Morgunblaðið - 07.06.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.06.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Breska konungsfjölskyldan Deilir um erfða- breytt matvæli London. Reuters, AFP. NÚ þegar hneykslismálin eru að baki er deilan um erfðabreytt mat- væli farin að valda klofningi í bresku konungsfjölskyldunni. Filippus drottningarmaður hefur nú blandað sér í deiluna með því að verja notk- un erfðabreyttra lífvera í landbún- aði. Hann tekur þar með afstöðu gegn syni sínum, Karli prins, sem hefur oft varað við erfðabreyttum matvælum. „Við skulum ekki gleyma að við höfum erfðabreytt dýrum og jurtum allt frá því að fólk hóf kynbætur,11 sagði Filippus og bætti við að eini munurinn á hefðbundnum kynbót- um og erfðatækni nútímans væri sá að erfðatæknin tæki skemmri tíma. „Fólk gleymir því að tilkoma fram- andi tegunda - til að mynda tilkoma gráíkoma hér á landi - veldur miklu meiri skaða en erfðabreytt kar- tafla,“ hefur Lundúnablaðið The Times eftir drottningarmanninum. Karl prins hefur hins vegar gagn- rýnt notkun erfðabreyttra lífvera í landbúnaði og lýst erfðabreyttum matvælum sem „frankenstein- fæðu“. Prinsinn er einn af þekktustu talsmönnum lífræns landbúnaðar og á bújörðum hans í Cornwall eru ein- göngu framleiddar lífrænar afurðir. Systir Karls, Anna prinsessa, sem er forseti Breska vísindafélagsins, er ekki sama sinnis og krón- prinsinn. „Það er mikil einföldun að segja að allur búskapur eigi að vera lífrænn eða að erfðabreytt matvæli ættu ekki að vera til. Lífið er því miður ekki svo einfalt,“ sagði prinsessan í viðtali við tímaritið The Grocer, sem gefið var út um helgina. „Algjör þvættingur“ Nokkrir breskir þingmenn hafa gagnrýnt innlegg drottningar- mannsins í deiluna. Tim Yeo, tals- maður íhaldsflokksins í landbúnað- armálum, lýsti orðum hans sem „algjörum þvættingi". „Eg tel ekki að Filippus prins skilji til fulls hvað erfðatæknin snýst um, en hún snýst m.a. um það að gen eru tekin úr fiski og sett í tóm- ata,“ sagði Yeo. „Ég verð að segja að ég stend með krónprinsinum en ekki föður hans að þessu sinni og í ljósi ummæla Önnu prinsessu um helgina virðist hafa blossað upp fjöl- skyldurifrildi út af þessu máli.“ Reynisvatn - útivistarperla Reykjavíkur er í ósnortnu umhverfi aðeins 2 km. frá Grafarvogsvegamótum. I vatninu er gnægð Bleikju, laxa og regnbogasilunga, veiði við allra hatfi frá landi eða af báti. Ævintýranámskeið að Reynisvatni í allt sumar fyrir börn frá 7 ára aldri. Vikunámskeið hefjast 19.júní og standa alla virka daga frá kl. 9-17. Verð 11.700 kr.á viku. Haegt er að panta l-l I vikur, 19 júní l.september Takmarkaður fjöldi, pantið sem fyrst í síma 861 6406 Kristín námskeiðsstjóri og 854 3789. I lífstíðarfangelsi fyrir aðild að gasárás Tókýd. Reuters.AFP. YOSHIHIRO Inoue, einn af for- ystumönnum japanska ddmsdags- safnaðarins Aum Shinri Kyo, sem sést fyrir miðju myndarinnar var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir aðild að taugagasárás í lest- argöngum í Tókýd fyrir fimm ár- um og níu öðrum glæpum. Ddmari umdæmisddmstdls í Tdkýd hafnaði kröfu ákæru- valdsins um að Yoshihiro Inoue yrði dæmdur til dauða og komst að þeirri niðurstöðu að hinn ákærði hefði ekki sett taugagasið í lestargöngin eða tekið beinan þátt í verknaðinum. Saksdknar- arnir sögðust ætla að áfrýja ddmnum. Inoue er þrítugur og var einn af helstu aðstoðarmönnum stofn- anda safnaðarins, Shoko Asahara, sem hefur verið sdttur til saka fyrir að hafa fyrirskipað gasárás- ina og fleiri glæpi. Tdlf manns biðu bana í árásinni og þúsundir veiktust. Inoue játaði að hafa komið skila- boðum til þeirra sem settu tauga- gasið í lestargöngin. Verjendur hans sögðu að erfitt hefði verið fyrir hann að fara ekki eftir fyr- irmælum annarra forystumanna safnaðarins en ddmarinn hafnaði því að Inoue bæri ekki ábyrgð á gerðum sinum. Inoue, sem stjdrnaði njdsnastarf- semi safnaðarins, var einnig dæmdur fyrir aðild að þremur morðum. > Iranar hafna framburði liðhlaupa um Lockerbie-tilræðið Segjast ekki kann- ast við manninn Teheran. Damaskus. AP, AFP, Reuters. ÍRANSSTJÓRN neitaði í gær al- gerlega að hún hefði nokkur tengsl við liðhlaupa úr írönsku leyniþjón- ustunni sem hefur sagt að Iran beri ábyrgð á sprengingu í bandarískri farþegaþotu árið 1988. Maðurinn, Ahmad Behbahani, sagði frétta- mönnum CBS-sjónvarpsstöðvar- innar nýlega að hann hefði, sem yf- irmaður hryðjuverkadeildar leyniþjónustunnar, staðið að baki Lockerbie-tilræðinu sk. þegar þota Pan American-flugfélagsins fórst yfir bænum Lockerbie á Skotlandi með þeim afleiðingum að 270 manns fórust. Að sögn Hojatoleslam Ali Yun- essi, sem fer með málefni leyni- þjónustunnar í ríkisstjórn Irans, hefur maður með þessu nafni aldrei unnið fyinr írönsku leyniþjónust- una. Sakar Yunessi ísrael og Bandaríkin um samsæri til að koma sök í málinu á íran. „Mistök ríkis- stjórnar Zionista í Suður-Líbanon og réttarhöldin yfir írönskum gyð- ingum sem grunaðir eru um njósnir í þágu ísraels búa að baki þessu ráðabruggi," er haft eftir ráðherr- anum. Hann segir enn fremur að yfirlýsingar mannsins séu mót- sagnakenndar, t.d. hafi hann sagst hafa verið fangelsaður árið 1998 en á sama tíma hafa gegnt toppstöðu innan írönsku leyniþjónustunnar. íranskur blaðamaður sem er í út- legð frá heimalandi sínu sagði fréttamönnum AP- fréttastofunnar £ gær að Behbahani væri ekki raunverulegt nafn mannsins og að því skyldu menn ekki undrast að hann fynd- ist ekki á launaskrá hjá írönsku leyniþjón- ustunni. Lágur aldur manns- ins hefur þó vakið grunsemdir annarra, en tyrknesk yfirvöld hafa sagt að maðurinn sé aðeins 32 ára. Þá sagði nafngreindur bandarískur embætt- ismaður á mánudag að hann hefði sterkar efasemdir um að Behbahani væri sá sem hann segðist vera vegna þess að miðað við þetta hefði hann að- eins verið tvítugur þegar Locker- bie-ódæðið var framið. Þekki ekki manninn Behbahani hefur sagt að hann hafi ráðið foringja palestínsks hryðjuverkahóps með aðsetur í Sýrlandi, Ahmad Jibril, til að stýra framkvæmd Lockerbie-tilræðisins og nokkurra annarra hryðjuverka. Jibril sagði í viðtali við íranska út- varpsstöð í gær að hann hefði aldrei hitt Behbahani. „Ég hef aldrei séð né þekkt þennan mann, þennan málaliða, þennan mann sem hefur látið kaupa sig,“ sagði Jibr- il. Viðtalið fór fram á arabísku og var þýtt yfir á persnesku. Behbahani segist hafa orðið undir £ valdabaráttu innan ir- önsku stjórnsýslunnar og hafi flúið land til að komast hjá handtöku. Hann dvaldi i flótta- mannabúðum i Tyrk- landi þar sem frétta- menn höfðu uppi á honum eftir ábending- ar frá írönskum stjórnarandstæðing- um. í þættinum „60 mínútur" sem sýndur var á CBS sl. sunnudag var framburður Behba- hanis endursagður. Hann heldur því fram að Lockerbie-tilræðinu hafi verið ætlað að hefna fyrir það er bandarískt herskip skaut niður íranska farþegaþotu fyrr sama ár. Tyrknesk stjórnvöld eru nú sögð hafa Behbahani í haldi í höfuðborg- inni Ankara, þar sem m.a. fulltrúar bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) hafi yfirheyrt hann. Hermt er að Behbahani hafi sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður í Bandaríkjunum. CBS-sjónvarpsstöð- in segir þetta nýlega mynd af liðhlaupan- um Ahmed Behba- hani.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.