Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðuneytisstjdri umhverfísráðuneytisins um formlegt álit Eftirlitsstofnunar EFTA
Bjartsýnn á að fallist verði
á sjónarmið stjórnvalda
RÁÐUNEYTISSTJÓRI umhverfisráðuneytisins,
Magnús Jóhannsson, kveðst bjartsýnn á að ESA,
Eftirlitsstofnun EFTA, muni fallast á afstöðu ís-
lenskra stjómvalda, þegar þau hafa svarað áliti því
sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Magnús
segist telja að útgáfa starfsleyfis fyrir stækkun
járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga hafi
verið í samræmi við íslensk lög og að stækkun
verksmiðjunnar á Grundartanga hafi verið undan-
þegin mati á umhverfisáhrifum, þar sem kveðið
hafi verið á um þriðja og fjórða ofn verksmiðjunn-
ar strax er samningar voru gerðir um byggingu
hennar á sínum tíma.
Þriggja mánaða svarfrestur
ESA hefur gefið íslenskum stjómvöldum þrjá
mánuði til að svara og gera athugasemdir við form-
legt álit það sem stofnunin sendi frá sér í lok síð-
ustu viku. Þar lýsti Eftirlitsstofnunin þeirri skoð-
un sinni, að íslensk stjómvöld hafi með útgáfu
starfleyfis fyrir stækkun járnblendiverksmiðjunn-
ar á Gmndartanga brotið gegn tilskipunum
Evrópska efnahagssvæðisins um mat á umhverfis-
áhrifum og bmgðist þeirri skyldu sinni að kanna
hvort stækkun jámblendiverksmiðjunnar úr
tveimur ofnum í þrjá væri líkleg til að hafa um-
talsverð áhrif á umhverfi sitt.
Magnús benti á að um formleg álit væri að ræða
frá Eftirlitsstofnuninni, en ekki dóm. „Það hefur
alltaf verið skilningur íslenskra stjómvalda að
framkvæmdir sem heimilaðar vom verið fyrir gild-
istöku EES-samningsins væm undanþegnar lög-
um um mat á umhverfisáhrifum."
Magnús segir að íslensk stjórnvöld muni að
sjálfsögðu svara áliti Eftirlitsstofnunarinnar og
koma fram með skýringar og sjónarmið sín í þess-
um efnum, enda sé ljóst um hvað ágreiningurinn
snúist.
Fyrsta stig málsmeðferðar hjá ESA
Umhverfisvemdarsamtökin Sól í Hvalfirði
sendu kæra til ESA í fyrra vegna útgáfuumhverf-
isráðuneytisins á starfsleyfi og sagði Ólafur M.
Magnússon, sem var formaður samtakanna þegar
kæran var lögð fram, að álit Eftirlitsstofnunarinn-
ar væri mikil viðurkenning á baráttu samtakanna
og tekið væri undir þau gmndvallarsjónarmið sem
samtökin hefðu sett fram.
Formleg athugasemd eða formlegt álit frá ESA,
Eftirlitsstofnun EFTA, er fyrsta stig málsmeð-
ferðar hjá stofnuninni, en næsta stig á eftir nefnist
rökstutt álit eða niðurstaða. Jónas Fr. Jónsson,
framkvæmdastjóri þeirrar deildar ESA sem fer
með frjálst flæði fólks, þjónustu og fjármagns, seg-
ir að þetta sé álit Eftirlitsstofnunarinnar eins og
mál standi núna og íslensk stjómvöld hafi nú þrjá
mánuði til að bera fram athugasemdir og skýring-
ar. Meira væri ekki um málið að segja á þessu stigi.
Guðjón Guðjónsson, deildarsérfræðingur í iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu sagði að málið hefði
ekki enn komið inn á borð iðnaðaráðherra og því
hefði ekki verið tekin afstaða til þess.
Magnús Jóhannesson bendir hins vegar á að ný
lög um mat á umhverfisáhrifum hafi tekið gildi sl.
vor og hann telji ekki að uppi sé ágreiningur um
hvort þau samræmist ekki tilskipunum Evrópu-
sambandsins.
Magnús segir ótímabært að vera með getgátur
um framhald málsins. „Ég er bjartsýnn á að skýr-
ingar okkar og sjónarmið muni breyta afstöðu Eft-
irlitsnefndarinnar. Gerist það hins vegar ekki
verður að taka á þeim málum þegar þar að kemur.“
Minnstu munaði að flæddi yfir þjóðveginn vegna hlaupsins í Skaftá
Land-
skemmdir
þegar
orðnar
töluverðar
MINNSTU munaði að flæddi yfir
þjóðveginn í Eldhrauni vestan við
Kirkjubæjarklaustur í fyrrinótt
vegna hlaupsins í Skaftá. Síðan hefur
hlaupið rénað nokkuð og lækkaði
vatnshæð á svæðinu um nokkra
sentimetra á fáum klukkustundum
fyrir hádegi í gær.
Björgvin Harðarson, bóndi á
Hunkubökkum, segir að þrátt fyrir
vatnslækkunina sé hlaupið enn mjög
mikið og landskemmdir þegar orðnar
töluverðar. Hann á von á því að leir
og sandur muni setja mark sitt á
svæðið að hlaupinu loknu og verða til
vandræða.
Björgvin gagnrýnir mjög að vam-
argarður í landi Holts og Skála hafi
áhrif á stefnu hlaupsins og hann og
nærsveitamenn þurfi að súpa seyðið
afþví.
„Veiðifélög í Landbroti settu þenn-
an varnargarð upp sökum vatnsleys-
is, en með því kalla þeir yfir okkur
þessa óáran. Það er með ólíkindum
að horfa upp á þessar landskemmdir,
þegar haft er í huga það starf sem
Landgræðslan vinnur til að reyna að
græða landið," segir Björgvin.
Vatn liggur yfir margra hektara
Morgunblaðið/ Jónas Erlendsson
Bjarni Jón Finnsson, starfsmað-
ur vegagerðarinnar í Vík, mælir
vatnshæðina við þjóðveginn.
Mikið vatn liggur meðfram þjóð-
vegi 1 í Eldhrauni vestan við
Kirkjubæjarklaustur.
landsvæði á jörð Björgvins við Ytri-
Dalsbæ, en Björgvin segir að komast
mætti hjá geysilegum óþægindum
með því að breyta farvegi Skaftár og
beina henni fremur í Langasjó þar
sem sé sandur fyrir og órækt og land
færi fyrir vikið ekki til spillis.
Slysalaus
dagur 24.
ág-úst
Almenningur vakni
til meðvitundar
um sinn þátt
LÖGREGLAN í Reykjavík boðar til
umferðarátaks fimmtudaginn 24.
ágúst. Er yfirskrift átaksins: „Slysa-
laus dagur í umferðinni í höfuðborg-
inni.“ Mun átakið ná til Reykjavíkur,
Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.
Markmið átaksins er, að sögn
Karis Steinars Valssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns, að vekja athygli
ökumanna á þeirra eigin þætti í um-
ferðaröryggismálum.
Tímasetning átaksins er ekki til-
viljun. í kjölfar tíðra alvarlegra slysa
í umferðinni undanfarið þótti tilvalið
að halda það nú. Karl Steinar leggur
áherslu á að átakið sé ekki átak lög-
reglunnar heldur almennings. Mun
fyrst og fremst verða lögð áhersla á
að ökumenn virði hámarkshraða og
stuðli þannig að greiðari og farsælli
umferð. Einnig bendir Karl Steinar
á að of lítil fjarlægð á milli bfla sé
stór orsakaþáttur varðandi árekstra.
Lögreglan mun margfalda fjölda
lögreglumanna, sem verða á vakt í
umferðinni. Von lögreglunnar stend-
ur þó tfl þess að almenningur muni
taka virkan þátt í átakinu svo það
komi til sem minnstra afskipta lög-
reglunnar af ökumönnum.
Brotið á náunganum
Lögreglan hyggst senda bréf til
stórra fyrirtækja, sem hafa stóran
bflaflota á sínum snæmm, og virkja
þau til samstarfs um ömggari akstur
bflstjóra á þeirra vegum. Einnig
stendur til að senda út tölvupóst frá
öllum starfstöðvum lögi'eglunnar,
þannig að hann dreifist sem víðast,
til að minna á átakið og hvetja al-
menning til að taka þátt í því.
Eiður Eiðsson hjá forvarnadeild
lögreglunnar segir það afar mikil-
vægt að almenningur breyti hugsun-
arhætti sínum gagnvart umferðar-
lagabrotum. Það virðist vera ráðandi
hugsunarháttur að umferðarlög séu
haldin í heiðri einungis til að forðast
afskipti lögreglunnar. Fólk geri sér
ekki grein fyrir að þegar það brýtur
umferðarlögin er það að brjóta á ná-
unga sínum en ekki lögreglunni. Al-
menningui’ þurfi því einnig að vera
vakandi fyrir umferðarlagabrotum
og gera athugasemdir við þau ef
hægt er. Líf og heilsa okkar allra er í
húfi.
Fyrirhugaðar útsendingar RÚV frá Ólympíuleikunum í Sydney
Sérsambönd borga
ferðakostnað
tveggja sérfræðinga
Finnlands-
forseti til
Islands
FORSETI Finnlands, Tarja Halon-
en, er væntanleg í opinbera heim-
sókn til íslands í september. Verið er
að ganga frá dagskrá heimsóknar-
innar um þessar mundir.
Tarja Halonen er væntanleg hing-
að til lands með flugvél frá Finnlandi
19. september. Stendur heimsókn
hennar fram á fimmtudagseftirmið-
dag 21. september. Unnið er að
skipulagningu heimsóknarinnar af
hálfu forsetaembætta íslands og
Finnlands og er ráðgert að dagskrá-
in liggi fyrir í næstu viku.
FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND ís-
lands og Sundsamband íslands
greiða sjálf ferðakostnað fyrir Þrá-
inn Hafsteinsson og Guðmund Harð-
arson á Ólympíuleikana í Sydney í
september til þess að þeir geti lýst
atburðum frá keppni í sundi og
frjálsum íþróttum ásamt íþrótta-
fréttamönnum ríkissjónvarpsins.
Ingólfur Hannesson, deildarstjóri
íþróttadeildar Sjónvarps, sagði að
enginn ágreiningur ríkti um þetta
milli íþróttadeildar Sjónvarpsins og
viðkomandi sérsambanda. Jónas Eg-
ilsson, formaður Frjálsíþróttasam-
bandsins, og Benedikt Sigurðsson,
formaður Sundsambandsins, hefðu
verið himinlifandi yfir því að geta
komið sínum mönnum að til að koma
fram sem sérfræðingar í útsending-
um frá Ólympíuleikunum. Hann
hefði ekki heyrt orð um annað en að
þeir væm ánægðir með þetta fyrir-
komulag. Sjónvarpið borgaði gist-
ingu, uppihald og laun, en sérsam-
böndin flugfarið eða hluta af flugfari.
Ingólfur sagði að upphaflega hefði
verið búið að gera ráð fyrir að fimm
manns fæm á vegum sjónvarpsins,
en fækkað hefði verið í fjóra.
íþróttafréttamennimir Samúel Örn
Erlingsson, Geir Magnússon og
Adolf Ingi Erlingsson fara til Sydn-
ey ásamt tæknimanni.
Eftir hefði þá staðið hótelher-
bergi, sem þegar hefði verið pantað.
Nú yrði úr að Guðmundur notaði
þetta hótelherbergi meðan keppni í
sundi stæði yfir og viki síðan fyrir
Þráni þegar keppni í frjálsum íþrótt-
um hæfist.
Benedikt Sigurðsson sagði að
Sundsambandið hefði falið sér að
safna fé til að hægt yrði að senda
Guðmund. Hann sagði að Sundsam-
bandið hefði í tengslum við helstu
mót reynt að fá einhvern úr sínum
röðum til að vera fjölmiðla- eða upp-
lýsingafulltrúi og hefði Guðmundur
verið fenginn til að sinna því, enda
ekki um það deilt að tæpast væri að-
gangur að meiri þekkingu og yfirsýn
annars staðar. Hann sagði að sam-
bandið hefði aflað styrkja til að Guð-
mundur gæti tekið þátt í kynningu
og lýsingu á vettvangi í stað þess að
vera í hljóðveri á íslandi. Hann
kvaðst ekki geta svarað því hver
hefði átt upptökin að þessu fyi’ir-
komulagi, en von stjórnar Sundsam-
bandsins væri að hægt yrði að koma
á föstum samstarfssamningi við
RUV um tiltekna umfjöllun þannig
að hægt yrði að leita stuðnings og
styrktaraðila til að kosta tilteknar
útsendingar.
Jónas Egilsson kvaðst ekki vilja
ræða þessi mál í fjölmiðlum.
J:
M'.
Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari
vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi.
Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum
og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
HEIMILISLÍNAN www.bLh
rfe ■