Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 28

Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Áhöfnin á Kúrsk. Skipstjórinn, Gennadý Ljatsín, heilsar að hermannasið. Myndin var tekin af sjónvarpsskjá í niaí er kafbáturinn var í flotabækistöð á Kólaskaga en ekki var greint frá heiti hennar. Reuters Móðir og sonur (efst t.v.) eins af skipverjunum um borð í Kúrsk. Þau komu til Múrmansk á þriðjudagskvöld. Aðstæður á Barentshafi afar erfiðar BJORGUNARTiLRAUNIR I BARENTSHAFI Eftir tvær misheppnaðar björgunartilraunir á þriðjudag reyndi rússneski flotinn að festa björgunarhylki á skrokk Kúrsk í gær og bjarga þannig sjóliðunum sem fastir hafa verið í bátnum sem hvílt hefur á botni Barentshafs síðan um helgina. Hefur breski flotinn sent LR5- smákafbát áleiðis á slysstað Ekki er Ijóst hve miklar súrefnis- birgðir eru eftir í kafbátnum en áhöfnin er talin hafa slökkt á kjarna- kljúfunum tveimur er Kúsk sökk Björgunar- skip Kúrsk liggurá um 108 metra dýpi og vísar fram- stafn bátsins niður á við og er f um 60° halla BJÖRGUNARHYLK 1 FLOTBYTNUR LR5 Björgunar- lúgur Lengd: Þyngd: Mesta dýpi: Köfunargeta Rými: 9.8 metrar 21 tonn 550 metrar 8 klst. 3 í áhöfn + 16 farþegar Reynt hefur verið aðfesta a.m.k. tvö björgunarhylki við kafbátinn. Hvort um sig rúmar 20 sjóliöa. Tvær 400 tonna flotbytnur Bretar hafa sent áleiðis gætu lyft Kúrsk af hafs- björgunarkafbát sem botni á minna dýpi þar kafarar geta unnið að björgun. hugsanlega getur fest sig við skrokk Kúrsk. REUTERS# SJÓLIÐAR sem reynt hafa linnu- laust að bjarga áhöfn rússneska kaf- bátsins Kúrsk, sem legið hefur á hafsbotni í Barentshafi síðan á laug- ardag, urðu frá að snúa í gær vegna afar óhagstæðra skilyrða í sjónum. Sterkir hafstraumar á svæðinu og aðeins nokkurra sentimetra skyggni auk slæmra veðurskilyrða ofansjáv- ar gerðu björgunarmönnum afar erf- itt um vik og í gær virtust möguleik- ar á björgun 118 manna áhafnar Kúrsk fara minnkandi með hverri klukkustund sem leið. Heimildum um það hversu miklar súrefnisbirgðir eru eftir í Kúrsk ber ekki saman en ljóst er að kafbátur- inn er sambandslaus við umheiminn og ekki hefur verið unnt að dæla súr- efni um borð í kafbátinn. Þrátt fyrir að sjóliðar hafi gefið frá sér morse- merki með slætti á byrðing bátsins er óljóst hvort eða hversu margir eru á lífi enda hafa fregnir um að um- fangsmiklar skemmdir hafi orðið á framenda bátsins orðið til þess að sérfræðingar telja að allt að tveir þriðju hlutar áhafnar hafi látist skömmu eftir slysið. Mestar Iíkur á sprengingu Sérfræðingur hernaðartímaritsins Jane’s taldi í gær að mestar líkur væru á því að sprenging í framenda Kúrsk - flugskeytarýminu - hafi valdið því að báturinn sökk eftir flotaæfingar sl. laugardag og að Veder-flugskeyti hafi sprungið með þeim afleiðingum að gat hafi komið á þrýstingsbyrðing. Hugsanlegt er talið að sprengingin hafi orðið í vetni er safnast hafi saman í rafgeymum sem staðsettir eru í fyrsta eða öðru rými Kúrsk (alls eru tíu rými í bátn- um). Þetta hefði orðið til þess að sjór flæddi inn í bátinn og stafnhalli Kúrsk raskast. Líklegt er að í björg- unartilraunum skipstjórans, Genna- dýs Ljatsíns, hafi báturinn skorðast af með 60° halla eins og skýringar- myndir hafa sýnt og í sömu andrá lokast fyrir inntöku kælivatns fyrir kjamakljúfana tvo fyrir miðjum bát. Aðstæður um borð eru þvi afar háð- ar því hvort tekist hafi að nýta raf- geyma Kúrsk en í nokkrum frétta- skeytum ITAR-TASS fréttastof- unnar hefur því verið haldið fram að vegna fjárskorts gæti verið að Kúrsk hafi jafnvel látið úr höfn án raf- geyma. Á skýringarmyndum sem frétta- mönnum voru sýndar í höfuðstöðv- um rússneska flotans í Moskvu í gær gaf að líta brak á hafsbotninum í kringum Kúrsk og sást einnig inn í skotraufar fyrir flugskeyti sem bendir til þess að mikil sprenging hafi þeytt lokum frá. Þá er talið að slysið hafi átt sér stað svo snögglega að ekki hafi unnist tími til að senda merkjabaujur upp á yfirborðið en samkvæmt öryggisáætlunum kaf- báta er slíkt gert um leið og nauð krefur. Hefur það einnig valdið mikl- um áhyggjum sérfræðinga að svo virðist sem áhöfnin hafi ekkert reynt að nota björgunarhylki. Ónafngreindir heimildamenn inn- an rússneska flotans sögðu í gær að allt að tveir þriðju hlutar áhafnar Kúrsk hefðu, undir venjulegum kringumstæðum, verið staðsettir í fremstu rýmunum fjórum sem, eftir myndum að dæma, hafa líklega verið lokuð af vegna leka. „Litlar líkur eru á að um 75 menn af 116 [innsk. 118] manna áhöfn, séu á lífi og það er við því að búast að yfirstjóm flotans til- kynni brátt um þetta,“ segir einn heimildarmanna netúgáfu rússneska dagblaðsins Gazeta. Allar björgunartilraunir til þessa hafa mistekist og hefur yfirstjóm rússneska flotans greint frá því að allt þar til í gær hafi tvisvar sinnum verið reynt að festa neðansjávar- hylki, svonefnda björgunarbjöllu sem rúmað getur 20 manns, við neyðarlúgur sem staðsettar em ofan á kafbátnum. Þá hafa tveir rússnesk- ir björgunarkafbátar, Priz og Best- er, verið á sveimi í kringum Kúrsk og reynt að ná festu við útgöngulúg- ur. En sökum hallans á Kúrsk, sterkra hafstrauma og afar slæms skyggnis í sjónum urðu björgunar- menn frá að hverfa. Fram að annarri björgunartilraun höfðu menn heyrt slátt á byrðing skipsins sem þeir greindu sem SOS (e. save our souls). í gær hafði ekki heyrst til þessara sendinga en tals- menn flotans sögðu að það væri þó ekki endilega merki um að ekkert lífsmark væri um borð, aðeins hafi verið unnt að merkja hljóðin er smá- kafbátar eða björgunarbjallan hafi HEITI borgarinnar Kúrsk í suð- vesturhluta Rússlands, sem kafbát- urinn á botni Barentshafs er nefnd- ur eftir, er sveipað sögulegum dýrðarljóma í huga Rússa. Margir af skipverjum kjarnorkukafbátsins, sem er eitt af nýtískulegustu skip- um flotans, eru frá borginni. Kúrsk er ein af elstu borgum landsins, er getið í skjölum frá 1032. Við Kúrsk háðu hersveitir Sovétríkjanna og Þýskalands Hitlers mestu skrið- drekaorrustu allra tíma í júlí og ágúst 1943. verið þétt upp að Kúrsk og þá væri einnig hugsanlegt að áhöfnin væri að spara súrefni og hvílast. Að mati rússneskra sérfræðinga er hugsanlegt að reisa kafbátinn upp lóðrétt með því að hífa afturendann upp fyrir yfirborð sjávar. Kúrsk liggur á rúmlega 100 metra dýpi en sjálfur er báturinn um 154 metrar á lengd og ætti slík björgun því að vera fær, í orði, þótt slíkt hafi aldrei verið reynt áður. Talsmenn hersins sögðu að ef björgunarbátar næðu ekki festu eða ef lúgur opnist ekki muni þessi leið verða reynd. Hugs- anlegt er því að slíkt verði reynt í Ijósi þess að ólíklegt er að veður og aðstæður á slysstað batni á næst- unni. Annar möguleiki sem greint hefur verið frá er að reynt verði að hífa bátinn allan upp í um 30-50 metra Þjóðverjar reyndu að ná aftur frumkvæðinu í stri'ðinu á austur- vígstöðvunum eftir að hafa tapað við Stalíngrad um áramótin og söfnuðu saman nær milljón manna liði við Kúrsk 5. júlí til að taka borgina. Alls munu um 6.000 skrið- drekar, 4.000 flugvélar og allt að tvær milljónir manna hafa tekið þátt í orrustunni. Sovétmenn gerðu gagnárás 12. júlí og stöðvuðu sókn Þjóðveija. Orrustan við Kúrsk markaði þáttaskil í heimsstyrjöld- inni síðari. Eftir hana voru Þjóð- dýpi með aðstoð tveggja flotbytna sem vega 400 tonn hvor. Myndi þetta gefa köfurum færi á að athafna sig betur og líkur á björgun aukast. Sérfræðingar telja að samkvæmt lýsingum á skemmdum og líklegum viðbrögðum áhafnar við þeim megi gera ráð fyrir því að þrýstingur um borð hafi hækkað verulega sem get- ur reynst mönnum hættulegt. Þá er mikil hætta á að sjór komist í tæri við rafgeyma bátsins en við það myndast gastegundir. Spár rúss- neska flotans um að súrefnisbirgðir muni duga þar til á morgun, í það minnsta, benda þó til þess að um borð sé búnaður sem hreinsar gas. Óvíst er þó hvort sá búnaður virkar. Telja sérfræðingar að það sé ekki skortur á súrefni sem sé áhöfninni bráðhættulegur heldur fremur hitt að mesta hætta stafi af auknu magni veijar stöðugt í vörn á austur- vígstöðvunum og stríðinu lauk síðan með falli Berlínar og ósigri nasista vorið 1945. Kúrskhérað er með um hálfa aðra milljón íbúa og héraðsstjóri er nú Alexander Rútskoj. Hann var um árabil varaforseti Rússlands en gerðist einn helsti leiðtogi þingsins er það gerði uppreisn gegn Borís Jeltsín forseta haustið 1993. Lauk þeim deilum með því að Jeltsín lét herinn ráðast með skriðdrekum á húsakynni þingsins. koltvísýrings í lofti sem leiði til að menn missi meðvitund. Þá er talið víst að lítið sem ekkert ljós sé um borð í Kúrsk og gæti aðstaðan verið enn veni ef t.a.m. mikill sjór hefur flætt inn í þau rými sem ekki eru lek. Þá er öruggt að hitastig um borð í Kúrsk hafi fallið verulega á undan- fömum sólarhringum og ekki vitað hversu vel sjóhðar eru búnir. Örvæntingartilraunir? Aftenposten greinir frá því að rússneski flotinn hafi ætíð talið að Kúrsk og aðrir kafbátar af Oscar II- gerð séu svo fullkomnir að í þeim hafi ekki þurft að koma fyrir björg- unarbúnaði, s.s. björgunarhylkjum eins og títt var um eldri báta og hægt var að nýta í miklu hættuástandi. Einar Inge Skorgen, yfirmaður í hernum, segir í samtali við blaðið að Rússar hafi áður tjáð sig um að ómögulegt sé að Kúrsk geti sokkið og því engin ástæða að koma björg- unarbúnaði fyrir um borð. Þá er ótalinn sá möguleiki að skip- stjóri Kúrsk reyni í öi'væntingu, ef allt annað þrýtur og súrefni er að þrotum komið, að gangsetja annan kjarnakljúfa bátsins. Er þetta eina vísa leiðin til að „hreinsa" loftið og fá súrefni fyrir áhöfnina. Gangsetning sem slík myndi þó ekki þýða að Kúrsk gæti komist upp á yfirborðið fyrir eigin vélarafli í ljósi þess að íjögur af tíu rýmum bátsins eru full af sjó að mati Skorgen. Björgun áhafnar Kúrsk er kapp- hlaup við tímann og í Ijósi afar slæmra aðstæðna á slysstað eru sérfræðingar vonlitlir um árangur. Rússneski flotinn hefur sagt að eina vonarglætan sé fólgin í því hversu grunnt báturinn liggur. Mesta skriðdrekaorrusta stríðsins var háð við Kúrsk Sveipuð sögulegum ljóma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.