu sína eins og allir
þeir sem töldu jörðina vera flata
forðum. Dægur Páls Bergþórsson-
ar er 12 tímar og á þeirri forsendu
lætur Páll Leif Eiríksson sigla frá
Grænlandi á víkingaskipi og ætlar
Páll ganghraða skipsins vera 6,5
sjómílur. Eftir fyrsta dægur hefur
skipið siglt 78 sjómílur. Eftir annað
dægur hefur skipið
siglt 156 sjómílur. Eft-
ir þriðja dægur hefur
skipið siglt 234 sjómíl-
ur. Hér er Páll Berg-
þórsson kominn á
heimsenda með Leif
Eiríksson í rökfræði
sinni því nú er skip
Leifs statt mitt á milli
Grænlands og Hellu-
lands. En Páll er ekki
af baki dottinn því
hann einfaldlega bætir
við 2 dægrum eða 156
sjómílum svo Leifur
nái landi. Þessi sama
12 tíma rökvilla eltir
Pál áfram til Mark-
lands og Vínlands og gerir bók hans
um siglingar forfeðranna ótrúverð-
Siglingar
Það er stór munur á því,
segir Guðbrandur
Jonsson, hvort skip
siglir eitt dægur á 12
tímum eða eitt dægur á
24 tímum.
uga, nánast hlægilega. 12 tímar í
siglingafræði eru 180 gráður. Þeir
sem nota 12 tíma rökfræði í sigl-
ingafræði gera jörðina flata. Þeir
sem nota 24 tíma í siglingafræði
gera jörðina að hnetti eða 360 gráð-
ur. Þetta þýðir að dægur til foma er
eins og dægur í dag eða einn sólar-
hringur. Þessu fær Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur ekki breytt.
Enn er Páll Bergþórsson kominn
á villigötur í skoðunum sínum á orð-
inu dægri í blaðagrein sinni frá 27.
apríl 2000, þegar hann segir eftir-
Björn Guðbrandur
Jónsson
farandi: „Ég tel mig geta greint
mikilvægar reglur sem gætnir sæ-
farar sögualdar höfðu lært af mis-
lyndri náttúrunni. Þær voru þessar
helst: 1. Það voru sjö dægurleiðir á
skipum sögualdarmanna á milli ís-
lands og Noregs. Það sannar að
menn sigldu 75-80 sjómílur á dægri
í miðlungs skilyrðum.“ Hér er skoð-
anavilla Páls Bergþórssonar augum
ljós í siglingu skips frá Noregi til
Islands á 7 dægrum því 7 dægur
sinnum 80 sjómílur eru 560 sjómíl-
ur. Hér endar veröld Páls Berg-
þórssonar úti á miðju Atlantshafi
því vegalengdin Noregur - Island
er um það bil 1150 sjómílur. Þetta
afsannar allar kenningar Páls veð-
urfræðings um að í dægri séu 12
tímar.
Undir lið 2 heldur Páll áfram
gagnrýni sinni í nafni orðsins dæg-
ur og fær nú liðsmann Gísla Sig-
urðsson en báðir tveir eru í þeirri
villu að dægur sé 12 tímar og reyna
á þann hátt að staðsetja forfeður
okkar á hinum ýmsu stöðum í vest-
urheimi. Þegar Páll réttilega vill
láta Bjarna Herjólfsson sigla 5
dægur í norður bætir hinn um bet-
ur yfir í 12 dægur. Það er stór mun-
ur á hvort skip siglir eitt dægur á 12
tímum eða eitt dægur á 24 tímum.
En báðir líta framhjá straumi úr
norðri og vindi úr norðri. Skip sem
siglir 5 mílur á 12 tímum fer 60 sjó-
mílur. Skip sem siglir 5 mílur á 24
tímum (eitt dægur) fer 120 sjómílur
eða 600 sjómílur á 5 dægrum. 12
dægur á siglingu norður í tilfelli
Gísla Sigurðssonar eru 1440 sjómíl-
ur og það er víðtæk villa. Til fróð-
leiks fyrir þá Pál og Gísla hef ég
dregið upp siglingaáætlun fyrir
Bjarna Herjólfsson og raunir hans
á viðurkennt siglingakort og sam-
kvæmt því kemur Bjarni Herjólfs-
son að landi í kringum 60 gráður
vestur og 55 gráður norður og er
það á miðju Labrador. Hér verður
Páll Bergþórsson nær sannleikan-
um en Gísli Sigurðsson, báðir ættu
þó að fara saman á námskeið í sigl-
ingafræði til að nálgast viðfangsefni
sín af einhverju viti um siglingar
forfeðra okkar á seglskipum á sögu-
öld.
Höfundur er flugstjóri og skipstjóri.
Umslög, frímerki og
Samfylking
i.
ÞEGAR Bandalag
jafnaðarmanna var
stofnað árið 1983 reit
ég stutta grein í Mbl.,
sem hófst þannig:
„Nýtt þjófafélag hefur
verið stofnað, „Banda-
lag jafnaðarmanna".
Sérhæfir það sig í
umslaga- og frímerkja-
þjófnaði á Alþingi.“
Þetta var þáttur í her-
ferð minni gegn mis-
notkun stjómmála-
manna á almannafé,
t.d. ókeypis flutningi á
símum á kjördögum, ókeypis kjör-
skrám frá Hagstofu íslands o.s.frv.
n.
Allir vita, hver urðu örlög Banda-
lags jafnaðarmanna. Fullyrða má, að
misnotkun þeirra á gögnum Alþingis
hafi átt stóran þátt í falli
þeirra árið 1987, því þeir
endurgreiddu hvorki
umslögin né frímerkin,
sem vora 5000 að tölu.
ra.
Nú skora ég á Össur
Skarphéðinsson, for-
mann Samfylkingar-
innar, að endurgreiða
bæði umslögin og frí-
merkin á þessum 16-
18.000 sendingum, sem
upplýst er að hafi verið
sendar á vegum Sam-
fylkingarinnar frá Al-
þingi í vetur sem leið.
Annars gæti farið fyrir samtökunum
eins og Bandalagi jafnaðarmanna, að
þurrkast út. Andvana fæðing.
IV.
Nauðsynlegt er að til sé hér á
landi öflugur vinstriflokkur til mót-
Misnotkun
Alþingismenn, haldið
vöku ykkar, segir
Leifur Sveinsson.
Almenningur fylgist
með ykkur.
vægis við hægriöflin, en það er ekki
rétt byrjun að skjóta sig í fótinn í
upphafi leiks.
V.
Hollast væri einnig fyrir Guð-
mund Hallvarðsson þingmann að
endurgreiða fyrir þau 2505 bréf, sem
hann sendi á kostnað Alþingis fyrir
kosningamar í fyrra. Hreinn skjöld-
ur er farsælastur í stjómmálum.
VI.
Leifur Sveinsson
Hippatískan í algleymingi hjá okkur'
Gallaefni, skrautbönd ogperlubönd
VIRKA
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18,
Mörkin 3, sími 568 7477. lokað á lau. frá 1. júní.
Valgerður Sverrisdóttir ráðherra
frá Lómatjöm gaf ágætt fordæmi,
þegar hún endurgreiddi kostnað við
aftnælishóf sitt á Grenivík f sam-
bandi við för starfsfólks hennar
þangað.
VII.
Alþingismenn, haldið vöku ykkar.
Almenningur fylgist með ykkur.
Fasteignir á Netinu
Höfundur er lögfræðingur f
Reykjavík.