Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 69
Stefán Kristjánsson
meistari Skákskólans
Stefán Kristjánsson og Guðmundur Kjartans-
son. Sigur Stefáns f skákinni tryggði honum
meistaratitil Skákskðlans.
SKAK
Reykjavík
MEISTARAMÓT
SKÁKSKÓLA ÍSLANDS
26.-28. maí 2000
STEFÁN Kristjánsson, sautján
ára Reykvíkingur, sigraði á níunda
Meistaramóti Skákskóla íslands,
sem fram fór 26.-28. maí. Fyrir
skákáhugamenn er þetta eitt af
skemmtilegustu skákmótum sem
haldin eru og gaman er að fylgjast
með okkar yngstu og efnilegustu
skákmönnum berjast um meistara-
titilinn.
Stefán er vel að sigrinum kom-
inn, en hann hefur verið í hópi
okkar efnilegustu skákmanna und-
anfarin ár. Sigur hans var nokkuð
öruggur, en hann hlaut 6'Æ vinning
í 7 skákum. Eina jafnteflið var
gegn Davíð Kjartanssyni í fímmtu
umferð, en þeir sömdu um jafntefli
eftir einungis fjóra leiki.
Annar af okkar ötulustu og efni-
legustu skákmönnum, Guðjón
Heiðar Valgarðsson, veitti Stefáni
harða keppni og lenti í öðru sæti
með 6 vinninga. Guðjón er einung-
is fimmtán ára og hefur nánast frá
upphafi skákferils síns vakið at-
hygli fyrir góða frammistöðu mið-
að við aldur og bætir stöðugt við
styrkleikann.
Röð efstu manna á mótinu varð
annars þessi:
1. Stefán Kristjánsson 6'/2 v. 2.
Guðjón Heiðar Valgarðsson 6 v. 3.
Sigurður Páll Steindórsson 5 v.
4.-6. Dagur Arngrímsson, Hjörtur
Þór Daðason og Guðni Stefán Pét-
ursson 4'/2 v. 7.-11. Guðmundur
Kjartansson, Davíð Kjartansson,
Páll Óskar Kristjánsson, Aldís
Rún Lárusdóttir og Ólafur Evert
Úlfsson 4 v. 12.-16. Harpa Ingólfs-
dóttir, Birkir Örn Hreinsson, Víðir
Petersen, Víkingur Fjalar Eiríks-
son, Atli Freyr Kristjánsson 3‘/2 v.
o.s.frv.
Verðlaun fyrir bestan árangur
stúlkna hlutu Aldís Rún Lárus-
dóttir og Harpa Ingólfsdóttir. Fyr-
ir bestan árangur 10 ára og yngri
fengu Ólafur Evert Úlfsson og Atli
Freyr Kristjánsson fyrstu og önn-
ur verðlaun.
Skákstjórar á mótinu voru stór-
meistararnir Helgi Ólafsson og
Þröstur Þórhallsson.
Kasparov sigrar í Sarajevo
Gary Kasparov staðfesti enn á
ný að hann er sterkasti skákmaður
heims þegar hann sigraði á Bosna-
skákmótinu í Sarajevo. Að þessu
sinni virtist Alexei
Shirov þó ætla að
stela sigrinum, en tap
hans í næstsíðustu
umferð kom í veg fyr-
ir það. Lokastaðan á
mótinu varð þessi:
1. Gary Kasparov
8/2 v. 2.-3. Michael
Adams, Alexei Shirov
8 v. 4.-6. Alexander
Morozevich, Veselin
Topalov, Evgeny
Bareev 6 v. 7. Ivan
Sokolov 4'/ v. 8.-11.
Sergei Movsesian,
Nigel D. Short, Kirií
Georgiev, Mikhail
Gurevich 4 v. 12. Et-
ienne Bacrot 3 v.
Útiskákmót í Mjódd
Taflfélagið Hellir heldur Mjódd-
armót Hellis laugardaginn 3. júní
nk. og hefst mótið kl. 14. Mótið
verður haldið í göngugötunni í
Mjódd. Keppnin verður með því
sniði að keppendur tefla fyrir fyr-
irtæki. Tefldar verða 7 skákir með
7 mínútna umhugsunartíma. Þar
sem fjöldi keppenda takmarkast
við fjölda fyrirtækja sem taka þátt
í mótinu er mikilvægt að skrá sig
sem fyrst. Mótið er öllum opið.
Þátttaka er ókeypis. Við skráningu
tekur Gunnar Björnsson, hellir-
@simnet.is, símar 581 2552 og 861
9416.
Skákmót á næstunni
3.6. Hellir. Mjóddarmótið
5.6. Hellir. Atkvöld
9.6. SH. Skákþing Hafnarfj.
Daði Örn Jónsson
apútEk
bar • grill
Austurstræti 16
Síml:5757 900
SUMAFmUBOÐ
SIMAC - HEIMAÍSVÉUN
Einfalt - Auðvelt - Fljótlegt
ísinn tilbúinn á 20 - 30 mín.
Rjómaís
Mjólkurís
Jógúrtís
Súkkulaðíís
Jarðaberjaís
Bananaís
Krapís
ís að eigin vali
25% afsláttur og 1 líter af
etrtméssís ísblöndu til 17. júní.
Alþjódu verslunarfélugid ekf.
Skipholt 5, 105 Reykjavík, Sími: 5114100
Gctt er aí
aetd sjdlj
Nú getur þú fengið Skoda Octavia með sjálfskiptingu. Frábærir aksturs-
eiginleikar njóta sín sem aldrei fyrr og fjölskyldan er örugg og ánægð út
um borg og bý.
rPÍ
u m
■
•J
SK0DA 0CTAV1A C0MBIGLX sjálfsk. Verttrá 1.547.000,-
SK0DA 0CTAVIA GLX sjálfsk. Verð trá 1.447.000,-
SKODA
OCTRVIR
- \emur á óvartl
Laugavegur 170-174 • Sími 569 S500
Heimasíba www.hekla.is • Netfang hekl a@ h e kl a . i s
m
HEKLA
- íforystu á nýrri öld!