Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Hafnarfjörður
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Körfuboltabúðir í Grafarvogi og Smáranum að bandarfskri fyrirmynd
Morgunblaoið/Halldör Kolbems
Verið er að vinna við „vaskafat.ið" sem umlykja mun vatns-
geymana á Grafarholti.
Hópur áhugafólks um Hörðuvelli efnir til lautarferðar
Mikil andstaða við fyrir-
hugaðar framkvæmdir
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Atli Rafn Hreinsson, 11 ára, hefur lært mikið í búðunum.
Það voru greinilega efnilegir körfuboltamenn á ferð
Grafarvoginum í gær.
Pétur Guðmundsson þjálfar krakkana
eftir Rising Star-kerfinu.
HÓPUR áhugafólks um
Hörðuvelli í Hafnarfírði efnir
til lautarferðar á vellina
næstkomandi sunnudag
klukkan þrjú. Tilefnið er að
mótmæla fyrirhuguðum
áformum bæjaryfirvalda um
byggingu skóla, leikskóla,
íþróttahúss og sundlaugar á
svæðinu. Hópurinn hefur
jafnframt hafíð undirskrifta-
söfnun meðal Hafnfírðinga
þar sem farið er fram á að
Hörðuvallasvæðinu verði
þyrmt.
I fréttatilkynningu frá
hópnum segir að Hörðuvellir
skipi sérstakan sess í huga
flestra Hafnfirðinga, hraunið
í kring sé einstakt og samspil
þess við Lækinn og Lækjar-
svæðið eigi ekki sinn líka inni
í miðjum kaupstað auk þess
sem svæðið hafi tilfinninga-
legt gildi fyrir flesta Hafn-
fírðinga. Þar segir að þær
byggingar sem fyrirhugað er
að reisa á svæðinu muni eyði-
leggja þessa mynd, auk þess
sem svæðið beri engan veg-
inn aukna bílaumferð sem
óumflýjanlega íylgi þeirri
starfsemi sem þarna er fyrir-
huguð. Hópurinn telur að um
allt of stórt og mikilvægt mál
sé að ræða til þess að hægt
sé að afgreiða það af stjóm-
málamönnum og embættis-
mönnum án þess að þeir ráð-
færi sig við bæjarbúa.
Eitt af fáum grænum
svæðum í miðbænum
Sigrid Foss er ein þeirra
sem ekki sætta sig við fyrir-
hugaðar framkvæmdir á
svæðinu. Hún segir að bæj-
arbúar hafi áhyggjur af
framgangi mála og fjölmarg-
ir hafi bæst í hóp þeirra sem
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigrid Foss og Guðfinna Guðmundsdóttir eru í forsvari fyrir hóp Hafnfirðinga sem
berjast gegn skipulagsáformum við Hörðuvelli.
mótmæla áformum bæjaryf-
irvalda. „Það er ekki aðeins
fólk sem býr í grennd við
Hörðuvelli sem er á móti
þessu. Fólk úr öllum hlutum
bæjarins er ósátt við að til
standi að byggja á þessu
svæði sem er eitt af fáum
grænum svæðum sem eftir
eru í miðbænum,“ segir
Sigrid.
Hún segir margar ástæð-
ur liggja að baki óánægju
fólks með fyrirhugaðar
byggingar. „Sumir hafa
áhyggjur af því að lífríki
lækjarins raskist. Foreldrar
í Setbergi eru mjög ósáttir
við að þurfa að senda börn
sin yfir Reykjanesbrautina
til þess að fara í skóla og fólk
er almennt ekki sátt við að
hafa bamaskóla við stóra
stofnbraut. Mörgum finnst
einnig að sjúkrahús fyrir
aldraða fari ekki saman við
skóla, leikskóla og íþróttahús
og þann skarkala sem því
fylgir. Fólk hefur einnig
áhyggjur af aukinni umferð á
svæðinu en Lækjargatan
þolir varla þá umferð sem
myndi fylgja þessari starf-
semi,“ segir Sigrid.
Hi-ingnr myndaður
um svæði sem færi
undir byggingar
Sigrid segist búast við
fjölda fólks í lautarferðina á
sunnudaginn. Hún segir að
ferðin sé meðal annars farin
til þess að efla samstöðuand-
ann meðal fólks sem er á
móti framkvæmdunum. Fólk
geti einnig áttað sig betur á
því hvaða svæði sé að fara
undir byggingar með því að
mæta á staðinn. „Við ætlum
að setja niður stikur nokkum
veginn þar sem byggingarn-
ar verða. Einnig munum við
mynda hring um fyrirhugað
byggingarsvæði með því að
haldast í hendur en þá verð-
ur fjöldi fólks á svæðinu auð-
vitað að vera nægur,“ segir
Sigrid.
Hún hvetur fólk til þess að
mæta með kaffi og með því á
sunnudaginn. Hún segir að
fólk muni setjast niður,
drekka kaffi saman, ræða
málin og syngja hafnfirska
söngva enda sé þetta lautar-
ferð þótt tilefnið sé ekki
ánægjulegt.
„Oánægja meðal fólks er
mikil og mörgum finnast
bæjaryfirvöld hálfpartinn
vera að valta yfir íbúa bæjar-
ins. Mér virðist sem brunað
sé áfram án þess að athugað
sé til hlítar hvaða áhrif fram-
kvæmdirnar munu hafa á
svæðið,“ segir Sigrid.
Hún segir að hópurinn
verði með fleiri uppákomur
fram eftir haustinu og býst
við að undirskriftarlistar
verði afhentir á næstunni.
í Grafarvogi og Smáranum í
Kópavogi eru nú upp undir 100
krakkar í körfuboltabúðum
þar sem æft er eftir kerfi sem
kallast „Rising stars“ eða Rís-
andi stjörnur. Búðirnar eru á
vegum ÍT-ferða en Pétur Guð-
mundsson og Jim Dooley
þjálfa krakkana ásamt aðstoð-
arþjálfurum. Pétur þarf vart
að kynna en hann hefur einn
Islendinga spilað í bandarísku
NBA deildinni og í dag er
hann þjálfari Vals og Fjölnis í
körfubolta. Jim Dooley þjálf-
aði IR og íslenska landsliðið í
körfubolta á árunum 1982 til
1983. Hann býr nú í Pennsylv-
aníu í Bandaríkjunum þar sem
hann rekur sínar eigin körfu-
boltabúðir. Þar er æft eftir
sama kerfi og gert er í búðun-
um hér á landi og hefur Dooley
hannað kerfið.
Áhersla lögð á að
allir fái að njóta sín
Krakkarnir sem sækja búð-
imar á Islandi em á aldrinum
9 til 16 ára og að sögn Péturs
era þeir misjafnlega langt
komnir í körfubolta. „Búðirnar
em bæði fyrir byijendur og
lengra komna. Það era þó
nokkrir hér sem aldrei hafa
æft körfubolta en aðrir hafa
spilað með félagi sínu í nokkur
Baldur Ragnarsson og Eyþór
Almar Sigurðsson era allh-
miklir áhugamenn um körfu-
bolta og skemmta sér vel á
námskeiðinu. Þeir era keyrðir
til Reykjavíkur á hverjum
morgni og að loknu námskeiði
fara þeir aftur heim til Þor-
lákshafnar þar sem við taka
fótboltaæfingar fram á kvöld
en strákarnir era að æfa með
ungmennafélaginu Þór. Þeir
segjast oft vera ansi þreyttir
eftir daginn en það sé vel þess
virði. „Þetta er búið að vera
rosalega skemmtilegt og við
eram búnir að læra mikið. Það
er líka dálítið gaman að hafa
bandarískan þjálfara," segja
strákarnir en þeir segjast ekki
eiga í vandræðum með að
skilja enskuna.
Leikjum er blandað
saman við æfingarnar
ár. Við geram þetta þannig að
allir fá að vera með. Við eram
með stöðvaæfingar og síðan fá
krakkarnir að spiia, annað-
hvort þrír á móti þremur eða
fjórir á móti fjóram. Allir fá að
snerta boltann og nota það
sem þeir hafa verið að læra hjá
okkur,“ segir Pétur.
Að sögn Péturs nær Dooley
vel til krakkanna. „Þetta er
skemmtilegur og hress karl.
Hann er 56 ára gamall og hef-
ur aldrei haft jafn gaman af
þessu og nú. Krakkamir hafa
mjög gaman af honum enda
gerir hann þetta skemmtilega
og blandar til dæmis leikjum
inn í æfingarnar,“ segir Pétur.
Island eins og mitt
annað heimili
Dooley segh- krakkana
standa sig mjög vel og honum
finnst skemmtilegt að fá að
þjálfa aftur á íslandi. „Ég á
marga góða vini hér og nýt
þess að koma hingað. Börnin
mín gengu í skóla á íslandi á
sínum tíma og mér finnst land-
ið vera eins og annað heimili
mitt. Mér finnst sérstaklega
skemmtilegt að margir jieirra
sem era hér í búðunum eiga
feður sem ég var að þjálfa á
sínum tíma. Það er gaman að
fá að fylgjast með nýrri kyn-
slóð sýna hvað í henni býr,“
segir Dooley.
Atli Rafn Hreinsson er úr
hópi þeirra sem eiga feður sem
Dooley hefur þjálfað en faðir
Atla er Hreinn Þorsteinsson
körfuboltamaður. Atli, sem er
11 ára, er nemandi í Villinga-
holtsskóla og er því kominn
um nokkuð langan veg til þess
að sækja námskeiðið. Hann
hefur æft körfubolta í 2 til 3 ár
og er líka að æfa frjálsar.
„Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt,“ segir Atli en
hann varð þó fyrir því óláni að
meiðast á ökkla og þurfti því
að sitja á bekknum í gær. Atli
á fleiri áhugamál en körfubolta
og fijálsar en hann gerir með-
al annars mikið af því að fara á
hestbak með föður sínum enda
eiga þeir feðgar hesta.
Fjórir vinir úr
Þorlákshöfn mæta á
hverjum inorgni
Þeir Hjörtur Ragnarsson,
Heiðar Snær Magnússon,
Vaskafat utan
um vatnsgeyma
Grafarholt
MIKLAR framkvæmdir
standa nú yfir í Þúsaldar-
hverfinu í Grafarholti þar
sem nýjasta hverfi höfuð-
borgarinnar er að rísa.
Orkuveita Reykjavíkur er
meðal þeirra aðila sem þar
standa í stórræðum.
Að sögn Tómasar Hans-
sonar, forstöðumanns áætl-
anadeildar á framkvæmda-
sviði, er fyrirtækið með þijú
verk í gangi í Grafarholti. í
fyrsta lagi er verið að selja
svokallað „vaskafat" utan
um hitaveitugeymana efst á
holtinu. Vaskafatið er um
það bil metra hár veggur,
sem umlykur geymana og er
öryggismannvirki til að
hindra að vatn flæði yfir
byggðina gefi heitavatns-
geymir sig. Tómas sagði að
vegna þessa mannvirkis
mundi ásýnd geymanna
breytast nokkuð en ekki
væru aðrar útlitsbreytingar
ráðgerðar á þeim að svo
stöddu.
Einnig er Orkuveitan að
lækka Nesjavallaæðina, sem
liggur um Reynisvatnsheiði
og upp í holtið og er í þær
framkvæmdir ráðist til að
greiða fyrir gatnagerð í nýja
hverfinu. Loks er verið að
byggja upp dreifíkerfi orku-
veitunnar í holtinu og Ieggja
lagnir fyrir kalt og heitt
vatn, rafmagn og sfma.
Grafarvogur