Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 68

Morgunblaðið - 11.05.2000, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ ,68 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 FRÉTTIR ÍDAG Fréttamanna- styrkir Norður- landaráðs NORÐURLANDARÁÐ veitir í ár nokkra ferðamannastyrki til um- sóknar fyrir fréttamenn á Norður- löndunum. Styrkjunum er ætlað að efla áhuga fréttamanna á norrænni samvinnu og auka möguleika þeirra á að skrifa um málefni annarra • ' Norðurlanda, s.s. með því að gera þeim kleift að fjármagna ferðalög tengd greinaskrifum. Styrkur er veittur í hverju Norð- urlandanna og er fjárhæðin 90.000 danskar krónur fyrir Island í ár. Styrkurinn er veittur einum eða fleiri fréttamönnum dagblaðs, tíma- rits, útvarps eða sjónvarps. Sjálf- stætt starfandi fréttamönnum er einnig heimilt að sækja um styrk- inn. Við styrkveitinguna er tekið til- lit til þess hvort umsækjandi hafi sannanlega áhuga á norrænni sam- vinnu og Norðurlöndum og er styrkjum úthlutað að grundvelli um- sókna. Styrkþegum er ekki heimilt að sækja um styrk næstu þrjú árin. Umsóknarfrestur er til 12. maí nk. Umsóknareyðublöð fást hjá Is- landsdeild Norðurlandaráðs. Afmælisfagnaður og sýning á verkum leik- skólabarna í Gjábakka - N-SJÖ ár eru liðin, fimmtudaginn 11. maí, síðan Gjábakki, sem er félags- heimili eldra fólks í Kópavogi var opnaður. Á þessum sjö árum hefur margt breyst, t.d. eru félagsheim- ilin Gjábakki og Gullsmári sem ætluð eru eldra fólki nú opin fólki á öllum aldri. Um dagskrá afmælisdagsins, sem hefst kl. 14, sér fólk á öllum aldri. Það er Bókmenntaklúbbur Hana-nú sem byrjar á ljóðadag- skrá. Lesin verða ljóð eftir Kópa- vogsskáldið Böðvar Guðlaugsson, nemendur úr leikskólanum Mar- bakka syngja nokkur lög og opnuð verður sýning á vinnu þeirra á liðnum vetri. Eftir kaffihlé kemur kór Snælandsskóla í heimsókn og syngur nokkur lög undir stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur. Sýning á verkum leikskólabarnanna verð- ur opin til 25. mars frá kl. 10-12 og kl. 14-16 alla virka daga. Afmælisfagnaðurinn er opinn öllum án endurgjalds. -engu líkt- LAUGAVEGI 32 • SÍMI 552 3636 VELVAKAIVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Leitið og þér munuð fínna FÁEIN orð til íhugunar um hvatningu biskups Is- lands, herra Karls Sigur- bjömssonar, um að leysa þrælaböm úr ánauð í Ind- landi. Hve mörg böm fæðast á hverjum degi á Indlandi? Hvað bíður þeirra? Hvern- ig væri að íhuga orsakir vandans og snúast gegn sökudólgum? Er byrjað á réttum enda? Mannfjöldi á Indlandi er talinn vera 900 milljónir. Indverjar búa í auðugu landi og hafa því öll efni til þess að skapa gott þjóðfé- lag. Indverjar hafa kosið sér lífsháttu sem fela í sér mannfyrirlitningu og mannhatur. Er hægt að finna ieið til þess að hafa áhrif á lífsháttu Indverja? „Leitið og þér munuð finna“. Oft á hverju ári er knúið dyra hjá almenningi á Is- landi með hjálparbeiðnir. Hjálpfúsir Islendingar verða við þeim beiðnum hverju sinni, eftir efnum og aðstæðum. Ástæðulaust er að fara fram með miklum áróðri og kostnarsömum auglýsingum. Rannveig Þorvaldsdóttir. Fyrirspurn til Samfylkingar ÉG var að horfa á Skjá einn sunnudaginn 7. maí sl. þar sem rætt var við Pétur Blöndal og Össur Skarp- héðinsson, nýkjörinn for- mann Samfýlkingarinnar. Komu þar fram ólík pólitísk sjónarmið en þegar Pétur Blöndal talaði um að ör- yrkjar hefðu það gott hér fannst mér lítil viðbrögð koma frá Össuri. Kona sem hafði samband við mig sagðist hafa rætt þetta við mann sem er í Samfylking- unni og hann sagði stefnu þeirra skýra í þessum mál- um, þeir hefðu talað mikið um þetta fyrir síðustu kosningar. En það er bara ekki nóg. Fóik vill heyra meira um þessi mál. Menntunarmál setti Sam- fylkingin meðal annars á oddinn, en hvað hvað um menntunarmál öryrkja og annars fátæks fólks, sem ýtt hefur verið út í horn í samfélaginu? Það væri hægt að hjálpa mörgum með betri endurþjálfun en nú er og menntun til að komast út á vinnumarkað- inn aftur. Margt fólk sem skrimtir hér við hungur- mörk getur ekki án aðstoð- ar veitt sér menntun eins og núverandi ástand er. Eins og ástandið er núna koðna margir niður og með því er verið að búa til enn meiri sjúklinga. Einnig langar mig að vita hver stefna Samfylkingarinnar er í sambandi við húsnæðis- mál, það virðist verða mikið útundan í umræðunni bæði hjá þeim og öðrum flokkum líka. Það er full ástæða til að ræða þau mál nánar, þar sem neyðarástand ríkir á húsnæðismarkaðnum. Ég vil að lokum óska Samfylk- ingunni og formanni henn- ar, Össuri Skarphéðins- syni, alls góðs í framtíðinni og ég vona að ég fái svör við spurningum mínum. Sigrún. Góð þjónusta hjá Valmiki MIG langar að koma á framfæri þökkum til Val- miki, skóverslunar í Kringlunni, fyrir frábæra þjónustu. Þjónustan þar er til fyrirmyndar í alla staði og mun betri en ég hef áður átt að venjast. Ánægður viðskiptavinur. Tapað/fundið Lyklar töpuðust LYKLAR töpuðust í mið- bæ Reykjavíkur 1. maí sl. Það eru sex lyklar á kipp- unni og kippan er með Reykj avíkurmaraþon- merkinu. Upplýsingar í síma 866-5463. Glænýr fótbolti fannst DRENGURINN, sem tap- aði fótbolta mánudaginn 8. maí sl. í Seljahverfi, er beð- inn að hringja í síma 587- 4746. Dýrahald Abyssiniu-kettlingar fást gefíns ABYSSINIU-kettlingar, blendingar fást gefins. Upplýsingar í síma 867- 3297. Tilboð á Laugaveginum. Víkverji skrifar... IVETUR tilkyTintu borgaryfirvöld íbúum í Breiðholti og Árbæ að þeir hefðu verið valdir til að taka þátt í tilraun sem gengur út á „að minnka sorpmagn og auka hlut endurnýting- ar og endurvinnslu“. Víkverji, sem er mikill áhugamaður um umhverfis- mál, varð að vonum glaður að fá tækifæri til að taka þátt í svo merkri tilraun. í Breiðholtshverfi er skráð hve oft tunnumar eru losaðar, en í því skyni hefur strikamerki og tölvu- kubbi verið komið fyrir á tunnunum. Sorphreinsunarmenn fara vikulega um hverfið og er til þess ætlast að íbúarnir láti vita hvenær þejr vilja að tunnurnar séu losaðar. I Árbæ eru tunnurnar hins vegar losaðar á u.þ.b. tíu daga fresti í stað vikulega. „Sorp- hirða verður skipulögð til langs tíma og munu íbúar fyrst um sinn fá í hendur yfirlit um losunardaga á fyrri hluta ársins," segir í bréfi borgaryf- irvalda, en jafnframt er tekið fram að gjald fyrir sorphirðu verði óbreytt þrátt fyrir minni þjónustu. Víkverji, sem býr í Árbæjarhverfi, hefur af einhveijum sökum aldrei fengið þetta yfirlit um losunardaga. Hann hefur hins vegar orðið ræki- lega var við að lengri tími líður á milli heimsókna sorphreinsunarmanna. XXX NÚ eru rúm þijú ár síðan Vík- verji tók upp nýja umhverfis- stefnu. Öll blöð eru lögð til hliðar og hent í blaðagáma. Sama á við um mjólkurfemur. Gosflöskur og gler- flöskur fara einnig í endurvinnslu. Jafnframt er þess vandlega gætt að rafhlöðum sé skilað á réttan stað. Þrátt fyrir þetta hefur Víkveiji ítrekað lent í því að sorptunnan hef- ur fyllst og ruslapokar hafa þess vegna safnast fyrir í þvottahúsinu. Ástæðan er einfaldlega sú að ein tunna dugar ekki undir tíu daga sorp. Víkverji heíúr að sjálfsögðu velt fyrir sér hvort hann geti með ein- hverjum hætti dregið enn frekar úr því sorpi sem heimilið lætur frá sér. Hann hefur t.d. velt fyrir sér að fjár- festa í söfnunarkassa undir matar- úrgang, en Víkveija sýnist að mat- arafgangar séu mjög lítill hluti af sorpinu enda var lögð áhersla á það við hann í barnæsku að klára alltaf matinn sinn. Þessa reglu hefur hann og böm hans ávallt haft í heiðri. Vík- verja sýnist að umbúðir af ýmsu tagi séu stærsti hluti sorpsins og við það er erfitt að ráða. Einnig taka bleiur af yngsta meðlimi fjölskyldunnar dijúgt pláss. Til að leysa umhverfisvanda heim- ilisins meðan þessi tilraun stendur yfir koma fjórar leiðir til greina. í fyrsta lagi að hoppa ofan í tunnuna og troða betur í hana (sonur Víkverja hefur t.d. boðist til að gera þetta). Þessi tiilaga hefur hins vegar um- hverfislega ókosti. í öðm lagi kemur til greina að efna vikulega til brennu á lóð Víkverja til að losna við það sorp sem ekki kemst í tunnuna. Þessi lausn hefur einnig vissa umhverfis- lega ókosti. í þriðja lagi kæmi til greina að aka með sorpið á gáma- stöðvar áður en það fer að koma mjög vond lykt í þvottahúsið. Þetta þýðir að sjálfsögðu að farin er auka- ferð á bílnum með tilheyrandi bens- íneyðslu sem aftur stuðlar að meng- un. í fjórða lagi kæmi til greina að fylgjast vel með því þegar sorp- hreinsunarmennirnir koma til að tæma tunnumar og hlaupa svo með sorpið sem ekki komst í tunnuna og biðja þá vinsamlega að taka það með. Þetta er sú lausn sem orðið hefur of- an á. Nú rfldr spenna á heimili Vík- veija. Heimilismenn ganga núna vaktir til að fylgjast með ferðum sorphreinsunarmanna um hverfið. Þegar þeir birtast kallar vaktmaður- inn: „Þeir era komnir; þeir era komnir." Síðan hlaupa allir út með sorppokana og biðja sorphreinsun- armennina blessaða að taka þá með sér. Undantekningalaust taka þeir vel í beiðnina og fjölskyldan heldur glöð og ánægð inn í þvottahús sem brátt lyktar aftur eins og það gerði áður. Það er því ekki hægt að segja ann- að en þessi tilraun Reykjavíkurborg- ar hafi vakið umræður um sorp og umhverfismál á heimili Víkverja. Það væri hins vegar gott ef borgar- yfirvöld gætu efnt loforð sitt um að senda „yfirlit yfir losunardaga". Ástæðan er sú að vissrar þreytu er farið að gæta hjá sumum heimilis- mönnum sem era á vaktinni að fylgj- ast með ruslabílnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.