Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skipverjinn á Guðrúnu SH-235 segist hafa orðið ansi
skelkaður þegar það kviknaði í bátnum
Morgunblaðið/Ásdís
„Hugsaði fyrst og fremst. um að koma mér í burtu,“ segir Heimir Þór ív-
arsson, sem var hœtt kominn þegar bátur hans brann.
Viðræður Læknafélags Islands
og Islenskrar erfðagreiningar
Lagabreyt-
ing hefur
ekki komið til
umræðu
„Hugsaði
fyrst og
fremst um
að koma
mér í
burtu“
ÞAÐ að vera einn um borð í brenn-
andi báti úti á rúmsjó er mikil lífs-
reynsla að sögn Heimis Þórs Ivars-
sonar, 28 ára gamals skipverja á
Guðrúnu SH-235, en eldur kom
upp í bátnum með þeim afleiðing-
um að hann sökk norður af Rifl á
Snæfellsnesi á sunnudaginn.
„Það fór margt í gegnum hug-
ann á mér þegar þetta gerðist og
ég var dj... skelkaður - ég hugsaði
samt fyrst og fremst um að koma
mér í burtu enda var 300 lítra ol-
íutankur úr plasti í bátnurn," sagði
Heimir Þór, sem hefur verið á sjó í
flmm ár. „Sem betur fer sprakk
tankurinn ekki fyrr en ég var
komin um borð í Yri, annan bátinn
sem kom mér til hjálpar."
Lenti í basli með
björgunarbátinn
Heimir Þór sagði að allt hefði
gerst mjög hratt.
„Ég er búinn að leggja sjö bjóð
þegar ég verð var við að reyk
leggur upp úr stýrishúsinu. Ég
rýk strax að hurðinni og ríf hana
upp og fæ mikinn og baneitraðan
reyk á móti mér. Það logaði inni í
húsinu og eldurinn hafði greini-
lega kraumað í einhvern tíma því
hitinn var það mikill.
Ég komst aldrei inn í húsið, en
slökkvitækið var þar. Eini neyðar-
sendirinn sem ég hafði var í björg-
unarbátnum og ég fór því strax
upp á þak og henti bátnum út.
Maður hefði aldrei trúað því að
þetta væri svona fljótt að brenna.
Menn hafa svona 10 til 15 mínútur
til að koma sér í burtu, það er ekki
meira. Um Ieið og olíutankurinn
sprakk varð báturinn alelda,
stafnanna á milli."
Að sögn Heimis Þórs var ágætis
veður á miðunum þegar slysið
varð, en þó gekk crfiðlega að kom-
ast í björgunarbátinn.
Ekki búinn að ákveða
hvort hann fer aftur á sjó
„Ég lenti í smábasli með björg-
unarbátinn. Ég henti honum öfug-
um megin út þannig að hann fyllt-
ist af reyk. Síðan blés báturinn
ekki strax út, það var band sem lá
þvert yfir hann og hefti það að
hann blési út og ég þurfti að skera
á það. Ef ég hefði ekki verið með
hni'f hefði ég aldrei komist í bát-
inn. Það er því alveg Ijóst að það
þarf að rannsaka þetta eitthvað
nánar.“
Heimir Þór sagði að erfltt væri
að gera sér grein fyrir því út frá
hverju hefði kviknað.
„Það er kabyssa í bátnum og
eini eldurinn sem er inni í bátnum
er í henni. Það gæti því hafa
kviknaði í út frá henni, svo hefði
líka geta kviknað í út frá rafmagni
- það er ómögulegt að segja.“
Að sögn Heimis Þórs var bátur-
inn tryggður, en hann sagðist ekki
vera búinn að ákveða hvort hann
myndi fara aftur út á sjó.
„Maður reynir að slappa af núna
enda verð ég hálfblóðlaus í hönd-
um og fótum af stressi þegar ég
hugsa um þetta atvik.“
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær hefur lögreglan í Ólafs-
vík lokið rannsókn sinni í málinu,
en sjópróf verða haldin á næstu
dögum í Héraðsdómi Vesturlands.
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra segir ekkert hafa komið
sér á óvart í viðræðum Læknafélags
íslands og íslenskrar erfðagreining-
ar. Viðræðum var slitið fyrir rúmri
viku án þess að niðurstaða næðist um
helstu ágreiningsmál. Læknafélag
íslands hefur beitt sér fyrir því að
leita upplýsts samþykkis sjúklinga
áður en gögn um þá eru sett í mið-
lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði.
í lögum um gagnagrunninn er hins
vegar ekki gert ráð fyrir slíku sam-
þykki. Aðspurð hvort komi til greina
að breyta lögum um gagnagnmninn
segir Ingibjörg lögin skýr. „I starfs-
leyfinu eru gerðar miklar og ýtarleg-
ar kröfur til fyrirtækisins", segir
Ingibjörg. Hún segir ekki hafa kom-
ið til umræðu að breyta lögunum.
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags íslands, segir að til
þess að viðræður geti hafist að nýju
þurfi íslensk erfðagreining eða
Læknafélag Islands að koma inn í
umræðuna með nýtt sjónarhom eða
skilning og nýjar hugmyndir að
lausn.
Sigurbjörn segir sátt ríkja milli
deiluaðila um að leita eigi samþykkis
einstaklinga fyrir þátttöku þeirra í
gagnagrunni á heilbrigðissviði.
Helsta ágreiningsefnið hafi hins
vegar verið hvernig beri að fara með
upplýsingar um þann hóp fólks sem
svarar ekki beiðni um að taka þátt í
gagnagrunninum. „Við viljum að
gagnagrunnur af þessu tagi sé
grundvallaður á jái frá einstakling-
unum“, segir Sigurbjörn. Hann segir
það hinn almenna skilning sem legið
hafi að baki samþykktaröflunar í vís-
indarannsóknum og það eigi að vinna
eftir þeim skilningi áfram. Sigur-
björn segir ástæðurnar fyrir því að
svar einstaklings liggi ekki fyrir geta
verið af tvennum toga, annars vegar
að ekki náist í viðkomandi en hins
vegar að hann telji það mannréttindi
sín að þurfa ekki að svara slíkri
spurningu.
Sigurbjörn segir það næsta skref í
málinu að upplýsa fulltrúa félags-
manna Læknafélags Islands, á aðal-
fundi félagsins í lok mánaðarins, um
málið og athuga hvort þeir geti gefið
leiðsögn og ráðleggingar.
--------------
Verkstjórar
samþykkja
kjarasamning
Á FUNDI í Verkstjórafélagi
Reykjavíkur sl. mánudag var ný-
gerður samningur við Reykjavíkur-
borg kynntur fyrir starfandi verk-
stjórum hjá borginni og hann síðan
lagður undir atkvæði.
Niðurstaða fundarins var sú að
samningurinn var samþykktur með
29 atkvæðum gegn 1 atkvæði en 4
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Læknafélag Islands afhendir ríkinu erfðagjöf Jóns Steffensen
Bygggarðar 7 keyptir
fyrir Nesstofusafn
Morgunblaðið/Golli
Sigurbjörn Sveinsson (lengst til hægri) afhenti Birni Bjarnasyni
menntamálaráðherra (í miðið) og Geir H. Haarde ljármálaráðherra
gjafagerning Læknafélags íslands.
LÆKNAFÉLAG íslands hefur af-
hent ríkissjóði fyrir hönd Nes-
stofusafns fasteignina Bygggarða
7 á Seltjarnarnesi auk 10,6 mil-
ljóna króna en húsnæðið var keypt
fyrir erfðafé Jóns Steffensens sem
í áratugi var prófessor í líffæra-
fræði við læknadeild Háskóla Is-
lands. Er fjárframlagið einnig
erfðagjöf Jóns. Kveðið er á um að
fasteignina skuli nota fyrir starf-
semi og varðveislu muna lækn-
ingaminjasafns Nesstofu og fjár-
munina skal nota til að endurbæta
fasteignina í samræmi við áætlað
framtíðarskipulag safnsins.
Jón Steffensen arfleiddi Lækna-
félag íslands að tilteknum eignum
sínum og var gjöfin bundin því
skilyrði að fénu skyldi varið ósk-
iptu til frágangs og innréttingar á
framtíðarhúsnæði fyrir muni Nes-
stofusafnsins í þeim útihúsum
Nesstofu sem ríkið hafði keypt í
þeim tilgangi. Skyldi eignunum að
öðru leyti varið til hagsbóta fyrir
Nesstofusafn eftir viðhorfum sem
fram komu í bréfi Jóns til mennta-
málaráðherra árið 1972.
Bætir úr bráðri þörf
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags Islands, minntist
Jóns Steffensens og rakti aðdrag-
anda málsins. Skrifaði hann síðan
undir gjafagerning ásamt Bimi
Bjarnasyni menntamálaráðherra
og Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra. I ræðu sinni við afhending-
una sem fram fór í Nesstofu sagði
Sigurbjörn að eftir ítarlegt samráð
fyrir Félag áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar, Þjóðminjasafn
og menntamálaráðuneytið hafi það
orðið niðurstaðan að kaupa hús-
eignina við Bygggarða. Það myndi
bæta úr bráðri þörf lækninga-
minjasafnsins fyrir viðunandi
geymsluhúsnæði, starfsaðstöðu og
að nokkru leyti sýningaraðstöðu.
Sigurbjörn sagði menn gera sér
grein fyrir að hér væri ekki verið
að leysa húsnæðismál lækninga-
minjasafnsins til frambúðar. „Við
ríkjandi aðstæður er þetta skref
hins vegar óhjákvæmilegt. Það er
mín skoðun að draumurinn um
veglegt og sæmandi lækninga-
minjasafn í Nesi við Seltjörn verði
að veruleika í fyllingu tímans og
verði ævintýri komandi kynslóðum
til andlegrar næringar,“ sagði Sig-
urbjörn undir lok ræðu sinnar.
Læknafélagið bætir við
tveimur milijónum
Læknafélag íslands keypti fast-
eignina Bygggarða 7 á 33 milljónir
króna og eru eftirstöðvar erfða-
fjárins 10,6 milljónir króna.
Læknafélag íslands bætir nú við
tveimur milljónum króna við þá
fjárhæð en á aðalfundum félagsins
hefur verið rætt um málefni Nes-
stofusafnsins og komið fram vilji
félagsmanna í ályktunum um að fé-
lagið legði fram skerf til byggingar
lækningaminjasafns.
Nauðsynlegt þykir að endur-
bæta fasteignina Bygggarða 7 til
að hún fullnægi því hlutverki sem
henni sé ætlað. Áætlaður kostnað-
ur við að koma fasteigninni í viðun-
andi ástand er 15 milljónir króna
og að 10 milljónir til viðbótar kosti
að koma upp sýningaraðstöðu,
vinnuaðstöðu safnvarðar og að-
stöðu til fræðiiðkunar. í gjafagern-
ingnum er kveðið á um að endur-
bæturnar hefjist þegar í haust.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra þakkaði Læknafélaginu
fyrir framtak sitt í málinu og vott-
aði minningu Jóns Steffensens
virðingu sína. Hann minnti á sam-
keppni um nýtt hús fyrir lækna-
minjasafn á Seltjarnarnesi sem
haldin var fyrir tveimur árum en
sagði ekki unnt á næstunni að ráð-
ast í byggingu þess vegna annarra
verkefna. Sagði hann hins vegar
hvergi nærri horfið frá þeim hug-
myndum. Taldi hann kaupin á
Bygggörðum 7 skynsamlega ráð-
stöfun og sagði hann ríkisstjórnina
hafa samþykkt 11. júlí að leggja til
fjármagn til að ljúka framkvæmd-
um við húsnæðið.
Ráðherra afhenti síðan Margréti
Hallgrímsdóttur gjafagerninginn
en Þjóðminjasafnið fer með for-
ræði safnsins fyrir hönd mennta-
málaráðuneytis. Er safnið deild í
Þjóðminjasafninu og deildarstjóri
hennar er Kristinn Magnússon.
Endurbótum ljúki sem fyrst
Margrét Hallgrímsdóttir sagði
marga starfsmenn Þjóðminjasafn-
ins þakkláta fyrir að hafa kynnst
Jóni Steffensen sem aðstoðað hefði
á ýmsa lund við margs konar rann-
sóknir. Hann hefði starfað daglega
að málefnum safnsins eftir að
starfi hans hjá læknadeildinni
lauk. Margrét sagði þjóðminjaráð
hafa samþykkt ályktun í fyrradag
þar sem segir meðal annars: „Með
þessu hefur verið stigið mikilvægt
skref í að tryggja varðveislu muna
Nesstofusafns en ástand núver-
andi geymsluhúsnæðis og starfs-
aðstöðu þess er mjög bágborið og
nýja húsnæðið því afar kærkomið.
Þjóðminjaráð fagnar því að Nes-
stofa fái hér að gjöf húsnæðið að
Bygggörðum 7 sem nýtast mun
sem geymsluhúsnæði og starfsað-
staða fyrir Nesstofusafn. Þjóð-
minjaráð mun beita sér fyrir því að
unnt verði að ljúka endurbótum á
húsnæðinu sem fyrst.
Halldór Baldursson læknir er
formaður Félags áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar. Hann sagði
Jón Steffensen hafa haft forgöngu
um stofnun félagsins og verið
fyrsti formaður þess. Hann sagði
lækna og forráðamenn sjúkrahúsa
vera vakandi fyrir því að senda
safninu muni sem hefðu sögulegt
gildi.