Morgunblaðið - 07.06.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000 11
FRÉTTIR
Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra um tillögur Hafrannsóknastofnunar
Ekki sérlega
váleg tíðindi
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra
segir að tillögur Hafrannsóknastofnunar
byggi á því hvað sé hagkvæmt með tilliti til
vaxtar og viðgangs fiskistofna. „Það eru
vissulega vonbrigði að þorskstofninn er í
heldur verra ásigkomulagi en menn höfðu
vonast til, en hins vegar lít ég ekki á skýrsl-
una sem sérstaklega váleg tíðindi. Ef vel er
að gáð kemur í ljós að jafnvel þótt aflinn á
næsta ári yrði ákvarðaður hinn sami og í ár,
væri þorskstofninn að vaxa,“ segir Halldór og
bætir við að hlutfallið í veiðinni árið 1999 hafi
ekki verið nákvæmlega það sama og gert
hafði verið ráð fyrir; 33% en ekki 25%.
Að sögn Halldórs er verkefnið nú að vega
og meta aðgerðir með tilliti til fiskifræðilegra
og efnahagslegra sjónarmiða. „Það gerir
sjávarútvegsráðherra á næstunni,“ segir ut-
anríkisráðherra.
Veislunni lokið
Ef fylgja á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
hefur það miklar efnahagslegar afleiðingar í
för með sér að mati Össurar Skarphéðinsson-
ar, foi-manns Samfylkingarinnar. „Væntan-
lega hafa þær aðgerðir marktæk áhrif á gengi
hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum. Við-
skiptahalli mun aukast, sem þýðir einfaldlega
að veislunni er lokið,“ segir Óssur. Hann tel-
ur líklegt að sjávarútvegsráðherra muni
verða fyrir miklum þrýstingi að fara ekki eft-
ir tillögum Hafrannsóknarstofnunar. „Á
næstunni kemur í ljós hve beinin eru sterk í
Árna Mathiesen," segir Össur.
Hann segir niðurstöðu Hafrannsóknastofn-
unar vissulega vera vonbrigði. „Hins vegar
verða menn að halda ró sinni og ég tel of
snemmt að dæma vísindaaðferðir Hafrann-
sóknastofnunar úr leik. Það má ekki gleyma
því að nú hafa komið fram þrjú ár í röð sterk-
ir seiðaárgangar eftir tíu til ellefu mjög slaka.
Þessir árgangar eru auðvitað afrakstur þeirr-
ar verndarstefnu sem fram hefur verið haldið
undir leiðsögn Hafrannsóknastofnunar," seg-
ir Össur.
Ofmat á fjölda stórþorska
Össur segist telja að elsti árgangur þessara
þriggja muni á næsta ári fara að gera vart við
sig með marktækum hætti í veiðinni. „Ég tala
nú ekki um ef árferðið verður gott í sjónum
eins og margt bendir til. I kjölfarið má vænta
þess að þessir stofnar haldi uppi veiðinni með
betri hætti en áður. Þessu gleyma menn þeg-
ar þeir ráðast á kerfið," segir Ossur.
Að mati Össurar hefur Hafrannsóknastofn-
un sennilega ofmetið fjölda stórþorska síð-
ustu fimm ár. „Skekkjan í þeirri tölu þarf
ekki að vera stór til að hafa áhrif á aflaþyngd,
þar sem þeir eru stórir og þungir eins og
nafnið gefur til kynna,“ segir hann.
Þá bendir Össur á að sterkar vísbendingar
hafi komið fram á síðustu árum um samhengi
milli stærðar hrygningarstofnsins og seiða-
árgangsins, þótt ekki hafi verið lagðar fram
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
óyggjandi sannanir þess efnis. „Ef þetta sam-
hengi er til staðar, eins og margt bendir til,
verðum við að draga úr veiðum til að ná fram
stórum seiðaárgangi," segir Össur.
Össur setur spurningarmerki við fyrirætl-
anir sjávarútvegsráðherra um að taka í aukn-
um mæli tillit til fiskifræða sjómannsins.
„Það hefur yfirleitt verið okkur til farsældar
að fara að ráðum fiskifræðinga, en auðvitað
eru niðurstöður þeirra innan ákveðinna
skekkjumarka. Þess vegna er ákvörðun
heildarafla alltaf pólitísk," segir hann.
Blæs á ráðgjöf Hafró
Sverrir Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segist ekki hafa mikla trú á
tillögum Hafrannsóknastofnunar. „Sú stofn-
un hefur aldrei lagt til neitt af viti í sambandi
við fiskveiðar við Island," segir hann.
Sverrir segir ástandið hafa verið mun
betra þegar stundaðar voru veiðar án ráð-
gjafar stofnunarinnar. „En síðan hún tók við
hefur allt farið á verri veg. Á árunum 1950-70
var meðalþorskafli á íslandsmiðum 338 þús-
und tonn. Þá naut ekki við ráðgjafar þessara
snillinga," segir Sverrir.
„Skyndilega hrukku menn upp og sögðu að
verið væri að útrýma þorskstofninum. Þessi
ráðgjöf, sem fylgdi í kjölfarið, endaði með því
að farið var niður í 160 þúsund tonn. Hún hef-
ur orðið til þess að sennilega hefur verið veitt
allt of lítið á íslandsmiðum," segir Sverrir,
„þannig að ég blæs á alla ráðgjöf frá stofnun-
inni.“
Hvernig telur Sverrir að ákvarða eigi
heildarafla? „Það ætti að setja stofnunina af í
svo sem eins og tíu ár, taka fiskveiðileyfin af
gripdeildarmönnunum og lofa mönnum að
róa sjálfum til fiskjar á sín eigin mið,“ segir
Sverrir Hermannsson.
Vonbrigði
Árni Steinar Jóhannsson, þingmaður
Vinstri grænna, segir tiilögur Hafrannsókn-
astofnunar vera mikil vonbrigði. „Sérstak-
lega auðvitað hvað varðar þorsk- og rækjust-
ofninn. En við verðum að trúa því að þarna sé
aðeins um tímabundið bakslag að ræða, og
uppbygging þorskstofnsins haldi áfram,“
segir hann.
Arni segist ekki vera á þeirri skoðun að
draga beri úr áhrifum vísindamanna við
ákvörðun heildarafla. „Við verðum að treysta
á vísindin og ég hef engar forsendur til ann-
ars. Við verðum að huga að jafnvægi í lífrík-
inu í sjónum; innra samspili stofnanna," segir
hann. Árni segir að huga þurfi frekar að
þessu samspili, ekki síst í ljósi minnkandi
rækjustofns.
„Tillagan um að veiða aðeins 12.000 tonn af
rækju er gríðarlegt áfall og að mínu mati
jafnmikið og tillögurnai' um þorskinn,“ segir
Árni Steinar, „hins vegar eru nokkrir ljósir
punktar í þessum tillögum, t.a.m. jákvæðar
fréttir af grálúðu,“ bætir hann við.
Ovíst um áhrif kvótaskerðingar á fiskverð og markaði
Verðhækkanir vega
ekki upp skerðingu
Talsmenn samtaka á vinnumarkaði
um tillögur Hafrannsóknastofnunar
Slæm áhrif á
efnahagslífið
AHRIF á markaði fyrir íslenskar
sjávarafurðir erlendis þurfa ekki að
vera neikvæð, verði farið að tillögum
Hafrannsóknastofnunar um niður-
skurð á aflaheimildum við Island.
Þvert á móti gæti markaðsstaðan
styrkst en ekki er þó líklegt að af-
urðaverð hækki í kjölfarið. Þá er ekki
viðbúið að fiskverð á fískmörkuðum
hérlendis hækki vegna þessa.
Andrés Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsmarkaðar hf„ á
ekki von á því að niðurskurður á afla-
heimildum muni hafa mikil áhrif á
fiskverð hérlendis, enda ráði afurða-
verð meira þar um. „Verði farið að
tillögum Hafrannóknastofnunarinn-
ar verður það að minnsta kosti ekki
til að lækka fiskverð á mörkuðunum.
En ég er ekki viss um að þrátt fyrir
niðurskurð aflaheimildum þá skerð-
ist magn inn á markaðina hlutfalls-
lega jafn mikið. Undanfarin fjögur ár
hafa verið seld um 100 þúsund tonn á
fiskmörkuðunum hérlendis, þrátt
fyrir sveiflur í afla. Það sem mestu
ræður framboði á fiskmörkuðunum í
dag er afli smábátanna, en þeir hafa
til dæmis fengið að veiða frjálst í ýsu.
Ég geri því ekki ráð fyrir að niður-
skurðurinn leiði beint til hækkunar á
fiskverði. Leiði hann hinsvegar til
hækkunar á afurðaverði gæti það
hinsvegar haft áhrif til hækkunar á
fiskverði hérlendis" segir Andrés.
Framboð á mörkuðum minnkar
Logi Þormóðsson, stjórnarfor-
maður Reiknistofu fiskmarkaðanna,
bendir á að íslenskir fiskmarkaðir fái
nú þegar ákveðna hlutdeild heildar-
aflans og niðurskurður á aflaheimild-
um hljóti þar af leiðandi að hafa áhrif
á framboð á mörkuðum, líkt og hjá
annarri fiskvinnslu í landinu. Hann
segir að með minna framboði hækki
verð og bendir á hátt verð á ýsu og
þorski á mörkuðunum undanfarna
mánuði sem einkum megi rekja til
takmarkaðs framboðs.
Logi segir Ijóst að verði tillögur
Hafrannsóknastofnunar að veruleika
komi minna af fiski til vinnslu hér-
lendis. Hinsvegar megi draga úr
þessum samdrætti með því að koma í
veg fyrir að afli sé sendur óseldur úr
landi. „Þannig myndi skerðing á afla-
heimildum ekki koma eins illa niður á
fiskvinnslunni. Það má selja þennan
afla hérlendis í stað þess að senda
hann eða sigla með hann ferskan á
markaði erlendis. Þannig myndi
koma meira magn inn á fiskmarkað-
ina. Eins gæti niðurskurður haft þær
afleiðingar að kvótinn verði orðinn
það lítill hjá mörgum að þeir hætta
að verka fiskinn sjálfir og setja hann
þess í stað á markað."
Þarf ekki að hafa slæm áhrif
Magni Geirsson, framkvæmda-
stjóri Icelandic UK, dótturfélags SH
í Bretlandi, segir erfitt að meta áhrif
tillagna Hafrannsóknastofnunar,
verði eftir þeim farið. Hann bendir á
að markaður fyrir sjávarafurðir hafi
að undanförnu verið fremur þungur,
beggja vegna Atlantshafsins. Áhrif
niðurskurðar á aflaheimildum komi
þannig ekki í ljós fyrr en í haust.
Hann segir hinsvegar að niðurskurð-
ur þurfi ekki endilega að vera slæm-
ar fréttir á mörkuðunum. „Augljós-
lega verður minna að selja, en það
þarf ekki að koma sér illa. Markað-
sstaða íslendinga og hlutdeild ís-
lenska fisksins er sterk á mörkuðun-
um og við þurfum ekki að óttast að
tapa þessari stöðu okkar. Ég á samt
ekki von á því að verð hækki frá því
sem nú er. Á meðan markaðurinn er
jafn erfiður og nú er, hefur kvótanið-
urskurður ekki mikið að segja. Eftir-
spumin hefur dregist saman og salan
verið tregari. Það kemur til af
mörgu. Til dæmis sátu íslendingar
eftir í sölu sjávarafurða á tímabili, á
meðan Norðmenn seldu grimmt."
Jóhannes Már Jóhannesson, að-
stoðarframkvæmdastjóri SÍF ís-
land, gerir ekki ráð fyrir að verð-
hækkanir á sjávarafurðum vegi upp
skerðingu á aflaheimildum, gangi
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar eft-
ir. „Eg tel að áhrif af skerðingu verði
ekki veruleg. Verði af tillögunum þá
gætu markaðii’ okkar erlendis hins-
vegar styrkst, enda treystir umræða
um minnkandi framboð venjulega
markaðsstöðuna. En minni afli mun
væntanlega þýða minna framboð, en
ég tel að skerðingin komi jafnt niður
á öllum tegundum fiskvinnslunar,
enda hefur gengisþróun meiri áhrif
þar á milli þar sem helstu saltfisk-
markaðir eru á meginlandi Evrópu,"
segir Jóhannes.
SAMTÖK atvinnulifsins hafa enn
sem komið er ekki lagt sjálfstætt
mat á hvaða þýðingu það hefði
fyrir þjóðarbúið ef farið verður
að tillögum Hafrannsóknastofn-
unar um verulegan niðurskurð
þorskafiaheimilda og fleiri mikil-
vægra nytjategunda.
Ari Edwald, framkvæmdasíjóri
SA, segir að skv. þeim upp-
lýsingum sem fram hafi komið í
fréttum væri talið að skerðing
afla skv. þessum tillögum gæti
leitt til þess að útflutningstekjur
minnkuðu um 10 milljarða kr.
„Það eru að sjálfsögðu neikvæðar
fréttir," sagði Ari.
Aðspurður hvort forsendur
kjarasamninga, sem gengið hefur
verið út frá við samningsgerð að
undanförnu, breyttust ef farið
verður að tillögum Hafrannsókn-
astofnunar, sagðist Ari ekki vilja
orða það svo um einn þátt af
mörgum sem skiptu máli í því
sambandi. „En það yrði að sjálf-
sögðu ekki gott framlag til líf-
skjaranna þegar upp er staðið.
Það segir sig sjálft,“ sagði hann.
Fátt bendir til að verð
hækki til mótvægis við
minni útflutning
„Þetta er það síðasta sem við
þurfum á að halda, sérstaklega í
ljósi viðskiptahallans," segir
Rannveig Sigurðardóttir, hag-
fræðingur Alþýðusambands ís-
lands. Hún bendir þó cinnig á að
miklu skipti í þessu sambandi
hvaða verð fáist fyrir aflann til
mótvægis við minni útflutning
sjávarafurða ef farið yrði að nið-
urskurðartillögum Hafrannsókna-
stofnunar. „Þó virðist fátt benda
til þess að verð verði hærra á
næsta ári en nú er,“ sagði hún.
Sérfræðingum Alþýðusam-
bandsins hefur ekki, fremur en
Samtökum atvinnulífsins, gefist
tóm til að leggja sjálfstætt mat á
efnahagsleg áhrif tillagna Haf-
rannsóknastofnunar um ráðlegan
heildarafla.
Rannveig sagði þó ljóst að slík-
ur samdráttur í veiðum og út-
flutningi hefði í för með sér að
hagvöxtur verði minni en gert
hefur verið ráð fyrir og ef ekki
ættu sér stað verulegar breyting-
ar á innflutningi mætti gera ráð
fyrir enn meiri viðskiptahalla en
spár hafa gert ráð fyrir í dag,
sem væru þó svartar fyrir.
Sjómannaforystan á fund
sjávarútvegsráðherra
Sambandsstjórn sjómannasam-
bandsins kemur saman í dag þar
sem ræða á um tillögur Hafrann-
sóknastofnunar. Mun forysta Sjó-
mannasambandsins svo ganga á
fund sjávarútvegsráðherra á
morgun vegna málsins.