Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 21

Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 21 Vetrar í Kringlunni opnun mán.-miö. 10:00- 18:30 fim. 10:00-21:00 fös. 10:00-19:00 lau. 10:00- 18:00 sun. 13:00 - 17:00 Veitingastaðir og Kringlubíó eru með opió lengur á kvöldin og um helgar. Nýkaup er opið til 19:00 mán.-miö. Aukin þjónusta: Opið á sunnudögum í vetur. i KvU\Ci(c<)\ Þ fl R 5 E M /h J II R T H fl 5 L fE R UPPIÝ51NGRV i M 1 5 8 8 / 7 8 0 5 K fll F J I Q f U. S I M l 5 0 8 9 l 0 11 NEYTENDUR Niðurstöður nýrrar breskrar rannsdknar á farsímageislun Handfrjáls búnaður dreg- ur úr geislun Stangast á við fyrri rannsókn Samkvæmt niður- stöðum nýrrar breskrar rannsóknar dregur handfrjáls búnaður á farsímum úr áhrifum geislunar. Stangast þetta á við rannsóknir sem bresku neytenda- samtökin gerðu ný- verið. Sigríður Dögg Auðunsddttir veit ekki hvor rannsóknin er marktækari. Morgunblaðið/Ami Sæberg Sumir hafa keypt handfrjálsan búnað til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif geislunar. HANDFRJÁLS búnaður á farsíma dregur úr örbylgjugeislun við höfuð notandans, samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn sem styrkt var af bresku ríkisstjóminni sem birtar voru fyrir skömmu. Niðurstöðurnar eru í helberri mótsögn við skýrslu sem bresku neytendasamtökin birtu í apríl sl. og greint var frá í Morgunblaðinu um sama leyti. Þar kom fram að handfrjáls búnaður á farsímum þrefaldi örbylgjugeislun við höfuð notandans og magni þannig áhrif geislunar á heilann. Rannsóknimar sem birtar em nú draga þessar niðurstöður hins veg- ar verulega í efa og fullyrða jafnvel hið gagnstæða. Skýrsla bresku neytendasamtak- anna í apríl stuðaði mjög farsíma- notendur í Bretlandi, sem höfðu í auknum mæli fjárfest í handfrjáls- um búnaði til þess að reyna að koma í veg fyrá skaðleg áhrif geislunar frá símunum. Hún sýndi að hand- frjálsi búnaðurinn gerir illt verra og virkar sem eins konar loftnet og beinir allt að þrefalt meiri geislum frá símanum að höfðinu en þegar talað er í símann án búnaðarins. Niðurstöðumar voru sagðar koma verulega á óvart og vöktu þær mikla fjölmiðlaumfjöllum. I kjölfar- ið hætti fjöldi notenda að nota hand- frjálsa búnaðinn og upp vöknuðu spurningar um almenna skaðsemi farsíma. Skýrslan hleypti jafnframt illu blóði í farsímaframleiðendur sem töldu hana ekki byggja á áreiðan- legum niðurstöðum og í kjölfarið hleyptu bresk yfirvöld af stokkun- um viðamikilli rannsókn sem skyldi skera úr um þetta. Ágreiningur ruglar neytendur Niðurstöðurnar úr nýju rann- sókninni ganga þvert á niðurstöður bresku neytendasamtakanna og gefa til kynna að handfrjáls búnað- ur dragi verulega úr geislun við höf- uð notandans. Samkvæmt niður- stöðunum nú er hægt að draga úr geislun með hjálp handfrjáls búnað- ar með því að snúa símanum þannig að lyklaborðið snúi að líkamanum. Enn fremur eiu gefnar ráðlegg- ingar um frekari varúðarráðstafan- ir sem felast í þvi að notendur láti snúruna úr heymartækinu hanga lauslega niður frá eyranu og reyni jafnframt að koma í veg fyrir að snúran snerti loftnet símans. Nýju niðurstöðurnar hafa komið af stað mikilli ringulreið og neyt- endur vita vart hverju þeir eiga að trúa. Talsmenn yfirvalda segja nið- urstöðumar „afar áreiðanlegar“ og að þær séu jafnframt í takt við fyrri rannsóknir. Áströlsku neytendasamtökin birtu í síðustu viku niðurstöður úr svipuðum rannsóknum og komust að þeirri niðurstöðu að handfrjáls búnaður minnkaði áhrif geislunar frá farsímum um 92%. Bresku neytendasamtökin neita hins vegar að draga niðurstöður rannsóknar sinnar frá í efa og segja nýju niðurstöðumar nú „ekki endi- lega lokaniðurstöður". Samtökin halda því fram að rann- sóknin sem studd var af ríkisstjóm- inni hafi upphaflega miðast við að kanna símana sjálfa fremur en handfrjálsa búnaðinn og að aðferð- irnar sem notaðar hafi verið séu enn fremur nýjar af nálinni. Þau hafa samt sem áður gefið út yfirlýsingu um að ætlunin sé að framkvæma frekari rannsóknir til þess að greiða úr þessum mglingi. Ráðleggingar fyrir farsímanotendur En hvað eiga farsímanotendur að gera til þess að koma eftir bestu getu í veg fyrir skaðleg áhrif far- símageislunar? Ef notendur hafa miklar áhyggj- ur af áhrifum geislunar er besta ráðið að draga sem mest úr notkun farsímans eða hætta að nota hann. Þeir sem þurfa að reiða sig vera- lega á notkun símans ættu hins veg- ar að taka eftirfarin atriði til athug- unar: ► Gangið úr skugga um að snúr- an úr heymartækinu hangi laus nið- ur frá eyranu. ► Haldið snúranni frá loftneti símans. ► Forðist að láta símann vera í beinni snertingu við líkamann. ► Ef síminn er borinn í vasa eða á belti, látið takkaborð hans alltaf snúa að líkamanum. Alltaf undir hættumörkum Þrátt fyrir að skaðsemi farsíma sé afar umdeild núna skal þó bent á að allir símar sem rannsóknin náði til gáfu frá sér geislun sem er vel innan þeirra hættumarka sem al- þjóða geislavarnaráðið hefur sett varðandi þetta. Þótt ekkert þyki benda til þess að niðurstöður fáist enn um sinn í þessum efnum em menn sammála um að alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir þurfi að fara fram ef komast á til botns í almennri skað- semi farsíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.