Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Framtíð Concorde óljós
í kjölfar flugbanns
París, London. Reuters.
SU ákvörðun rannsóknarnefnda
flugslysa í Bretlandi og Frakklandi
að mæla með því að flughæfisskír-
teini Concorde yrði ógilt var erfið en
óhjákvæmileg, sagði Paul-Louis
Arslanian, yfirmaður frönsku nefnd-
arinnar (BEA), í gær. Áhyggjur
hans af öryggi þotunnar urðu til þess
að bresk og frönsk flugmálayfirvöld
afturkölluðu flugleyfi þotnanna.
113 manns létust er Concorde í
eigu franska fiugfélagsins Air
France fórst í flugtaki í síðasta mán-
uði. Rannsakendur segja nú einsýnt
að hjólbarði á vélinni hafi sprungið,
og hluti úr honum hafi gert gat á
eldsneytistank í væng vélarinnar
með þeim afleiðingum að eldur varð
laus. Einungis Air France og breska
flugfélagið British Airways (BA)
eiga Concorde. Þotum Air France
hefur ekki verið flogið síðan slysið
varð, en BA stöðvaði flug þeirra í
gær er fregnir bárust af tilmælum
rannsóknamefndanna.
Arslanian kvaðst í gær vona að
Concorde ætti eftir að fljúga á ný.
„Coneorde er einstakt tákn. Tákn
um framfarir,“ sagði hann á frétta-
mannafundi. Ennfremur kom fram í
máli hans að rannsóknarnefndin
teldi að hjólbarði hefði sprungið og
sett af stað keðjuverkun er leiddi til
slyssins 25. júlí sl. „Innan við einni
og hálfri mínútu eftir að hjólbarðinn
sprakk hafði vélin farist," sagði
hann.
Rannsakendur höfðu talið líklegt
að aðskotahlutur úr málmi, sem
fannst við flugbrautina, hefði gert
gat á hjólbarða og sprengt hann. En
líklegt er að gúmmístykki úr hjól-
barðanum, en ekki málmhlutur, hafl
gert gat á eldsneytistankinn. Yfir-
maður bresku flugmálastjómarinn-
ar, CAA, sagði að spmnginn hjól-
barði ætti ekki undir nokkram
kringumstæðum að geta valdið því
að flugvél færist. Ekki væri hægt að
tryggja að þetta gerðist ekki aftur,
og því hefði flughæfisskírteinið verið
ógilt.
Ekki áhyggjur
af gTÍmmii
Starfsmaður CAA sagði að hjól-
barði hefði sprungið á Concorde í 70
tilvikum síðan þotan var tekin í notk-
un 1976, og í sjö tilfellum hefði komið
gat á eldsneytistank í væng. En í
þessum sjö tilfellum hefði spranginn
hjólbarði rifið lausan málmhlut sem
fór í gegnum vænginn. Því hefði
áherslan verið lögð á málmhluti en
ekki hjólbarða. „Sérfræðingamir
hafa ekki haft miklar áhyggjur af
gúmmíi,“ sagði fulltrúi CÁÁ. Kvaðst
hann ekki vita til þess að nokkurn-
tíma hefði verið gerð tilraun með það
hvort gúmmíhlutur gæti gert gat á
væng þotunnar.
Sumir sérfræðingar hafa látið í
Ijósi efasemdir um að Concorde
muni nokkurntíma fljúga á ný, og að
BA og Air France muni fremur
leggja Concorde-flota sínum en
borga fyrir kostnaðarsamar breyt-
ingar á þotunum. En samgöngu-
málaráðherra Frakklands, Jean-
Claude Gayssot, telur engar líkur á
að svo fari. „Þeir sem segja að þetta
séu endalokin á hljóðfráu flugi hafa
rangt fyrir sér. Það verður sífellt
vinsælla að ferðast hratt.“
Flugmálasérfræðinga rekur að-
eins minni til þess að tvisvar áður
hafi flughæfisskírteini verið aftur-
kallað með þessum hætti. Bandarísk
yfirvöld bönnuðu flug Douglas
DC-10-breiðþotna tímabundið 1979,
og örlög bresku De Havilland Com-
et-farþegaþotunnar urðu hin sömu
fyrir um það bil hálfri öld.
ab-mjólk með jarðarberjum
og ab-mjólk með perum
nms"
www.ms.is
AP
Björgunarsveitir láta sig síga niður að bíl Tooters,
sem hvildi á tijágreinum rétt fyrir ofan fenja-
svæði. Á innfelldu myndinni er Tillie Tooter.
Beið í þrjá daga eftir
björgun úr fenjunum
Fort, Lauderdale. AP.
BANDARÍSKRI konu á níræðis-
aldri var á þriðjudag bjargað úr bíl
sínum en þar hafði hann setið fast-
ur í þijá daga aðeins nokkra senti-
metra fyrir ofan vatnsborð fenja-
svæðis sem er heimili bæði snáka
og krókódfla.
Það var sl. laugardag að Tilly
Tooter ók bfl sínum fram af brú á
einum af þjóðvegum Flórída. Bfll-
inn féll eina tólf metra niður og
drógu bæði trjágreinar og fenja-
gróður úr fa.UI bflsins áður en hann
loks stöðvaðist á trjágreinum
nokkra sentimetra fyrir ofan fenin.
Tooter, sem var að mestu ómeidd,
losaði sig úr bflbeltinu og kom sér
fyrir eftir þvf sem kostur gafst.
Þar beið hún síðan íþrjá daga eftir
að hjálp bærist. Úti fyrir var um 38
gráða hiti og nærðist Tooter ein-
göngu á regnvatni sem hún safnaði
í hlíf sem hafði verið utan um stýri
bflsins. Á þriðjudagsmorgun var
hún þó orðin vondauf um að sér
yrði bjargað enda vatnslítil og illa
bitin af skordýrum fenjanna. Toot-
er hafði því hafist handa við að
skrifa fjölskyldu sinni kveðjubréf
er henni var loks bjargað.
„Þessi kona sem er á níræðis-
aldri hélt fullum sönsum," sagði
Stephen Mclnerny, yfirmaður
björgunardeildar slökkviliðsins.
„Og það hefur skilið á milli lífs og
dauða.“
Björgunina á Tooter Justin
Vannelli, unglingi sem var að safna
rusli við brúna, að þakka en hann
tók eftir bfl Tooters á milli brot-
inna trjágreina. Þá hafði leit að
henni staðið yfir frá því á laugar-
dag. Hallast lögregla að því að stór
bíll hafi ekið aftan á Tooter með
þeim afleiðingum að bfll hennar
hentist út af brúnni.
AP
Rjómakveðja
MAÐUR nokkur vatt sér að Jean
Chretien, forsætisráðherra Kanada í
gær, og setti framan í hann disk full-
an af rjóma. Atvikið varð í Charlott-
etown á Prince Edward-eyju við
austurströnd Kanada þar sem for-
sætisráðherrann var í heimsókn.
Chretien tók diskinn framan úr sér
og var andlit hans þakið rjóma. Hann
virtist allt annað en ánægður og var
honum fylgt á næsta salemi þar sem
hann þvoði framan úr sér. Hann vildi
ekkert segja um atvikið. Lögreglu-
menn sem vora í fylgd með forsætis-
ráðherranum gripu árásarmanninn
sem sagðist hafa verið að mótmæla
stefnu stjórnvalda í efnahagsmálum
og niðurskurði í velferðarkerfinu.