Morgunblaðið - 07.06.2000, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Valdaránstilraun á Salómon-eyjum
Ulufa’alu
segir af sér
Sydney. AFP.
BARTHOLOMEW Ulufa’alu, for-
sætisráðherra Salómon-eyja, sagði í
gær af sér embætti til að afstýra
borgarastríði á Suður-Kyrrahafseyj-
unum. Vopnaður hópur skæruliða af
fi-umbyggjaættum, undir forystu
Andrews Noris lögfræðings, tóku
forsætisráðherrann og stjóm hans í
gíslingu á mánudag og gerði þá kröfu
að forsætisráðherrann myndi segja
af sér.
Ulufa’alu fundaði í gær með ríkis-
stjóm sinni og valdaræningjunum og
var þar sú ákvörðun tekin að ráðherr-
ann myndi hverfa úr embætti þann
16. þessa mánaðar. Kom ákvörðunin í
kjölfar þriggja klukkustunda langra
bardaga vopnaðra hópa í Honiara,
höfuðstað eyjanna, þegar allt virtist
benda til að borgarastríð væri í upp-
siglingu en aðgerðum valdaræningj-
anna hefur verið líkt við valdaránið í
Fijí-eyjum. Sagði Alfred Sasako, inn-
anríkisráðherra eyjanna, í samtali við
AFP, að Nori hafi fallist á afsögn for-
sætisráðherrans. „Hann hefur gefið
til kynna að ef friður fæst með því að
hann segir af sér þá er hann reiðu-
búinn að gera það,“ sagði Sasako og
kvað þing koma saman í næstu viku
til að samþykkta afsögn Ulufa’alu og
til að tilnefna nýjan mann í embættið.
Skæruliðar MEF-hreyfingarinnar,
sem stóð að baki valdaráninu, og
Frelsishreyfingar Isatabu börðust
um yfirráð alþjóðaflugvallarins í
Honiara og er talið að a.m.k. fjórir
hafi særst. Áður höfðu liðsmenn
MEF girt flugvöllinn af, komið fyrir
vegatálmum og skorið á símalínur.
Ný-Sjálendingar í
viðbrag'ðsstöðu
Ástand mála á eyjunum var orðið
svo slæmt floti Nýja-Sjálands var
sendur á vettvang til að flytja brott
erlenda aðila og þá hafa óeirðirnar
verið ræddar á fundum utanríkisráð-
herra Samveldisríkja í Lundúnum.
Mikil ólga hefúr verið á Salómon-
eyjum á undanfömum tveimur árum
í kjölfar þjóðemisátaka frumbyggja
á Guadalcanal-eyju, þar sem Honiara
er staðsett, og innflytjenda á Mal-
aita-eyju. Er talið að átökin hafi kost-
að á sjötta tug mannslífa og að um
20.000 manns, flestir þeirra innflytj-
endur frá Malaita-eyju er búsettir
höfðu verið á Guadalcanal, hafa orðið
að flýja heimkynni sín.
Reuters
Skæmliðar MEF standa vörð við hús forsætisráðherra eyjanna, Barth-
olomew Ulufa’alu, sem sagði af sér.
Bókhaldsskyldu mótmælt
KAUPMENN í Pakistan eru í uppreisnarhug um þess- ætlar að auki að koma á 15% söluskatti. Hafa þeir efnt
ar mundir enda hefur herforingjastjórnin í landinu til mótmæla víða um landið og þar á meðal í borginni
ákveðið að skylda þá til að færa viðskiptin til bókar og Hyderabad þar sem þessir reiðu menn komu saman.
Kínverjar vara við víg-
búnaðarkapphlaupi
Peking. AP.
KINVERJAR vöruðu við því í gær
að nýtt vopnakapphlaup myndi
hefjast ef þær breytingar, sem
Bandaríkjamenn hafa farið fram á,
yrðu gerðar á sáttmálanum um
bann við smíði varnarskotflauga
(AJBM-sáttmálanum).
„Hvers konar tilraunir til að
breyta ABM-sáttmálanum eða
víkjast undan ákvæðum hans
myndu ekki aðeins ógna kjarn-
orkuafvopnunarferlinu heldur líka
leiða til fjölgunar kjarnavopna og
koma af stað nýju vopnakapp-
hlaupi, þ.á m. vopnakapphlaupi úti
í geimnum,“ sagði fulltrúi kín-
verska utanríkisráðuneytisins.
Bandaríkjastjórn vill breyta
ákvæðum sáttmálans þannig að
hún geti komið sér upp eldflauga-
kerfi til þess að skjóta niður
árásarflaugar sem nálgast. Kerfi
sem þetta yrði ólöglegt samkvæmt
ABM-sáttmálanum. Bandaríkja-
stjórn segir kerfið eingöngu eiga
að vera vörn gegn árásum frá ríkj-
um á borð við Norður-Kóreu og ír-
an, en Kínverjar óttast að það
myndi einnig taka bitið úr þeirra
eigin kjarnorkuvopnabúri.
Rússar telja líka að tillögur
Bandaríkjamanna um varnarkerfið
ógni sínu eigin varnarkerfi og eru
andvígir því að breytingar verði
gerðar á ákvæðum ABM-sáttmál-
ans. Einn helsti afvopnunarsamn-
ingamaður Kínverja sagði í síðasta
mánuði að ef Bandaríkjamenn
gerðu alvöru úr hugmyndunum
kynnu Kínverjar að stækka kjarna-
vopnabúr sitt eða auka nákvæmni
kjarnaodda sinna.
Um hundrað manns farast í jarðskjálftum á Súmötru
Talið að fleiri
látnir fínnist
Bengkulu, Jakarta. Reuters, AFP.
YFIRVÖLD á eynni Súmötru sögðu í
gær a.m.k. 98 manns hafa farist í
tveimur öflugum jarðskjálftum sem
urðu á sunnudagskvöldið. Óttast er
að tala látinna kunni að reynast enn
hærii þar sem erfiðlega hefur gengið
að ná sambandi við afskekktar
byggðir á vesturströnd eyjarinnar.
Áfram var unnið að björgunarað-
gerðum í borginni Bengkulu og hafa
yfirvöld í Indónesíu nú óskað aðstoð-
ar erlendra ríkja.
„Við eigum von á því að tala látinna
eigi eftir að hækka enn frekar," sagði
Edy Somes aðstoðarvarðstjóri í
Bengkulu við Reuters-fréttastofuna.
„Jarðskjálftinn olli skriðum í suður-
hluta héraðsins og það er erfitt fyrir
björgunarsveitir að komast þangað."
Þá hafa slæmt veðurfar, skortur á
samgöngum og rafmagnsleysi haml-
að björgunaraðgerðum.
Að sögn Somes var vitað til þess að
98 hefðu farist vegna skjálftans í
borginni Bengkulu og nágrenni
hennar. Hann sagði hins vegar ekki
vitað um mannskaða í afskekktari
byggðum héraðsins þar sem um 1,4
milljónir manna búa. Dagblaðið Har-
ian Semarka segir tölu látinna þó enn
hærri. Vitað sé til þess að 106 manns
hafi farist í Bengkulu-héraðinu.
Óttast fleiri stóra skjálfta
íbúar í Bengkulu-borg bjuggu enn
í neyðartjöldum á götum borgarinnar
í gær. Hrinur eftirskjálfta voru tíðar
og hljóp fólk oft hrætt út á götu í
kjölfar slíkra skjálfta. „Fólk er við-
kvæmt jafnvel þegar um litla skjálfta
er að ræða,“ sagði Muslimin, aðstoð-
arritstjóri Harian Semarka. Hann
kvað suma óttast að önnur stór jarð-
skjálftahrina ætti eftir að ríða yfir þó
yfirvöld neiti því að hætta sé á slíku.
„Við lifum enn í ótta. í dag [gær] varð
meðalstór skjálfti og við höfum einnig
fundið fyrir öðrum hrinum sem vekja
hræðslu meðal allra,“ sagði Awang
sem var meðal fórnarlamba jarð-
skjálftanna. „Okkur hefur verið sagt
að vera á varðbergi næstu þijá daga.“
Að sögn Anatara-fréttastofunnar
slösuðust yfir 500 manns í Bengkulu í
skjálftanum og voru meiðsl um helm-
ings þeirra talin alvarleg. Hinum
særðu og sjúklingum af sjúkrahúsum
í borginni hefur verið komið fyrir á
bílastæðum sjúkrahúsa og reyndu
læknar að hlúa að fólki þrátt fyrir
skort á sjúkrarúmum, lyfjum og blóð-
gjöfum.
Neyðaraðstoð tók að berast til
Bengkulu í gær og var til að mynda
von á læknum frá herliði Singapore,
en bæði Singapore og Ástralía hafa
heitið aðstoð sinni. „I dag lítur allt
betur út og það virðist vera meira
skipulag á hlutunum," sagði Iskandar
Ramis, aðstoðarhéraðsstjóri Beng-
kulu, sem farið hefur fyrir björgunar-
sveitunum. Hann sagði flugvöll
Bengkulu nú starfhæfan á ný, auk
þess sem senda ætti skip frá sjóhem-
um með læknisaðstoð og neyðar-
birgðir til Enggano eyju þar sem 90%
bygginga eru sagðar hafa eyðilagst.
Einn öflugasti
skjálftinn í áratug
Jarðskjálftinn á sunnudag telst
einn sá öflugasti sem orðið hefur sl.
áratug. Hann átti upptök sín um 112
km úti fyrir ströndum Bengkulu og
mældist 7,9 á Richter-kvarða og var
fylgt eftir af minni skjálfta sem
mældist 6,7 á Richter. Suijadi
Soediija sem fer með samhæfingu
stjómar- og öryggismála Indónesíu
hefur sagt fulla þörf á alþjóðlegri að-
stoð vegna skjálftanna, en fyrstu
kannanir ríkisstjórnaí-innar benda til
þess að tjón vegna skjálftanna nemi
440 milljónum króna.
Skjálftans varð vart bæði á Jak-
arta og í Singapore.
AP
Indónesískur drengur situr ásamt fjölskyldu sinni á rústum hcimilis síns
eftir að öflugur jarðskjálfti reið yflr eyjuna Súmötru á sunnudagskvöld-
ið. Þúsundir eru nú heimilislausar.