Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
skemintír
dags- og laugar-
dagskvöld
Göða kelgí
Vel
heppnuð
Hólahátíð
FJÖLMENNI sótti Hólahátíð sem
haldin var um liðna helgi í blíðskap-
arveðri, en hátíðin stóð að þessu
sinni í tvo daga. Hólahátíð hefur
verið haldin frá árinu 1950 eða í
hálfa öld. Meðal þess sem í boði var
má nefna gönguferð að Gvendar-
skál með leiðsögn fyrri dag hátíðar-
innar og þá var einnig boðið upp á
dansatriði.
Á Hólahátíð sl. sunnudag flutti
Hjörtur Pálsson frumsaminn ljóða-
flokk, Ilólaljóð, Sigrún Eðvalds-
dóttir fiðluleikari lék verk eftir
Bach. Við messu predikaði séra
Dalla Þórðardóttir, en séra Guð-
björg Jóhannesdóttir, séra Ragn-
heiður Jónsdóttir og séra Bolli
Gústavsson þjónuðu fyrir altari.
Halldór Blöndal forseti Alþingis
flutti hátíðarræðu á Hólahátíð og
fjallaði m.a. um nýliðna kristnihátíð
á Þingvöllum og fjölmiðlaumfjöllun
um hana, hátíðin hefði verið vel
heppnuð en hann velti fyrir sér
hvort gagnrýni á hana væri heiðar-
leg eða byggðist á skemmdarfýsn.
Leiðangur að flaki breskrar flugvéiar milli Öxnadals og Eyjafjarðar
Sex menn ur breska flughernum
og fjórir Islendingar taka þátt
Leiðangurinn hefst strax eftir helgi
SEX björgunarsveitarmenn úr
breska flughemum í Skotlandi eru
væntanlegir til Akureyrar á laugar-
dag en þeir munu taka þátt í leið-
angri að flaki bresku sprengjuvélar-
innar sem fannst í jökli á hálendinu
milli Öxnadals og Eyjafjarðar í ágúst
í fyrra. Fjórir Islendingar munu
taka þátt í leiðangrinum og þá verð-
ur ljóst á sunnudag hvort breski her-
inn hafi tök á að leggja til þyrlu en ef
svo verður munu sex menn verða í
áhöfn hennar og taka þátt í leiðan-
grinum. Vélin sem um ræðir fórst í
maí árið 1941 með fjórum mönnum
innanborðs.
Legsteinar tilbúnir í
Fossvogskirkjugarði
Hörður Geirsson safnvörður á
Minjasafninu á Akureyri, einn þeirra
sem fann flak vélarinnar síðasta
sumar eftir 20 ára leit, sagði að
stefnt væri að því að hefja leiðangur-
inn næsta mánudag, 21. ágúst, og
væri áætlað að hann tæki um fjóra
daga. Tilgangur leiðangursins er að
sækja líkamsleifar mannanna sem
fórust með vélinni en þær liggja á yf-
irborði jökulsins. Legsteinar mann-
anna, þriggja Breta og eins Nýsjá-
lendings hafa verið útbúnir í
Fossvogskirkjugarði.
Vélin flaug frá Melgerðismelum,
út Eyjafjörð og yfir Ákureyri þar
sem hún hnitaði hringi til að hækka
flugið og hvarf hún mönnum sjónum
þar í ský. Til vélarinnar heyrðist frá
vegagerðarmönnum í Öxnadal og
einnig heyrðu hermenn á Melgerðis-
melum til hennar skömmu áður en
hún fórst. Mikil leit var gerð að vél-
inni en hún fannst tveimur dögum
síðar. í skýrslu leitarmanna sem
höfðu aðsetur á Bakka í Öxnadal
kemur fram að ekki hafi verið talið
mögulegt að safna líkamsleifum
mannanna sem fórust saman en
skýrslan varð þó til þess að hægt var
að staðsetja flakið á gömlu korti frá
breska hernum.
Hörður sagði að farin hefði verið
leiðangur í byrjun september í fyrra
að vélinni en þá var nokkurt snjólag
yfir svæðinu og því ekki hægt að
leita eins nákvæmlega og skipulagt
hafði verið. Þá fannst eitthvað af
beinum, brak úr vélinni, fataleifar og
fleira sem safnað var saman en farið
var með málmleitartæki um svæðið
og fannst stór hluti vélarinnar á um
70 sentímetra dýpi í jöklinum.
Óvissa um
árangur
Hörður sagði að vitanlega væri
óvissa ríkjandi um árangur leiðang-
ursins nú. „Við enim að skipuleggja
leiðangurinn en horfum vissulega
fram á að brugðið getur til beggja
vona. Það getur farið svo að við verð-
um þarna uppi á jöklinum í snjó-
komu og þá er lítið hægt að gera en
við vonum það besta,“ sagði Hörður.
Hann sagði að mikill áhugi væri
fyrir þessum leiðangri meðal fjöl-
miðla í Bretlandi og myndu þó
nokkrir þarlendir blaða- og frétta-
menn koma til landsins af þessu til-
efni til að fylgjast með.
Vegurinn í Herðubreið-
arlindir fór í sundur
Viðgerð
hefst í dag
STARFSMENN Vegagerðarinnar á
Akureyri mun hefjast handa við að
laga veginn sem fór í sundur norðan
við Herðubreiðarlindir í gærdag, en
hann fór í sundur á kafla eftir að Jök-
ulsá á Fjöllum flæddi yfir hann.
Guðmundur Svafarsson, umdæm-
isstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri,
sagði að veginum hefði verið lokað í
gærmorgun eftir að áin braut úr
honum. Gert verður við veginn til
bráðabirgða nú, að sögn Guðmund-
ar, gerð slóð við hlið hans, en hann
gerði ráð fyrir að varanlegar endur-
bætur yrðu gerðar næsta sumar.
Hann áætlaði að tjónið næmi um
einni milljón króna.
Meðal skemmtiatriða voru þjóðdansar.
MorgiinblaðuWalgeir Bjarnason
Á Hólahátið var m.a. boðið upp á gönguferð að Gvendarskál.
Úrskurður skipuiagsstjóra um áframhaldandi kísilgúrvinnslu úr Mývatni
Fjórar kærur
bárust umhverf-
isráðherra
FJÓRAR kærur höfðu borist til um-
hverfisráðherra vegna úrskurðar
skipulagsstjóra ríkisins um áfram-
haldandi kísilgúrvinnslu úr Mý-
vatni, en kærufrestur rann út í gær.
Sigríður Auður Arnardóttir, deild-
arstjóri lögfræðideildar umhverfis-
ráðuneytisins, sagði að verið gæti að
fleiri kærur bærust, en póststimpill
gildir.
Þeir sem þegar hafa sent inn kær-
ur vegna úrskurðar skipulagsstjóra
eru Náttúruvernd ríkisins, Náttúru-
rannsóknarstöðin við Mývatn, Kári
Þorgrímsson og Gylfi Ingvarsson
sendu inn sameiginlega kæru og
fjórða kæran er frá Ingólfi Ásgehá
Jóhannessyni.
Sigríður sagði að kærurnar yrðu
sendar út til umsagnar til þeirra
sem lögum samkvæmt eiga um þær
að fjalla og þá yrði kærendum gef-
inn kostur á að tjá sig að nýju eftir
að umsagnir um kærurnar lægi fyr-
ir. Að sögn Sigríðar Auðar hefur
ráðuneytið 8 vikur til að kveða upp
úrskurð sinn, þannig að gera mætti
ráð fyrir að hann félli 12. október
næstkomandi.
Féllst á efnistöku á nýju
svæði með skilyrðum
Skipulagsstjóri féllst í júlí síðast-
liðnum á efnistöku Kísiliðjunnar á
nýju námasvæði á Bolum í Syðri-
Flóa, en þar er svæði sem talið er
geta séð fyrirtækinu fyrir hráefni í
ríflega 30 ár. Hráefni á núverandi
námasvæði Kísiliðjunnar í Ytri-Flóa
mun að líkindum ganga til þurrðar
eftir um tvö ár, þannig að forsvars-
menn verksmiðjunnar óskuðu eftir
því að fá að hefja námavinnslu á
hinu nýja svæði.
Skýrsla um mat á áhrifum þess að
hefja töku kísilgúrs á nýjum svæð-
um á náttúru Mývatns og byggð við
vatnið var lögð fram í september á
síðasta ári. I kjölfarið úrskurðaði
skipulagsstjóri að frekari rannsókn-
ir þyrftu að fara fram á áhrifum
vinnslunnar á lífríki vatnsins.
Skýrsla um frekara mat lá fyrir síð-
asta vor og var hún lögð fyrir skipu-
lagsstofnun. Skipulagsstjóri kvað
um miðjan júlí upp þann úrskurð að
Kísiliðjunni væri heimilt að hefja
vinnslu á umræddu svæði, en taldi
að enn skorti upplýsingar um náma-
vinnslu á núverandi námasvæði
verksmiðjunnar. Ýmis skilyi'ði voru
þó sett í úrskurði skipulagsstjóra
fyrir námavinnslunni.
Lögum samkvæmt er heimilt að
kæra úrskurð skipulagsstjóra til
umhverfisráðherra og sem fyrr seg-
ir rann kærufrestur út í gær. Gera
má ráð fyrir að endanleg niðurstaða
fáist í málinu eftir 8 vikur eða fyrir
miðjan október.
Djass á heitum
fímmtudegi
Robin
Nolantríó
leikur
HIÐ víðþekkta Robin Nolan
tríó leikur á áttunda Tuborg-
djassi á heitum fimmtudegi
sem verður í Deiglunni á veg-
um Listasumars á Akureyri í
Deiglunni í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 17. ágúst, og hefjast
tónleikarnir kl. 21.30.
Heimsókn tríósins til Akur-
eyrar er liður í djassgítarhátíð
á Listasumri en þeir félagar í
tríóinu, Robin Nolan, Rune
Gustafsson og Odd-Arne Jak-
obsen, leiðbeina einnig á dan-
jodjassgítarnámskeiði í Tón-
listarskólanum. Á föstu-
dagskvöld leika þeir Rune
Gustafsson og Odd-Arne Jak-
obsen í Deiglunni og loks verða
tónleikar á laugardagskvöld á
sama stað með nýrri efnisskrá
Aðgangur er ókeypis á tón-
leikana í kvöld sem þakka ber
þeim fyrirtækjum sem styrkja
og kosta þessa starfsemi, en
þau eru: Olgerð Egils Skalla-
grímssonar, Karolína-restaur-
ant, Akureyrai'bær, KEA,
Sparisjóður Norðlendinga,
VSÓ-ráðgjöf á Akureyri og
Kristján Víkingsson. Aðgangur
að tónleikunum föstudags- og
laugardagskvöld er 1.000 krón-
ur. Fólki er bent á að koma tím-
anlega til að ná sér í sæti.