Morgunblaðið - 07.06.2000, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
ávarpar aukaallsherjarþing SÞ
Jöfnuður karla
og kvenna
verði tryggður
PALL Pétursson félagsmálaráð-
herra lagði áherslu á mikilvægi þess
að ríki heims kæmu sér saman um
aðgerðir til að tryggja jafna lífsað-
stöðu bæði karla og kvenna við upp-
haf 21. aldarinnar þegar hann ávarp-
aði aukaallsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna í New York í gær.
Þingið stendur 5. til 9. júní og er
haldið til að meta og fara yfír árang-
urinn á þeim fimm árum, sem liðin
eru frá því Pekingáætlunin var sam-
þykkt á fjórðu alþjóðaráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um málefni kvenna í
Peking í september árið 1995.
í framkvæmdaáætlun ríkisstjóm-
arinnar fyrir tímabilið 1998 til 2002
er meðal annars byggt á þessari
áætlun og gat Páll þess í ræðunni
hvað hefði áunnist í jafnréttismálum
á íslandi frá því ráðstefnan var hald-
in í Peking.
„Ný jafnréttislöggjöf var sam-
þykkt á íslandi í vor þar sem kveðið
er á um jafna stöðu og jafnan rétt
karla og kvenna í hvívetna," sagði
hann. „Enda þótt vitað sé að löggjöf á
þessu sviði ein og sér hafi takmörkuð
áhrif, nema hún njóti almenns sið-
ferðilegs stuðnings, er hún engu að
síður nauðsynleg. Það er hugarfarið
sem mestu máli skiptir til að bæði
kynin hafl jafna möguleika til að efla
og þroska hæfileika sína og njóta
þeirra 1 heilbrigðu og hamingjusömu
lífi.“
Mannréttindi algild og
brot á þeim óþolandi
Páll sagði að umræðan um mansal
til kynlífsþrælkunar færðist í aukana
og verslun með konur væri sérstakt
áhyggjuefni. Hér væri um að ræða
skiplagða glæpastarfsemi, sem ríki
heims ættu að berjast gegn.
Heimilisofbeldi og annað kyn-
bundið ofbeldi ætti sér stað um heim
allan og yrðu yfirvöld í sérhveiju ríki
að finna leiðir til að draga úr tíðni
slíkra ofbeldisverka.
„Vitað er að konur búa við misrétti
og mismunun um heim allan þrátt
fyrir mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna um að allh- menn
skuli vera jafnbomir til virðingar og
réttinda og á það jafnt við um konur
og karla,“ sagði félagsmálaráðherra.
„Mannréttindi eru algild og óþolandi
er með öllu að við lok 20. aldar séu al-
varleg mannréttindabrot framin
gegn konum.“
Þess er vænst að þingið samþykki
lokaskjal þar sem farið verði yfir það,
sem unnist hefur frá 1995, hverjar
séu helstu hindranimar og áherslur
næstu ára. Ráðstefnuna sitja auk
fulltrúa stjórnvalda, fulltrúar Alþing-
is og frjálsra félagasamtaka.
Skipuð til að gegna
stöðu aðstoðar-
yfírlögr egiuþj óns
Dómsmálaráðherra,
Sólveig Pétursdóttir,
hefur skipað Jónínu
Sigþrúði Sigurðardótt-
ur aðstoðaryfirlög-
regluþjón við embætti
ríkislögreglustjóra.
Kona hefur ekki áður
verið skipuð í slíka
stöðu innan lög-
reglunnar.
Jónína hefur starfað
í lögreglu í rúm 21 ár
og sem varðstjóri frá
árinu 1992. Hún hefur
sótt ýmis námskeið um
fjarskiptamál og
stjórnað fjarskiptum á
stórum æfingum og aðgerðum sér-
sveitar og fengið viðurkenningu
fyrir góða stjómun.
Hún var valin úr hópi
17 umsækjenda og var
að mati ríkislögreglu-
stjóra hæfust til að
gegna stöðunni.
Starfssvið Jónínu hjá
ríkislögreglustjóra
verður í fjarskiptamið-
stöð ríkislögreglu-
stjóra.
Þá hefur ríkislög-
reglustjóri skipað
Friðgerði Brynju
Jónsdóttur í stöðu að-
alvarðstjóra og er hún
fyrsta konan til að
hljóta skipun í þá
stöðu. Friðgerður mun einnig starfa
í hinni nýju fjarskiptamiðstöð.
Jónína Sigþrúður
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Tólf eru í áhöfn fslensku skútunnar Bestur sem tekur þátt í alþjóðlegri siglingakeppni frá Paimpol í
Frakklandi til íslands. Þau eru talin í efri röð frá vinstri Ulfúr Helgi Hróbjartsson, Gunnar Geir Hall-
dórsson, Áskell Fannberg, Emil Pétursson, Arnþór Ragnarsson og Sigurður Oli Guðnason. Fremri röð frá
vinstri Ragnar Hilmarsson, Trausti Þór Ævarsson, Friðrik Ingi Friðriksson, Ingvar Ágúst Þórisson, Linda
Björk Ólafsdóttir og Böðvar Friðriksson.
„Siglingalandslið“
Islands stefnir að sigri
NOKKRIR af reyndustu siglinga-
mönnum íslands taka á næstunni
þátt í alþjóðlegri siglingakeppni
frá Paimpol í Frakklandi. Keppnin
er haldin til að minnast siglinga
franskra sjómanna á Islandsmið
en sigld verður sama leið og
frönsku sjómennimir sigldu
forðum. Þetta er í fyrsta skipti
sem íslensk áhöfn tekur þátt í út-
hafssiglingakeppni.
í áhöfninni verða 12 manns,
karlar og konur, allt þaulreyndir
siglingamenn. Baldvin Björgvins-
son skipstjóri segir áhöfnina vera
hálfgert siglingalandslið íslands,
þar megi m.a. finna áhöfnina á
skútunni Bestu, sem eru Islands-
meistarar og íslandsbikarhafar í
kjölbátasiglingum, auk annarra ís-
lenskra siglingamanna sem hafa
verið í fremstu röð á undanfömum
ámm. I hópnum em all s 16
manns, en hluti áhafnarinnar mun
ekki taka þátt í seinni hluta keppn-
innar en þá verður siglt aftur til
Paimpol. Baldvin telur að fslenska
liðið eigi góðar likur á sigri enda
sé áhöfnin reynd og báturinn góð-
ur.
Erfíð keppni
Áhöfnin hefur stundað þrekæf-
ingar frá áramótum en siglingin er
líkamlega erfið og Norður-
Atlantshafið erfitt og óútreiknan-
legt. Á næstunni heldur hópurinn
til Frakklands til æfinga á skútu
sem verið er að kaupa fyrir keppn-
ina.
Skútan, sem er 15,3 metrar (51
fet), verður sennilega stærsti bát-
urinn sem tekur þátt í keppninni.
Skútan er sérstaklega hönnuð til
keppnissiglinga en hún var á sín-
um ti'ma smfðuð til að taka þátt f
siglingakeppni umhverfis jörðina
árið 1989.
Alls era um 30 skútur af ýmsum
stærðum og gerðum skráðar í
keppnina, sem hefst 18. júní nk.
Leiðin er rúmlega 1.300 sjómilur
og er búist við að ferðin taki um 10
daga. Keppendur, sem búist er við
að verði um 300, dvelja hér á landi
í um viku áður en þeir sigla af stað
aftur til Paimpol.
Sérstakt Ieyfi frá
franska flotanum
í tengslum við keppnina koma
hingað tvær franskar skonnortur
sem franski flotinn notar sem
skólaskip. Skonnorturnar era ná-
kvæmar eftirlíkingar af þeim skip-
um sem frönsku sjómennimir
sigldu á íslandsmið. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem þessar
skonnortur sigla svo langa leið yfir
úthaf og þurfti að fá sérstakt leyfí
frá franska flotanum til að skonn-
ortumar gætu lagt í siglinguna.
Siglingakeppnin er hluti af dag-
skrá Reykjavíkur - menningar-
borgar 2000.
Minni aðsókn að vinnu-
skólum víðast hvar
www.bmvalla.is
milundur
í Fornalundi færðu góðar
hugmyndir fyrir garðinn þinn.
Skoðaðu gagnvirkt kort af
Fomalundi á www.bmvalla.is
Söludeild í Fornalundi
BreiðhöfSa 3 • Sími 385 5030
GREINILEGA verður vart við
minni aðsókn að vinnuskólum sveit-
arfélaga víða um land í sumar sam-
anborið við fyrri ár og á það einkum
við um elsta áraganginn sem þar
fær vinnu, þá sem eru eða verða 16
ára á árinu. Er það almennt mat
forráðamanna vinnuskólanna að
gott atvinnuástand valdi þessu fyrst
og fremst, þar sem auðveldara sé
fyrir þennan aldurshóp að fá vinnu
en áður hefur verið.
í Morgunblaðinu í gær kemur
fram að um 500 færri verða í vinnu-
skólanum í Reykjavík í sumar en
ráðgert hafði verið og er fækkunin
langmest í elsta árganginum. Svip-
aða sögu er að segja frá öðrum
sveitarfélögum á landinu, heldur er
fækkun í unglingavinnu víðast hvar
og er hún mest áberandi í elstu ár-
göngunum.
Á Akureyri eru heldur færri í
unglingavinnunni en voru á síðasta
ári. Um 320 14 og 15 ára unglingar
verð í unglingavinnunni í sumar.
Tæpir 80 16 ára unglingar voru í
unglingavinnunni í fyrrasumar, en
rúmir 60 hafa skráð sig í ár og
hugsanlega skila þeir sér ekki allir
þegar vinnan hefst síðar í júnímán-
uði, að sögn Lindu Óladóttur, for-
stöðumanns unglingavinnu Akur-
eyrar. Hún segir að skýringin á
þessu sé sú að unglingunum standi
til boða vinna annars staðar.
Rétt tæplega 200 krakkar verða í
vinnuskólanum á Akranesi í sumar,
sem er svipaður fjöldi og í fyrra, en
farið hefur fækkandi í hópnum hin
seinni ár, að sögn Einars Skúlason-
ar, æskulýðsfulltrúa á Akranesi,
bæði vegna þess að árgangarnir eru
fámennari og vegna þess að at-
vinnuástand er mjög gott, sérstak-
lega fyrir þau elstu, 16 ára ungl-
ingana, sem hefðu lokið 10. bekk í
vor.
Einar sagðist í mörg ár ekki hafa
verið með jafnlágt hlutfall 16 ára
unglinga í vinnuskólanum og nú.
Venjulega hefði hann verið með um
75% þessa aldurshóps í vinnu, en nú
væri hlutfall þeirra sem skráðu sig
líklega um 60% og síðan hefðu ein-
hverjir verið að detta út vegna þess
að þeir hefðu fengið vinnu annars
staðar.
Þá verða um 100 krakkar í vinnu-
skólanum á Isafirði í sumar, sem er
ívið færra en verið hefur undan-
farin ár.
Ekki fyrir 16 ára
I Vestmannaeyjum er einungis
rekinn vinnuskóli fyrir 14 og 15 ára
gamla unglinga, en 16 ára ungling-
ar hafa getað fengið vinnu í vinnslu-
stöðvunum í landi og því ekki verið
nauðsynlegt að vera með vinnu-
skóla fyrir þann aldurshóp. Tæp-
lega 75 unglingar eru skráðir í
vinnuskólann í sumar, sem er færra
en áður vegna þess að nú nær
vinnuskólinn ekki til 13 ára bama
eins og verið hefur vegna tilskipun-
ar á Evrópska efnahagssvæðinu,
sem gerir það að verkum að 13 ára
börn mega ekki vinna.
í Hafnarfirði er einnig fækkun í
vinnuskólanum miðað við áætlanir.
í aldurshópnum 14-16 ára var gert
ráð fyrir tæplega 550 umsóknum,
en þær verða sennilega nær 100
færri og munar þar mestu í eldri
árgöngunum, eins og annars staðar
á landinu
Á Egilsstöðum era nær 40 krakk-
ar í vinnuskólanum í sumar, sem er
heldur færra en í fyrra.